Morgunblaðið - 10.09.1992, Side 18

Morgunblaðið - 10.09.1992, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1992 Safnahúsið á Húsavík Dánargjöf sýslumannshjónanna Húsavík. SAFNAHÚSINU á Húsavík Jóhann Skaptason og Sigríður Víðis Jónsdóttir, fyrrverandí sýslu- mannst\jón. hefur borist vegleg dánargjöf, rúmlega 3,4 milljónir króna, frá fyrrverandi sýslumanns- hjónum, Sigríði Viðis Jónsdótt- ur og Jóhanni Skaptasyni, en Jóhann var frumkvöðull að stofnun Safnhússins, sem nú hýsir minjagripa-, málverka-, ljósmynda-, náttúrugriþa- og skjalasafn. Þau hjón hafa áður gefið safn- inu stórar gjafir, svo sem mikið fuglasafn, en stærsta gjöfin er íbúðarhús þeirra hjóna, sem þau gáfu fyrir nokkrum árum. Það er tveggja hæða íbúðarhús, tæpir eittþúsund rúmmetrar. Húsið hef- ur nú verið selt og söluverð þess að miklu leyti staðið undir bygg- ingarkostnaði annars áfanga Safnahússins, sem nú er unnið að og á að hýsa sjóminjasafn og landbúnaðarverkfærasafn. Þá sýslumaður, Halldór Krist- insson, formaður safnsstjómar, veitti gjöfínni móttöku, sagði hann að Þingeyingar mættu og mundu lengi minnast sýslu- mannshjónanna með þökk, því án forgöngu þeirra og gjafa væri spuming hvort það menningarset- ur sem Safnahúsið væri, hefði nokkum tima orðið að veruleika. - Fréttaritari Bók um Windows fyr- ir skóla og almenning BÓKAÚTGÁFAN Aldamót hefur gefið út bókina Windows tölvunám eftir Matthías Magnússon. Hefur hún að geyma leiðbeiningar um Windows 3.1 og er ætluð til skólanáms og almennra nota. Bókin er að nokkru byggð á íslensku Windows-bókinni sem var fyrsta ís- lenska bókin á markaðnum um þetta efni. Markmið Windows-tölvunáms er að Windows geti orðið sjálfsagður hlutur í tölvuvinnslu notandans. ít- arlegir kaflar eru um Program Manager, File Manager og Paint- brush, en vald á þessum einingum Windows gerir önnur Windows-for- rit auðveld viðureignar. Verkefni em í lok þessara kafla. Sérkafli er um önnur Windows-fylgiforrit, þar á meðal hin nýju margmiðlunarfor- rit, sem m.a. bjóða hljóðspilun. Ljósi er og varpað á mikilvægar nýjungar í MS-DOS 5.0, svo sem að endur- heimta skrár sem hafa eyðst. Bókaútgáfan Aldamót hefur í nokkur ár séð ríflega helmingi framhaldsskólanna fyrir tölvubók- um. Þessi bók mætir að hluta þörf þeirra fyrir Windows-námsefni en auk þess eru á leiðinni nýjar bækur um WordPerfect fyrir Windows, Word for Windows og Excel. Windows tölvunám er 151 blað- síða og prentuð í Félagsprentsmiðj- unni. Band og pappír gera það að Forsíða nýju bókarinnar Windows tölvunám. verkum að auðvelt er að hafa bók- ina opna á borði. (Fréttatilkynning) Skáldsaga eftir Stefán Júlíusson BÓKAÚTGÁFAN Björk hefur gefið út skáldsöguna Ástir og örfok eftir Stefán Júlíusson. Á bókakápu segir m.a.: „Sögu- maður í skáldsögunni Ástir og ör- fok er ungur búfræðikandidat, nýkominn heim til Islands frá námi á Norðurlöndum og í Vesturheimi mitt í kreppunni miklu. Hann fær vinnu við landrækt og átök verða um friðun lands og árekstrar milli venjulegra búskaparhátta og land- vemdar og uppgræðslu á fomu stórbýli sunnanlands. Sögumaður verður ástfanginn af heimasæt- unni en bóndi hefur ætlað dóttur sinni ákveðið mannsefni í þeirri vem að þau taki við jörð og bús- forráðum af honum. Hér er ástinni teflt gegn landeyðingu, fastheldni í búnaðarháttum og ákveðnum áformum.“ Bókin er 201 bls. og prentuð af Prentsmiðju Hafnarflarðar hf. Káputeikningu gerði Gunnar Hjaltason. Stefán Júlíusson SAIMÍYD VIDEOTÆKIÁ VERÐI SEM < \J KEMUR ÞÉR j GOTT SKAP! Komdu og kynntu þér þetta einstaka videotæki. jgtf Tæknilega vel útbúið m en þóá frábæru verði! Pantanlr og upplýslngar í síma 687720 Bóka- og bókasafnastefnan í Gautaborg Hlutur Islands lít- ill að þessu sinni ÁTTUNDA Bóka- og bókasafnastefnan hefst í Gautaborg í dag og stendur hún til 13. september. Meðal þess sem setur svip á stefnuna er 75 ára sjálfstæðisafmæli Finnlands og ýmis dagskráratriði frá Færeyjum og tengd færeyskri menningu. Meðal íslenskra rithöfunda sem starfsemi sína og sýnir með öðrum kynna verk sín á bókastefnunni og taka þátt í umræðum eru Stejpunn Sigurðardóttir og Vilborg Dag- bjartsdóttir. Skáldsaga Steinunnar, Tímaþjófurinn, er að koma út í sænskri þýðingu. Guðrún Helga- dóttir mun taka við verðlaunum norrænna skólabókavarða fyrir bók sína Undan limgerðinu. Örnólfur Thorsson kynnir nýja útgáfu Heimskringlu Snorra Stur- lusonar og sænskur þýðandi Heims- kringlu.'Karl G. Johansson segir frá vinnu sinni við þýðinguna. Goð- sagnir frá Norðurlöndum sem ný- komnar eru út í bókinni Svört skín sól munu verða ræddar m. a. af Sigurði Svavarssyni og Auður Har- aldsdóttir tekur þátt í umræðu um norræn skólamál. Anna Einarsdóttir er eins og áður í forsvari fyrir íslenska bókaút- gefendur en Norræna húsið kynnir norrænu menningarstofnunum. Anna sagði að í íslenska básnum á sýningunni sýndu 5-6 forlög eða álíka mörg og í fyrra. Hún sagði að nauðsynlegt væri að fylgja eftir þeim góða árangri sem sérstaklega var náð í hittifyrra þegar ísland var í sviðsljósi á bókastefnunni. „Bóka- stefnan hefur verið mjög mikil kynning fyrir íslenskar bókmennt- ir“, sagði Anna Einarsdóttir „og eftir vel heppnaða þátttöku íslend- inga hafa aldrei komið út fleiri ís- lenskar bækur í norrænum þýðing- um, einkum á sænsku." Anna gat þess að leikhópurinn Blái hatturinn kæmi fram á bóka- stefnunni og í tengslum við hana væri íslensk hönnunarsýning í Gautaborg, Form Island, og ís- lenska óperan legði einnig sitt af mörkum. Héraðsskógar á Fljótsdalshéraði Gróðursetning árs- ins langt komin Geitagerði. GRÓÐURSETNING á vegum Héraðsskóga á Fljótsdalshéraði er nú í fullum gangi, hófst 10. ágúst. Þegar er búið að gróðursetja 300 þúsund plöntur á þessum tíma, auk þess sem settar voru nið- ur 900 þúsund plöntur í vor. Ætlunin er að gróðursetja samtals 1,4 milljónir plantna í báðum áföngum á árinu. Fyrst og fremst er það lerki sem plantað er, einnig nokkuð af stafa- furu og hengibjörk. Gróðursetning hefur farið fram í fjórum hreppum á Héraði: Fljótsdalshreppi, Fella- hreppi, Vallahreppi og Eiðahreppi. Þá hefur jafnframt verið unnið að girðingaframkvæmdum. I eldri skógræktargirðingum, sem nú eru um 20 ára og heyrt hafa undir svokallaða Fljótsdals- áætlun, hefur farið fram allmikil grisjun, sem heyrir undir frumgr- isjun og hefur verið á vegum Hér- aðsskóga. Allmikið nýtanlegt efni fæst við þessa fyrstu grisjun, fyrst og fremst í staura og til vinnslu í parket. - G.V.Þ. Ljóð eftir Matthías Johannessen á sænskum geisladiski LJÓÐ eftir Matthías Jo- hannessen er að finna á nýj- um geisladiski með sænska djassistanum Jonas Knuts- son. Knutsson samdi lag við enska þýðingu á ljóði Matthías- ar, Blóm á himnum, og heitir það „Flower in the Sky“. Ljóðið þýddi fyrrum sendiherra Bandaríkjanna á íslandi, Mars- hall Brement, og birtist þýðing- in í bókinni „Three Modem Ice- landic Poets“ sem Iceland Revi- ew gaf út árið 1985. Jonas Knutsson er einn efni- legasti djasstónlistarmaður Svía. Hann leikur á saxófón, semur og útsetur. Hann er 27 ára og hlaut á þessu ári sænsku djasstónlistarverðlaunin. „Flower in the Sky“ er eitt af 10 lögum á nýjasta geisla- diski Knutssons, Vyer. A þeim diski eru honum til aðstoðar 20 af fremstu djassistum Svía, þar á meðal söngkonan Lena Willemark, sem syngur ljóð Matthíasar. Sænska fyrirtækið Caprice Records gefur geisladiskinn út. Japis sér um dreifingu á honum á Islandi. Jonas Knutsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.