Morgunblaðið - 29.08.1992, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 1992
17
Árbæjarsafn
Vefstofa í
Geysishúsi
TEKIÐ hefur til starfa vefstofa
á 2. hæð í Borgarhúsinu (áður
verslunarhús Geysis) á Vestur-
götu 1 í Reykjavík. Vefstofan
er starfrækt í samvinnu við
Árbæjarsafn.
Með starfseminni er ætlunin að
kanna, eftir því sem tök eru á,
handtök, verkfæri og efni sem við-
koma litun tóvinnu og vefnaði fyrri
tíma á íslandi. Rekstur vefstof-
unnar verður í höndum Sigríðar
Halldórsdóttur og Áslaugar Sverr-
isdóttur sem hafa fram til þessa
aðallega sinnt viðhaldi þessara
gömlu handverka með kennslu.
Fyrst um sinn verður vefstofan
opin mánudaga, þriðjudaga,
fimmtudaga og föstudaga frá kl.
13.00 til 15.00.
-----♦ ♦ ♦--
Sjúkrahús Keflavíkur
Jóhann ráð-
inn fram-
kvæmdastjóri
JÓHANN Einvarðsson, fyrrver-
andi alþingismaður, hefur verið
ráðinn framkvæmdastjóri
Sjúkrahúss Keflavíkurlæknis-
héraðs og Heilsugæslustöðvar
Suðurnesja.
Alls sóttu 19
um stöðu fram-
kvæmdastjóra
S.K. og H.S.S.
Hæfnisnefnd
heilbrigðis-
ráðuneytisins
úrskurðaði 10
umsækjendur
hæfa til starfs-
ins Og þar af 2 Einvarðsson
hæfasta. Einn
umsækjandi dró umsókn sína til
baka.
Ef að líkum lætur mun Geysishúsið verða gert upp á þann hátt að
það líti út eins og áþessari mynd en hún var tekin árið 1907 þegar
von var á konungi Islands og Danmerkur.
Morgunblaðið/RAX
Það gefur á margt forvitnilegt að líta á sýningum í Geysishúsinu.
Á mynd má sjá líkan af byggð í Kvosinni.
Geysishúsið hýsir minningar liðinna tíma
Vona að húsið muni í framtíðinni þjóna
sem upplýsinga- og kynningarmiðstöð
— segir Olafur Jensson umsjónarmaður hússins
GEYSISHÚSIÐ hefur nú um nokkurt skeið verið nýtt til sýninga-
halds á vegum borgarinnar og ýmissa annarra stofnana og sam-
taka. Reykjavíkurborg festi kaup á húsinu í ársbyrjun 1992 og fékk
það afhent 1. maí. Fyrirhugað er að standa að umfangsmiklum
endurbótum á húsinu og mun Ólafur Jensson, fyrrum framkvæmda-
sijóri Byggingarþjónustunnar, hafa yfirumsjón með því starfi. Hann
vonast til þess að þetta hús muni nýtast sem upplýsinga- og kynn-
ingarmiðstöð í framtíðinni. Vinnuhópur kosinn af borgarsljórn hef-
ur í þessu skyni starfað að gerð tillagna um framtíðarhlutverk
hússins.
Geysishúsið sem svo er kallað
er í raun tvö sambyggð hús, Aðal-
stræti 2 og Vesturgata 1, en þau
voru reist árið 1855 af Robert
Tærgesen kaupmanni. Síðan hefur
verið rekinn fjölbreyttur verslunar-
rekstur í húsinu. Waldimar Fisc-
her, sem Fischersund er nefnt eft-
ir, rak þar verslun til 1904 eða
þangað til H.P. Duus kaupmaður
keypti húsin. Húsin komust í eigu
Mogensen lyfsala 1927 og þar hóf
hann rekstur Ingólfsapóteks árið
1928. Hin síðustu ár hefur þar
verið rekin verslunin Geysir. Miklar
endurbætur fóru fram í kjölfar
bruna árið 1977 og þá fengu húsin
sitt núverandi útlit.
Það var svo í ársbyijun 1992 sem
Reykjavíkurborg ákvað að kaupa
húsin með það í huga að þau kynnu
að nýtast _ sem nokkurs konar
safnahús. Ólafur Jensson var ráð-
inn til að hafa yfirumsjón með end-
urbótum og þeirri starfsemi sem
fram færi í húsinu til bráðabirgða.
„Húsin eiga sér ákaflega merka
sögu og það er því mikilvægt að
þau verði gerð upp. Þau verða að
öllum iíkindum klædd að utan í
upprunalegri mynd og er sennileg-
ast að fyrirmynd verði það útlit sem
húsin höfðu árið 1907,“ sagði Ólaf-
ur. „Ekki er enn ljóst hvert framtíð-
arhlutverk húsana verður en hing-
að til höfum við sett upp sýningar
sem spegla sögu borginnar. Við
höfum einnig verið með listsýning-
ar og nýlega setti Árbæjarsafn upp
rannsóknarverkstæði sem kanna á
sögu vefnaðar á íslandi. Vefstofan
verður opin almenningi í vetur og
ég hvet alia að koma og kynna sér
handtök, efni og þau verkfæri sem
tengjast vefsögu."
Meðal sýninga, sem settar hafa
verið upp, er sýningin Aðalstræti
— saga byggðar en að henni stóðu
Árbæjarsafn og Borgarskipulag
Reykjavíkur í sameiningu. Fram
að áramótum mun Árbæjarsafn
síðan sýna valda fornmuni sem
fundist hafa í Aðalstræti hvar ný-
lega var grafið. Þá voru til skamms
Morgunblaðið/Kristinn
Ólafur Jensson hefur yfirumsjón
með endurbótum á Geysishúsinu
og þeirri starfsemi sem þar fer
fram.
tíma til sýnis myndverk í eigu
Reykjavíkurborgar og Kjarvals-
staða.
Nú stendur yfir sýning, sem ber
nafnið Höndlað í höfuðstað, og seg-
ir hún sögu verslunar og viðskipta
í höfuðborginni. Að sögn Ólafs
hefur sú sýning hlotið geysigóðar
viðtökur enda er þar brugðið upp
ljóslifandi mynd af þessum þætti í
sögu borgarinnar. Það er Ljós-
mynda- og skjalasafn Reykjavíkur-
borgar sem standa að sýningunni
ásamt Verslunarmannafélagi
Reykjavíkur. Sýningin mun standa
yfir til 10. október og má geta
þess að skólabömum í Reykjavík
verður gefið tækifæri á að skoða
hana í fylgd kennara sinna.
Það kom fram í máli Ólafs að
næsta verkefni yrði sýning á
mexíkóskri grafíklist. Ennfremur
er fyrirhuguð önnur sýning á veg-
um Kjarvalsstaða. Þá er einnig
verið skoða möguleika á að setja
upp sýningu í kringum jólahátíðina,
sem að sögn Ólafs mun bregða upp
mynd af jólahaldi borgarbúa fyrr
og nú.
Ólafur bendir á að viðvarandi
hlutverk hússins væri einungis til
bráðabirgða. Vinnuhópur, sem kos-
inn var af borgarstjórn, starfar nú
að gerð tillagna sem annars vegar
lúta að endurbótum og hins vegar
að þeirri starfsemi sem í framtíð-
inni kynni að fara fram í húsunum.
„Ég er sannfærður um að þau fái
að hýsa starfsemi tengda sögu
borgarinnar og verði þegar fram
líða stundir eins konar þjónustu-
miðstöð í upplýsinga- og kynning-
armálum. í nýju skipulagi Ingólf-
storgs og Grófartorgs var gert ráð
fyrir húsi af því tagi og nefnt Borg-
arhús. Það væri því ákaflega við-
eigandi og eðliiegt að mínu mati
að þetta hús verði Borgarhús fram-
tíðarinnar," sagði Ólafur að lokum.
Kópavogshæli
A varla nógu sterk orð til
að lýsa þessum fáránleika
- segir Ólafur Kristinsson aðstandandi vistmanns um sparnaðaráform
ÓLAFUR Kristinsson, aðstand-
andi vistmanns á Kópavogshæli,
segist varla eiga nógu sterk orð
til að lýsa því hversu mikill fárán-
leiki felist í sparnaðaráformum á
hælinu. Vistmenn þar búi við mun
verri kjör en fatlaðir annars stað-
Veitt úr
sjóði Serra
VEITT verður úr sjóði Richards
Serra á sunnudag, í fyrsta sinn.
Sjóðurinn var stofnaður að frum-
kvæði listamannsins i tengslum
við aflijúpun verks hans Áfanga í
Viðey vorið 1990. Richard Serra
mun verða viðstaddur athöfnina
sem fram fer í Listasafni íslands.
Þegar Richard Serraf ákvað að
gera verk á íslandi og síðan gefa
það íslensku þjóðinni, setti hann það
skilyrði að stofnaður yrði sjóður til
styrktar ungum íslenskum mynd-
höggvurum. Fulltrúar Sambands ís-
lenskra myndlistarmanna, Mynd-
höggvarafélagsins og Listasafns Is-
lands skipa stjórn sjóðsins.
(Úr fréttatilkynningu)
ar í þjóðfélaginu og nú sé enn
verið að ganga á þjónustu við þá.
Hann segir að samkvæmt fyrir-
huguðum sparnaðaráformum
missi hópur vistmanna einu þjón-
ustuna sem þeir hafi fengið á
hælinu.
Ólafur nefndi sem dæmi að til
stæði að loka stoðdeild á heimilinu
en þar færi sú eina þjónusta fram
sem dóttir hans, á 5 manna deild
fengi. Alls myndu 39 vistmenn missa
þessa þjónustu en hún felst í svokall-
aðri hæfingu eða þjálfun.
Hann sagði að aðstandendur væri
ekki á móti því að spara ef sá sparn-
aður gæti átt sér stað en þar sem
væri naumt fyrir væri erfitt að spara.
„Þessi staður hefur verið rekinn, eig-
inlega alveg frá upphafi, með lág-
marksþjónustu og sú þjónusta sem
þessir fötluðu einstaklingar fá er
langt undir því sem fatlaðir einstakl-
ingar fá frá félagsmálaráðuneytinu,
hvað varðar t.d. tækjakaup og ann-
að. Nefna má að rúmin, sem sumir
hveijir sjúklingarnir liggja í, eru
hreinast skömm. Því er, frá okkar
bæjardyrum séð, ekki hægt að spara
mikið meira inn á þessum stað.
Kannski mætti spara eitthvað í yfír-
stjöminni en varlá á deildunum og
þjónustu við vistmenn,“ sagði Ólafur.
Hann sagði að skipuð hefði verið
sérstök nefnd aðstandenda en þegar
hefðu ýmsar hugmyndir um aðgerðir
komið fram. „Við veltum því t.a.m.
fyrir okkur hvort ekki sé ástæða til
þess að biðja umboðsmann Alþingis
að skoða mismuninn á því hvernig
farið sé með þessa einstaklinga og
annars staðar í þjóðfélaginu, og hvað
löggjafinn hefur verið að gera,“ seg-
ir hann og bætir við að þungt hljóð
sé í fólki. „Fólk er líka hálf óttasleg-
ið yfir því að sjá kannski fram á það
að þurfa að taka einstaklinga heim
sem ekkert venjulegt heimili ræður
við,“ sagði hann.
Undirskriftalist-
inn í Kringlunni
320 skrifuðu
á listann
MAGNÚS L. Sveinsson formaður
Verslunarmannafélags Reykjavík-
ur segir að um 98% af því starfs-
fólki sem náðist til hafi skrifað
nafn sitt á undirskriftarlista til
að mótmæia áætlunum um að hafa
Kringluna opna á sunnudögum.
Naumur tími hafi gefist til þess
að framkvæma þessa undirskrifta-
söfnun. AUs settu 320 starfsmenn
nafn sitt á listann.
Vegna fréttar í Morgunblaðinu um
mál þetta þar sem segir að VR hafi
staðið fyrir undirskriftasöfnuninni
vili Magnús að fram komi að söfnun
undirskriftanna var að frumkvæði
starfsfólksins sjálfs en VR veitti að-
stoð sína við framkvæmdina.
IBUÐIR A SPANI
INTERNATIONAL
Símatími á Spáni laugardaga kl 12-13.
Sími 90-34-6-6701830
íbúðir - raðhús - einbýlishús af öllum stærðum
á verði frá ísl. kr. 1,5 millj.
LEITIÐ UPPLÝSINGA
ÁBYRGIR AÐILAR í ÁRATUGI
UMBOÐIÐ Á ÍSLANDI, SÍMI 91 -44365 - FAX 91-46375
SKUTBILL
Daglegt amstur gerir ólíkar
kröfurtil bifreiða. Lada
station sameinar kosti fjöl-
skyldu- og vinnubíls, ódýren
öflugur þjónn, sem mælir
með sérsjálfur.
Velduþann kost,
sem kostar minrta!
Opið kl. 9-18.
Laugard. 10-14
Bifreiðarog
iandbúnaðarvéiar hf.
Ármúla 13,
Suðurlandsbraut 14.
Sími681200.