Morgunblaðið - 27.08.1992, Qupperneq 1
56 SIÐUR B/C
193. tbl. 80. árg.
FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1992
Prentsmiðja Morgunblaðsins
A
Flugbann sett á Iraka sunnan 32. breiddargráðu í dag
Hóta að skjóta á
íraskar vélar sem
skýrði frá því að Saddam Hussein
íraksforseti hefði sent hersveitir til
suðurhluta landsins.
fara á bannsvæðið
Washington, Sameinuðu þjóðunum, Bagdad. Reuter.
GEORGE Bush Bandaríkjaforseti tilkynnti í gær að bandarískum
herþotum yrði beitt til að framfylgja banni við flugi íraskra flug-
véla yfir suðurhluta íraks. Bannið tekur gildi kl. 14.15 að ísl. tíma
í dag og írakar voru í gær varaðir við því að skotið yrði á flugvél-
ar þeirra ef þær færu suður fyrir 32. breiddargráðu.
„Bandaríkjamenn og banda-
menn þeirra hafa í dag greint stjórn
íraks frá því að flugvélar okkar
hefja, að sólarhring liðnum, eftir-
litsflug í suðurhluta íraks, sunnan
32. gráðu norðlægrar breiddar, til
að fylgjast með ástandinu þar,“
sagði Bush og bætti við að öllum
íröskum flugvélum og þyrlum yrði
bannað að fljúga yfir svæðið. For-
setinn sagði að gripið hefði verið
til þessara aðgerða vegna
„grimmdarverka" íraka gegn shít-
um í suðurhluta íraks, þar á meðal
loftárása á saklausa borgara.
Fyrr um daginn afhentu fulltrúar
Bandaríkjanna, Bretlands, Frakk-
lands og Rússlands sendiherra ír-
aks hjá Sameinuðu þjóðunum við-
vörun um að skotið yrði á flugvélar
sem færu á bannsvæðið. Breska
stjórnin tilkynnti að hún væri að
senda herþotur af gerðinni Tornado
til Persaflóa.
Stjórnin í Bagdad hótaði að vísa
starfsmönnum Sameinuðu þjóð-
anna frá írak ef skotið yrði á írask-
ar flugvélar. Málgagn Ba’ath-
flokksins í írak, a/ Thawra, sagði
að „hinir hugprúðu hermenn íraks“
væru „fullkomlega undir það búnir
að mæta óvininum og hrinda árás-
um þessara heimsvaldasinna og
zíonista". Hreyfing íraskra shíta
Tékkóslóvakía:
Sambands-
ríkið lagl
niðurum
áramótin
Brno. Reuter.
Tékkóslóvakía verður lögð
niður sem riki um næstu ára-
mót, að því er Vladimir Mec-
iar, forsætisráðherra Slóvak-
íu, sagði í gær.
„Við göngum út frá því að
sambandsríkið Tékkóslóvakía
heyri sögunni til frá 1. janúar
1993,“ sagði Meciar þegar hlé
var gert á samningaviðræðum
hans og Vaclavs Klaus, forsæt-
isráðherra tékkneska lýðveldis-
ins. „Það er engin ástæða til
að halda í núverandi skipan,"
bætti hann við.
Brasilía
Þingnefnd sakar
Collor um spillingn
Brasilíu. Reuter.
BRASILISK þingnefnd samþykkti í gær með miklum meirihluta at-
kvæða skýrslu þar sem því er haldið fram að Fernando Collor de
Mello, forseti Brasilíu, hafi gerst sekur um valdníðslu og mútu-
þægni. Samkvæmt stjórnarskrá landsins verður skýrslan nú send til
ríkissaksóknara, er tekur ákvörðun um hvort sækja beri forsetann
og fleiri sem eru viðriðnir málið til saka. Þingið þarf ekki að greiða
atkvæði um skýrsluna.
Búist hafði verið við að þing-
nefndin samþykkti skýrsluna en það
kom mjög á óvart hversu mikinn
stuðning hún fékk. 16 nefndarmenn
greiddu atkvæði með skýrslunni og
aðeins fímm á móti. Nokkrir stjórn-
arþingmenn ákváðu á síðustu
stundu að gjalda jákvæði við henni
eftir stormasamar umræður.
Hundruð ungra stjórnarandstæð-
inga efndu til mótmæla við þinghús-
ið í höfuðborginni, Brasilíu, og
kröfðust afsagnar forsetans.
Nokkrir stjómarþingmenn lögðu
hins vegar fram greinargerð í þing-
inu þar sem reynt er að færa sönn-
ur á sakleysi Collors.
í skýrslu þingnefndarinnar segir
að fyrrverandi gjaldkeri kosninga-
baráttu Collors hafí skipulagt fjár-
drátt úr opinberum sjóðum og þeg-
ið mútur af einstaklingum og fyrir-
tækjum. Hann hafí þannig komist
yfir milljónir dala, sem forsetinn
hafi notað ásamt skyldmennum sín-
um og samstarfsmönnum.
Ráðherrar í stjórn Brasilíu undir-
rituðu að eigin frumkvæði í fyrra-
kvöld yfirlýsingu þar sem þeir lofa
að segja ekki af sér og halda stjóm-
inni gangandi um sinn. Celio Boija
dómsmálaráðherra lagði þó áherslu
á að ekki bæri að líta á yfirlýsing-
una sem stuðning við forsetann.
Reuter
Heræfing í Persaflóa
Æfingar fóru fram í bandaríska flugmóðurskipinu Independent í Persaflóa
í gær er George Bush Bandaríkjaforseti tilkynnti að íröskum flugvélum
yrði bannað að fljúga yfír suðurhluta íraks frá kl. 14.15 í dag. Independ-
ent mun gegna lykilhlutverki í því að framfylgja banninu.
Norræn trygg-
ingafélög í vanda
UNIStore-
brand fær
greiðslu-
stöðvun
UNI Storebrand, stærsta trygg-
ingafélag Noregs, hefur fengið
greiðslustöðvun þar sem það
getur ekki greitt afborganir og
vexti af skammtímaskuldum
sínum, að sögn danska dag-
blaðsins Bersen.
UNI Storebrand hafði ásamt
Hafnia, öðru stærsta tryggingafé-
lagi Danmerkur, keypt 42% hlut í
sænska tryggingafélaginu Skand-
ia, því stærsta á Norðurlöndum.
Þannig átti að koma á fót samiior-
rænni fjármálasamsteypu sem
gæti keppt á fijálsum trygginga-
markaði í Evrópu. Hlutabréf Skan-
dia hafa hins vegar lækkað mjög
í verði að undanförnu og kaupin
reyndust báðum tryggingafélögun-
um ofviða, því Hafnia sótti einnig
um greiðslustöðvun nýlega. UNI
Storebrand varð að fara' að dæmi
Hafnia þar sem ljóst var að félag-
ið hafði tapað öllu eiginfé sínu.
Sjá „Stórveldisdraumarn-
ir ...“ á bls. B7.
Ráðstefnan um fríð í fyrrverandi lýðveldum Júgóslavíu
Hóta Serbum harð-
ari refsiaðgerðum
Lundúnum. Saraipvo. Rout.or.
Lundúnum, Sarajevo. Reuter.
LEIÐTOGAR Evrópuríkja hótuðu Serbum harðari refsiaðgerðum og
aukinni einangrun á ráðstefnu um frið í fyrrverandi lýðveldum Júgó-
slavíu sem hófst í Lundúnum í gær.
John Major, forsætisráðherra
Bretlands, sem stjórnar ráðstefnunni
ásamt Boutros Boutros-Ghali, fram-
kvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna,
hótaði hinum stríðandi fylkingum í
Bosníu-Herzegovínu „vægðarlaus-
um“ refsiaðgerðum ef þær stæðu í
vegi fyrir friðarsamkomujagi. „Engin
viðskipti. Engin aðstoð. Engin alþjóð-
leg viðurkenning. Efnahagsleg,
menningarleg og pólitísk einangr-
un,“ sagði Major að biði þeirra sem
ekki yrðu samvinnuþýðir og gaf til
kynna að hann beindi orðum sínum
Reuter
Fórnarlömbunum fjölgar
Aldraður Bosníumaður, sem varð fyrir skoti leyniskyttu, er hér borinn inn
í sjúkrahús í Sarajevo. 28 manns biðu bana og 127 særðust í árásum Serba
á bosnísku höfuðborgina í fyrradag og ekkert lát var á stríðshörmungun-
um í gær.
einkum að Serbíu og Svartfjallalandi.
Klaus Kinkel, utanríkisráðherra
Þýskalands, fór hörðum orðum um
stjórnvöld í Serbíu og sagði að bar-
átta þeirra fyrir Stór-Serbíu væri
undirrót stríðshörmunganna í Bosn-
íu. „Hér er um þjóðarmorð að ræða,“
sagði hann.
Major sagði að Vesturlönd myndu
ekki ljá máls á því að landsvæði i
Bosníu yrðu innlimuð í Serbíu og
Króatíu og Douglas Hurd, utanríkis-
ráðherra Bretlands, lagði áherslu á
að Serbar fengju ekki að halda svæð-
um sem þeir hafa náð á sitt vald.
Breskir embættismenn sögðu að
Evrópubandalagið vildi að stofnaðar
yrðu kantónur í Bosníu, líkt og í
Sviss, þar sem múslimum, Serbum
og Króötum yrðu tryggð full lýðrétt-
indi.
Embættismenn Evrópubandalags-
ins sögðu að Boutros-Ghali myndi
kynna áætlun um aukna hernaðarað-
stoð til að tryggja að hægt yrði að
koma matvælum til nauðstaddra
Bosníumanna. Gert væri ráð fyrir
að senda þyrfti nokkur þúsund her-
manna til landsins.
A meðan stjómmálamennirnir
réðu ráðum sínum í Lundúnum héldu
Serbar áfram árásum sínum á
Sarajevo. Að minnsta kosti 28 manns
biðu bana í borginni í fyrradag og
ekkert lát var á blóðsúthellingunum
í gær.