Morgunblaðið - 10.09.1992, Side 10
10
MORGUNBLÁÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1992
Ungir myndhöggvarar
Myndlist
Eiríkur Þorláksson
Kjarvalsstaðir hafa nú tekið um-
talsverðum breytingum, sem hafa
aukið möguleika á nýtingu rýmisins
í miðhluta hússins. Kaffistofan hef-
ur verið færð til, er nú minni og
þægilegri en áður, en í staðinn opn-
ast stórt rými í miðri byggingunni,
sem áætlanir eru um að nota á fjöl-
breyttan hátt í framtíðinni.
í tilefni breytinganna hafa nú
verið opnaðar fjórar nýjar og ólíkar
sýningar í húsinu, og eru allar fylli-
lega þess verðar þess að fá sjálf-
stæða umíjöllun.
Fyrst ber að nefna að í vestursal
stendur yfír samsýning fjögurra
ungra listamanna, sem allir hafa
helgað sig hinu þrívíða verki, högg-
myndinni. Hér eru á ferðinni þau
íris Friðriksdóttir, Kristján Stein-
grímur, Ólafur Gíslason og Ragnar
Stefánsson, en þau eru öll fædd í
kringum 1960 og heyra því til
yngstu kynslóð íslenskra lista-
manna. Þau hafa hvert um sig ver-
ið að hasla sér völl í myndlistinni í
sýningarhaldi nokkur undanfarin ár
og hafa haldið athyglisverðar einka-
sýningar í smærri sýningarsölum á
síðustu tveimur árum. Það er því
vel við hæfí hjá þeim að slá saman
í þessa samsýningu, sem býður upp
á gott sýnishom af því sem ungir
myndhöggvarar eru að fást við í
dag.
Það fyrsta sem verður að nefna
er að hér er skilgreining höggmynd-
A HOTEL ISLANDI DAGANA
11., 12. OG 18., 19, SEPT. 1992
BORÐAPANTANIR I S: 687111
HÓTEL IpMD
arinnar teygð til hins ýtrasta. Hér
er ekki um að ræða höggmyndir í
hinum hefðbundna skilningi orðsins,
heldur verk unnin í málma, steypu
og tré, auk þess sem rafmagn gegn-
ir stóru hlutverki í tveimur þeirra;
það er eðli efnisnotkunarinnar sem
öðru fremur setur þessi verk í þann
flokk listaverka, sem nefnist högg-
myndir í íslensku máli.
Ragnar Stefánsson sýnir tvö
verk, sem hann nefnir „Byggingar-
kerfí fyrir myndlist“. Þessi verk eru
sett saman úr einingum, sem eru
ætíð í lóðréttu eða láréttu samhengi
við aðrar einingar; þannig er mögu-
leiki til að taka þær út úr heildinni
og raða saman í nýjum, sjálfstæðum
verkum, allt eftir þörfum eða óskum
hvers og eins. í miðhluta hverrar
einingar er að finna merki, slagorð
eða orðaleiki (t.d. „This is not a
statement“) þannig að ný uppröðun
býður ætíð upp á nýtt samhengi.
Þessi verk Ragnars eru í beinu fram-
haldi af því sem hann sýndi í Gall-
erí einn einn á síðasta ári, og er
líklegt að hann eigi eftir að fínna
fleiri skemmtilega möguleika í þess-
um málmformum á næstu árum.
íris'Friðriksdóttir á hér þrjú verk,
þar sem hún teflir fram andstæðum.
I verkunum „Hiti“ er um að ræða
andstæður málms og rafmagns, þar
sem verkin bjóða upp á brunahættu,
um leið og þau hafa til að bera sjón-
rænt snertigildi; listakonan leikur
þannig markvisst við hina gömlu
kenningu að listin geti verið hættu-
leg. Jafnframt sýnir hún „Blóm í
steypu" þar sem hið lífræna og
bjarta tekst á við hið kalda og gráa,
en þessar hellur heppnast síður,
e.t.v. vegna þess hve kirfílega blóm-
in eru unnin í steypuna.
Kristján Steingrímur sýnir sjö
listilega unnin verk í ál, sem hafa
verið gerð með silkiþrykki, olíu og
sandblæstri. í hverju þeirra takast
á andstæður hinna einföldu, hreinu,
stærðfræðilegu forma annars vegar
og lífrænni forma (t.d. skelja,
krabba, hljóðfæra) hins vegar; lita-
notkun er einnig afar markviss.
Þessi verk Kristjáns Steingríms eru
einkar grípandi og er vert að benda
sérstaklega á myndir nr. 9 og 12.
Ólafur Gíslason varð nýlega þess
Viðshiplðvinlr
fasleignasðlð
Við viljum vekja athygli á því að
Fasteignablað Morgunblaðsins kemur
framvegis út á föstudögum
og flestar fasteignasölur
hafa símatíma á
milli kl. 10 og 14
á laugardögum
heiðurs aðnjótandi að vera valinn
fyrsti ungi myndhöggvarinn til að
hljóta viðurkenningu úr sjóði Rich-
ards Serra, sem stofnaður var í sam-
bandi við Listahátíð í Reykjavík
1990, þegar Serra setti upp mikið
umhverfísverk í Viðey. Ólafur fjallar
í verkum sínum mikið um grundvöll
listarinnar og nýtir til þess hin klass-
ísku form sem við höfum sífellt í
kringum okkur án þess að veita
þeim sérstaka eftirtekt. Nokkur af
verkum hans hér hafa sést á öðrum
sýningum hans á þessu ári, en eru
jafnáhugaverð fyrir það; í þeim
kemur fram fínleg kímnigáfa og
ábending um hið hversdagslega í
umhverfí okkar. í þessu samhengi
má benda á „Reykjavík, N.Y., Kaup-
mannahöfn, Hamborg og Amsterd-
am“ og „Listaverk fyrir kaffivél,
öskubakka o.fl.“, auk þess sem
„Minnisvarði um afskorin blóm“ er
afar vel ígrundað verk!
í heild er hér á ferðinni skemmti-
leg sýning á fjölbreyttum listaverk-
um, þar sem listamennirnir ná að
sýna sínar bestu hliðar. Þessir sýn-
Listamennirnir (frá vinstri) Ragnar Stefánsson, íris Friðriksdóttir,
Olafur Gíslason og Kristján Steingrímur.
ing ber gott vitni um þá grósku sem
er að fínna á þessu sviði myndlistar-
innar um þessar mundir, og er von-
andi að sem flestir notfæri sér tæki-
færið til að fylgjast með því sem
efnilegt ungt listafólk er að fást við
í dag.
Sýning fjórmenninganna í vestur-
sal Kjarvalsstaða stendur til sunnu-
dagsins 13. september.
KAMMERTONLEIKAR
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Þriðju tónleikar UNM voru haldnir
í Listasafni íslands sl. þriðjudag.
Efnisskráin var margbreytileg en hún
hófst og henni lauk með leik Blásar-
akvintetts Reykjavíkur. Fyrsta verkið
var Soulmining, eins konar sálar-
könnun í þremur köflum, fyrir blásar-
akvintett. Verkið hefst á eintónun
en smám saman leita raddirnar út
frá þungamiðjutónunum og var því
tónferlið í raun mjög staðbundið. Það
var töluverð stemmning, sem nálgað-
ist dulúð í miðkaflanum. Verk þetta
er á engan hátt frumlegt en naut
þess hve vel það var flutt af Blásarak-
vintett Reykjavíkur.
Þtjú íslensk verk voru flutt og það
fyrsta, Intermezzo undir regnbogan-
um, einleikur á fagott, eftir Hrafnkel
FASTEIGNASALA
Sudurlandsbraut 1Ú
Ábyrgð - Reynsla - Öryggi
Hilmar Valdimarsson.
SÍMAR: 687828 OG 687808
BREKKUBÆR
Til sölu vel staðsett raðhús á þremur
hæðum, samtals 250 fm auk bílsk.
íbúðaraðstaða í kj.
BREKKUBYGGÐ
Til sölu raðhús á tveimur hæðum,
samt. 90 fm. Á efri hæð er stofa og
eldh. Á neðri hæð eru 2 góð herb.,
sjónvhol, bað og þvottaherb. Bílsk.
fylgir. Laust nú þegar.
DALSEL
Til sölu 4ra herb. 106 fm íb. á 1.
hæð. Stæði í Jokuðu bílahúsi fylgir.
Hagst. lán áhv. Laus nú þegar. •
BARMAHLÍÐ
Til sölu glæsil. 4ra herb. 107 fm efri
hæð í 4ra íb. húsi. Nýtt eldhús. Nýtt
bað. Tvennar svalir. Góð lán áhv.
GRÆNAHLÍÐ
Til sölu góð 4ra herb. 114 fm ib. á
3. hæö m. 29 fm bílsk. Arinn í stofu.
Tvennar svalir. Fallegur garður. Mjög
góð lón áhv.
STELKSHÓLAR
Til sölu mjög góð 4ra herb. 100 fm
fb. á 1. hæð, sérgarður.
RÁNARGATA
3ja herb. 60 fm íb. á 1. hæð. Sér-
inng. Verð 5,0 millj. Góð lán áhv.
UGLUHÓLAR
Vorum að fá i sölu fallega 3ja herb.
70 fm íb. á 3. hæð. Laus strax.
BERGSTAÐASTRÆTI
Vorum að fá i sölu hæð og ris i litlu
timburhúsi. Á hæðinni eru 2 herb.,
stofa, eldh. og bað. Gott verð.
GRETTISGATA
Til sölu ný og fullb. 100 fm ib. á 1.
hæð. Tvö einkabilast. fylgja. Gott
verð.
ESKIHLÍÐ
2ja herb. 70 fm íb. í kj. Sérinng. Laus
nú þegar.
jm Hilmar Valdimarsson,
Slgmundur Böðvarsson hdl.,
” Brynjar Fransson.
Orra Egilsson (f. 1974), var ágæt-
lega flutt af Halldóri í. Gylfasyni.
Þetta er saklaust verk, tónalt og
temtískt unnið. Eftir Elínu Gunn-
laugsdóttur var flutt sex þátta verk,
sem hún kallar Eitthvað fallegt. Það
er fyrir sópranrödd (Hlín Pétursdótt-
ir), flautu (Kolbeinn Bjarnason) og
gítar (Uwe Eschner) og skiptast á
samleiksþættir og söngur við þrjú
japönsk ljóð. Ekki er þess getið í
efnisskrá hver þýddi ljóðin. Nafnið
á vel við þetta verk, því það er fal-
legt, sérstaklega söngþættirnir.
Nokkuð mátti heyra af þrástefja
vinnubrögðum, einkum í fyrsta
þættinum, og var þetta ljúfa verk
ágætlega flutt. Síðasta íslenska
verkið nefnist Studio og er eftir
Þuríði Jónsdóttur. Studio, samið fyr-
ir sembal, er skýrt í formi og er
mikið unnið úr tónhugmyndum, sem
birtast í brotnu hljómaferli, trillum
og þéttum hljómklösum, sem eiga
sér sterka svörun í hljóman sembals-
ins. Þetta er vel gert verk og var
ágætlega flutt af Guðrúnu Óskars-
dóttur.
Viðamestu verkin voru tvö finnsk
tónverk, samnin fyrir selló en flytj-
andi beggja verkanna var efnilegur
sellisti, Jukka Rautasalo að nafni.
Fyrra verkið kallar höfundurinn
Glennur, en hann heitir Hannu Po-
hjannoro. Seinna verkið, Ingrepp II,
er eftir Markus Fagerudd. Bæði
verkin eru að svipmóti eða stíl mjög
lík, ekki frumleg (í anda deyjandi
módernisma) en feikivel samin og
ekki var minna vert um ágætan
flutning Rautasalo.
Tónleikunum lauk með „Vier Wid-
mungen fur Bláserquintett“ eftir
Klaus Ib Jörgensen. Verkið hefst á
hreinni ferund, tónbili sem gengur
í gegnum allt verkið, auk þess sem
leikið er með tvíundir og þríundir í
allskonar þverstæðum skipunum.
Verkið, sem vart verður talið frum-
legt en ágætlega samið, var stórvel
flutt af Blásarakvintett Reykjavíkur.
Síðasta tileinkunin endaði óvænt
með eftirlíkingu á habe Dank“,
niðurlaginu á Zueignung eftir
Strauss, þar sem stokkið er upp um
stóra sexund (so-mí) og endað á
dúrhljómi.
SÖNGSMIÐJAN AUGLÝSIR
■
gAI_LIR
AÐSYNGJA!
NÁMSKEIÐ FYRIR UNGA SEM ALDNA,
LAGLAUSA SEM LAGVÍSA.
Eldri nemendur, kynnið
ykkur vetrardagskrána.
Hugsanlega verða sér
námskeið fyrir laglausa.
Sl§t
EINSÖNGSNÁM: Lögð er áhersla á
'X.1 söngtækni sem skilar árangri og sterkri
t tilfinningu fyrir ljóði og lagi.
Stefnt að skólauppsetningu í vor
á verkefnum vetrarins.
NÁMSKEIÐ FYRIR BÖRN: Tónlist
og myndlist. Nánar auglýst síðar!
Kennarar: Esther Helga Guðmundsdóttir, söngur,
Guðbjörg Sigurjónsdóttir, undirleikur,
og Dröfn Guðmundsdóttir, myndlist. K
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR í SÍMA 654744
VIRKA DAGA FRÁ KL. 9.00 - 13.00.