Morgunblaðið - 22.10.1992, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 22.10.1992, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1992 37 Sigríður Sigurgeirs- dóttír — Minning setningin falleg. Síðar fórum við með söguna um tjaldinn til ritstjóra tímarits til birtingar. Hann týndi sögunni síðar og ekkert afrit var til. En við áttum eftir minningu um gleðilegar stundir. Hún týnist aldr- ei. Hrefna bjóð víða eftir að hún fluttist alkomin heim til íslands. Oft dvaldist hún hjá okkur íjölskyld- unni. Einu sinni sem oftar birtist hún á útidyratröppunum með fullan poka af fyrsta flokks matvörum. Þá hafði hún brugðið sér í leigubíl í Kringluna og fengið bílstjórann til að aðstoða sig við að versla. Hún keypti sams konar mat og hún hafði sjálf verslað í matvörubúð í Amer- íku auk íslenskra mjólkurafurða og ölið Rauða orminn sem við ímynd- uðum okkur að væri áfengur! Þá var sko búinn til góður matur og mikið talað og mikið hlegið. Hlátur Hrefnu er. ógleymanlegur því hann var svo innilegur, djúpur og dill- andi. Þegar hún hló, sem hún gerði mikið af, fylltist allt af þægilegheit- um og gleði. Föðursystir mín var fádæma gjafmild. Ég var svo stolt þegar hún gaf mér mína fyrstu kennslubók í háskólanum. Ég hlakkaði svo til að byija að læra. Hrefna átti ekki mikið en gaf heil kynstur. Kassin með eigum hennar er í öfugu hlut- falli við þann hafsjó gleðiminninga sem hún skilur eftir. Við Hrefna áttum margar, inni- legar bænastundir saman þar sem hún bað Jesú heitt um að gæta sín, frændsystkina sinna og vina. Síð- asta árið nefndi hún að sig vantaði Biblíu þó hún hefði litla bláa Nýja testamentið með Davíðssálmum í náttborðsskúffu sinni. Hún vildi stóra Biblíu. Hrefna_dváldi-sjö síðustu árin á Kumbaravogi á Stokkseyri og naut góðrar umönnunar hlýlegs starfs- fólks og á þar góðar vinkonur og vini sem sakna hennar núna til að tala og spila við og eiga sem fé- laga. Síðustu árin var svo sárt að geta ekki tekið Hrefnu með í bæinn eftir heimsóknir, því áður en hún veiktist í mjöðminni fór hún reglu- lega í bæinn sjálf. Þá var sárara þegar hún missti lönguniria að koma með. Mikið er dýrðlegt að elsku frænka okkar skuli vera komin að hásæti Drottins. Heilagi Faðir, veit henni látinni ró og okkur líkn sem lifum. Valgerður Þóra og fjölskylda. Fædd 31. mars 1931 Dáin 14. október 1992 Sízt vil ég tala um svefn við þig. Þreyttum anda er þægt að blunda og þannig bíða sælli funda,- það kemur ekki mál við mig. Flýt þér, vinur, í fegra heim. Krjúptu að fótum friðarboðans og fljúgðu á vængjum morgunroðans meira að starfa guðs um geim. (Jónas Hallgrímsson). Örfáum orðum viljum við kveðja elskulega ömmu okkar, sem nú hefur verið hrifín frá okkur svo óvænt og skelfilega. Við vitum svo lítið og skiljum ekki þau rök sem til þess liggja að amma skuli nú allt í einu vera horf- in okkur fyrir fullt og allt og eftir sitjum við og söknum hennar sárt. Við minnumst mjúku handanna hennar, sem klöppuðu á kollana okkar og hvernig hún bað fyrir okkur og vitum að hún bað ennþá heitar fyrir okkur svo enginn heyrði nema sá einn er átti að heyra. Við vitum, að þær bænir munu í áranna rás blessa okkur. Við munum líka hve það var gott að sitja í kjöltu ömmu og hve hún passaði okkur vel þegar á þurfti að halda. Þessu munum við ekki gleyma. Én þó að við söknum ömmu sárt mun tíminn lækna þau sár og minn- ingin um hana mun verma okkur á ókomnum árum. En það eru foreldr- ar okkar og afi sem auðvitað muna ömmu miklu betur og þau sakna hennar sárt.'Við biðjum góðan Guð að styrkja þau í sorginni. Við segjum því að lokum: Veri elsku amma sæl, góður Guð leiði hana á löndum ljóssins um alla ei- lífð. Barnabörnin. Móðursystir mín, Sigríður Sigur- geirsdóttir, sem lést í umferðarslysi hinn 14. þessa mánaðar, verður jarðsungin í dag. Sigríður var fædd í Reykjavík 31. mars 1931, yngst af 7 börnum Sigurgeirs Halldórssonar sjómanns og eiginkonu hans Halldóru Guð- jónsdóttur en þau hjónin bjuggu lengst af á Þórsgötu 10, Reykjavík. Af systkinunum sjö eru þijú látin auk Sigríðar, móðir mín, Margrét Aðalheiður og Eyþór Óskar. Sigríð- ur ólst upp í foreldrahúsum og stundaði nám í Austurbæjarskólan- um í Reykjavík sem barn og ungl- ingur, en í tvo vetur eftir það við Héraðsskólann á Laugarvatni. Að því loknu vann hún um nokk- urra ára skeið við verslunarstörf í Reykjavík þar til hún giftist Krist- jáni Andréssyni skipstjóra, hinn 25. desember 1954. Sigríður og Krist- ján eignuðust fjögur börn, sem öli eru uppkomin. Þau eru: Halldóra verslunarmaður, gift Flosa Jónssyni gullsmiði og eiga þau fjögur börn. Andrés Friðrik sjúkraþjálfari, kvæntur Hönnu Jóhannesdóttur lækni og eiga þau þijú böm. Jónas deildarstjóri, kvæntur Hildi Hall- dórsdóttur fóstru og eiga þau tvö böm. Yngst er Elísabet bankagjald- keri, en hún á einn son. Kynni mín af Sigríði eru jafnlöng minni mínu því ég man fyrst eftir henni þegar ég var lítill drengur á fjórða eða fímmta ári. Þá dvaldi hún um hríð á heimili foreldra minna, móður minni til aðstoðar við heimil- isstörf og umsjá okkar bræðranna. Má vera að ég muni svo vel eftir henni á þessum mánuðum vegna þeirrar hlýju og umhyggju sem frænka mín sýndi okkur og hversu oft hún minntist seinna á þetta tímabil, m.a. með því að rifja upp ýmis tilsvör og uppátæki okkar bræðranna. Eftir að börnin fæddust var ævi- starf Sigríðar fyrst og fremst tengt heimilishaldi, uppeldi og umönnun barnanna. Þessu öllu sinnti hún af þeirri alúð og samviskusemi sem var henni eðlislæg. Þetta hlutverk hennar var enn mikilvægara en ella vegna þess að Kristján var oft fjar- verandi vegna starfa sinna sem stýrimaður og síðar skipstjóri á tog- urum. Sigríður var frábærlega góð og hugsunarsöm kona ekki einungis við börn sín, eiginmann og bama- börn heldur við alla þá sem nálæg- ir henni voru, vinafólk og ættingja. Virtist hún oft hugsa meira um velferð annarra en sína eigin. Margar voru heimsóknir hennar og Kristjáns á heimili okkar. Alltaf komu þau í afmælisveislur drengj- anna en þau litu einnig oft inn okk- ur til ánægju, án sérstaks tilefnis. Þá leið afmælisdagur minn aldrei svo að hún hringdi ekki og óskaði mér til hamingju. Oftar en einu sinni dvaldi yngsti sonur okkar hjá henni og Kristjáni meðan foreldramir bmgðu sér til útlanda. Fannst mér oft eins og drengirnir hefðu eignast nýja ömmu í stað þeirrar sem dáin var, slík var umhyggja frænku minnar. Fyrir nokkrum árum veiktist Sig- ríður og dvaldi eftir það lengst af í húsi Öryrkjabandalagsins við Há- tún 10 í Reykjavík. Laugardaginn áður en hún and- aðist kom hún í stutta heimsókn og var þá eins og svo oft áður með hugann við börn sín og barnaböm, sem vom henni mjög hjartfólgin. Hún sagði mér glöð í bragði frá nýfæddri dótturdóttur sinni og bað mig síðan um að aka sér til vinkonu sinnar, sem ég og gerði. Ekki gran- aði mig þá að ég væri að kveðja þessa góðu frænku mína í síðasta sinn en sú varð nú raunin á. Ég og fjölskylda mín eigum ljúf- ar og góðar minningar um frænku mína Sigríði og minnumst hennar með þakklæti og virðingu. Við vott- um Kristjáni og öðmm aðstandend- um okkar dýpstu samúð. Vilhjálmur H. Viljhjálmsson. iVERÐLÆKKUN verði C ivic íayra frá 899 000 verði Civic 4dyra frá 78 000 Gerðu raunhæfan samanburð á verði og gæðum. Accord er sérlega vandaður og ve heppnaður bf 11 jafnt að utan sem innan Verð eftir lækkun: Accord EX með sjálfskiþtingu: 1.518.000,— I Accord EXi með sjálfskiptingu: 1.615.000,— Einkenni Civic eru fegurð og glæsileiki. Þetta er bíll sem þú mátt ekki láta framhjá þér fara. Nú býðst Civic á einstaklega hagkvæmum kjörum. Verð eftir lækkun: Líttu við f Vatnagörðum 24 og kynntu þér góða bíla og greiðslukjör við allra hæfi. Tökum góða notaða bíla sem greiðslu upp í nýjan. HOXDA ÁRÉTTRI LÍNU Isboltar > Festingameistarar® Ef þú kaupir HITACHI SLÍPIROKK frá okkur færð þú 5 stk. SLÍPISKÍFURog 10 stk. SKURÐARSKÍFUR með. ÞÚ SPARAR ALLT AÐ 3.500 KR. 8 mismunandi tegundir til á lager frá 115 - 230 mm skífustærð. TILBOÐIÐ GILDIR TIL 31.10.92 ísboltar^ STRANDGATA 75 FAB[T7Í HAFNARFJÖRÐUR Notaðir bílar í úrvali Toyota Corolla XL 1300, árg. '91, 5 g., 4 d., hvítur, 28 þús. Verð 840 þús. Mazda 323 1300, árg. '85, 4 g., 4 d., rauður, ekinn 55 þús. Verð 280 þús. Lada Samara 1500, árg. '90, 5 g., 5 d., grár, ekinn 9 þús. Verð 420 þús. VW Jetta CL 1600, árg. '87, 5 g., 4 d., grár, ekinn 90 þús. Verð 450 þús. Suðurlandsbraut 14, símar 681200 og 814060. MMC Lancer GLX 1500, árg. ’89, sjálfsk., 4 d., hvítur, ekinn 60 þús. Verð 680 þús. Toyota Corolla LB 1600, árg. ’87, 5 g., 5 d., rauður, ekinn 90 þús. Verð 420 þús. Gódan daginn!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.