Morgunblaðið - 22.10.1992, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 22.10.1992, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1992 Sjáðu hveiju ég bjargaði á út- sölunni... Ást er... ... að taka hlutunum með jafnaðargeði TM Rea. U.S Pat Oft — all riflhts reservad ® 1992 Los Angeles Times Syndicate Hve lengi fínnst þér konan þin fylgja þér eftir í hveiju spori? JRer IIJIH I JWWWfr BRÉF TIL BLAÐSINS Aðalstræti 6 101 Reylqavík - Sími 691100 - Símbréf 691222 „En nú falla vötn öll til Dýrafjarðar Frá Bemharð Haraldssyni Það hefur víst ekki farið framhjá neinum, að nú eru uppi hugmyndir um að breyta hlutverki og rekstrar- formi Kristnesspítala. Það hefur hins vegar ekki fengist upplýst, svo óyggjandi sé hver verði örlög hans, hvort hann verði lagður niður eða honum fengið annað hlutverk. Það virðist þó Ijóst, að enn einu sinni takast á sjónarmið læknisfræðinnar og þeirrar þjónustu sem hún veitir okkur og ísköld peningjahyggja. Það er öllum kunnugt, að nú árar illa í fjármálum okkar og það er, og hefur reyndar alltaf verið, full þörf á að gæta skynsemi í meðferð opin- bers fjár. Þá verður að vega og meta hvað gera skuli, hvað eigi að gera í ár og hveiju megi sleppa. Við það mat getur farið svo að hagsmun- ir einstaklinga séu í hættu, að hann verði metinn til fjár og léttvægur fundinn. Þannig kemur umræðan um Kristnesspítala mér fyrir sjónir, að þar eigi að geyma eyrina en kasta krónunni. Sé þetta rétt hefur töl- fræðin enn einu sinni unnið sigur. Það er hins vegar full ástæða til að staldra hér við og skoða um hvað málið kann að snúast. Ef Kristnesspítali verður lagður niður í núverandi mynd flyst öll end- urhæfing suður í Kópavog eða í Hveragerði. Það er engum blöðum um það að fletta að það leiðir til margháttaðra félagslegra erfiðleika, þeir sjúklingar, sem eiga heima t.d. á Norðurlandi og eiga nábýli við fjöl- skyldur sínar, missa það. Það getur vel verið að þetta skipti ekki máli en mér finnst það og ég er ekki einn um þá skoðun. Það er alltaf erfitt að eiga við sjúkdóm að stríða, þess hlutskiptis óska ég engum, það verð- ur þó að lokum ekki umflúið. Þegar þannig stendur á verðum við að geta veitt bestu fáanlegu umönnun, því þrátt fyrir allt er einstaklingurinn dýrmætasta eign okkar. Ég get að sjálfsögðu ekki fjallað um málefni Kristnesspítala út frá læknisfræðilegu sjónarmiði, en kýs að nefna 3 atriði sem tengjast um- ræðunni. Fjármagn Það má nefna, að árið 1991 var velta Kristnesspítala um 145 miljj- ónir, þar af voru launagreiðslur 198,4 milljónir, en það samsvarar um 69 stöðugildum. Á Akureyri og í Eyja- flarðarsveit búa um 15 þúsund manns og því eru þessar 108 milljónir nokk- ur skerfur í heildartelqum íbúanna. Því verður að ætla, að þama sé um lífsframfæri 40-50 flölskyldna að ræða auk einstaklinga. Fari svo að endurhæfingarþjónusta verði flutt burt og spítalinn fái ekkert nýtt hlut- verk missir þetta fólk atvinnu sína. Hins vegar munu þá ámóta mörg ný störf skapast á öðrum stað og geta framfleytt öðrum fjölskyldum. Starfsfólk Kristnesspítala býr yfir margvíslegri menntun og starfs- reynslu sem ekki má liggja ónotuð, til þess er hún einfaldlega of dýr. Söguleg hefð Helgi magri nam land við Eyja- §örð. Sá ágæti maður mun hafa verið blendinn í trúnni, trúað einkum á Krist en á Þór er til harðræða kom. hann nefndi bæ sinn Kristnes. Þar er landnámsjörð. Löngu síðar, á fyrsta hluta þess- arar aldar þegar velmegun hins iðnv- ædda samfélags var enn nokkuð undan, fóru berklamir, hinn hvíti dauði, sem logi yfir akur og skildu eftir sig opnar undir. Þá tóku konur á Norðurlandi sig saman um að beij- ast gegn þessum vágesti sem lét vart nokkurt heimili ósnortið. Af ótrúlegum dugnaði en litlum efnum söfnuðu þær fé og reistu berklahæli og þar var enginn kotungsbragur á. A rúmlega einu og hálfu ári, frá vori 1926 til vetrarbyijunar 1927, reistu þær hæli fyrir um 60 sjúkl- inga. Þetta var framlag þeirra til baráttunar við berklana og mikil og góð auglýsing á samtakamætti þeirra er vilja. Nú verður hugsjón kvennanna hvorki mæld á vog né metin til fjár, en mig gmnar að fram- tak þeirra hafi lagt verulegan skerf til þess sigurs er við unnum á þess- um sjúkdómi á næstu áratugum. Við íslendingar teljum okkur söguþjóð sem gjaman minnist fortíð- arinnar og þess fólks er skóp okkur þann nútíma er við þekkjum. Við teljum okkur það til ágætis að hafa átt hrausta bardagamenn, lögspek- inga og ágæt skáld og nefnum þá Gunnar á Hlíðarenda, Njál á Berg- þórshvoli og Jónas Hallgrímsson. En staðir eiga sér líka sögu og henni megum við auðvitað ekki gleyma. Er það ekki við hæfi að minnast fómfýsi frumheijanna með því að láta merkið ekki niður falla? Væri það ekki vanhugsað „stílbrot" í þjóð- arsögunni að leggja niður endurhæf- ingarstarfið sem nú er unnið á Krist- nesi? Má þá ekki allt eins loka Við- eyjarstofu og varpa hugmyndum um menntasetur á Odda á Rangárvöllum fyrir róða? Menntunarhlutverk Sjúkraliðar hafa verið menntaðir á Akureyri í rúma tvo áratugi. Fyrstu árin á FSA, en á áttunda áratugnum tók Gagnfræðiskóli Akureyrar þessa menntun að sér og byggði upp og brautskráði alls 100 nemendur. Árið 1984 tók Verkmennaskólinn á Akur- eyri við verkefnum framhaldsdeilda gagnfræðaskólans og hefur nú braut- skráð 93 sjúkraliða. Hluti sjúkraliða- námsins er bundinn við starfsþjálfun á sjúkrastofnunum, alls 34 vikur. Þar hafa sjúkrastofnanir við Eyjafjörð hlaupið myndarlega undir bagga og tekið nema eftir því sem við verður komið. Kristnesspítali hefur tekið við allt að 6 nemendur á ári til starfs- þjálfunar og em þetta nánast einu kynnin sem nemendur fá af endur- hæfíngarhjúkrun. Það væri því skarð fyrir skildi ef hann yrði lagður niður. Áskorun Ég skora með þessum línum á íbúa við Eyjafjörð og á Norðurlandi, svo og alla þá er láta þetta mál sig varða, að taka nú höndum saman og slá skjaldborg um Kristnesspít- ala. Verði starfsemi hans flutt suður á land er það enn ein sönnunin um vangetu stjómvalda til að reka skyn- samlega byggðastefnu og þá styttist mjög í þann dag er ísland sporðreis- ist um öxulinn Akranes-Ölfus. BERNHARÐ HARALDSSON, Spónsgerði 4, Akureyri. Víkveiji skrifar Víkveiji er einn þeirra, sem styðja framtak Kára Þor- grímssonar í Garði heils hugar. Kominn var tími til að bændur risu sjálfir upp gegn landbúnaðarkerf- inu, sem bæði leggur hömlur á rekstur þeirra og er undirrót ein- hvers hæsta matvælaverðs í Vestur- Evrópu. Víkveiji furðaði sig á um- mælum framkvæmdastjóra Stéttar- sambands bænda í Morgunblaðinu, er hann sagðist ekki skilja í því að neytendur vildu kaupa lambakjöt á bílastæði. Víkveiji hefði sjálfur far- ið í Kolaportið á Iaugardaginn að kaupa lambakjöt, eingöngu til að sýna Kára stuðning í verki, ef hann hefði ekki frétt að kjötið var upp- selt um hádegi. Viðtökur neytenda — að þeir eru fúsir að kaupa kjöt á bílastæði — sýna að landbúnaðar- kerfið er í kreppu. Vonandi verður framtak Kára í Garði og viðtökur neytenda við því til að hrista upp í landbúnaðarkerfinu. XXX Ostar af ýmsu tagi eru uppá- haldsmatur á heimili Víkveija og honum finnst þess vegna blóðugt að innflutningur erlendra osta skuli ekki vera leyfður hér á landi. Ekki er hægt að halda fram að innflutn- ingsbannið sé af heilbrigðisástæð- um, eins og fullyrt er um innflutn- ingsbann á kjöti, því að ferðamenn mega taka með sér takmarkað magn af osti inn í landið á meðan sérhver skinku- eða spægipylsubiti er mis- kunnarlaust rifínn af þeim í tollinum. Með innflutningsbanni á mjólkurvör- ur er aðeins verið að vemda inn- lenda framleiðslu. íslenzkum osta- meistumm hefur reyndar farið fram á undanfómum áram og úrvalið í búðarhillunum aukizt — þar era ekki lengur aðeins gúmmíkenndir brauðostar með rauðri skorpu. En þó er langur vegur frá að íslenzkir ostar standist samanburð við til dæmis ítalskan gorgonzola, fransk- an geitaost, emmentaler, appenzell- er og fleiri svissneska osta. Þessir ostar fást um alla Evrópu — nema á íslandi. Væri nú ekki hægt að koma vemdarstefnunni í það form að leggja fremur háa tolla á útlenda ostinn en að banna innflutning? Þá væri alltént hægt að velja á milli íslenzkrar og erlendrar framleiðslu í búðunum. XXX A Ifréttum að undanfömu hefur komið fram að verðstríð stór- markaðanna á höfuðborgarsvæðinu hefur meðal annars leitt af sér minna vöruúrval. Fremur en að selja sumar vörur á eðlilegum kjör- um, ellegar hækka þær í verði, hætta stórmarkaðimir sölu á þeim. Skrifara fínnst hann hafa orðið áþreifanlega var við þetta í „sinni verzlun", Hagkaupi í Kringlunni. Víkveiji hefur lagt Ieið sína þangað til að fá ýmsa fágæta vöra, sem ekki hefur fengizt annars staðar eða hann hefur þurft að leita að víða, en nú virðast margar vörateg- undir, sem keyptar era af frekar fámennum hópi, vera að hverfa úr hillum Hagkaups. Víkveija fínnst þetta vond þróun og oft væri hann tilbúinn að greiða örlítið hærra verð fyrir betri vöra — svo lengi sem hann hefði einnig val um ódýrari vörana.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.