Morgunblaðið - 10.09.1992, Síða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1992
Blikastúlkur fögnuðu
BREIÐABLIK tryggði sér svo
gott sem íslandsmeistaratitil-
inn í knattspyrnu kvenna þegar
liðið gerði 1:1 jafntefli við ÍA í
miklum rok- og baráttuleik á
Skaganum í gærkvöldi. Það sem
getur komið í veg fyrir að
Breiðablik verði meistari er
tvenn: í fyrsta lagi að Stjarnan
vinnu kærumál á hendur ÍA
varðandi „leik“ liðanna í síðustu
viku, sem flautaður var á og af,
og leikurinn verði því settur á
að nýju, en auk þess þarf ÍA
að vinna þann leik 9:0 til að
tryggja sér titilinn, sem verður
að teljast nokkuð fjarlægur
draumur svo ekki sé meira sagt.
Heljarmikið rok setti svip sinn á
leikinn í gærkvöldi og gerði
leikmönnum oft á tíðum ákaflega
erfltt fyrir. Vindur-
inn var nálægt því
Eiríksson að vera Þvert á vö»-
skrifar inn, en þó heldur
meira í bak Blik-
anna. Blikastúlkur voru líka heldur
skeinuhættari í sókninni, t.a.m. átti
Vanda Sigurgeirsdóttir þrumuskot í
þverslána strax í byrjun leiks.
Mark Blikanna kom á 32. mínútu
og var laglega að því staðið. Ásta
B. Gunnlaugsdóttir gaf á Ásthildi
Helgadóttur sem stakk sér inn fyrir
vörn ÍA og skoraði með góðu skoti
framhjá Steindóru Steinsdóttur
markverði IA. Nokkurt iíf færðist í
Skagastúlkur við þetta, Guðlaug
Jónsdóttir skaut góðu skoti að marki
UBK rétt fyrir leikhlé sem Sigfríður
Sophusdóttir í markinu varði.
Blikastúlkur byrjuðu síðari hálf-
leikinn af meiri krafti en Skagastúlk-
ur, en þær síðarnefndu náðu undir-
tökunum fljótlega. Þéim gekk þó
erfiðlega að skapa sér hættuleg
færi þrátt fyrir að vera meira með
knöttinn, bæði vegna þess hve rokið
gerði stúlkunum erfítt fyrir og auk
þess var vörn Blika sterk.
Á 66. mínútu fengu Skagastúlkur
vítaspymu eftir að knötturinn fór í
hönd varnarmanns. Úr henni skoraði
Jónína Víglundsdóttir örugglega.
Fátt markvert gerðist eftir jöfn-
unarmarkið og Blikastúlkur fögnuðu
ákaflega þegar flautað var til leiks-
loka.
Vanda Sigurgeirsdóttir og íjóð-
Morgunblaöið/Kristinn
Blikastúlkur höfðu ástæðu til að fagna jafnteflinu gegn Skagastúlkum í gærkvöldi. Hér er hluti liðsins að þakka
áhangendum sínum stuðninginn eftir leikinn. Frá vinstri: Katrín Jónsdóttir, íjóðhildur Þórðardóttir, Olga Færseth, Ásta
B. Gunnlaugsdóttir, Vanda Sigurgeirsdóttir, Unnur Þorvaldsdóttir, Kristrún Daðadóttir, Ásthildur Helgadóttir og Sigfríð-
ur Sophusdóttir.
hildur Þórðardóttir voru langbestar
Blikastúlkna, sem flestar stóðu sig
vel. Unnur Þorvaldsdóttir og Katrín
Jónsdóttir voru ásamt Vöndu í vörn-
inni og stóðu fyrir sínu. Ásthildur
Helgadóttir átti góða spretti á miðj-
unni. Liðið barðist vel og hafði mik-
inn og augljósan vilja til að klára
dæmið.
Skagastúlkur komust í erfiða
stöðu þegar þær fengu á sig mark-
ið, og náðu ekki að vinna sig út úr
þeim vandræðum. Vindurinn gerði
liðinu erfítt fyrir, reyndar báðum lið-
um, en eitthvað virtist vanta, sigur-
vilji Blikastúlkna var að minnsta
kosti meiri. Undirritaður bar það
undir Skagamenn að leik loknum
hvort kæra Stjörnunnar vegna leiks-
ins sem flautaður var af hafí setið
í hópnum, en vegna hennar hefði
Skagamönnum ekki verið afhentur
íslandsbikarinn ef þeir hefðu sigrað
Blika nú. Smári Guðjónsson þjálfari
IA sagði að ákveðið hefði verið fyrir
leikinn að útiloka þetta, en kannski
hafí þetta blundað í einstaka leik-
mönnum.
Skagastúlkur stóðu sig þrátt fyrir
allt mjög vel, sýndu oft ágætt sam-
spil þrátt fyrir erfiðar aðstæður, en
þeim voru ákaflega mislagðar hend-
ur, eða öllu heldur fætur, þegar
nálgaðist vítateiginn. Karitas Jóns-
dóttir lék vel sem og Sigurlín Jóns-
dóttir, og Halldóra Gylfadóttir sýndi
mikla og góða baráttu, þrátt fyrir
að leika með skurð á augabrún nær
allan leikinn.
KNATTSPYRNA/1. DEILD KVENNA
Morgunblaðið/Kristinn
Halldóra Gylfadóttir.
■ HALLDÓRA Gylfadóttir lék að
öllum líkindum sinn síðasta leik með
liði ÍA í gærkvöldi. Hún fékk þann
úrskurð þremur dögum fyrir bikarúr-
slitaleik ÍA og UBK í síðasta mán-
uði að hún væri með hjartagalla og
mætti því ekki leggja stund á knatt-
spyrnu.
■ BLIKASTÚLKUR létu það vera
sitt fýrsta verk eftir að hafa fagnað
„líklegum" íslandsmeistaratitli að
færa Halldóru gjöf; ramma með
myndum af henni sjálfri og litlu ljóði,
ásamt gulri rós. Ásta B. Gunnlaugs-
dóttir færði henni gjöfina og þakk-
aði henni fyrir allt gamalt og gott
og bað hana jafnframt um að láta
sér batna sem fyrst.
■ UÓÐIÐ sem Blikastúlkur
færðu Halldóru fylgir hér:
Þó skónum þínum skipir hátt
í skáp, að safna ryki,
þá aldrei gleyma einu mátt
að eitt sinn varstu Bliki.
Hjá okkur góðan fékkstu grunn,
sá gangur var býsna hraður.
Afleiðingin er öllum kunn,
ekta Skagamaður.
HANDBOLTI
Þjálfaranámskeið HSÍ
Útbreiðslu- og fræðslunefnd HSÍ og
handknattleiksdeild Víkings gangast fyrir
b-stigs þjálfaranámskeiði í Víkinni dagana
11., 12. og 13. september og 18., 19. og
20. september. Námskeiðið hefst kl. 17 á
morgun, fimmtudag.
Meðal kennara verða Þorbergur Aðal-
steinsson, Jens Einarsson, Gunnar Einars-
son, Siguijón Elfasson, Jón Gíslason, Viggó
Sigurðsson, Gauti Grétarsson og Þorsteinn
Jóhannesson.
Þátttaka tilkynnist á skrifstofu HSÍ (s.
91-685422) eða hjá Víkingi (s. 91-813245)
eigi síðar en f dag, 10. september.
Adalfundur HKRR
Aðalfundur Handknattleiksráðs Reykjavík-
ur verður haldinn fimmtudaginn 17. sept-
ember kl. 18.30 í veitingasal ÍSÍ í Laugar-
dal.
Vona að bikarinn
komi ekki í pósli
- sagði Guðjón Reynisson þjálfari UBK
Mér líður eins og ég sé í lausu
lofti, mig langar til að sleppa
mér og fagna þessu, en þetta er
ekki búið og samt finnst mér að
þetta sé komið,“ sagði Guðjón
Reynisson þjálfari Breiðabliks eftir
leikinn. „Þegar og ef við fáum þenn-
an bikar vil ég að það verði við
skemmtilegar aðstæður, en ekki að
hann komi í pósti.“
Aðspurður um kærumálið sem kom
í veg fyrir bikarafhendinguna sagði
Guðjón að þetta væri leiðinlegt
mál, og menn verði að sameinast
um að svona gerist ekki aftur.
„Stúlkurnar leggja mikið á sig, nú
orðið ekki minna en strákarnir og
því verður að tryggja að svona ger-
ist ekki. Ég kenni engum sérstökum
um þetta, hvorki einstaklingum né
KSÍ, en þegar svona gerist á alltaf
að finna lekann og setja undir
hann,“ sagði Guðjón.
Guðjón sagðist ekki vera feiminn
við að segja að hann væri með besta
liðið á landinu í dag, þó margir
hafi dregið það í efa. „Ég hef aldr-
ei á mínum þjálfaraferli kynnst eins
skemmtilegum, jákvæðum og hæfi-
leikaríkum hópi og þessum,“ sagði
Guðjón.
Ekki að heyra að við
værum á útivelli
„Ég er mjög ánægð með leikinn.
Hann var mjög erfiður, rokið gerði
það að verkum að það var varla
hægt að spila. Það var æðislega
gaman að sjá alla þessa Blika á
leiknum. Við héldum að við myndu
mæta ofjörlum okkar varðandi
áhorfendafjölda hér, _ en það var
ekki að heyra,(‘ sagði Ásta B. Gunn-
laugsdóttir leikmaður Breiðabliks.
„Það er ömurlegt fyrir knatt-
spyrnuna að lið getur ekki verið
öruggt um sigur í mótinu eftir síð-
asta leik. En því miður er aginn
hjá einstaka liðum ekki meiri en
þetta,“ sagði Smári Guðjónsson
þjálfari ÍA, og vísaði til kærumáls
Stjörnunnar út af leiknum sem
flautaður var á og af. „Leikurinn í
kvöld einkenndist af baráttu og lé-
legum aðstæðum og auðvitað var
3penna til staðar." Smári sagðist
aðspurður ekki telja að Stjarnan
og IA muni leika að nýju, því að
hans mati eigi Stjarnan ekki að
geta unnið kæruna. „Ég óska UBK
til hamingju með sigurinn, sem þó
er ekki sigur ennþá,“ sagði Smári.
KNATTSPYRNA / UNDANKEPPNI HM
Leikurinn jafnari en
tölumar gefa til kynna
sagði Asgeir Elíasson sem sá Ungverja sigra Lúxemborgara 3:0
UNGVERJAR sigruðu Lúxem-
borgara 3:0 í 5. undanriðli
heimsmeistarakeppninnar i
knattspyrnu í Lúxemborg f
gærkvöldi. íslendingar eru í
þessum riðli, og var Ásgeir
Elíasson landsliðsþjálfari á
meðal áhorfenda.
Sjö leikmenn í byrjunarliði
Ungveija í gær byrjuðu gegn
íslendingum í Búdapest í
vor, er íslendingar unnu frækileg-
an sigur, 2:1. Einn úr byrjunarlið-
inu þá kom inn á sem varamaður
í gær og annar, sem kom inn á
sem varamaður í vor hóf leikinn
í gær.
Frægasti knattspyrnumaður
Ungverja, Lajos Detari _sem er nú
í herbúðum Áncona á Ítalíu, var
með í gær en hann lék ekki gegn
íslendingum. Hann skoraði fyrsta
markið eftir 16 mínútur og lagði
upp það næsta I seinni hálfleik.
„Þetta var nokkuð jafnt í fyrri
hálfleiknum. Ungveijarnir skor-
uðu þetta eina mark og sóttu
heldur meira. Mark Detaris var
fallegt og vel gert hjá honum, en
ég hefði þó ekki verið ánægður
með að fá svona mark á mig —
hefði viljað að markvörðurinn
minn verði skotið,“ sagði Ásgeir
Elíasson við Morgunblaðið. Detari
skaut talsvert utan teigs.
Ásgeir sagði leikinn hafa áfram
verið í jafnvægi eftir hlé, en Ung-
veijar siðan skorað óvænt fljót-
lega. Þar var Kalman Kovacs á
ferðinni eftir glæsilegan undir-
búning Detaris og síðan gerði
Kovacs annað mark seint í leikn-
um.
„Lið Lúxemborgaranna var í
nokkuð góðu lagi. Ungveijarnir
voru heldur sterkari en fengu
ekki mörg færi. Ekkert fyrir utan
það sem Detari skoraði úr í fyrri
hálfleik og ekki mörg í þeim
seinni,“ sagði Ásgeir. Hann sagði
Detari hafa skipt sköpum að því
leyti að hann skoraði fyrsta mark-
ið og lagði upp það næsta, en að
öðru leyti hefði hann ekki breytt
ungverska liðinu mikið frá því í
viðureigninni við ísland.
Ásgeir sagðist telja að Lúxem-
borgarar gætu reynst erfiðir
viðureignar. „Ég held samt að við
eigum að geta unnið þá.“ Hann
sagði nokkra ágæta leikmenn í
liðinu, það hefði reyndar leikið
heldur varlega framan áf en farið
að sækja af nokkrum krafti í
seinni hálfleiknum og þriðja mark
Ungveija hefði komið eftir hrað-
aupphlaup í framhaldi af þungri
sókn heimamanna.
Lúxcmborg - John Van Rijswijck, Marcel
Bossi, Thomas Wolf, Pierre Petry, Marc
Biracne, Jean-Paul Girres, Guy Hellers,
Carlo Weie, Jeff Saibene (Luc Holtz 58.),
Roby Langers, Theo Malget (Serge Thil)
80.).
Ungveijaland - Zsolt Petry, Tibor Nagy,
I-aszlo Disztl, Jozsef Keller, Emil Lorina,
Zsolt Limperger (Andras Telek 65.), Jozsef
Kiprich, Tibor Balog, Istvan Pisont (Gyorgy
Bognar 81.), Lajos Detari, Kalman Kovacs.