Morgunblaðið - 10.09.1992, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1992
NORRÆNT GIGTARAR 1992
Vísindasjóður til að efla
íslenskar gigtarrannsóknir
eftir Helga
Valdimarsson
Gigtarfélag íslands stendur nú
fyrir. viðamikilli fjársöfnun í sér-
stakan sjóð á vegum félagsins sem
ætlaður er til að styrkja gigtar-
rannsóknir hérlendis. í fyrri hluta
greinarinnar sem hér birtist er
einkum fjallað um þær gigtarrann-
sóknir sem stundaðar hafa verið
hérlendis á undanförnum árum,
einkum markmið þeirra og for-
sendur. I seinni hluta greinarinnar
verður íjallað um nokkur viðfangs-
efni sem íslenskir vísindamenn
geta unnið að á næstu árum ef
nægilegt fé fæst til að efla íslensk-
ar gigtarrannsóknir.
Orsakir
gigtsjúkdióma
Gigtsjúkdóm-
um er stundum
til einföldunar
skipað í fjóra
flokká: bólgu-
sjúkdóma í lið-
um og bandvef
(t.d. iktsýki og
rauðir úlfar),
slitgigt, vöðva-
og vefjagigt og beinþynningu. Or-
sakir þessara gigtsjúkdóma eru
mismunandi og einnig er þekking
á orsökunum þeirra misjafnlega
langt á veg komin.
Orsakir slitgigtar eru að mestu
óþekktar en rannsóknir hafa sýnt
að beinþynningu má rekja til horm-
ónabreytinga og ýmissa ytri þátta
eins og reykinga, óhóflegrar kaffi-
drykkju, misnotkunar áfengis, of
lítillar hreyfingar og síðast en ekki
síst kalkskorts sem hægt er að
vinna gegn með nægilegri neyslu
mjólkurvara og lýsis. Þá vita menn
einnig að andleg spenna, svefn-
leysi, þreyta og kyrrseta geta
stuðlað að vöðva- og veljagigt.
Bólgusjúkdómar í liðum og
bandvef eru aivarlegustu gigtsjúk-
dómarnir. Þessa sjúkdóma má
rekja til truflunar í ónæmiskerfinu
sem stafar af því að hvítfrumur,
sem eiga að vera til varnar gegn
aðsteðjandi sýklum og útrýma
framandi efnum úr líkamanum,
ruglast í ríminu og ráðast líka
gegn stoðvefjum og liðamótum
gigtarsjúklingsins. Þessi vitneskja
hefur orðið til þess að nú er ónæm-
isbælandi lyfjum beitt til þess að
halda í skeíjum illvígum gigtsjúk-
dómum sem áður urðu sjúklingum
að fjörtjóni, og jafnframt er oft
hægt að koma í veg fyrir að gikt-
sýkisjúklingar verði farlama.
Hins vegar hefur ekki ennþá
tekist að komast að því hvers
vegna ónæmiskerfi gigtarsjúklinga
ruglast í ríminu og þar með finna
ráð til að fyrirbyggja þessa alvar-
legu gigtsjúkdóma. Þeir halda þess
vegna áfram að valda ómældri
þjáningu og mörgum fjölskyldum
og reyndar þjóðfélaginu öllu þung-
um búsifjum. En nú er lausn þess-
arar gátu að komast í sjónmál.
Framfarir í lífvísindum eru með
þeim ólíkindum um þessar mundir
að tímarit sem gera ítrustu kröfur
um vísindalega nákvæmni birta nú
ritverk, sem hefðu verið flokkuð
sem hreinræktaður vísindaskáld-
skapur fyrir fáeinum árum.
Staða íslenskra
gigtarrannsókna
Þegar hafa verið gerðar um-
fangsmiklar rannsóknir á tveimur
stórum íslenskum ættum sem hafa
annars vegar verulega aukna tíðni
á iktsýki (rheumatoid arthritis) og
hins vegar á rauðum úlfum (lupus
erythematosus). Þessir tveir sjúk-
dómar eru algengastir illvígra
gigtsjúkdóma. Gerð hefur verið
ættfræðileg greining á þessum
ættum og ættartré teiknuð. Mikið
hefur verið um skyldleikagiftingar
í iktsýkisættinni og eru meðlimir
hennar þess vegna óvenjulega eins-
leitir erfðafræðilega. Slíkt auðveld-
ar greiningu á erfðaþáttum sem
orsakar iktsýki.
Jafnframt hafa vefjaflokkar
(HLA) margra meðlima beggja
ættanna verið greindir en vitað er
að umræddir gigtsjúkdómar tengj-
ast ákveðnum arfgerðum þeirra
sameinda sem ákvarða vefjaflokka
hvers einstaklings. Þá hafa einnig
verið gerðar víðtækar rannsóknir
á nokkrum þáttum ónæmiskerfis-
ins í þessum ættum, einkum þeim
sem tengjast gigtsjúkdómum.
Þessar rannsóknir voru hins
vegar að mestu gerðar fyrir um
10 árum en síðan hafa orðið mikl-
ar framfarir í rannsóknartækni til
að greina erfðaefni og margvíslega
eiginleika ónæmiskerfisins.
Rannsóknartilgáta
Sú þekking sem þegar hefur
verið aflað um eðli iktsýki og
rauðra úlfa gefur tilefni til að setja
fram eftiffarandi tilgátu um orsak-
ir þessara sjúkdóma:
Einstaklingar sem fá iktsýki eða
rauða úlfa þurfa að erfa fleiri en
eitt gen (erfðavísi) til að vera mót-
tækilegir fyrir umhverfisþáttum
(líklega ýmsar tegundir algengra
sýkla) sem setja þessa sjúkdóma
af stað. Afurðir þessara gena, þ.e.
þeirra efnasambanda sem mynda
mannslíkamann og stjórna við-
brögðum hans, ráða miklu um það
hvernig ónæmiskerfið bregst við
þessum sýklum. Þegar einstakling-
ur með arfbundna tilhneigingu til
að fá iktsýki eða rauða úlfa smit-
ast getur ónæmiskerfi hans farið
úr skorðum þannig að það ræðst
til atlögu gegn eigin líkama, liðum
eða stoðveijum. Jafnframt bilar
hemlabúnaður, sem getur stöðvað
slíka sjálfsáverka hjá þeim sem
hafa ekki erfðaupplag til að fá
iktsýki, rauða úlfa eða aðra sjálfs-
ofnæmissjúkdóma. í sjúklingunum
myndast hins vegar vítahringur
sem bytjar líklega nokkru áður en
sjúkdómseinkennin koma fram en
þá eru öll ummerki undangenginn-
ar sýkingar horfin. Það getur verið
háð ýmsu fleiru hvort og hvenær
sjúkdómurinn myndast og hversu
illvígur hann verður. Má þar til-
nefna hormónajafnvægi en einnig
aldur sjúklingsins og ástand
ónæmiskerfis hans þegar hann
smitast af sýklinum sem kemur
ónæmisbrengluninni af stað.
Helgi Valdimarsson.
„Til þess að íslenskir
vísindamenn geti tekið
frumkvæði í fjölþjóð-
legum rannsóknum sem
hafa það markmið að
finna orsakir alvar-
legra gigtsjúkdóma
þarf að stofna öflugan
vísindasjóð.
íslenskt frumkvæði
er raunhæft
Gigt fellur gjarnan í skugga lífs-
háskasjúkdóma eins og krabba-
meins og kransæðasjúkdóma.
Þjónusta fyrir gigtveika er þó
merkilega góð hérlendis miðað við
það fé sem hefur verið til ráðstöf-
unar. Hún hefur verð byggð upp
af mikilli atorku og hagsýni. Jafn-
framt hafa brautryðjendurnir safn-
að merkum gögnum um gigtsjúk-
dóma, upplýsingum sem gætu orð-
ið grundvöllur þess að íslendingum
verði falið að byggja upp fjölþjóð-
lega rannsóknasamvinnu sem hef-
ur það að markmiði að finna ráð
til að fyrirbyggja gigt. Aðstæður
fyrir slíkar rannsóknir eru mjög
góðar á íslandi. Það er því raun-
hæft og ákjósanlegt markmið að
skapa íjárhagslegan grundvöll hér-
lendis til þess að læknar og líffræð-
ingar geti tekið frumkvæði í fjöl-
þjóðlegum rannsóknum sem hafa
það að markmiði að finna orsakir
alvarlegustu gigarsjúkdómanna.
En til þess að svo megi verða þarf
að stofna sérstakan og öflugan
vísindasjóð. Slíkur sjóður mun
skapa aðstöðu til rannsókna sem
eru líklegar til að skila góðum
árangri á nokkrum árum. Það
ásamt virku faglegu samstarfí við
vísindastofnanir erlendis ætti síðan
að geta tryggt meira Qármagn til
að halda þessum rannsóknum
áfram. Þetta getur jafnframt örvað
rannsóknir í lífvísindum og eflt líf-
tæknistarfsemi hérlendis og þar
með stuðlað að nýsköpun í atvinnu-
lífinu og nýjum atvinnutækifærum.
Höfundur er prófessor,
forstöðumaður Rannsóknastofu
H&skólans í ónæmisfræði og
formaður vísindaráðs
Gigtarfélags íslands.
EITTHYAÐ FYRIR ALIA
FJOLSKYLDUNA
Leikfimi Kramhússins
Frá kl. 7.30 að morgni til kl. 19.30 að kvöldi
Músikleikfimi, kennarar: Hafdís, Etísabet, Agnes.
Orkuleikfimi á morgnana, kennari: Agnes
Kripalu jóga fyrir morgunhana og hænur, kennari: Helga Mogensen
Tai-chi, kínversk morgunleikfimi, einfaldar orkugefandi æfingar,
kennari: Guðný.
Mömmuleikfimi með barnapössun eftir morgunverkin,
kennari: Agnes
Leikfimi fyrir bakveika eða vöðvabólguþolendur, 3svar á dag,
kennari: Harpa, sjúkraþjálfari
Leiðbeinendanámskeið: Leikfimi — dans — spuni. Ætlað þeim sem
leiða kennslu og hópstarf, kennarar: Hafdís, Árni Pétur o.fl.
W '
DANS
Gestakennari: Orville Pennant dansari frá Jamaica.
Afró, kraftmiklir vestur-afrískir danstímar fyrir dansglaða með
trommaranum Rockes, kennari: Orville
Argentískur tangó, kennari: Haný Haday
Djass/funk, fjörugir og djassaðir djasstímar, kennari: Orville.
Reggaecise, dans og hreyfing á Ijúfum reggaenótum, kennari: Orville
Dans - leikhús, tímar fyrir dansara sem vilja reyna nýjar leiðir, kennari:
Sylvía, dansari frá Amsterdam
Danstími fyrir dansara, gefur dönsurum tækifæri til að þróa list sína
og tækni undir handleiðslu Orvilles.
LEIKLfST OG SONGUR
Leiksmiðja, unnið verður með nútímaleikhúsið, öðruvísi leikhús er
krefst mikils af þátttakendum, bæði líkamlega og andlega,
kennarar: Árni Pétur og Sylvía
„Leyndir draumar". Leiklistarnámskeið fyrir fullorðna sem hefur alltaf
langað til þess að leika en ekki þorað að láta drauminn rætast,
kennari: Hlín Agnarsdóttir
Kórskóli Margrétar Pálmadóttur: Tónfræði, raddbeiting og kórsöngur
Söngleikjakórskóli Margrétar Pálmadóttur fyrir ungt fólk sem vill
sgreyta sig
FYRIR BORN OG UNGLINGA
Dans - leikir - spuni (4-5) (6-7) unnið út frá ævintýrum og
hugmyndaheimi barnsins, kennarar: Guðbjörg, Harpa Björg.
Leiklist (7-9) (10-13), þroskandi tímar sem auka öryggi og
samstarfshæfileika nemenda, kennarar: Þórey, Björg, Harpa.
Tónmennt (4-5) (6-7), í anda Karls Orff, gefur barninu tækifæri til að
upplifa tónlistina í sjálfu sér og í umhverfi sínu,
kennari: Elfa Lilja Gisiadóttir
Djassdans (7-9) (10-13), sniðið að yngri kynslóðinni, kennari: Katrín.
Hip-hopp fyrir unglinga, lærið hip-hoppið hjá meistara Orville.
y&Ms
HÚSI0
Innritun hafin í símum
15103 og 17860.
Við Bergstaðastræti
m skrifstoftilæknináin
Tölvuskóli Reykjavíkur gerir þér kleift að auka við
þekkingu þína og atvinnumöguleika á skjótan og
hagkvæman hátt.
Þú lærir bæði á Macintosh- og PC-tölvur, auk al-
mennrar skrifstofutækni, bókfærslu, tölvubókhalds,
verslunarreiknings og toll- og verðútreikninga.
Innritun stendur yfir.
Hringið og fáið sendan ókeypis bækling.
Tölvuskóli Reykiavíkur
Borgartúni 28, sími 91-687590