Morgunblaðið - 27.08.1992, Blaðsíða 40
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. AGUST 1992
Miðvestur-Evrópumótið:
Þjóðverjar einráðir í
fjarveru Norðurlandabúa
Hestar
Valdimar Kristinsson
AÐ LEIKSLOKUM þarf ekki
að spyrja þegar Þjóðverjar
senda sína sterkustu hesta og
keppendur á alþjóðleg mót og
margir öflugustu mótherjarnir
eru fjarverandi; lunginn af verð-
laununum fellur þeim í skaut.
Sú varð niðurstaðan á Miðvest-
ur-Evrópumótinu sem haldið
var í Spaarnwoude í Hollandi á
dögunum og sagt var frá í frett-
um Morgunblaðsins.
Svo óheppilega vildi til að sömu
helgina var haldið Norðurlandamót
í hestaíþróttum sem gerði það t.d.
að verkum að flestir Islendingamir
sem búa og starfa í Evrópu mættu
ekki á mótið og svo gilti um aðra
Norðurlandabúa. Nokkrir íslend-
ingar voru þó á meðal keppenda
og má þar nefna Ragnar Hinriks-
son sem starfað hefur á vegum
Edda-hesta í Þýskalandi, Kristján
Birgisson sem starfar í Englandi á
vegum sömu aðila, Hallgrím
„Kóng“ Jóhannesson sem nú er
búsettur í Englandi og giftur þýsk-
um dýralækni, Höskuld Aðalsteins-
son sem er búsettur í Austurríki
en hann keppti fyrir hönd Austur-
ríkis á mótinu, Heiðar Hafdal sem
er búsettur í Hollandi, Birgi Gunn-
arsson búsettur í Þýskalandi og
Rúnu Einarsdóttur sem nú er bú-
sett í Þýskalandi.
Góð þátttaka var í mótinu sem
hófst á föstudegi og lauk síðdegis
á sunnudag. Sýningarnar voru
ærið misjafnar að gæðum þó topp-
amir hafí verið býsna góðir. Reynd-
ar var með ólíkindum hversu vel
margir hestamir komu fyrir því á
afleitum völlunum sem vom mjög
erfiðir yfírferðar og tímar í skeiðinu
hreint ótrúlegir ef mið er tekið af
aðstæðum.
Efsti hestur í B-úrslitum
á möguleika á sigri
Keppt var eftir reglum Evrópu-
sambands íslenskra hestaeigenda,
einkunnaskalinn frá 0-10, frjáls
röðun gangtegunda í fjór- og fímm-
gangi. Til stóð að taka þennan
skala upp hérlendis í vor en af því
varð ekki en verður væntanlega
gert á næsta ári. í úrslitum hring-
vallagreina var nýtt fyrirkomulag
þar sem efsti keppandi í B-úrslitum
vann sér keppnisrétt í A-úrsIitum
og átti þannig möguleika á sigri.
Þetta fyrirkomulag býður upp á
mikla spennu í B-úrslitum, keppni
sem engu máli skipti áður. Gott
dæmi um þetta er þegar Herbert
„Kóki“ Ólason hafnaði í niunda
sæti á hryssunni Blekkingu frá
Miðsitju á Þýska meistaramótinu á
dögunum, vann svo B-úrslitin og
ávann sér keppnisrétt í A-úrslitum
og gerði ser lítið fyrir og vann
þýska meistaratitilinn. Allir þeir
keppendur sem unnu sér keppnis-
rétt í A-úrslitum unnu sig upp í
fjórða eða fimmta sæti. Yæri at-
hugandi fyrir íslendinga að skoða
þetta fyrirkomuiag nánar.
Mótsbragurinn á hollenska mót-
inu var hinn besti, að vísu voru
menn óánægðir með vellina en
heldur löguðust þeir er leið á mótið
enda stöðugt verið að jafna og
valta. Tímasetningar stóðust ekki
nógu vel af þeim sökum. Veður var
eiginlega of gott; hitinn fór upp í
37 gráður á sunnudeginum en til
allrar hamingju fylgdi nokkur vind-
ur með þannig að ástandið var
bærilegra en ella hefði ofðið. Var
hreint ótrúlegt hversu vel hestamir
báru sig í þessum hita.
Framhald á
Miðvestur-Evrópumótinu
Hollendingar gera sér vonir um
að framháld verði á þessu móti en
upphaflegur tilgangur þess var að
prufukeyra mótssvæðið og mann-
skapinn sem kemurtil með að vinna
við heimsmeistarmótið sem haldið
Rúnu Einarsdóttur gekk ágætlega á mótinu, hér situr hún Feyki
í tölti T 1:1 og notast við beislabúnað sem kallast Pellam, sam-
bland af stöngum og hringjum. Við þetta eru notaðir tveir taum-
ar og nýtur þessi búnaður nokkurra vinsælda þar ytra.
Höskuldur Aðalsteinsson sigraði í fimmgangi á Tvisti frá Smá-
hömrum.
Claas Ditulh sigraði í skeiðinu á Trausta frá Hall.
verður á þessum stað að ári liðnu.
Hugsa þeir sér að þetta mót verði
haldið þau ár sem ekki eru haldin
heimsmeistaramót og virðist sú
hugmynd nokkuð góð ef hugað er
að því að þau beri ekki upp á sömu
helgina og Norðurlandamótin.
Urslit urðu annars sem hér segir:
Tölt:
1. Bemd Vith, Þýskalandi, á Röðli
frá Gut Ellenbach, 7,63. 2. Jolly
Schrenk, Þýskalandi, á Ófeigi,
7,46. 3. Rúna Einarsdóttir, íslandi,
á Djöfli, 6,50. 4.-5. Eve Barmettl-
er, Sviss, á Trölla, 6,46. 4.-5. Walt-
er Feldmann jr., Þýskalandi, á
Sörla frá Norðtungu, 6,46. 6. Jo-
hánnes Hoyos, Austurríki, á Frama
frá Kálfagerði, 6,21.
Fjórgangur:
1. Jolly Schrenk, Þýskalandi, á
Ófeigi, 7,07. 2. Bernd Vith, Þýska-
landi, á Röðli frá Gut Ellenbach,
6,93. 3. Þýskalandi, á Jarli frá
Aegidienberg, 6,23. 4.-5. Carla van
Nunen, Hollandi, á Byr frá Schloss
Neubronn, 6,10. '4.-5. Uli Reber,
Þýskalandi, á Hannibal frá Skálpa-
stöðum, 6,10. 6. Walter Feldmann
jr., Þýskalandi, á Leiftra frá Mar-
bæli, 5,80.
Fimmgangur:
1. Höskuldur Aðalsteinsson, Aust-
urríki, á Tvisti frá Smáhömrum,
6,19. 2. Walter Feldmann jr.,
Þýskalandi, á Skorra frá Efri-Brú,
6,12. 3. Jolly Schrenk, Þýskalandi,
á Kviku, 5,83. 4. Helmut Lange,
Þýskalandi, á Skegg frá Fuglssang,
5,81. 5. Johannes Hoyos, Austur-
ríki, á Val frá Njálsstöðum, 5,50.
6. Karly Zingsheim, Þýskalandi, á
Fylki, 4,48.
Tölt T 1:1:
1. Gerrit Schurle, Austurríki, á
Kórak frá Neðri-Ási, 6,90. 2. Birg-
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
í mótslok fengu keppendur litskrúðugar rósettur sem Maaike
Burggrafer færði þeim á tveimur hvítum fákum.
Bernd Vith og Röður frá Gut Ellenbach voru í feikna stuði í úr-
slitum töltsins og sigruðu þar örugglega.
Komma frá Rifkelsstöðum sem Kristján Birgisson kom með frá
Englandi stóð efst kynbótahryssa sem mættu fyrir dóm.
ir Gunnarsson, íslandi, á Eik, 6,80.
3. Jolly Schrenk, Þýskalandi, á
Kviku, 6,50. 4.-5. Rúna Einarsdótt-
ir, íslandi, á Feyki frá Rinkscheit,
6,33. 4.-5. Alexander Squstav,
Austurríki, á Kapteini frá Flugu-
mýri, 6,33. 6. Andreas Trappe,
Þýskalandi, á Glettu frá Stóra-
Hofí, 6,13.
Gæðingaskeið:
1. Claus Mayer, Þýskalandi, á
Sindra, 6,71. 2.-3. Martin Heller,
Sviss, á Svipi frá Hvalsá, 5,91.
2. -3. Claas Dutilh, Hollandi, á
Trausta frá Hall, 5,91.
250 metra skeið:
1. Claas Dutilh, Hollandi, á Trausta
frá Hall, 23,5 sek./7,50. 2. Claus
Mayer, Þýskalandi, á Sindra, 23,8
sek./7,20. 3. Ragnar Hinriksson,
íslandi, á Loga, 25,0 sek./6,00.
Frjálsar hlýðniæfingar (Kur):
1. Carla van Nunen, Hollandi, á
Byr frá Sehloss Neubronn, 6,58.
2. Jolly Schrenk, Þýskaiandi, á
Ófeigi, 6,37. 3. Helle Rödhe Peters-
en, Danmörku, á Glaumi frá Roskj-
ergaard, 6,19.
Hlýðni B:
1. Helle Rödhe Petersen, Dan-
mörku, á Glaumi frá Roskjergaard,
6,48. 2. Bemd Vith, Þýskalandi, á
Jarli frá Aegidienberg, 6,43. 3.
Carla van Nunen, Hollandi, á Byr
frá Schloss Neubronn, 6,32.
Miðnæturtölt (skemmtigrein):
1. Sue Tanzer, Englandi, á Tenor.
2. Miijam Banninger, Sviss, á Hug-
in frá Ketilsstöðum. 3. Eve Bar-
mettler, Sviss, á Tröll.
Samanlagður sigurvegari:
1. Jolly Schrenk, Þýskalandi, á
Ófeigi, 7,06. 2. Bernd Vith, Þýska-
landi, á Jarli frá Aegidienberg,
6,88. 3. Andreas Trappe, Þýska-
landi, á Glettu frá Stóra-Hofí, 6,84.