Morgunblaðið - 10.09.1992, Side 20

Morgunblaðið - 10.09.1992, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1992 OPINBER HEIMSOKN NORSKU KONUNGSHJONANNA Síðasti dagur heimsóknar Noregskonungs Norðurland kvaddi í haustlitunum ÞRIÐJI og síðasti dagur heim- sóknar norsku konungshjónanna minnti öllu meira á skoðunarferð en opinbera heimsókn. Stór hluti blaðmannanna sem fylgt hafa konungi, urðu eftir í Reykjavík og eyddu konungshjónin degin- um í Mývatnssveit og á Akur- eyri. Leiðsögumaður var með þeim allan daginn og upplýsti þau um jarðfræði og sögu og voru konungshjónin nyög áhugasöm um allt sem fyrir augu bar. Skörtuðu haustlitimir sínu fegursta í Mývatnssveitinni þó að skammt sé liðið á september. Mikil rigning var á Húsavík er flugvél Flugmálastjórnar lenti þar um kl. 10. Mældist úrkoman sem svaraði 62 mm á sólarhring og hefur hún ekki mælst svo mikil þar árum saman. Héldu konungshjón, forseti og föruneyti rakleiðis að Námafjalli þar sem hverasvæðið var skoðað undir leiðsögn Jóhanns Sigurjónssonar, menntaskólakenn- ara. Skömmu áður en gestimir komu yfír Námaskarð, stytti upp en vegna þess hversu leirinn á svæðinu var blautur, var öllum við- stöddum, konungbomum sem öðr- um, gert að setja plastpoka utan yfir skófatnað sinn. Var óneitan- lega sérkennilegt að heyra skijáfíð í plastpokunum keppa við hvæsið í hverunum á svæðinu. Dvöldu gestirnir dágóða stund á hvera- svæðinu og spurðu margs. Drottn- ing dró upp litla myndavél og myndaði í gríð og erg, m.a. mann sinn, Harald konung, Vigdísi og svæðið sjálft. Frá Námafjalli var haldið í Dimmuborgir, þar sem gestirnir gengu stuttan hring, áður en hald- ið var að hótel Reynihiíð, þar sem boðið var upp á hádegisverð, sveppasúpu, lax með appelsínusósu og skyr með blábeijum. Á leið til Akureyrar var gerður stuttur stans við Goðafoss. „Konungshjónin voru ákafiega áhugasöm um allt það sem þeim var sagt frá og tóku mjög vei eft- ir,“ sagði Jóhann Siguijónsson leið- sögumaður en hann er jarðeðlis- fræðingur að mennt. Sýndi drottn- ing t.d. mikinn áhuga á sögunni af Þorgeiri ljósvetningagoða og fannst gaman að sjá steinda gluggann í Akureyrarkirkju sem ber mynd Þorgeirs. Jóhann Sigurjónsson, jarðeðlisfræðingur og menntaskólakennari sýnir Soiyu drottningu og Haraldi konungi sjóðheitan brennistein á hverasvæðinu. Morgunblaðið/Rúnar Þór Hverasvæðið við Námafjall heillaði gestina, sem allir máttu seija plastpoka utan yfír skóna. F.v.: Vig- dís Finnbogadóttir forseti, Sonja drottning og Haraldur konungur V. Vigdís Finnbogadóttir, Haraldur Noregskonungur og Sonja drottn- ing gerðu stuttan stans i Dimmuborgum. Ekki í Reyk- holt veffna tímaskorts TÍMASKORTUR var ástæða þess að ákveðið var að keyra ekki með norsku konungshjónin í Reykholt á þriðjudag þegar hætt var við að fljúga þangað. „Ekki hefði náðst að keyra í Reykholt og svo til Reykjavíkur í tíma fyrir veislu, sem norsku konungshjónin héldu um kvöldið til hciðurs forseta ís- lands,“ segir Estrid Brekkan sendiráðsritari. Sveinn Bjömsson, forsetaritari, segir að ekki hafi verið talið óhætt að fljúga með konungshjón vegna hvassviðris og því hafi hópurinn sem að heimsókninnT stóð, Norðmenn og Islendingar, ákveðið í sameiningu að hætta við Reykholtsför. Ætlunin var að konungur skoðaði sig um í Reykholti og við það tæki- færi átti að færa konungi gjöf, út- gáfu af Landnámu bundna í geita- skinn. Að sögn Sveins gafst ekki tími til að senda gjöfína til konungs á meðan dvöl hans stóð og verður hún færð honum síðar. Drög að fjárlagafrumvarpi til umræðu í þingflokkum ríkisstjórnarinnar Hugmyndir um 14% virðisaukaskatt á vöru og þjónustu sem nú er undanþegin RÍKISSTJÓRNIN hefur lagt fyrir þingflokka sljórnarinnar hugmynd- ir um gerbreytingu á virðisaukaskattskerfinu í drögum að fjárlaga- frumvarpi næsta árs, sem fela í sér að tekinn yrði upp tvö skattþrep og 14% skattur lagður á allstóra flokka vöru og þjónustu sem í dag eru undanþegnir virðisaukaskatti en á móti yrði efra þrep skattsins Iækkað úr 24,5% í 22%. Breytingarnar eiga leiða til jöfnuðar en ekki til viðbótartekna fyrir ríkissjóð að öðru leyti en því að með þessari breytingu á að draga úr undanskotum frá skattheimtu. Hins vegar er gert ráð fyrir 800-1.000 miiy. kr. tekjuauka vegna breyttrar álagn- ingar á áfengi og tóbakssölu. Hugmyndir þessar eru þó ekki frágengn- ar og verða væntanlega til frekari umfjöllunar í þingflokkum ríkis- stjórnarinnar á föstudag. Útgjaldahlið ijárlagafrumvarps- ins er að mestu leyti frágengin en þó er enn uppi ágereiningur um nokkra þætti samkvæmt upplýsing- um Morgunblaðsins og er þess vænst að þingflokkar stjómarflokkanna komi aftur saman á föstudag til að afgreiða þá hlið frumvarpsins. Er ljóst af viðtölum við einstaka þing- menn að ágreiningur er enn uppi um einstakar spamaðartillögur auk þess sem efasemdir eru uppi um áformaðar breytingar á tekjuhiið. Hugmyndir um breyttan virðis- aukaskatt fela í sér að flestar und- anþágur frá skattinum verði afn- umdar og tekinn upp 14% skattur á vöru og þjónustu eins og hótelgist- ingu, íslenskar bækur, blöð og tíma- rit, afnotagjöld útvarps og sjón- varps, áskriftargjöld dagblaða, starfsemi íþróttafélaga, fólksflutn- inga of fleira en þær vörur og þjón- usta sem víðast hvar er undanþegin skattheimtu í nágrannalöndunum verði áfram skattfijáls. Talsverðar áhyggjur hafa komið fram um þessa breytingu innan þing- flokkanna, meðal annars vegna álagningar á ferðaþjónustu og menningarstarfsemi en bent er á að skatturinn eigi ekki að íþyngja fyrir- tækjum þar sem þau geti nýtt sér innskatt á móti útskatti. Þetta á einkum við um stærri hótel og fyrir- tæki þar sem kostnaðurinn er stór þáttur í rekstri en hins vegar þykir ljóst að 14% virðisaukaskattur muni leggjast með meiri þunga á rekstur minni aðila eins og til dæmis ferða- þjónustubænda. Þá er gert ráð fyrir að eignaskatt- stofninn verði breikkaður en hins vegar er ákveðið að skattur á fjár- magnstekjur verði ekki inn í áætlun- um um álagningu næsta árs eins og gerð hafði verið tillaga um sl. vor. Enn er óákveðið hvort af hugmynd- um um lækkun tekjuskatts á fyrir- tæki verður við endanlegan frágang frumvarpsins. Við umræður um gjaldahlið frum- varpsins hafa meðal annars tillögur um mikinn sparnað í starfsemi Landshelgisgæslunnar mætt and- stöðu í þingflokki sjálfstæðismanna en þær fólust m.a. í að skipum gæsl- unnar yrði fækkað og er nú leitað annarra leiða til lausnar á því máli. Hins vegar virðist ljóst að kaupum á nýrri björgunarþyrlu verði frestað enn um sinn en nokkrir þingmenn munu hafa farið fram á að nákvæm- lega yrði tímasett hvenær af kaupum verður á þyrlu. Hugmyndum sem lagðar voru fram um aukin og almenn skóla- gjöld í framhaldsskólum hefur verið ýtt út af borðinu samkvæmt upplýs- ingum blaðsins. Hinsvegar þykir sýnt að miklar breytingar nái í gegn í heilbrigðismálum þar sém meðal annars er rætt um frestun fram- kvæmda vegna nýrra sjúkrastofn- ana, þar á meðal á starfsemi hjúkr- unarheimilisins Eir. Þá hafa einstak- ir þingmenn gagnrýnt að ekki sé

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.