Morgunblaðið - 22.10.1992, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 22.10.1992, Blaðsíða 22
22 ■ 1K4 Wrtif. >•;K: A n>4í :irt KI i MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1992 Sjómannafélag Reykjavíkur Laun FiMppseyinga á Bakkafossi könnuð SJÓMANNAFÉLAG Reylyavík- ur kannar nú launakjör sjö Filippseyinga sem eru í áhöfn Bakkafoss, sem Eimskip hefur á leigu frá þýskri umboðsskrif- Vegarlagning um Hellistungur Lægsta til- boðið 22 millj. und- ir áætlun LÆGSTA tilboð í lagningu 5 km kafla á Vesturlandsvegi um Hell-istungur efst í Norðurárdal í Borgarfírði var 23,9 miiyónir kr. eða 52% af kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar. Kostnaðar- áætlun Vegagerðarinnar hljóð- aði upp á 45,8 miiyónir og var lægsta tilboð því tæpum 22 millj- ónum kr. undir áætluninni. Lægsta tilboðið var frá Halldóri Haraldssyni á Haugum i Staf- holtstungum. Lagning þessa vegarkafla í Borgarfirði er iiður í þeim sérstöku verkefnum sem rfkisstjómin ákvað að ráðast í til að auka atvinnu í landinu. Vegurinn er 5 km að lengd og á verktaki að ljúka verkinu fyr- ir 15. október á næsta ári. Þrettán verktakar skiluðu inn tilboðum og voru öll nema eitt inn- an kostnaðaráætlunar. stofu, en þeir hafa lagt fram kæru vegna launa sinna til Al- þjóða flutningaverkamanna- sambandsins, ITF, sem Sjó- mannafélag Reykjavikur er að- ili að. Filippseyingarnir hafa haldið því fram að heildarmán- aðarlaunr þeirra með yfirtíð séu á bilinu 22-23 þúsund krónur á mánuði, en að sögn Birgis Björgvinssonar hjá Sjómanna- félagi Reykjavíkur sýna pappír- ar skipstjóra Bakkafoss hins vegar að laun þeirra séu um 50 þúsund krónur. Bakkafoss kom til hafnar í Reykjavík í gær og heldur skipið aftur út í dag. Sextán manna áhöfn er á skipinu, og þar af eru sjö Filippseyingar, en skipstjóri þess er þýskur. Birgir sagði að rætt hefði verið við skipstjórann í gær og upplýsinga aflað hjá honum um launakjör Filippseyinganna. Hann sagði að á næstunni yrði kannað hver raunveruleg iaun þeirra væru, og yrði haft samband við þýsku. umboðsskrifstofuna í því sam- bandi. „Það er ekkert á Eimskip að klaga í þessu sambandi, heldur er það þýska útgerðin sem rekur skip- ið sem hefur þetta með höndum. Við munum skoða hver er að segja satt í þessu máli, og það verður allavega ekki um kyrrsetningu skipsins að ræða í þessari ferð. Það er ljóst að Filippseyingamir ná ekki lágmarkslaunum ITF þó þeir hafi þau laun sem skipstjórinn segir, en þýska útgerðin er hins vegar utan allra samtaka þar sem þeir sigla undir svokölluðum þæg- indafána, og því er þetta svolítið snúið mál í heild að eiga við,“ sagði hann. Hafnarfjörður Atvinnulausum boð- in vinna hjá bænum 75 af 125 sem fóru í viðtal hurfu af skrá AF 125 einstaklingum sem atvinnumiðlun Hafnarfjarðar hefur vísað f viðtal til Sverris Kristinssonar vegna vinni þjá bænum hafa 75 horfíð af atvinnuleysiskrá. Ýmsar ástæður eru fyrir þvi að hinir hafa ekki hafíð störf. Sverrir sagði að af 125 hefðu 62 hafið störf hjá bænum. Ein- hveijir hefðu síðan hafið störf annars staðar og því væru einung- is 35-40 af þessum hópi starfandi hjá bænum um þessar mundir. Tuttugu og fjórir af upphaflega hópnum komu ekki til viðtals, 3 fengu ekki starf við hæfi, 9 af- þökkuðu starf og 5 komu með læknisvottorð. Tuttugu höfðu einu sinni samband við Sverri og létu síðan ekki heyra í sér meir. Aðspurður sagði Sverrir að það sem mest hefði komið á óvart væri hversu fáir hefðu hafið störf hjá bænum en samtals voru 90 stöður í boði. Um er að ræða verkamannavinnu ýmis konar, hellulögn, garðyrkju o.fl. Sverrir sagði að hann hefði hitt fólk sem hefði verið mjög áhuga- samt um að fá vinnu. Aðra sem hefði haft mjög lítinn áhuga og allt þar á milli. Hann sagði að fólkið væri á öllum aldri en mesta áherslan væri lögð á að fá vinnu fyrir ungt fólk og fólk sem lengi hefði verið á atvinnuleysisskrá. Borgarkringlan Morgunblaðið/Árni Sæberg íþróttahúsið nýja í Grafarvogi. Á inn- feldu myndinni sést Markús Örn Antons- son borgarstjóri ásamt hluta gesta við opnunarathöfnina. * Iþróttamiðstöð í Grafarvogi tekin í notkun í Grafarvogi hefur verið tekin í notkun nýtt íþróttahús. Það er fyrsti áfangi íþróttamiðstöðvar, en fyrirhugað er að bæta sundlaug við síðar. Húsið er 1.587 fermetrar að flatarmáli og gert er ráð fyrir sætum fyrir 900 áhorfendur. Kostnaður við það er um 400 milljónir króna með búnaði og frágenginni lóð. í íþróttahúsinu er 40 sinnum 20 tengir húsin tvö og þar eiga að metra handboltavöllur og hægt að leika körfubolta, tennis, badminton og blak. Salnum má skipta í þrennt eða til helminga. Útbygging húss- ins er á tveim hæðum og með kjall- ara, alls 1930 fermetrar. Kjallarinn og hluti efri hæðar verður notaður af íþróttafélaginu Fjölni en á jarð- hæð eru búningsklefar, afgreiðsla og aðstaða starfsfólks. Göngugata verða snyrtingar og miðasala. Öll fyrsta hæðin hefur verið tek- in í notkun að göngugötunni frátal- inni og áætlaður kostnaður við að ljúka gerð fyrsta áfanga íþróttam- iðstöðvarinar er 100 milljónir króna. Kostnaðaráætlun sem gerð var meðan miðstöðin var hönnun gerði ráð fyrir 564 milljónum til áfangans. Byijað var að hanna íþróttahúsið í janúar 1991, jarð- vinna hófst í júlí og uppsteypa um haustið. Arkitekt íþróttahússins og lóðar- innar er Guðmundur Þór Pálsson. Teiknistofan Óðinstorgi sá um burðarþol og lagnir, raflagnir önn- uðust Thomas Kaaber og Sigurður H. Oddsson og loftræstikerfi Ólafur Þorbjömsson. Byggingarstjóri verksins er Sighvatur Amarsson tæknifræðingur og múrarameistar- amir Kristján Ástráðsson og Ástr- áður Þórðarson höfðu daglegt eftir- lit með því. Herteftii’Ut með inn- flntningi ferðamanna Skrifstofustjóri fjármálaráðuneytisins tel- ur að hömlur þessar falli út á næstu árum FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur sent tollstjórum fyrirmæli um hert eftirlit með vöruinnflutningi ferðamanna við komu til landsins. Indriði H. Þorláksson skrifstofusljóri í ráðuneytinu segir að þetta sér gert vegna frétta i fjölmiðlum og ábendinga um að mörg dæmi væru um að gildandi reglur væru ekki virtar. Indriði telur að hömlur á almenn- um innflutningi ferðamanna muni smám saman verða teknar af með aukinni Evrópuþátttöku. En á meðan þessar reglur væru í gildi yrði að framfylgja þeim. Ferðamanni er heimilt að taka með sér vörur að fjárhæð 32 þúsund kr. án greiðslu tolla eða annarra gjalda. Andvirði einstaks hlutar má þó ekki nema hærri fjárhæð en 16 þúsund kr. og andvirði matvæla, þar með talið sælgæti, má vera 4 þúsund kr. og þau skulu ekki vera meira en 3 kg. að þyngd. Böm yngri en 12 ára njóta að hálfu þessarra réttinda. í fréttatilkynningu ráðuneytisins segir að af öllum öðrum vamingi beri ferðamönnum að greiða tolla, vörugjöld, virðisaukaskatt og önnur lögboðin gjöld. Fjármálaráðuneytið hefur nú gefið tollstjórum fyrirmæli um að herða eftirlit með þessum reglum. Einnig hefur ráðuneytið óskað eftir því við utanríkisráðuneytið að lögreglustjór- .anum á Keflavíkurflugvelli, sem jafnframt er tollstjóri, verði gefin hliðstæð fyrirmæli enda kemur mik- ill meirihluti ferðamanna þar inn í landið. Indriði lagði áherslu á, þegar hann var spurður hvort ekki væri verið að fara illa með fólk með því að breyta framkvæmd reglna fyrirvara- laust, að ekki væri verið að breyta reglum og fólk hefði’ekki getið farið úr landi í trausti þess að það þyrfti ekki að fara eftir gildandi reglum. Aðspurður sagðist Indriði sjá fyrir sér breytingar í fijálsræðisátt á þessu sviði með aukinni þátttöku Islendinga í Evrópusamstarfí. Taldi hann að almennar takmarkanir á vöruinnflutningi ferðamanna yrðu smám saman afnumdar, fólk greiddi aðeins þau vörugjöld sem tekin væru í því landi sem keypt væri í. Ekki yrðu innheimtir tollar af vöruinn- flutningi ferðamanna og virðisauka- skattur heldur ekki endurgreiddur við brottför úr landi. Indriði sagði þó að undantekningar yrðu alltaf á þessu, til dæmis á vörum sem bæru sérstök tekjuöflunargjöld í ríkissjóð. Atlanta sækir um flugleyfí til Miaini FLUGFÉLAGIÐ Atlanta hefur lagt ínn beiðni til samgöngu- ráðuneytis Bandaríkjanna um leyfí til að hefja leiguflug milli Keflavíkurflugvallar og Miami. Að sögn Arngríms Jóhannsson- ar, framkvæmdastjóra Atlanta, er á annað ár siðan beiðnin var lögð fram. Bretlandsveisla hefst í dag Bretlandsveisla í Borgarkringlunni, viðamikil kynning á breskri vöru og þjónustu, hefst í dag. Kynning mun standa frá 22. október til 1. nóvember. Mikill fjöldi breskra og íslenskra . listamanna mun skemmta gestum hvem dag og kynntar verða Qöl- margar nýjar breskar vörur í fyrsta sinn hérlendis. Tískusýningar verða haldnar á haust og vetrartísku frá þekktustu hönnuðum Bretlands s.s. Vivienne Westwood, Jasper Conran og Paul Smith. Tveggja hæða Lund- únarstrætisvagn hefur verið fluttur inn á meðan á þessari kynningu stendur og verður hann með áætlun- arferðir í Borgarkringluna og er ókeypis fyrir alla Lhann. Eití þekkt- asta tákn Lundúna verður til sýnis í Borgarkringlunni: 2,5 metra hátt líkan af Big Ben. Fjölmargir breskir skemmtikraft- ar munu skemmta gestum Borgar- kringlunnar. Skoski sekkjapípuleik- arinn Robert MacKintosh, Gordon Rimes sýnir flóttaatriði, auk þess að skemmta bömum í trúðagervi sínu, listakonan Helen Cooper málar á silki, lafði Christobel og einkaþjónn hennar, vafasamir fulltrúar breska aðalsins og grínleikarinn Adrian Kaye sem hefur sérhæft sig f gervi Charlie Chaplin. í dag verður haldin viðamikil opn- unarhátíð sem hefst kl. 14. Jón Sig- urðsson, viðskiptaráðherra, mun opna Bretlandsveisluna með því að vígja nýuppgerðan breskan síma- klefa frá árinu 1939. Hljómskála- kvintettinn leikur nokkur lög, boðið verður upp á risavaxna tertu í líki Lundúnarstrætisvagns og skemmti- kraftanir bresku munu skemmta í fyrsta sinn. Að því loknu verður tískusýning breskra hönnuða. Opn- unardaginn verður Malt Whisky kynning á Kringlukránni, Ian MacLeay frá William Grants í Skot- Iandi heldur fyrirlestur og ber saman tegundir, Sigrún Ástrós í túlkun Margrétar Helgu Jóhannsdóttur verður flutt á Ömmu Lú opnunar- kvöldið og boðið verður upp á mat- seðil bresks matreiðslumeistara. .Fyretu dagana verður einn helsti tes- érfræðingur Breta, Giles Hilton í versluninni Whittard of London og mun fræða gesti um te og tesiði. (Fréttatilkynning) „Við höfum ekki geta flogið til Bandaríkjanna og sóttum því um þetta fyrir ári síðan. Þetta hefur verið í kerfinu í þennan tíma. Kerfið virðist vera þungt en við höfum í sjálfu sér ekki sett neinn þrýsting á málið því hér er meira um formsatr- iði fyrir okkur að ræða. Við viljum hafa þennan möguleika að geta haf- ið leiguflug milli íslands og Banda- ríkjanna ef þær aðstæður koma upp,“ sagði Amgrímur. I umsókn er sótt um leyfi fyrir Tri-Star vél félagsins. Atlanta hefur fimm þotur í rekstri, þar af þrjár Boeing 737, og eru þær allar í áætlunarflugi að Tri-Star vél- inni undanskilinni. Atlanta stundar áætlunarflug fyrir kambódíska ríkis- flugfélagið, einkum á milli Phnom Penh og Bankok. Önnur vél flýgur fyrir ríkisflugfélagið í Laos og sú þriðja er nú á fimmta ári í áætlunar- flugi fyrir Finnair. Arngrímur sagði að mjög góð reynsla væri af fluginu fyrir asísku flugfélögin. „Það er öllum heimilt að leita eft- ir flugheimildum. Við fljúgum áætl- unarflug til Orlando og höfum skoð- að möguleika á að bæta við áætlun- arstað í Flórída, nær Miami, en það er allt óráðið með það ennþá," sagði Einar Sigurðsson, blaðafulltrúi Flug- leiða.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.