Morgunblaðið - 18.08.1992, Page 15
, MOKGUNBIADIÐ 1S,ÁPP,^/1992
M
15
Fangelsi á Dalvík
eftir Trausta
Þorsteinsson
Ósk Dalvíkinga um að afplánun-
arfangelsi verði reist á Dalvík hefur
vakið nokkra athygli og hafa fjöl-
miðlar að undanförnu beint ljósi
sínu að þessu máli. Það þykir sjálf-
sagt fréttnæmt að lítið bæjarfélag
á landsbyggðinni skuli ætla að
sækja opinbera stofnun í greipar
höfuðborgarvaldsins. Til þessa hef-
ur umræðan fyrst og fremst snúist
um það hvaða meðferð ósk bæjaryf-
irvalda muni fá hjá ráðuneyti og
hvaða viðbrögð hún veki hjá öðrum
sveitarfélögum en minna um það
hvaða hugmyndir og rök fangelsis-
málanefnd setur fram um staðsetn-
ingu afplánunarfangelsis. Ósk Dal-
víkinga er gagnrýni á þá niðurstöðu
nefndarinnar og jafnframt krafa
um að kostir landsbyggðar séu
metnir að verðleikum við ákvörðun
um staðsetningu opinberra stofn-
ana.
í skýrslu fangelsismálanefndar
er tillaga gerð um að sameina öll
fangelsi í eina stofnun sem staðsett
skuli vera á höfuðborgarsvæðinu
en hvergi er reynt að leggja mat á
kosti staðsetningar á landsbyggð-
inni. Þó er gert ráð fyrir því að
starfrækja fangelsið á Kvíabryggju
og að Eyrbekkingar fái að hafa
Litla-Hraun áfram, líklega af því
að þeir hafa hýst það innan marka
sveitarfélagsins í ein 60 ár. Rök-
semd nefndarinnar fyrir staðsetn-
ingu fangelsis á höfuðborgarsvæð-
inu er sú að þannig verði hagræð-
ingu í rekstri best náð. í því sam-
bandi er vísað til breytinga á vakta-
fyrirkomulagi í fangelsum, rekstur
mötuneytis og að flutningur fanga
Sambyggðar
trésmíðavélar
Hjólsagir
Bandsagir
Rennibekkir
Spónsugur
Bútsagir
Laugavegi 29.
Simar 24320 — 24321 — 24322
vegna félagslegrar þjónustu við þá
hætti. Ef þetta er skoðað aðeins
nánar hlýtur hagræðingin á vakta-
fyrirkomulagi að snúast um það að
í stað þess að reka mörg lítil fang-
elsi eins og nú tíðkast á höfuðborg-
arsvæðinu séu þau sameinuð í eina
stofnun og þannig megi sameina
starfsmannahaldið og ná fram hag-
ræðingu í vöktum. Ekki verður séð
að staðsetningin sé þungamiðja í
því að ná fram þessari hagræðingu.
Hagræðingu í mötuneytismálum
vill fangelsismálanefndin ná fram
með því að flytja rekstur mötuneyt-
is inn í stofnunina og fá fangana
til að vinna sjálfa við mötuneytið,
þó hún tali jafnframt um kosti þess
að einkavæða það með því að bjóða
út rekstur þess.
Einu rökin sem nefndin færir
fyrir því að byggt verði á höfuð-
borgarsvæðinu og haldbær geta
talist, eru þau að kostnaður vegna
flutnings fanga verði minni. Þess
ber þó að geta að þær breytingar
sem nefndin gerir að tillögu sinni
á starfsemi fangelsa munu augljós-
lega leiða til þess að minni flutning-
ar þurfa að verða á föngum til og
frá fangelsi en nú er þar sem gert
er ráð fyrir aðstöðu fyrir dómara
og lögmenn innan stofnunarinnar
auk heilsugæslu og starfsfólk fang-
elsiskerfisins. Félags- og heilbrigð-
isþjónusta er víða á landsbyggð all-
góð og má i því sambandi benda á
Eyjafjarðarsvæðið því til staðfest-
ingar. Ekkert ætti að vera því til
fyrirstöðu að þessar stofnanir þjón-
ustuðu fangelsi úti á landsbyggð-
inni og fangelsisstofnun þar stað-
sett yrði enn frekar til að efla þá
þjónustu sem þegar er fyrir hendi,
almenningi til góða.
í skýrslu nefndarinnar eru fylgi-
skjöl sem sýna fram á að þrátt fyr-
ir allt eru fangelsi sem starfrækt
eru á landsbyggðinni ódýrari í
rekstri en þau sem eru á höfuðborg-
arsvæðinu. Niðurstaða nefndarinn-
ar er sú að ná megi fram hagræð-
ingu í rekstri þessara fangelsa og
ekki skal það dregið í efa. En hitt
er öllu merkilegra að þessi stað-
reynd skuli ekki kalla á það að
nefndin skoðaði betur hagkvæmni
þessara tveggja kosta, bæði hvað
varðar rekstur og það að ná fram
þeim breytingum í starfsemi fang-
elsa sem hún telur æskilegasta.
Umfjöllun fangelsisnefndar um
staðsetningu fangelsis virðist vera
gerð af mikilli vanþekkingu á þeirri
þjónustu og möguleikum sem lands-
byggðin hefur upp á að bjóða og
þeim tækifærum sem þar gefast. I
sjálfu sér er það ekkert sem þarf
að koma okkur sem úti á landi
búum á óvart. Miðstýringarveldið
Trausti Þorsteinsson
„Ef þeir meina eitthvað
með því að byggja land-
ið allt verða þeir að
færa þann fórnarkostn-
að að byggja upp opin-
berar þjónustustofnan-
ir víðar en á höfuðborg-
arsvæðinu.“
hneigist til að draga allar þjónustu-
stofnanir að fótskör sinni. I skýrslu
nefndarinnar er ekkert gert í að
leita þess hvort tillögum að breyt-
18.-28. AGUST
Frábærir barna-
„jogging" gaiiar
a aðeins kr. 2.980,-
30-70%
AFSLÁTTUR
Frábær æfinga- og
„jogging" fatnaður frá
RUSSELL
ATHL.ETIC
og
-frískandi verslun-
SKEIFUNNI 19 ■ SÍMI 681717 FAX 813064
á verulegum
haustafslætti allt að 70%
ingum á starfsemi og aðbúnaði
fanga yrði betur náð á landsbyggð-
inni en á höfuðborgarsvæðinu.
Áhersla er lögð á að föngum gefist
tækifæri til atvinnu og náms innan
fangelsis og utan. Ætla má að mjög
góð skilyrði séu til þess á lands-
byggðinni sem byggir atvinnustarf-
semi sína fyrst og fremst á fram-
leiðslugreinum en vænta má að
þátttaka fanga í atvinnu lúti fyrst'
og fremst að framleiðslustörfum.
Þá hefur uppbygging framhalds-
náms á landsbyggðinni verið með
þeim hætti að þar stendur fólki til
boða fjölbreytt nám sem ekkert
væri í vegi að fangar fengju aðgang
að með einum eða öðrum hætti.
Fyrir skömmu var greint frá því
í fréttum að forsætisráðherra hefði
skipað nefnd til að gera athugun á
möguleikum þess að flytja opinber-
ar stofnanir og fyrirtæki út á land.
Á hátíðis- og tyllidögum verður
stjórnmálamönnum tíðrætt um mik-
ilvægi þess að landinu öllu sé haid-
ið í byggð. Því miður hafa þeir of
oft látið blindast af áráttu miðstýr-
ingarveldisins. Ef þeir meina eitt-
hvað með því að byggja landið allt
verða þeir að færa þann fórnar-
kostnað að byggja upp opinberar
þjónustustofnanir víðar en á höfuð-
borgarsvæðinu. Staðsetning afplán-
unarfangelsins getur orðið talandi
vottur um skilning ráðherra á mikil-
vægi þessa máls.
Höfundur er forseti bæjarstjórnar
Dalvíkur.
TT T « : n T H
OA PAO/ w m ■. -f.i'j 9 JE bHh JU Æmm . » hummel ^ _
20-50% afslal ÍUr SPORTBUÐIN “ Ármúla 40. sími 813555 ML