Morgunblaðið - 10.09.1992, Blaðsíða 38
38
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. aprfl) IP*
Þú efnir til vinafundar í
dag. Frumlegar hugmyndir
færa þér velgengni á vinnu-
stað. Sambandið við ástvin
styrkist.
Naut
(20. apríl - 20. maí) (ffö
Horfur í peningamálum
fara batnandi og þú færð
viðurkenningu fyrir vel
unnið verk. Góðar fréttir
berast.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) )»
Staður tengdur ljúfum
minningum heillar þig í
dag. Þú ferð ekki í laun-
kofa með skoðanir þínar og
talar tæpitungulaust.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí) »$í
Þróun mála á bak við tjöld-
in er þér í hag um þessar
mundir. Samstarf við fé-
laga gengur vel og fjöl-
skylduböndin styrkjast.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þér gefst tækifæri til að
auka tekjumar. Hæfileikar
þínir leyna ekki á sér. Veg-
ir ástarinnar eru greiðir.
Meyja
(23. ágúst - 22. snntemberl
Dugnaður þinn og sjálfs-
öryggi leiða til ábata í við-
skiptum. Þér em allir vegir
færir og horfur í peninga-
málum fara batnandi.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Þú ert að ráðgera skemmti-
ferð. Skapandi listamenn
eiga góðu gengi að fagna.
Vinsæll staður hentar til
ástafunda.
Sporódreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Þér berast óvæntar fréttir
frá vini sem þú hefur ekki
heyrt frá lengi. Fjölskyldu-
málin ganga að óskum í
kvöld.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) m
Þeir sem eru óbundnir gætu
stofnað til tryggs ástasam-
bands í dag. Þú færð nýjar
hugmyndir um hvemig
auka má tekjumar.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Lestur góðrar bókar getur
aukið víðsýni þína. Frum-
kvæði þitt og sjálfsögun
veita þér velgengni.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) $jrk.
Dagurinn hentar vel fyrir
stefnumót, íþróttir eða lík-
amsþjálfun. Þú færð nýjar
hugmyndir varðandi fjár-
öflun.
Fiskar
'taíÚBt'
(19. febrúar - 20. mars)
Horfur em á að þér berist
óvænt gjöf eða mikilvæg
tíðindi í dag. Óvænt heim-
boð leiðir til þess að þú
eignast nýjan vin.
Stjörnusþána á aó lesa sem
dœgradvöl. Sþár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
vísindalegra staðreynda.
MORGUNBLAPIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1992
UÓSKA
FERDINAND
—— S8I ó'TkC W"** j? -J j || fK
1 TM0U6HT F\R5T- CLA55
PA55ENGER5 UJERE ALWAY5
5ERVEP A NICE LUNCH..
Hvað með hádegisverð?
Ég hélt að farþegar á fyrsta farrými
fengju alltaf góðan hádegisverð...
BRIDS
Umsjón: Guðm. Sv.
Hermannsson
Sigur Frakka á Ólympíumót-
inu í Salsomaggiore var í móts-
blaðinu kallaður sigur eðlilega
bridsins. Frakkamir nota lítið
af sagnvenjum en styðjast því
meir við bijóstvitið í sögnum og
spilamennsku. Það gerir and-
stæðingum þeirra þó ekkert auð-
veldara fyrir.
Norður
♦ D8
TDG1096
♦ G5
♦ DG104
Vestur Austur
♦ Á97643 ...... *G52
¥Á7 ¥K85
♦ 843 ♦ 1093
*K6 * 9532
Suður
♦ K10
¥432
♦ ÁKD76
*Á87
Vestur Norður Austur Suður
Muller Perron De Boer Chemla
1 spaði pass pass 2 grönd
pass 3 tíglar pass 3 hjörtu
pass 3 grönd pass 4 hjörtu/
+420
Þetta spil kom fyrir í leik
Frakka og Hollendinga í undan-
keppni Ólympíumótsins. 2 grönd
lofuðu raunar a.m.k. 18 punkt-
um en Chemla setti það ekkert
íýrir sig og endaði í 4 hjörtum
eftir yfirfærslusögn Perrons.
Vestur spilaði út spaðaás og
þar sem laufakóngur lá ekki
fyrir svíningu virtist samningur-
inn dæmdur til að tapast. En
Chemla fann leið til að gera
vörninni erfitt iýrir. Hann henti
spaðakóngnum undir ásinn, tók
næsta slag með spaðadrottning-
unni í borði og spilaði þaðan
hjartadrottningunni. Austri virt-
ist sem hjartasvíning væri í upp-
siglingu og lagði ekki kónginn
á og þar með var spilið unnið.
Vestur fékk á ásinn og spilaði
aftur hjarta á kóng austurs, en
þá var of seint að spila laufi.
Chemla fór upp með ás, tók
trompin og henti laufunum í
borði niður í tígul. Einfalt en
árangursríkt.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á árlega opna mótinu í Berlín
í ágúst kom þessi skemmtilega
staða upp í viðureign þýsku skák-
tölvunnar Mephisto, sem hafði
hvítt og átti leik, og Þjóðverjans
Körholz (2.265).
Tölvan hefur peði meira, en
yfir henni vofir hrikaleg hótun,
28. — Rf5-g3+ og svartur vinnur.
Tölvur njóta sín vel í svo hvössum
stöðum þegar meira reynir á
hreina útreikninga en mat og
skilning. Mephisto leysti vanda-
málin glæsilega:
29. Rxd6+! - Rxd6, 30. Bxc5 -
Rf5 (Hvítur vinnur einnig mann-
inn til baka eftir 30. — Bxc5, 31.
bxc5+ og hefur þá jafnframt dreg-
ið tennurnir úr svörtu gagnsókn-
inni.) 31. Bxd4 - Hhg8, 32. Hb2
— Hxg2, 33. b5 og tölvan vann
auðveldlega á frípeðum sínum á
drottingarvæng. Mephisto er sér-
stök skáktölva, en ekki forrit fyr-
ir einkatölvur eins og t.d. MChess,
sem vakið hefur athygli hér heima
undanfama mánuði.