Morgunblaðið - 10.09.1992, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1992
21
iviorgunuiaoiu/i\unar i'or
Lítil stúlka færir Haraldi blóm við Lystigarðinn á Akureyri. Sonja drottning og Halldór Jónsson bæjar-
sljóri fylgjast með.
Fjöldi Akureyringa fylgd-
ist með för konungshjóna
KALDIJR norðanvindurinn minnti ótæpilega á sig er komið var að
kveðjustund norsku konungshjónanna og íslenskra gestgjafa þeirra
á Akureyrarflugvelli í gær en þá Iauk opinberri heimsókn konungs-
hjónanna. Síðasti viðkomustaður þeirra var Akureyri, þar sem bæjar-
stjórn bauð í stutta skoðunarferð um bæinn, athafnar í Akureyrar-
kirkju og móttöku á hótel KEA. Fjöldi Akureyringa fylgdist með
ferð konungshjónanna um bæinn, enda ekki á hverjum degi sem
hægt er að berja konung og drottningu augum.
Komið var til Akureyrar undir
kl. 16.30. Forseti bæjarstjórnar
Akureyrar, Sigríður Stefánsdóttir,
bæjarstjórinn, Halldór Jónsson og
frú Þorgerður Guðlaugsdóttir og
sýslumaður, Elías Elíasson og frú
Sigríður Lúðvíksdóttir tóku á móti
gestunum á M. Schiöthflöt í Lysti-
garðinum, á sama stað og Olafur
V. Noregskonungur var boðinn vel-
kominn er hann kom til Akureyrar
árið 1974. Gengu gestirnir í stutta
stund um garðinn en þangað höfðu
allmargir komið til að sjá konungs-
hjónin, ekki síst börn. Attu nokkur
þeirra bágt með að trúa því að
Sonja drottning væri sú sem sagt
væri þar hún bar ekki kórónu. Hins
vegar vakti borðalagður aðstoðar-
foringi konungs athygli margra
drengja.
Frá Lystigarðinum var ekið með
gestina um Akureyri, áður en hald-
ið var að Akureyrarkirkju. Þar
stóðu skátar heiðursvörð, eins og
raunar á öllum viðkomustöðum
konungshjóna á Akureyri. í Akur-
eyrarkirkju tóku séra Birgir Snæ-
björnsson og séra Þórhallur Hös-
kuldsson á móti konungshjónum,
forseta og fylgdarliði. Eftir að séra
Birgir hafði boðið gestina vel-
komna, lagði Haraldur konungur
blómakörfu við þakkarskjöld nor-
skra hermanna sem voru á Akur-
eyri í síðari heimsstyijöldinni. Við
það tækifæri þakkaði Egil D. Jo-
hanson, fyrir hönd hermannanna
en hann var í norskri flugsveit á
Akureyri á stríðsárunum og er einn
á lífi úr sinni flugsveit. Kom Johans-
en sérstaklega hingað til lands til
að vera viðstaddur þessa athöfn.
Fyrir og eftir athöfnina var leikin
tónlist úr Pétri Gaut eftir Grieg.
Úr Akureyrarkirkju gengu
norsku konungshjónin niður að hót-
el KEA, þar sem bæjarstjórn Akur-
eyrar var með móttöku þeim til
heiðurs. Bæjarstjórn færði kon-
ungshjónum veggmynd að gjöf, en
hún er eftir leirlistakonuna Mar-
gréti Jónsdóttur, bæjarlistamann
Akureyrar. Þá var konungi fært 1.
bindið af Sögu Akureyrar eftir Jón
Hjaltason, drottningu brjóstnæla
eftir Margréti og frú Vigdísi Saga
Akureyrar og bijóstnæla.
Móttökunni á hótel Kea lauk um
kl. 18.30 og var þá haldið rakleiðis
á Akureyrarflugvöli, þar sem „Inge-
mund viking“, vél SAS-flugfélags-
ins beið. Farið var að hvessa og
kula allnokkuð og kvöddu norsku
gestirnir hina íslensku gestgjafa
sína með miklum virktum, áður en
stigið var um borð í hlýja vélina
og haldið til Ósló.
Haustflær FEF á
kreik um helgina
FÉLAG einstæðra foreldra verður með fyrsta haustflóamarkað sinn
í Skeljanesi 6, n.k. laugardag frá kl 2 e.h. og síðan alla laugardaga
þann mánuð. Þennan fyrsta sölulaugardag verður margt af ýmsum
varningi, tiskufatnaður frá ýmsum tímum, húsgögn, gluggatjöld,
borðbúnaður og skraut, reiðhjól og svo mætti lengi telja.
gert ráð fyrir auknum fjái'veitingum
til djúpsjávarrannsókna á vannýttum
fiskitegundum í frumvarpinu en þess
í stað eru útgjöld til þessa mála-
flokks skorin niður.
Ríkisstjórnin kom saman til rúm-
lega klukkustundarlangs fundar í
gærkvöldi en áætlað hafði verið að
útgjaldahlið frumvarpsins yrði lokað
á þeim fundi. Það tókst ekki þar sem
enn eru órædd ýmis atriði sparnað-
artillagna og einnig vegna fjarveru
Halldórs Blöndal landúnaðar- og
samgönguráðherra sem er staddur
erlendis og Þá var tekjuhlið frum-
varpsins einnig til umræðu á fundin-
um. Davíð Oddssonar forsætisráð-
herra sagðist eftir fundinn vonast
til að tækist að Ijúka frágangi frum-
varpsins fyrir vikulokin. Þá verður
áfram fjallað um einstök atriði bæði
á útgjaldahlið og tekjuhlið sem þarf
lagabreytingar til að framkvæma.
Samkvæmt drögunum munu bæði
heildartekjur og útgjöld ríkissjóðs
lækka frá fjárlögum yfirstandandi
árs og er reiknað með að útgjöld
verði í kringum 108 milljarðar króna
en tekjur í kringum 104 milljarðar.
Félag einstæðra foreldra hefur
efnt til flóamarkaða nokkrum sinn-
um á ári í rösk 20 ár og hefur það
orðið félaginu dijúg tekjulind í fjár-
öflun til starfsseminnar. Um þessar
mundir stendur yfir viðhaldsvinna
á gluggum í Skeljanesi sem er ann-
að tveggja neyðar- og bráðabirgða-
húsa FEF fyrir einstæða foreldra í
tímabundnum húsnæðisvandræð-
um. í fyrra var gerður skurkur í
að mála Öldugötuhúsið og laga þak
o.fl. í fyrravor stóðu íbúar húsanna
sameiginlega fyrir flóamörkuðum
með prýðilegum árangri og tókst
þá að endurnýja ýmsan búnað,
kaupa nýjar þvottavélar, setja upp
nýjar sturtur og fleira. Að þessu
sinni stendur fráfarandi húsnefnd
fyrir fyrsta flóamarkaðnum.
Eins og fyrr er verðlag hagstæð-
ara en gengur og gerist en öllu
prútti er samt tekið með fögnuði.
Geta ber þess að greiðslukort eru
tekin, segir í fréttatilkynningu frá
FEF.
HLBOÐ
VIKUNNAR
HAGKAUP
- allt í einni ferd