Morgunblaðið - 10.09.1992, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1992
35
Jóhanna KOdds-
dóttir - Minning'
Fædd 23. apríl 1929
Dáin 3. september 1992
Himininn yfir. Huggast þú sem grætur.
Stjörnur tindra, geislar guðs,
gegnum vetrar nætur.
Þetta brot úr ljóðina Haustið
nálgast eftir Stefán frá Hvítadal
lýsir hugum okkar vegna fráfalls
hennar Jóhönnu. Haustvindar hrifu
hana burt úr þessu heimi allt of
skjótt og setur okkur hljóð. Jóhanna
bar höfuðið hátt þrátt fyrir erfiðan
sjúkdóm og vildi sem minnst úr
honum gera. Þetta lýsir henni í raun
vel, ákveðin og hugrökk fram til
síðustu stundar. Jóhanna var okkur
ávallt hlý og elskuleg og þannig
munum við geyma minningu henn-
ar.
Fjölskyldu Jóhönnu, Einari eigin-
manni hennar, sonum hennar, Guð-
mundi og Reyni, dóttur hennar,
Guðbjörgu, mökum og börnum
þeirra, aldraðri móður og ættingj-
um, sem öll studdu hana til hinstu
stundar, vottum við okkar innileg-
ustu samúð á þessum erfiðu tíma-
mótum.
Við kveðjum Jóhönnu í hinsta
sinn með söknuð í hjarta.
Egill, Vigdís og synir.
Nú er komið að því að kveðja
ástkæra móður okkar með nokkrum
fátæklegum orðum.
Jóhanna Kristín Oddsdóttir fædd-
ist í Reykjavík 23. apríl 1929 og
ólst upp vestast í Vesturbænum.
Foreldrar hennar voru þau Guðbjörg
Eiríksdóttir og Oddur Tómásson.
Guðbjörg er enn á lífi og býr í Furu-
gerði 1, en Oddur dó í fyrra. Eftirlif-
andi bræður mömmu eru þeir Tóm-
ás, Eiríkur og Jóhannes. Arið 1951
kynntist móðir okkar Einari Stein-
ólfi Guðmundssyni og upp frá þeirri
stundu var vegurinn lagður að in-
dælu og farsælu hjónabandi þeirra.
Eignuðust þau þijú börn; Guðmund,
Reyni Má og Guðbjörgu Therísíu.
Móðir okkar var gædd þeim ynd-
islega hæfileika að vera góð móðir,
hjálpsöm og ávallt til staðar þegar
erfiðir tímar sóttu á fjölskylduna.
Foreldrar okkar voru mjög sam-
rýnd og störfuðu saman bæði á
Kveðjuorð
Það var í byrjun- ágúst, að okkur
hjónunum bárust þau tíðindi til
Mexíkóborgar, að Páll Líndal, fyrr-
verandi ráðuneytisstjóri, hefði orðið
bráðkvaddur á heimili sínu þann 25.
júlí sl. Með Páli er mikilhæfur gáfu-
maður og áreiðanlega einn af fróð-
ustu mönnum um sögu okkar og
menningu á þessari öld horfinn til
foidar og er okkur öllum mikil eftir-
sjá að honum. Það má kannski segja,
að ég hafi á nokkurn hátt haft áhrif
á ævistarf Páls síðustu árin sem
hann lifði, og er mér ljúft að minn-
ast samverustunda okkar og ágæts
samstarfs, sem við áttum.
Við Páll kynntumst í því umróti,
sem skapaðist í íslenzkum stjórnmál-
um fyrir og eftir alþingiskosningarn-
ar 1987 með tilkomu Borgaraflokks-
ins. Áður hafði ég fylgzt með emb-
ættisferli Páls eins og aðrir menn,
sem fylgjast með þjóðmálum á ís-
landi, og þótt hann hafi vissulega
átt við mikla erfiðleika að stríða hin
seinni árin, stóðu engu að síður upp
úr miklir hæfileikar hans sem dug-
mikils embættismanns og þau fjöl-
mörgu ábyrgðarstörf, sem hann
hafði tekizt á hendur og unnið
samvizkusamlega af mikilli þekk-
ingu til heilla fyrir land og þjóð.
Haustið 1989 gerðist Borgara-
flokkurinn aðili að fjögurra flokka
ríkisstjórn undir forsæti Steingríms
Hermannssonar og varð það hlut-
skipti mitt sem formanns Borgara-
flokksins að undirbúa og koma á
heimilinu og í vinnunni. Ráku þau
tvær verslanir og unnu öll störf þar
sem þurfti.
I veikindum sínum stóð hún sem
klettur, studd af fjölskyldu sinni.
Það er ómetanlegt að eiga góðar
og fallegar minningar um mömmu
og munu þær ætíð lifa í hjörtum
okkar allra.
Elsku pabbi, við biðjum góðan
guð að styrkja þig í sorg þinni. Að
lokum viijum við skila þakklæti til
allra á deild A7 á Borgarspítalanum
með vinsemd og þakklæti fyrir alla
hjálpina.
Nú er ég klæddur og kominn á ról,
Kristur Jesús veri mitt skjól.
1 guðsóttanum gefðu mér
að ganga í dag svo líki þér.
Guðmundur Einarsson,
Reynir Már Guðmundsson,
Guðbjörg Therísía
Guðmundsdóttir.
Eg vil kveðja hér með fáeinum
orðum tengdamóður mína, Jóhönnu
Kristínu Oddsdóttur, sem lést á
Borgarspítalanum 3. september sl.
Jóhanna fæddist 23. apríl 1929 í
Reykjavík. Eftirlifandi eiginmaður
hennar er Einar Guðmundsson. Þau
áttu þijú börn, Guðmund, Reyni
Má og Guðbjörgu.
Kynni okkar Jóhönnu stóðu ekki
nema tæp þijú ár og allan þann tíma
var hún meira og minna veik af
þéim sjúkdómi sem dró hana til
dauða. Þrátt fyrir það var hún dug-
leg og kát, hugsaði mikið um fjöl-
skylduna og tók þátt í gleði og sorg-
um fólksins í kringum sig. Hún var
ákaflega umhyggjusöm. Alltaf
hringdi hún ef eitthvað var að, eða
ef hún hélt að hún gæti orðið að
liði. Jóhanna var viðkvæm kona og
mátti ekkert aumt sjá, en samt
mjög sterk þegar á reyndi og kom
það ekki síst í ijós í síðustu sjúkra-
hússlegunni. Einar eiginmaður
hennar og böm þeirra studdu hana
eftir mætti þessi erfiðu ár og bið
ég Guð að styrkja þau í sorg þeirra.
Það voru ekki mörg ár sem ég
átti Jóhönnu að vini. Þau hefðu
betur orðið fleiri.
Að leiðarlokum þökkum við Dag-
legg nýju ráðuneyti umhverfismála
innan Stjórnarráðs íslands. Þegar
ég mætti til vinnu sem nýskipaður
ráðherra var enginn annar starfs-
maður á skrifstofunni og mitt fyrsta
verk að leita uppi hæfan mann, sem
gæti hjálpað mér við að undirbúa
stofnun ráðuneytisins, koma rekstri
skrifstofu þess í eðlilegt horf og
leysa hin flóknu verkefni á sviði
lagasetningar um umhverfismál,
sem voru framundan. Ég var strax
vis um, að með Páli fengi ég ein-
mitt slíkan mann og falaðist eftir
því við iðnaðarráðherra, að hann
lánaði mér Pál, sem þá starfaði sem
deildarstjóri í iðnaðarráðuneytinu.
Það varð úr, að Páll féllst á að koma
til mín í hið nýja ráðuneyti og vorum
við því þrjú á skrifstofunni fyrsta
veturinn.
Páll var hamhleypa til verka þótt
hann hafi ef til vill ekki haft áhuga
á að nota nýjustu tækni svo sem
tölvur og annað þess háttar sér til
aðstoðar. Hins vegar afkastaði hann
mun meira með sínum vanabundnu
aðferðum heldur en margur tölvu-
maðurinn. Með óþijótandi dugnaði
og af brennandi áhuga á þeim mál-
um, sem tengdust hinu nýja ráðu-
neyti, átti Páll sinn þátt í því, að
vel tókst til með alla starfsemi ráðu-
neytisins þegar í upphafi. Það var
því auðvelt verk að ráða fyrsta ráðu-
neytisstjóra hins nýja ráðuneytis, en
Páll sóttist eðlilega eftir því að fá
að halda áfram vinnu sinni við þau
björt dóttir mín og ég, kærlega fyr-
ir ljúf og góð kynni og kveðjum
hana með þessu ljóði.
Hvar sem önd þín unir
ei mun vetur þjaka
- vor og sí blítt sumar
sifellt hjá þér vaka.
- Ótal þúsund þakkir,
þigg frá vina heimi!
- Andvaka er enduð.
- Árvoðin þig geymi!
Þorbjörg Jónsdóttir.
Elsku vinkona mín Jóhanna er
látin. Það er erfitt að lýsa vináttu
okkar en fyrst og fremst var það
virðing og kærleikur sem tengdi
okkur saman.
Við höfðum þekkst í átján ár og
alltaf reyndist hún sannur vinur.
Hún elskaði börn og ekki fóru börn-
in mín varhluta af því. Ég vil
styrkja minningu hennar með þess-
um fátæklegu orðum og votta eig-
inmanni hennar, börnum og ætt-
ingjum mína dýpstu samúð.
Eg læt hér fylgja ljóð eftir
Schubert, sem Sigurður Einarsson
íslenskaði.
Ave Maria ungfrú hrein.
Þú skynjar allt sem skelfír hjartað
og skilur öll vor huldu mein.
Við þig fær öll vor angist kvartað.
Af brosi þínu ilmur andar
þín ásýnd ljómar skær sem mjöll
og miskunn þinnar mildu handar
svo mjúk að gróa sár vor 511.
Ave María.
Theodóra Ragnarsdóttir,
Robert Albert Spanó og börn.
fjölmörgu málefni hins nýja ráðu-
neytis svo sem alhliða umhverfis-
og náttúruvernd, sem honum voru
afar hugleikin, frekar en hverfa aft-
ur til sinna fyrri starfa. Þá kom sér
að góðum notum hin mikla þekking
Páls á íslenzkum og erlendum lögum
um náttúruvernd og afskipti hans
af þeim málum áður.
Páll var oftast glaðlyndur og kát-
ur við störf og kunni jafnan frá
ýmsu að segja. Þau voru ófá skiptin,
sem við hlustuðum öll hugfangin á
Pál segja okkur sögur af mönnum
og málefnum, en hann var eins og
lifandi alfræðiorðabók. Mér er það
minnisstætt er ég var beðinn að
flytja ræðu kvöldsins á árshátíð
starfsmanna Stjórnarráðsins vetur-
inn 1990-91. Mig langaði til að geta
sagt nokkrar gamansögur af starfs-
háttum í Stjórnarráðinu á árum áður
og leitaði upplýsinga hjá Páli. Hann
kunni nánast utan að alla sögu
Stjórnarráðsins frá upphafi og vissi
að auki um öll spaugileg tilvik, sem
höfðu átt sér stað innan veggja
Stjórnarráðsins. Það var því ekki
ónýtt að geta sótt í slíkan sjóð til
að undirbúa tölu fyrir jafn virðulegt
samkvæmi.
Með þessum fátæklegu orðum
langar mig til að kveðja góðan
dreng, sem nú er burt genginn. Ég
er forsjóninni þakklátur fyrir það,
að leiðir okkar lágu saman þegar
mikið lá við og ég þurfti á góðri
aðstoð að halda. Eg vil að lokum
nota þetta tækifæri, þar sem við
hjónin vorum fjarverandi þegar Páll
var til moldar borinn, og sendi fjöl-
skyldu hans innilegar samúðarkveð-
ur.
Júiíus Sólnes, fyrrverandi
umhverfisráðherra.
Páll Líndal
t
Eiginmaður minn og faöir okkar,
GRÍMUR LUND,
andaðist í Borgarspítalanum 9. september.
María Jóhannsdóttir,
Rúnar Lund,
Rannveig G. Lund,
Katrín Anna Lund.
t
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
SIGMAR BJÖRNSSON
fyrrverandi verkstjóri,
Egilsbraut 18,
Þorlákshöfn,
verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 11. sept-
ember kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vildu
minnast hans, er bent á að láta Foreldra- og vinafélag Kópavogs-
hælis njóta þess.
Guðlaug Sigmarsdóttir, Tprggvi Jóhannsson,
Hörður V. Sigmarsson, Sigurbjörg E. Guðmundsdóttir,
Björn Sigmarsson,
Vilhjálmur Jónsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
t
Útför ástkærs sonar okkar,
BJÖRGVINS DAVÍÐS BJÖRNSSONAR,
sem lést af slysförum 5. september,
verður gerð frá Siglufjarðarkirkju laug-
ardaginn 12. september kl. 14.00.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent
á minningarkort Unglingaráðs K.S.
Fyrir hönd systra og ættingja.
Halldóra S. Björgvinsdóttir,
Björn Valur Gíslason,
Ólafur Þór Ólafsson,
Þuríður L. Rósenbergsdóttir.
t
Innilegar þakkir og kveðjur sendum við öllum þeim, sem auð-
sýndu okkur samúð og vináttu vegna andláts og útfarar móður
okkar,
BALDVINU ÞÓRU ÞORSTEINSDÓTTUR
frá Ögðum,
Dalvik.
Soffia Guömundsdóttir,
Rannveig Guðmundsdóttir,
og fjölskyldur.
t
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför konu
minnar og móður,
HELGU ALICE JÓHANNS.
Haraldur Pálsson,
Katrfn Mist.
t
Innilegar þakkir sendi ég öllum þeim, er sýndu mér og mínum
samúð og vinarhug við andlát og útför konu minnar,
ÞORGERÐAR ÞÓRARINSDÓTTUR
frá Gottorp.
Steinþór Ásgeirsson frá Gottorp.
Birting afmælis- og
minningargreina
Morgfunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting-
ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins á
2. hæð í Aðalstræti 6, Réykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn-
arstræti 85j Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að
berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tek-
in til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta til-
vitnanir í ljóð eftir þekkt skáld, og skal þá höfundar getið. Sama
gildir ef sálniur er birtur. Meginregla er sú, að minningargreinar
birtist undir fullu nafni höfundar.