Morgunblaðið - 10.09.1992, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1992
31
Afmæliskveðja:
Hildur Pálsdóttir
Malmqvist
Hildur Pálsson Malmqvist, Stiga-
hlíð 4, Reykjavík, er 80 ára í dag.
Hún fæddist í Borgargerði, Reyðar-
firði 10. september 1912, dóttir
hinna góðu og mætu heiðurshjóna
Kristrúnar Bóasdóttur og Jóhanns
Malmqvist sem áttu 16 börn, allt
duglegt sómafólk, sem unnu sín
verk í kyrrþey, heimtuðu alrei neitt
af öðrum eins og nútímaþjóðfélag
gerir. Börnin eru öll fjölhæf, þó
voru þau ekki hlaupandi og segj-
andi frá því þótt þau gerðu einhveij-
um greiða. Hildur var alltaf ljúf og
góð og þetta jafnaðargerð hennar
kom sér vel, því í lífi hennar hafa
skipst á skin og skúrir sem svo
margir í þessu jarðneska lífí þekkja
og taka misjafnlega. Suniir verða
beiskir og aðrir taka því skynsam-
lega eins og Hilla frænka mín hefur
alltaf gert.
Hildur gift.ist ung Stefáni A.
Pálssyni, þann 8. október 1932,
ágætis manni og áttu þau átta börn,
þijú dóu ung. A lífi eru: Stefanía,
bókari hjá Flugleiðum, hún er gift
Bimi Valgeirssyni, arkitekt hjá
Reykjavíkurborg; Páll, auglýsinga-
stjóri hjá DV, kvæntur Önnu
Guðnadóttur, bankaritara; Stefán,
forstöðumaður húss Verslunarinn-
ar, kvæntur Jórunni Magnúsdóttur,
mikilli sómakonu sem lætur ekki
börn sín á dagheimili; Kittý, gift
Ólafi Ólafssyni, verslunarmanni hjá
Fálkanum og Hrafnhildur, flug-
freyja, gift Val Asgeirssyni, deildar-
stjóra hjá Flugleiðum. Eg veit ekki
annað en börn Hildar og makar
þeirra séu allt sómafólk og góðir
þjóðfélagsþegnar og sannir íslend-
ingar sem vilja þjóð okkar allt það
besta og vinna af heilum hug að
því að íslenska þjóðin verði alltaf
sjálfstæð þjóð og henni verði vel
stjórnað af ábyrgum mönnum sem
láta ekki útlendinga dáleiða sig.
Stefán minnkaði verslun sína
þegar börnin fóru að fara að heim-
an og fluttu þau hjónin að Stiga-
hlíð 4, þar er hlýlegt að koma eins
og alltaf. Þau heiðurshjónin voru
alltaf svo blíð, elskuleg og sam-
hent. Stefán fæddist 1901 og lést
1989. Mér hefur alltaf þótt vænt
um Hillu eða frá því ég man fyrst
eftir mér og hlakkaði alltaf til næsta
sumars, því ég fór alltaf með henni
í beijamó. Það var föst venja hjá
fósturforeldrum hennar sem voru
norsk að njóta þessarar einu jurtar
sem mannshöndin kemur ekkert
nálægt. Hildur var tekin í fóstur 3
ára af Rolf Johannsen og hans mik-
ilhæfu konu, Kitty. Það litu allir
Reyðfirðingar upp til þeirra kaup-
mannshjónanna og ég vildi óska
þess að frændþjóðir okkar litu af
eins mikilli virðingu til kónga sinna
og drottninga. Börn og tengdabörn
buðu móður sinni út í hinn stóra
heim í þriggja vikna ferð og verður
hún þar af leiðandi ekki heima á
afmælisdaginn. Það hefur alltaf
verið mikill kærleikur á milli barn-
anna og foreldra þeirra. Ég man
alltaf fyrst eftir því þegar ég kom
sem unglingur i fyrsta skipti á
heimili Hillu. Ég var svo hrifin af
eldhúsinu sem var mjallahvítt og
héngu þar uppi pottar og pönnur
og var það til mikillar prýði og
gleymi ég því aldrei. Hilla er mikil-
hæf kona, smekkmanneskja og fer
vel með allt og er fram úr hófí
nýtin. Ég kem oft til Hillu og kom
oft til þeirra hjónanna fýrirvara-
laust þegar ég var á ferðinni og
alltaf var jafn vel og elskulega tek-
ið á móti mér. Þau hjónin voru allt-
af svo hlý og góð og fólk verður
betri manneskjur af að kynnast
þeim ágætis hjónum. Börn þeirra
eru sama manngæskan, skemmti-
leg og góð. Innilegustu óskir með
áttræðisafmælið elsku frænka.
Lifðu heil. Þess óskar
Regína Thorarensen.
Félagamir Ámi Stefán Ásgeirsson, Sigurgisli Pálsson og Geir Gunn-
arsson söfnuðu nær 6.200 kr.
HRAÐLESTUR - NAMSTÆKNI
Ef þú vilt margfalda lestrarhraðann til að njóta þess að lesa
meira af góðum bókum eða til að taka næstu próf með glæsi-
brag, ættir þú að skrá þig á hraðlestrarnámskeið.
Lestrarhraði nemenda meira en þrefaldast að jafnaði, hvort
heldur er í erfiðu eða léttu lesefni.
Næsta námskeið hefst fimmtudaginn 24. september nk.
Skráning í síma 641091.
HRAÐLESTRARSKOLINN
...við ábyrgjumst að þú nærð árangri!
— 1978-1992 E
Með breyttum lífsstíl
gegn ofáti og offitu
4 vikna námskeið þar sem tekið er á offituvandanum á
raunhæfan og árangursríkan hátt.
Fyrirlesarar: Læknir, sálfræðingur, næringarfræðingur,
snyrtifræðingur og fl.
Hópvinna
Ráðleggingar
Einkaviðtöl
Takmarkaður fjöldi.
Leiðbeinandi verður Heiðrún B. Jóhannesdóttir.
Námskeiðið er haldið í fundarsal Í.S.Í.
og hefst 14. september nk.
Innritun og upplýsingar í síma 673137 eftir kl. 15.00.
Þessir krakkar heita Gunnar Gunnarsson, Sara Pálsdóttir og Sunneva
Pálsdóttir. Þau héldu hlutaveltu til ágóða fyrir Hjálparsjóð Rauða
krossins. Þau söfnuðu rúmlega 2.480 krónum.
LÆKKIÐ BYGGINGAKOSTNAÐINN
Við sérpöntum frá Englandi þak- og klæðingarstál, stutt-
ur afgreiðslufrestur. Margar gerðir, margir litir.
Frábært veii
Bjóðum einnig af lager vinsæla stallaða Plannja
þakstólið með tíulsteínsmunstri, og S8BA stél
þakrennumar með litaðri plastisol-vörn.
ÍSVÖR
BYGGINGAREFNI
Dalvegur 20. Box 435 202 Kóp. Slmi 641255, Fax 641266
p .m $mm\ m
Metsölublad á hverjum degi!
Viðgerðir - viðhald
Ath.: Allar lekaþéttingar,
sprungu- og múrviðgerðir. Yfirför-
um þök fyrir veturinn. Sótthreins-
um sorprennur og ruslakompur.
Upplýsingar í síma 653794 milli
kl. 19.00 og 22.00.
P
KENNSLA
Ik IIVÉLRITUNARSKÓUNN
ÆlÁNANAUSTHM I 5
jfSS I 0 1 REYKJAVÍK
mKmaM sími 2 eo 40
Ný námskeið byrja 10. sept.
Innritun í símum 28040 og 36112.
Ath.: VR og BSRB styrkja félaga
sína á námskeið skólans.
Hvítasunnukirkjan
Völvufelli
Samkoma í kvöld kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
Félag fráskilinna
heldur fund í Risinu, Hverfisgötu
105, föstudaginn 11. september
kl. 20.30.
Nýir félagar velkomnir. Sjáumst.
Stjórnin.
Orð lífsins,
Grensásvegi 8
Almenn samkoma i kvöld kl.
20.30. Allir hjartanlega velkomnir!
I kvöld kl. 20.30 er almenn sam-
koma í Þríbúöum.
Mikill söngur. Vitnisburðir Sam-
hjálparvina. Ræðumaður Þórir
Haraldsson. Kaffi að lokinni
samkomu. Allir velkomnir.
Samhjálp.
Hjálpræðís-
herinn
Kirkjustræti 2
kvöld kl. 20.30: Almenn sam-
koma. Kapt. Thor og Elbjörg
stjórna og tala.
Þú ert hjartanlega velkominn.
Flóamarkaðsbúðin í Garðastræti
2 er opin frá kl. 13-18 í dag.
FERÐAFÉLAG
# ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 ■ SÍMI 682533
Helgarferðir Ferðafé-
Iagsins11.-13.sept.
1) Landmannalaugar-
Hrafntinnusker - Álftavatn
Gist fyrri nóttina í Landmanna-
laugum og þá seinni við Álfta-
vatn.
Ekið frá Landmannaleið upp
Pokahrygg að Hrafntinnuskeri
og síðan áfram vestan Lauga-
fells um Fjallabaksleiö syðri að
Álftavatni.
Óvenjuleg ökuleið um hrikalegt
landslag.
2) Þórsmörk - uppselt!
Upplýsingar og fanmiðasala á
skrifstofu FÍ, Mörkinni 6.
Feröafélag (slands.
UTIVIST
Hallvoigarstig 1 • simi 614330
Ferðir um næstu helgi
11.-13. september:
Básar á Goðatandi.
Haustlitirnir að byrja. Gist
skála. Gönguferðir með farar-
stjcra.
12.-13. september:
Fimmvörðuhðls.
Gengið frá Skógum á laugardag
og gist í Fimmvörðuskála, siðan
í Bása á sunnudag.
Örfá sæti laus.
Hin árvissa haustlita- og grill-
veisluferð Útivistar f Bása verð-
ur 18.-20. september.
Munið að sækja/panta miða
timanlega þvi fá pláss eru eftir
í skála. Fararstjórar verða Ingi-
björg S. Ásgeirsdóttir og Sigurð-
ur Einarsson.
Sjáumst í Útivistarferð.
FERÐAFÉLAG
® ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 ■ SÍMI 682533
Dagsferðir
Ferðafélagsins:
Laugardagur 12. sept.
Kl. 08 Hekla
Gengið frá Skjólkvium og tekur
gangan um 8 klst.
Verð kr. 2.000.
Sunnudagur 13. sept.:
1) Kl. 10.30 Hrómundar-
tindur - Kattartjarnir
Hrómundartindur (554 m) er
austan Hengils, gengið frá Hell-
isheiði, komið niður hjá Ölfus-
vatnsgljúfrum og þeim fylgt að
Ölfusvatnsheiði, en um hana
liggur Grafningsvegur og þar
endar gangan. Verð kr. 1.100,-.
2) Kl. 13 Dyravegur -
gömul þjóðleið
Ekið um Nesjavallaveg, gengið
frá Dyrum austur yfir Sporhellu
og Háhrygg, þaðan niður Rauðu-
flög að Nesjavöllum. Forvitnileg
gönguleið um ótrúlega fjölbreytt
landslag. Verð kr. 1.100,-.
Brottför frá Umferðarmiðstöð-
inni, austanmegin, og Mörkinni
6. Farmiðar við bíl. Frítt fyrir
börn að 15 ára aldri. Gönguferð-
ir Ferðafélagsins eru ætlaðar
öllum, sem ánægju hafa af úti-
veru og hollri hreyfingu.
Velkomin í hópinn!
Ferðafélag íslands.