Morgunblaðið - 27.08.1992, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1992
27
Ráðstefna um
notkun vél-
arrúmsherma
NORRÆN ráðstefna um notkun
vélarrúmsherma hefur staðið
yfir í Verkmenntaskólanum á
Akureyri frá því á sunnudag,
en henni lýkur í dag, þriðjudag.
Um 40 manns taka þátt í ráð-
stefnunni, þar af 8 íslendingar.
Brynjar Ingi Skaptason kennslu-
stjóri tæknisviðs Verkmenntaskól-
ans á Akureyri sagði að ráðstefnan
væri nú í fyrsta sinn haldin á ís-
landi, en þetta er í sjöunda sinn
sem haldin er ráðstefna um notkun
vélarrúmsherma með þátttöku vél-
fræðinga og vélstjórnarmanna af
öllum Norðurlöndunum. „Menn
bera hér saman bækur sínar, við
heyrum af reynslu annarra varð-
andi notkun vélarrúmsherma í
kennslu og af helstu nýjungum
sem á döfinni eru,“ sagði Brynjar.
Hann sagði tvær kenningar í
gangi varðandi notkun vélarrúms-
hérma, annars vegar að slíkir
hermar muni í framtíðinni algjör-
lega koma í stað véla við kennslu,
en Svíar héldu þessari kenningu
fram, og hins vegar sú að hvort
tveggja þurfi til, vélar og vélar-
rúmsherma, og væru Danir og ís-
lendingar m.a. inni á þeirri skoðun.
Ráðstefnan hófst á sunnudag
og þá voru haldnir fyrirlestrar
m.a. um reynslu af notkun vélar-
rúmsherma og í gær, mánudag,
voru tækninýjungar kynntar. Þá
fóru ráðstefnugestir í skoðunarferð
að Mývatni og einnig var á dag-
skrá skoðunarferð um Akureyri,
en ráðstefnunni lýkur í dag, þriðju-
dag, með kvöldverði að Hótel KEA
í boði Vélstjórafélags íslands og
bæjarstjórnar Akureyrar.
Svarfaðardalur
Hátíðar-
messa í Tjam-
arkirkju
Biskup Islands end-
urvígir kirkjuna
HÁTÍÐARMESSA verður í
Tjarnarkirkju í Svarfaðardal
næstkomandi sunnudag, 30.
ágúst, kl. 14, þar sem þess
verður minnst að á þessu ári
eru liðin 100 ár frá því kirkj-
an var vígð. Biskup íslands,
herra Ólafur Skúlason, mun
predika við messuna og end-
urvígja kirkjuna, en mikil við-
gerð hefur farið fram í sumar
og m.a. var skipt um alla
burðarbita í kirkjunni.
í tilefni af aldarafmæli kirkj-
unnar verður gefínn út myndar-
legur bæklingur prýddur mynd-
um, en í honum er m.a. ávarp
biskups og greinar um sögu
kirkju og staðar, um þá presta
sem þjónað hafa kirkjunni síð-
ustu aldir og um byggingu
Tjarnarkirkju og þær endurbæt-
ur sem gerðar voru á henni í
sumar. Andvirði bæklingsins
verður notað til að greiða niður
þær miklu skuldir sem hvíla á
söfnuðinum vegna framkvæmd-
anna.
Allir eru velkomnir að Tjörn
í Svarfaðardal á sunnudaginn
að taka þátt í hátíðarmessunni,
en eftir messu verður boðið upp
á hátíðarkaffi í Húsabakka-
skóla. Þeir sem ekki komast inn
í kirkjuna geta hlustað á mess-
una utan við kirkjuna eða í rút-
um sem komið verður fyrir hjá
kirkjunni.
(Fréttatilkynning)
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Börnin frædd um umferðina
Undanfarið hefur staðið yfir umferðarfræðsla 5 og
6 ára barna í skólum á Akureyri og hafa umferðarná-
mskeiðin verið vel sótt. Þessi mynd var tekin í Odd-
eyrarskólanum í gær og ekki er annað að sjá en
þessir nemendur verði til fyrirmyndar í umferðinni
því áhuginn á námsefninu leynir sér ekki.
JC ísland
Námskeið
og fundur í
Þelamörk
2. framkvæmdasljórnarfund-
ur Junior Chamber íslands
verður haldinn á Hótel Eddu,
Þelamörk, næstkomandi sunnu-
dag, 30. ágúst, í umsjón JC
Akureyrar.
Á fundinum verða kynntar og
ræddar þær miklu skipulagsbreyt-
ingar er samþykktar voru á síðasta
landsþingi JC-hreyfingarinnar sem
haldið var í Keflavík í vor.
Jafnframt verða haldin nám-
skeið fyrir stjómarmenn aðildarfé-
laga JC íslands. Þau hefjast kl. 9
á laugardagsmorgun, 29. ágúst.
Sérstakir leiðbeinendur verða Gyða
Haraldsdóttir sálfræðingur og
Kristján Kristjánsson heimspek-
ingur.
Námskeiðin og fundurinn eru
opin öllum fyrrverandi, núverandi
og tilvonandi JC-félögum.
(Fréttatilkynning)
Útgerðarfélag Akureyringa
Hagnaður var 106,7 millj-
ónir á fyrri helmingi ársins
GREIÐSLA á inneign Útgerðarfélags Akureyringa í Verðjöfnunar-
sjóði sjávarútvegsins sem kom til útborgunar á árinu styrkti mjög
stöðu félagsins og gerir að verkum að hagnaður þess á fyrri helm-
ingi ársins nemur 106,7 milljónum króna, en var 47,4 milljónir króna
árið á undan. Hagnaður af reglulegri starfsemi ÚA á fyrstu sex
mánuðum ársins var um 24 milljónir króna samanborið við 74,8
milljónir króna fyrir sama tímabil liðins árs. Rekstrarafkoma fyrir-
tækisins er lakari en árið á undan, enda eru aflaskerðingar síðustu
ára að segja til sín. Afli hefur dregist mjög saman og tilkostnaður
við veiðarnar er mun meiri en var. Á síðustu fjórum árum hefur
ÚA varið rúmum 900 milljónum króna til kaupa á skipum og afia-
heimildum, en úthlutaður kvóti til félagsins nemur á næsta fiskveiði-
ári um 20.200 tonnum sem er svipað og félagið hafði árið 1988.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Björgúlfur Jóhannesson fjármálastjóri, Gunnar Ragnars og Sverrir
Leósson sljórnarformaður kynntu afkomu Útgerðarfélags Akur-
eyringa fyrri hluta ársins á fundi í gær.
Gunnar Ragnars, forstjóri Út-
gerðarfélags Akureyringa, sagði er
hann kynnti afkomu félagsins á
fyrri hluta árs á blaðamannafundi
í gær að hún endurspeglaði stöðu
sjávarútvegsins um þessar mundir,
samdrátt í veiðum og kvótaniður-
skurð, en á sama tíma hefði kostn-
aður aukist mjög. Til að mæta sam-
drætti hefði félagið keypt skip og
aflaheimildir sem aftur hefði leitt
til þess að fjármagns- og afskriftar-
kostnaður hefði stóraukist. Á síð-
ustu fjórum árum hefur félagið íjár-
fest fyrir rúmar 900 milljónir króna
í kaup á skipum og varanlegum
aflaheimildum. Úthlutaðar afla-
heimildir félagsins fyrir næsta físk-
veiðiár eru um 20.200 tonn, en árið
1988 hafði félagið til ráðstöfunar
rúmlega 20.600 tonna kvóta.
Gunnar sagði minnkun afla valda
mönnum miklum áhyggjum, en
hann hefði minnkað um 25% á síð-
ustu fjórum árum og verðmæta-
minnkunin væri jafnvel enn meiri.
Gera mætti ráð fyrir að fiskimiðin
væru nú um 25% verðminni en þau
voru fyrir Qórum árum.
Heildartekjur ÚA á fyrri helm-
ingi ársins nema 1.187,7 milljónum
króna á móti 1.214,8 á sama tíma-
bili í fyrra. Rekstrargjöld námu
950,9 milljónum í ár en voru 983,9
milljónir í fyrra, þannig að rekstrar-
tekjur hafa minnkað um 2,25, en
rekstrargjöld um 3,4%. Afskriftir
eru nú meiri en áður, hækka úr
110.6 milljónum króna á sl. ári
145,2 milljónir króna og fjármagns-
kostnaður hækkar úr 44,5 milljón-
um króna í 68 milljónir, sem stafar
af miklum fjárfestingum í skipum
og aflaheimildum.
Hagnaður af reglulegri starfsemi
félagsins á fyrstu sex mánuðum
ársins var um 24 milljónir króna
samanborið við 74,8 milljónir á
sama tíma í fyrra. Liðirnir aðrar
tekjur og gjöld hafa breytst veru-
lega milli ára, en þeir voru neikvæð-
ir um 17,6 milljónir í fyrra en eru
nú jákvæðir um 88,4 milljónir.
Munar þar mestu að ákveðið var
að greiða út inneignir í Verðjöfnun-
arsjóði sjávarútvegsins og fékk ÚA
þannig 92,8 milljónir króna upphæð
sem færð var til tekna á þessu tíma-
bili. Hagnaður tímabilsins var því
106.7 milljónir króna á móti 47,4
milljónum á sl. ár. Þrátt fyrir þetta
er ljóst að rekstrarafkoman sjálf
er lakari en árið áður, þar sem veru-
legar fjárhæðir hefur þurft til að
halda veiðiheimildum í horfínu, sem
aftur hefur leitt til aukinna af-
skrifta og fjármagnskostnaðar.
Samtök afurðastöðva í mjólkuriðnaði
Engar ákvarðanir teknar sem
heimila bændum að geyma mjólk
SAMTÖK afurðastöðva í mjólk-
uriðnaði hafa ekki gefið út sér-
stakar heimildir varðandi inn-
lögn á mjólk nú við lok fram-
leiðsluársins.
í frétt blaðsins í gær sagði að SAM
hefði heimilað mjólkurframleiðend-
um að safna saman mjólk frá og
með miðvikudegi og að sú mjólk
yrði sótt til bænda á laugardag.
Það er rangt eins og fram kemur
í orðsendingu formanns SAM til
mjólkurframleiðenda og biðst
Morgunbláðið vélvirðingar á þessari
rangfærslu.
í tilkynningu frá Upplýsinga-
þjónustu landbúnaðarins segir að á
undanförnum árum hafi mjólkur-
framleiðendum verið heimilað að
færa allt að 5% af fullvirðisrétti
sínum á milli verðlagsára, þ.e.
geyma eða nýta fyrirfram. Með
þessum hætti hafi verið unnt að
jafna út sveiflur í mjólkurfram-
leiðslu og nýta framleiðslugetu
bænda í kringum verðlagsáramót.
„Það er ekki unnt í ár sökum nýs
samnings milli Stéttarsambands
bænda og stjórnvalda um mjólkur-
framleiðsluna, sem gengur í gildl
1. september nk. Samkvæmt samn-
ingnum fellur verðábyrgð ríkissjóðs
niður og framleiðsla og birgðir
mjólkurvara verða frá 1. september
á ábyrgð framleiðenda og afurða-
stöðva. Þessar kerfisbreytingar
hafa því miður haft það í för með
sér að þeir mjólkutframleiðendur
sem búnir eru með sinn fullvirðis-
rétt (kvótann) verða um stundar-
sakir í vandræðum með umfram-
mjólkina og hinir sem ekki hafa
fullnýtt sinn framleiðslurétt geta
ekki geymt ónýttan framleiðslurétt
til næsta árs,“ segir í tilkynningu
frá Upplýsingaþjónustu iandbúnað-
arins.