Morgunblaðið - 18.08.1992, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 1992
23
Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, brá ekki út af vana sínum í opinberum heimsóknum um landið,
og gróðursetti þrjú tré í Njarðvík, með aðstoð barnanna í leikskólanum Holti.
Hálfar aldar afmælis Njarðvíkur minnst:
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Á afmælishátíð Njarðvíkur var forseta Islands og öðrum úr hópi
hinna 1.100 gesta boðið að gæða sér á 7 fermetra stórri tertu.
skólanum sýndu dansa undir stjórn
Nielsar Söring. Að lokum var flutt
lagið Njarðvík eftir Gunnar Þórðar-
son sem sérstaklega var samið fyrir
þetta tækifæri og á eftir var öllum
boðið upp á heljarstóra ijóma- og
marsipantertu. Tertan var liðlega 7
fermetarar og sá Valgeir Þorláksson
bakarameistari um baksturinn. Hann
sagði að 3 bakarar hefðu séð um
baksturinn sem hefði með undirbún-
ingi tekið um 35 tíma. I tertuna
hefðu farið 70 lítrar af tjórna, 310
egg og 40 kíló af marsipani.
Aldraðir sóttir heim
Næst lá leið forsetans í íbúðir aldr-
aðra við Ólafslund þar sem hún gaf
sér góðan tíma til að ræða við aldr-
aða Njarðvíkinga. Þaðan var haldið
í Barnalund leikskólans Gimli þar
sem forsetinn gróðursetti tré með
hjálp bama. Síðan lá leiðin í skrúð-
garðinn þar sem Kvenfélag Njarðvík-
ur og Lionsklúbbur Njarðvíkur buðu
forsetanum, gestum og bæjarbúum
til grillveislu. Þar voru samankomnir
á annað þúsund manns og þar var
lagið tekið undir stjórn Guðmundar
„Bróa“ Sigurðssonar íþróttakennara.
Síðasta verk forsetans var síðan að
gróðursetja tijáplöntur í Sólbrekku-
skógi þar sem kveðjustundin fór fram
en áður hafði Axel Jónson veitinga-
maður borið fram heitt súkkulaði og
ijómapönnukökur. Sólveig Þórðar-
dóttir forseti bæjarstjórnar þakkaði
heimsóknina fyrir hönd bæjarins og
forsetinn þakkaði fyrir ógleymanleg-
ar stundir.
„Heimsóknin tókst frábærlega vel
frá upphafi til enda og ég get fullyrt
að allir hafi verið mjög ánægðir
hvemig til tókst,“ sagði Kristján
Pálsson bæjarstjóri.
-BB
Fjölmenn hátíðarhöld með
þátttöku forseta Islands
Njarðvík.
„ÞESSI dagur hefur verið ákaflega ánægjulegur og við sem komum
frá Bessastöðum höfum átt ógleymanlegar stundir með ykkur,“ sagði
forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, þegar hún kvaddi Njarðvík-
inga í Sólbrekkuskógi á laugardaginn eftir eins dags opinbera heim-
sókn. Njarðvíkingar halda þessa dagana sumarhátíð í tilefni þess að í
ár eru liðin 50 ár frá því að Njarðvík varð sjálfstætt sveitarfélag og
var heimsókn forseta Islands fyrsti liður dagskrárinnar sem standa
mun alla vikuna.
Heimsókn forsetans hófst við leið-
sögumerkið á Fitjum þar sem Sól-
veig Þórðardóttir, forseti bæjar-
stjómar, Kristján Pálsson, bæjar-
stjóri, bæjarstjóm og ráðamenn bæj-
arins tóku á móti forsetanum og
fylgdarmanni hennar, Sigríði Hrafn-
hildi Jónsdóttur, deildarsérfræðingi.
Við Fitjar var fjöldi Njarðvíkinga
ásamt gestum samankominn og að
loknum leik Lúðrasveitar undir stjórn
Haraldar Árna Haraldssonar var
haldið til kirkjunnar í Ytri-Njarðvík
og hlýtt á messu séra Baldurs Rafns
Sigurðssonar.
Bæjarstjórnarfundur í fornu
höfuðbóli
Að messunni lokinni var haldið til
Innri-Njarðvíkur þar sem byggðar-
safnið er staðsett, það heitir Innri-
Njarðvík og var höfuðból í aldir.
Húsið komst í eigu bæjarins árið
1974 en þá hafði sama ætt búið þar
í 308 ár. Á dagskrá var hátíðarfund-
ur bæjarstjómar með forsetanum þar
sem tvö mál voru á dagskrá, ákvörð-
un um byggingu skólahúsnæðis í
Innri-Njarðvík og uppbyggingu
Stekkjakots á Fitjum, síðasta torf-
bæjarins í byggð í Njarðvík ásamt
vatnsbóli og vör. Því næst var hádeg-
isverðarboð í safnaðarheimilinu í
Innri-Njarðvík í boði bæjarstjómar.
Á matseðlinum var blómkálssúpa,
steiktur silungur ásamt spínatsósu
og með kaffinu var borin fram ostas-
kjóða. Veisluna sátu 50 manns sem
var í umsjá systrafélagsins í hverf-
inu. Að loknum hádegisverði skoðaði
forsetinn kirkjuna sem er rösklega
aldargömul, smíðuð úr steini og þyk-
ir ákaflega faileg. Frá kirkjunni var
haldið í leikskólann Holt þar sem
forsetinn og börnin hjálpuðust að við
að gróðursetja hinar þijár hefðbundu
plöntur.
Minnisvarði afhjúpaður
Frá Innri-Njarðvík var síðan hald-
ið að ráðhúsinu þar sem forsetinn
afhjúpaði minnisvarða um endurreisn
Njarðvíkurhrepps og fyrstu hrepps-
nefnd hans. Við það tækifæri flutti
Karvel Ögmundsson, heiðursborgari
Njarðvíkur, ræðu en hann og Bjarni
Einarsson eru nú einu eftirlifandi
mennirnir úr fyrstu hreppsnefndinni.
Minnisvarðann gerði Áki Gránz lista-
maður í Njarðvík og var hann að
öllu leyti smíðaður í Njarðvík. Frá
ráðhúsinu var haldið í Gmnnskóla
Njarðvíkur þar sem forsetinn opnaði
ljósmynda-, málverka- og sögusýn-
Bogadóttur, kirkjukór Ytri- og Innri-
Njarðvíkurkirkju söng undir stjórn
Gróu Hreinsdóttur og Steinars Guð-
mundssonar og félagar úr Nýja dans-
ingu þar sem 21 listamaður sýnir
verk sín og verður sýningin opin alla
vikuna. Þá tók við hátíðarsamkoma
í íþróttamiðstöðinni þar sem um 1100
manns voru samankomin. Þar vom
m.a. gesta þingmenn Reyknesinga
og gestir frá vinabæjum Njarðvík-
inga, Fitjum í Noregi og Pandmp í
Danmörku. Við þetta tækifæri af-
henti fyrrum alheimsfegurðardrottn-
ing og Njarðvíkingurinn Guðrún
Bjarnadóttir forsetanum gjöf frá
bæjarbúum sem var merki bæjarins,
en Guðrún er dóttir Bjarna Einars-
sonar fyrmm hreppsnefndarmanns
og fædd sama árið og Njarðvíkur-
hreppur var endurreistur. Guðrún
kom ásamt syni sínum, Sigmari, sem
er 21. árs og er að ljúka herþjónustu
úr franska hernum. Guðrún sagði í
samtali við Morgunblaðið að Njarð-
vík hefði mikið breyst frá því sem
var þegar hún var að alast upp og
greinilegt að hugarfarsbreyting hefði
orðið hjá fólki varðandi umhverfi
híbýla sinna.
Sjö fermetra afmælisterta
Sólveig Þórðardóttir forseti bæj-
arstjórnar og forseti íslands ávörp-
uðu gesti og Njarðvíkingum barst
fjölda gjafa frá nágrannabæjum sín-
um á Suðurnesjum. Á hátiðarsamko-
munni skemmtu listamenn úr Njarð-
vík. Söngvararnir Guðmundur Sig-
urðsson og Helgi Maronsson sungu
dúett við undirleik Geirþrúðar F.