Morgunblaðið - 10.09.1992, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1992
Stjómarandstæðingar deila í EES-umræðum
Ásakanir um vanrækslu í
svonefndri „girðingagerð“
STJÓRNARANDSTÆÐINGAR ítrekuðu gagnrýni og athugasemdir
sínar við samninginn um Evrópskt efnahagssvæði, EES. Kristinn
H. Gunnarsson (Ab-Vf) kom með nýjar áhyggjur um framtíðarstöðu
Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins, ÁTVR. Jóhannes Geir Sigur-
geirsson (F-Ne) og Steingrímur J. Sigfússon (Ab-Ne) sendu hvor
öðrum orðaskeyti um hugsanlega vanrækslu á því að kanna svo-
nefnda „girðingagerð", þ.e.a.s. að takmarka landakaup útlendinga
án þess að mismuna á grundvelli þjóðernis.
Ólafur Ragnar Grímsson (Ab-
Rn) var fyrstur á mælendaskrá
þegar umræða hófst á 16. fundi
Alþingis í gær laust eftir kl. 13.30.
Ræðumaður ítrekaði andstöðu og
gagnrýni Alþýðubandalagsmanna
á samninginn. Talsmaður Alþýðu-
bandalagsins vísaði til þess að við
þessa fyrstu umræðu hefðu fjöl-
mörg efnisatriði og spurningar
komið fram. En Ólafur Ragnar
saknaði þess mjög að ráðherrar
ríkisstjómarinnar hefðu gert grein
fyrir álitamálum í sínum mála-
flokkum. Ræðumaður tilgreindi
sérstaklega félagsmálaráðherrra,
landbúnaðarráðherra og félags-
málaráðherra. Þögn ráðherranna
hefði hamlað því að þessi umræða
hefði getað orðið svo efnisleg sem
vænst hefði verið.
Ræðumaður ítrekaði áskoranir
stjómarandsstæðinga um að fall-
ast á þjóðaratkvæðagreiðslu um
samninginn um EES. Það væri
skynsamleg og farsæl leið sem
þyrfti ekki að trufla þingstörfm í
vetur. Ólafur Ragnar vildi einnig
ítreka þá afstöðu síns flokks að
þess ætti að fara formlega á leit
við EB að viðræður um tvíhliða
samning hefjist nú þegar.
Ólafur Ragnar saknaði þess
einnig að ríkisstjórnin gerði grein
fyrir því hvemig hún hyggðist
tryggja yfírráð íslendinga yfir
orkulindunum. Utanríkisráðherra
hefði bent á að það væri unnt með
því að gera þær að þjóðareign.
Ræðumaður sagði sinn flokk styðja
það heilshugar. En hins vegar var
honum spurn hvort Sjálfstæðis-
flokkurinn styddi slíkt frumvarp
um flutning úr einkaeign til ríkis-
eignar. Sjálfstæðisflokkurinn og
Framsóknarflokkurinn að hluta
hefðu ávallt staðið gégn slíkri laga-
setningu.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
(SK-Rv) gagnrýndi harðlega að
ráðherrar ríkisstjórnarinnar svör-
uðu litlu eða engu sem þeir væru
spurðir um. Hún hefði trúað því
að Alþingi væri málþing þar sem
menn mættust með rök og gagn-
rök. Henni virtist Davíð Oddsson
forsætisráðherra ekki deila þessari
trú með sér. Forsætisráðherra virt-
ist álíta að ræða ætti málin á lokuð-
um fundum og í hliðarsölUm. Utan-
ríkisráðherra mátti og þola gagn-
rýni, m.a. fyrir það að mála mjög
dökka mynd af efnahagsástandinu
nú en halda svo fram gylltri mynd
EES sem okkar hjálpræði. Ráð-
herrann höfðaði til „gullgrafara-
mórals“ íslendinga.
Ótrúlegt að verði sagt upp
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
taldi sér skylt að svara spurningu
sem Vilhjálmur Egilsson (S-Nv)
beindi til stjórnarandstæðinga um
hvort þeir myndu, ef þeir kæmust
til ráðherravalda, segja upp samn-
ingnum um EES? Ræðumaður taldi
erfitt að gefa bindandi loforð til
að efna í óljósri framtíð. En hún
sagði sína skoðun. Hún teldi af-
skaplega trúlegt að það yrði ekki
gert. Uppsagnarákvæði samnings-
ins væri formlegt fremur en raun-
verulegt. Með EES yrði gerbreyt-
ing á öllum aðstæðum, breyting
sem ekki yrði svo auðvelt að taka
aftur. Það væri fráleitt að stjórn-
völd gætu kippt nýlögðum grund-
velli undan fólki og fyrirtækjum.
Hjólum sögunnar yrði ekki snúið
við.
Jóhannesi Geir Sigurgeirssyni
(F-Ne) sagðist vera ljóst mikilvægi
þess að ná góðum viðskiptatengsl-
um við Evrópu. Og einnig mikil-
vægt að þráðurinn slitnaði ekki í
viðræðunum við Evrópubandalag-
ið. Ef samningnum um EES yrði
hafnað á þessu stigi, þá gæti það
leitt til þess að þráðurinn slitnaði,
jafnvel um eitthvert árabil, á með-
an gengið yrði frá samningum um
aðild annarra EFTA-landa að EB.
Að vísu hefðum við bókun 6. sem
væri ágæt svo langt sem hún næði.
„En hún nær bara ekki eins langt
og sumir sem hér hafa talað vilja
vera láta.“
Ræðumaður taldi að utanríkis-
ráðherra og hans samstarfsmönn-
um hefðu orðið á veruleg „tæknileg
mistök“. Utanríkisráðherra hefði
fylgt þeirri kennisetningu að bíða
með sjávarútvegsmálin þangað til
á lokastigi samninganna. Nú væri
samningurinn um skipti á veiði-
heimildum ekki frágenginn og það
væri líka að koma í ljós að okkar
hagsmunir væru ekki tryggir.
Ræðumaður nefndi t.d. hagsmuni
okkar vegna síldarútflutnings. Jó-
hannes Geir vildi fá svör frá ut-
anríkisráðherra hvemig samingar
um síldina stæðu. Þessi þáttur
væri í uppnámi.
Jóhannes Geir taldi óljóst hvem-
ig íslendingum yrði tryggður for-
gangur að nýtingu lands. Nú væri
að koma á daginn að erfitt væri
að koma svonefndum girðingum
við. Ræðumaður vísaði m.a. til lög-
fræðilegrar álitsgerðar sem unnin
hefði verið fyrir núverandi land-
búnaðarráðherra. Jóhannes taldi
ástæðu til að þakka fyrir þetta
álit um leið og hann hlyti að harma
að Steingrímur J. Sigfússon (Ab-
Ne) hefði ekki látið þessa vinnu
fara fram í sinni embættistíð sem
landbúnaðarráðherra.
Ræðumaður sagði þá sína skoð-
un og Framsóknarmanna að margt
hefði breyst í þessum samningi frá
því sem verið hefði í tíð fyrri ríkis-
stjórnar. Aðrar aðstæður hefðu og
breyst og nú væri ljóst að hin
EFTA-löndin ætluðu í EB. Hann
minnti á að Framsóknarmenn vildu
að sá möguleiki að breyta EES-
samningnum í tvíhliða samning
yrðu kannaður. Framsóknarmenn
hefðu viljað og vildu að þessi flötur
yrði skoðaður en lítil viðbrögð
fengið. Jóhannes Geir uggði að
skýringin væri sú að margir vildu
þróa EES-samninginn til aðildar
að EB. En Jóhannes Geir taldi
okkur ekkert erindi eiga þangað
inn.
„Girðingagerð"
Steingrímur J. Sigfússon (Ab-
Ne) veiti andsvör. Fyrrum land-
búnaðarráðherra vildi mótmæla
þeim málflutningi að íslendingar
hefðu misst af einhverju tækifæri
með því að láta hjá líða að gera
breytingar á jarðalögunum vetur-
inn 1990-91. Slíkur málflutningur
byggði á fáfræði og misskilningi.
Það sem skipti máli væri hvort
ákvæði laga stæðust EES-samn-
inginn. Þar gilti einu hvort þessi
lög væru ný eða gömul. Jóhannes
Geir Sigurgeirsson sagði að sín
gagnrýni beindist að því að fyrrum
landbúnaðarráðherra hefði ekki
látið vinna grundvallarupplýsingar
sem menn hefðu þurft að hafa til
að geta tekið afstöðu. Steingrím-
ur J. Sigfússon sagði ástæðuna
fyrir því að slík vinna hefði ekki
farið fram vera þá að hann hefði
verið algjörlega andvígur því að
falla frá kröfunni um varanlegan
fyrirvara. Hann hefði hafnað hug-
myndum frá þáverandi utanríkis-
ráðherra um að gefa eftir kröfuna
um varanlegan fyrirvara og einnig
málaleitan frá forsætisráðherra.
(Steingrímur Hermannsson þáver-
andi forsætisráðherra fór fram á
að kannað yrði hvort ekki mætti
með lagasetningu ganga þannig
frá málum að ekki þyrfti varanlega
fyrirvara. Innsk. blm.) Steingrímur
J. Sigfússon spurði hvort það bæri
að skilja málflutning Framsóknar-
manna núna sem sönnun þess að
þeir hefðu veturinn 1990-91 verið
tilbúnir að falla frá kröfunni um
varanlegan fyrirvara. Steingrímur
taldi að Framsóknarmenn væru á
þunnum ís. Jóhannes Geir Sigur-
geirsson taldi það vera lágmarks-
kröfu til ráðherra að þeir þyldu
gagnrýni. Jóhannes Geir sagði
framsóknarmenn í öllum sínum
ályktunum hafa sett kröfuna um
forræði Islendinga á landi á odd-
inn. Jóhannes Geir minnti einnig á
það að Ólafur Ragnar Grímsson
formaður Alþýðubandalagsins
hefði verið tilbúinn að leiða Jón
Baldvin Hannibalsson i sæti for-
sætisráðherra. Hvernig héldi
Steingrímur J. Sigfússon að fyrir-
varinn hefði verið tryggður undir
forsæti núverandi utanríkisráð-
herra?
Kristinn H. Gunnarsson (Ab-
Vf) endurtók gagnrýni Alþýðu-
bandalagsmanna í nokkru máli.
Ræðumaður átaldi ráðherra fyrir
rýr svör við þeim ábendingum og
athugasemdum sem fram hefðu
komið. Þetta væri virðingarleysi
gagnvart þeim sem lagt hefðu í
þá vinnu að kynna sér samninginn.
Kristinn hafði hnotið um mörg at-
riði og var hann að ijalla um ríkis-
-einkasölur er hann varð að gera
hlé á sinni ræðu kl. 16.00 vegna
þingflokksfunda.
ÁTVR
Kl. 18.00 komst Kristinn aftur
í ræðustól og kom þá fram þorsti
þingmannsins eftir skýringum um
málefni Áfengis- og tóbaks-
verslunar ríkisins. Kristni var
kunnugt um bókun 8, yfírlýsingu
Framhaldsskóli Vestfjarða tekur til starfa
*
I eigu ríkis og flestra sveitarfélaga á Vestfjörðum
ísaflrði.
FRAMHALDSSKÓLI Vestfjarða, sem tekur við öllu framhaldsnámi
á Vestfjörðum og kemur í stað Menntaskólans, Húsmæðraskólans
og farskólans á Isafirði, Iðnskóla, vélskóla og stýrimannaskóla á
Vestfjörðum, var settur í byijun september. Höfuðstöðvar skólans
verða í fyrrverandi húsnæði Menntaskólans á ísafirði, sem nú hefur
verið lagður niður, en útibú verða rekin víðsvegar um Vestfirði eft-
ir því sem ástæður leyfa á hveijum tíma. Skólinn er í eigu ríkisins
og flestra sveitarfélaga á Vestfjörðum en fjárhagsleg ábyrgð á
rekstri er öll í höndum ríkisins. Sveitarfélögin greiða 40% af bygg-
ingarkostnaði húsnæðis en nú er í undirbúningi bygging verkmennta-
húss á lóð skólans á Torfnesi. Skólameistari er Björn Teitsson en
formaður skólanefndar Pétur Bjarnason fræðslustjóri.
Um 320 nemendur verða 1 skól-
anum í vetur, þar af 227 á ísafirði
en 93 á Patreksfírði og Hólmavík.
Auk þess er áætlað að um 20 nem-
endur stundi fjarnám við skólann.
Fyrsta ár öldungadeildar verður
ekki starfrækt í vetur en 23 nem-
endur eru þar á öðru og þriðja ári.
Skíðabraut verður við skólann í
vetur en erfíðlega hefur gengið að
festa hana í sessi og vildi mennta-
málaráðuneytið fella hana niður. Á
síðasta ári fór skólinn verulega
fram úr heimildum fjárlaga með
rekstrarkostnað, að hluta til var það
vegna fleiri nemenda en gert var
ráð fyrir og fékkst það viðurkennt,
en hluti umframkostnaðar fluttist
yfír á þetta ár og veldur það skólan-
um nokkrum vandræðum þótt útlit
sé fyrir að endar náist að mestu
leyti saman í ár með ströngum að-
haldsaðgerðum. í augnablikinu eru
til dæmis ekki til nægjanlega marg-
ir stólar í allar kennslustofurnar en
von er að úr rætist fljótlega. Kenn-
aralið er að mestu óbreytt frá síð-
asta ári og er það til mikilla bóta,
að sögn rektors.
Það vekur athygli að í skólasetn-
ingarræðu Björns Teitssonar skóla-
meistara leggur hann áherslu á, í
orðum sínum til nýnema, að nú sé
átakalitlu grunnskólanámi lokið
með prófl sem ekki sé hægt að falla
á, en framundan sé nám sem geri
kröfur um árangur annars falli
nemendur úr skóla. En það sem
hann telur mikilvægast að nýnem-
arnir kunni og geti tileinkað sér er
stafrófið og margföldunartaflan.
Vegna aðhaldsaðgerða er engin
stuðningskennsla lengur við skól-
ann og þurfi nemendur á aukatím-
um að halda þurfa þeir að semja
sérstaklega um það við viðkomandi
kennara og greiða fyrir.
Jón Reynir Sigurvinsson er að-
stoðarskólameistari og hefur yfir-
umsjón með öldungadeild skólans,
sem að mestu leyti er kvöldskóli,
og fjarnáminu, en Guðmundur Ein-
arsson er umsjónarmaður farskól-
ans og Guðrún Stefánsdóttir, sem
lauk stúdentsprófi úr öldungadeild
1985 og er að ljúka námi í náms-
ráðgjöf frá Háskóla íslands, verður
námsráðgjafi í vetur.
Þrír erlendir nemendur verða við
skólann í vetur; piltur frá Nýja Sjá-
landi og stúlkur frá Austurríki og
Ástralíu.
Framhaldsskóli Vestfjarða er
reyklaus skóli samkvæmt ákvörðun
skóianefndar frá í vor og á það við
um nemendur, kennara og aðra
starfsmenn skólans.
Við skólasetninguna léku Guðrún
Bjarnveig Magnúsdóttir á píanó og
Jónas Tómasson tónskáld á flautu
Svaninn úr Karnivali dýranna eftir
Camille Saint Saéns. .
- Úlfar
29
þess efnis að Norðurlöndin utan
EB álitu áfengiseinkasölur einn
þátt í grundvallarstefnu í heilbrigð-
is- ojg félagsmálum. Kristinn taldi
að ATVR yrði lítil vörn í þessari
yfírlýsingu. Hann benti á að í fjár-
lögum íslenska ríkisins væri fyrir-
tækið sett undir ráðuneyti fjármála
en ekki heilbrigðis- eða félags-
mála. Fyrirtækinu væri og ætlað
að skila arði í ríkissjóð. Hann sæi
ekki betur en ÁTVR væri ríkis-
einkasala sem rekin væri eftir
gróðasjónarmiðum og samkvæmt
samkeppnisreglum EES-samn-
ingsins; „ljóst að slík fyrirtæki á
að slá af.“ Ræðumaður hafði af
þessu verulegar áhyggjur, furðaði
sig á því andvaraleysi sem hann
taldi vera um þetta mál.
Guðni Ágústsson (F-Sl) sagði að
þessi umræða á þjóðþinginu hefði
ekki sannfært „hinn almenna
mann“ um að í EES-samningnum
fælist ekki framsal á fullveldi voru.
Ekki sannfært hinn almenna mann
um að vonir um efnahagslegan
ábata réttlættu þær fórnir sem við
yrðum að færa. Það var auðheyri-
legt að Guðni deildi þessum efa-
semdum og tortryggni með hinum
„almenna manni“. Guðni ítrekaði
í nokkru máli gagnrýni og efa-
semdir Framsóknarmanna, t.a.m.
um að EES stæðist stjómarskrá.
Guðni átaldi mjög skipan svo-
nefndrar fjórmenninganefndar.
Hann taldi þessa skipan hafa verið
til vitnis um geðleysi Sjálfstæðis-
manna, að utanríkisráðherra pant-
aði álit sem væri pólitískt pantað.
Það hefðu líka verið alvarleg mis-
stök hjá þingmönnum Sjálfstæðis-
flokks og Alþýðuflokks að sam-
þykkja að utanríkisráðherra undir-
ritaði samninginn fyrir íslands
hönd, án þess að vita hvað í samn-
ingnum væri og hvað hefði breyst
á langri vegferð samningsgerðar-
innar. Guðna undraði að þingmenn
Sjálfstæðisflokksins skyldu allir
samþykkja svo afdrifarík mistök.
Eyjólfur Konráð Jónsson (S-Rv)
upplýsti að það hefðu ekki allir
þingmenn gert. Guðni taldi þessa
yfirlýsingu enn veikja grunninn
undir svo vafasaman samning.
Ræðumaður minnti í ræðulok á
ályktun Framsóknarmanna um að
gengið yrði úr skugga um að samn-
ingnum um EES mætti breyta í
tvíhliða samning ef/þegar hin
EFTA-ríkin gengu í EB.
Davíð Oddsson forsætisráð-
herra sagði að í sínum huga væri
enginn vafl um að tvíhliða viðræð-
ur hefðu ekki skilað okkur jafn
hagfelldum samningi og EES-við-
ræðumar hefðu fært okkur. Hins
vegar ef mál þróuðust þannig í
framtíðinni að við yrðum eitt ríkja
eftir, þá væri ljóst að eðli þessarar
samningsgjörðar myndi breytast í
nánast tvíhliða samning.
Stundarkorn
Laust eftir kl. 19 var fundi frest-
að til kl. 20.30. Jón Baldvin Hanni-
balsson utanríkisráðherra mælti
fyrir samningnum um EES 26.
ágúst. Samningurinn hefur síðan
verið til umræðu á átta þingfund-
um. Þegar fundi var frestað um
kvöldmatarleytið í gær hafði fyrsta
umræða tekið um 31 klukkustund.
Þar af höfðu alþýðubandalags-
menn talað í um 11 tíma, fram-
sóknarmenn í um sex tíma, þing-
menn Samtaka um Kvennalista,
fímm og hálfan tíma aþýðuflokks-
menn í tæpa 4 tíma og sjálfstæðis-
menn u.þ.b. 2 tíma og 20 mínút-
ur. Þegar fundi var frestað var
umræðunni ólokið en samkomlag
var um að ljúkja henni á þessum
þingfundi. Þá voru fimm á mæl-
endaskrá, þar af fjórir alþýðu-
bandalagsmenn. Einnig var sam-
komulag um að ljúkja fyrstu um-
ræðu um frumvarp stjómarand-
stæðinga um breytingu á stjórnar-
skrá sem þeir telja nauðsynlega til
þess að fyrirbyggja að hugsanleg
samþykkt EES-samningsins yrði
stjórnarskrárbrot. í því máli voru
tveir þingmenn á mælendaskrá. Á
áttunda tímanum í gærkvöldi var
þess vænst að tækist að ljúka þess-
um umræðum á kvöldfundinum.