Morgunblaðið - 22.10.1992, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1992
Laugardaginn 24. október kl.
16.00 opnar Steinunn Þórarins-
dóttir sýningu á verkum sínum I
Listmunahúsinu, Hafnarhúsinu
við Tryggvagötu.
Þetta er sjöunda einkasýning
í m vflJí —p— - 'pa - . S3>~ SÓBU’ i’ER Ð1
i
•»■71 lío r Jn
w
1
Stórhöfða 17, við GuUinbrú, sími 67 48 44
Steinunnar, en auk þess hefur hún
tekið þátt i fjölda samsýninga heima
og erlendis, síðast á alþjóðlegum
skúlptúrbiennal í París í sumar.
Verk eftir Steinunni eru á opin-
berum stöðum víða um land, meðal
annars í Stjómsýsluhúsinu á
ísafírði, minnisvarðar í Sandgerði
og á Grundarfirði, altaristafla í
Kópavogskirkju, verk í Borgar-
kringlunni í Reykjavík og víðar.
í fréttatilkynningu segir að Stein-
unn hafí hlotið ýmsar viðurkenning-
ar svo sem starfslaun ríkisins,
starfslaun Reykjavíkurborgar 1986
og fyrstu verðlaun um altaristöflu
í Kópavogskirkju.
Verkin á sýningu Steinunnar í
Listmunahúsinu eru flest vegg-
Listakonan Edda Jónsdóttir.
Stórar vörður
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
í sýningarskrá fylgir Edda
Jónsdóttir myndverkum sínum
úr hlaði með eftirtöldum orðum:
„Ég hef teiknað, málað og
þrykkt vörður síðastliðin fjögur
ár, og trúlega er ekki allt sagt
enn. Þegar veturinn verður
dimmastur verður þörfín á veg-
vísum mest, huglægum sem
raunverulegum. Að þeim er ég
að leita."
Sviðið er listhúsið Nýhöfn að
Hafnarstræti 18, og tilefnið er
sýning 8 stórra myndverka er
öll era byggð upp á vörðuforminu
sem meginstefi, ásamt 6 þrykkj-
um og þaraf era 4 einþrykk.
Edda málar hin stóra verk sín
með akríl-litum á striga, en hið
stærsta þeirra er 220x178 sm,
en tvö hin minnstu 147x157 sm.
Listakonan færist þannig mik-
ið í fang með þessum yfírstærð-
um og ber það vott um djörfung
og áræði.
Uppranalega vann Edda nær
einvörðungu í grafík, og er einn-
ig útskrifuð í þeirri grein frá
MHÍ. Alla tíð síðan hefur þessi
undirstöðumenntun fylgt henni
og verið dijúgt vegamesti í átök-
um við annan efnivið.
Síðasta sýning Eddu hér á
landi var { Norræna húsinu fyrir
tveim áram og tel ég það hennar
sterkasta framlag til þessa, en í
miliitíðinni hefur hún einnig sýnt
í Campaigne Fonciere Seine et
Rhone í París svo og í ísienzka
íisthúsinu í den Haag.
Það er þannig nokkur ferð á
listakonunni, sem að auki hefur
nú komið sér vel fyrir í Álafoss-
húsinu í Mosfellsbæ þar sem hún
hefur mun meira rými til athafna
en nokkra sinni áiður.
Hún hefur og ótrauð lagt á
brattan við gerð þessara stóra
málverka en sennilega hefur
hraðinn verið full mikill því að
þau era ekki eins áhrifarík og
t.d. vörðumar í Norræna húsinu.
Þær virka að þessu sinni eitthvað
svo hráar og einar og þannig séð
meira sem einbúar en vegvísar.
Það er auðvelt að hrífast af
athafnagleðinni sem ber vott um
vinnugieði og bjartsýni en að
þessu sinni er minna um átök
og skynræn vinnubrögð en áður.
Sjálfar innri lífæðar listarinnar
virðast mér ekki nægilega virk-
ar.
Þrykkin era allt annar hand-
leggur því að hér er Edda á
heimavelli og formræn línuheild-
in í senn skynræn og sannfær-
andi.
Þjóðsagna-
ogævin-
týramyndir
Sýning á hjóðsagna- og ævintýra-
myndum Ásgríms stendur nú yfir
i safni Ásgrims Jónssonar. Sýn-
ingin stendur til 29. nóvember.
Safnið er opið um helgar kl.
13.30-16.00. Lokað í desember og
janúar.
Steínunn í Listmunahúsinu
Frá Runeberg
til Saarikoskis
Békmenntir
Jóhann Hjálmarsson
Finnskt ljóðakver. Sigurjón
Guðjónsson þýddi. Alefli 1992.
Siguijón Guðjónsson birtir í
Finnsku ljóðakveri þýðingar eftir
sig frá löngu tímabili. Siguijón
hefur þýtt töluvert úr norrænum
málum þótt fátt eitt sé prentað af
því. Finnskt ljóðakver kynnir les-
endum gamian og nýjan skáldskap
Finna, eða frá Runeberg (1804-
1877) til Saarikoskis (1937-1983).
Kvæði Runebergs, ekki síst
Sveinn Dúfa, nutu mikilla vinsælda
á íslandi í þýðingu Matthíasar
Jochumssonar. Siguijón Guðjóns-
son sýnir ágætlega hina ljóðrænu
hlið Runebergs með því að þýða
smákvæðin góðkunnu Sorg og
gleði og Stundina einu.
Fleiri þýðendur en Siguijón hafa
glímt við Edith Södergran, Katri
Vala, Solveigu von Schoultz, Bo
Carpelan og fleiri. Þess verður
stundum vart í þýðingum Siguijóns
að hann hefur alist upp við og
mótast af öðram brag en tíðkast
hjá mörgum nútímaskáldum, en
ekki getur þetta talist til skaða.
Mér virðist einmitt Siguijón sækja
á og verða æ leiknari við þýðingar
vandasamra samtímaljóða.
Paavo Haavikko er eitt þeirra
finnsku skáida sem verðskulda
ítarlegri kynningu hér heima. Sig-
uijón þýðir eitt ljóð eftir hann, Ég
heyri regnið vakna:
Ég heyri regnið vakna, en mig langar að
gráta,
mig langaði að heyra grátinn bijótast út,
einnig ég vildi gráta, ekki vera aleinn.
Draumur fölnar, kveikt er á kertum á fimm-
arma stjökum,
ég horfi gegnum myrkrið,
trönumar flytja, garg þeirra er rödd sem
berst gegnum nóttina,
þær fljúga, gráir fugiar yfir næturhöf
eins og augnaráð,
ó elskan min,
þú hallar þér út á borðstokkinn og sérð
ekki neitt,
ekki að fuglamir eru famir.
Skýin velta fram úr myrkrinu, rigningin út
úr myrkrinu,
trönumar sem horfa á hlusta gegnum regn-
ið, þær fljúga
til austurs, þær heyra grátinn, trönumar,
konungsfuglamir,
þær þeklq'a sorgina, trönumar.
Siguijón þýðir mest eftir Edith
Södergran, en margir hafa freist-
ast til að túlka ljóð hennar á ís-
lensku, síðast Njörður P. Njarðvík
í heilli bók. Vegna þess hve Ijóð-
mál Södergrans er einfalt, hreint
og tært er afar erfítt að koma
henni til skila. Engu má skeika og
þýðandi verður að forðast upphafn-
ingu og skrúð.
Þýðingar Siguijóns á Södergran
eru laglegar og vel orðaðar. Við
lestur þeirra riQast upp nýleg
Siguijón Guðjónsson
kenning fínnsks gagnrýnanda þess
efnis að í staðinn fyrir að segja
megi að skáldkonan boði upphaf
módemisma sé ekki út í bláinn að
líta á ljóð hennar sem lokaskeið
rómantísku. í Að hausti til dæmis
yrkir Edith Södergran: „Nú er
haust og gullnu fuglamir / fljúga
allir heim yfír djúpblátt vatnið; /
á ströndinni sit ég og stari í fag-
urt skinið / og skilnaðurinn fer
niði um greinamar."
Því verður engu að síður tæp-
lega mótmælt að skáld módemis-
mans era ekki alltaf laus við róm-
antísku, samanber Haavikko, en
Ég heyri regnið vakna er ekki al-
veg dæmigert ljóð fyrir hann.
Finnskt ljóðakver er dágott sýn-
ishom fínnskrar Ijóðlistar. Finnsk-
ar bókmenntir hafa löngum vakið
eftirtekt. í ljóðlist voru Finnar
brautryðjendur á Norðurlöndum.
myndir úr jámi, blýi og gleri. Hing-
að til hefur myndefni Steinunnar
verið maðurinn í ýmsum myndum,
en í þessum nýjustu verkum er hann
ekki sýnilegur þó að segja megi að
viðfangsefnið sé enn maðurinn og
umhverfi hans í víðara samhengi.
Sýningin er opin kl. 12-18 virka
daga, nema mánudaga. Um helgar
kl. 14-18. Sýningunni lýkur 8. nóv-
ember.
-----4 4 4--
Landsráðs
stefna SHA
Skólatónleikar Sinfón-
íuhljómsveitarinnar
Eitt af meginverkefnum Sinfóníuh(jómsveitar íslands er að
halda skólatónleika og hefur sú starfsemi aukist ár frá ári.
I þessari viku, dagana 20. til 23. október eru skólatónleika-
dagar og er áætlað að leikið verði fyrir 4.000 börn á for-
skólaaldri og í neðstu bekkjum grunnskóla.
Skólatónleikar i Háskólabiói
Morgunblaðið/Svemr
911 RA 91 97A LARUS Þ' VALDIMARSS0N fRAMKVÆMDASTJORI
L I IDU"LIv/U KRISTINNSIGURjÓNSSON.HRL.LOGGiLTuRFASTEiGMASALt
Til sýnis og sölu meðal annarra eigna:
Rétt við nýja miðbæinn
6 herb. neðri hæð í þríbh. Allt sér. Góður bílsk. Eignin er öll eins og ný.
Fyrir smið eða laghentan
rishæð 3ja herb. í steinhúsi í gamla austurbænum. Fjórbýli. 40 ára
húsnlán kr. 2.1 millj. Laus strax. Verð aðeins kr. 4,1 millj.
• • •
Góð 2ja herb. fbúð óskast i
Vesturborginni.
Opið á laugardaginn.
ALMENNA
FASTEIGHASALAH
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370
Samtök herstöðvaandstæðinga
boða til landsráðsstefnu í Gerðu-
bergi laugardaginn 24 október. Hún
hefst kl. 10 fyrir hádegi með venju-
legum aðalfundastörfum og stendur
til kl. 17. Landsráðstefnan er opin
öllum félögum samtakanna.
flisar
, j V
i/. iD'll 1
i'jkiwnAAii
TTJ-L —
I 1) h ' 1 1 1 1——————
Stórhöfða 17, við Gullinbrú,
sími 67 48 44
n
I nóvember næstkomandi
verða tónleikar fyrir framhalds-
skóla og í vetur verður hljóm-
sveitin með tvenna tónleika fyr-
ir Háskóla íslands. Fyrri tón-
leikamir verða 11. nóvember,
klukkan 20.00.
í fréttatilkynningu frá hljóm-
sveitinni segir: Áhugi forráða-
manna skóla hefur aukist mjög
á þessari starfsemi hljóm-
sveitarinnar, þannig að segja
má að erfitt sé að anna eftir-
spum sem er bæði gleðilegt
(áhuginn) og sorglegt (tímale-
ysi)' ,
Hljómsveitarstjón á skólatón-
leikunum nú er Páll Pampichler
Pálsson, einleikari Bjami Guð-
mundsson, túbuleikari, lesari
Helga Stephensen, leikkona og
kynnir Sverrir Guðjónsson,
söngvari og kennari.
Efnisskráin er sniðin með það
fyrir augum að vekja áhuga
bamanna á tónlist jafnffamt því
að kenna þeim örlítið um tónlist
og hljómsveitina, einnig taka
bömin beinan þátt í tónleikun-
um með því að syngja. Á efnis-
skrá er „Dans trúðanna," úr
óperanni Seldu brúðinni eftir
Smetana og „Tobbi Túba,“ eftir
Kleinsinger, en það verk á mikl-
um vinsældum að fagna meðal
yngri hlustenda.