Morgunblaðið - 22.10.1992, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 22.10.1992, Blaðsíða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1992 -----—■— -------------------------■■■■■v'-r:-----;-------- KNATTSPYRNA / EVROPUKEPPNIN ÚRSLIT Rangers vann ' omistuna - en Leeds spáð sigri í óopinberu stríði félag- anna um titilinn besta félag Bretlands MEISTARAR Barcelona gerðu jafntefli, 1:1, á útivelli gegn CSKA í Moskvu í fyrri viðureign liðanna í Evrópukeppni meist- araliða í knattspyrnu í gær- kvöldi. Þá fóru flestir leikjanna fram, þ. á m. fyrri leikur ^SIasgow Rangers og Leeds — barátta skosku og ensku meistaranna. Skotarnir unnu orrustu gærdagsins en stríðinu er hvergi nærri lokið. Leikur Glasgow Rangers og Le- eds á Ibrox í Glasgow var stór- skemmtilegur. Mikið hafði verið um rætt um þetta ein- vígi ensku og skosku meistaranna á Bretlandseyjum, og áhugamenn skemmtu sér vel — bæði þeir 43.251 sem voru á leikvanginum, sem allir voru stuðningsmenn heimaliðsins, Frá Bob Hennessy ÍEnglandi FOLK ■ GEORGE Weah, sem hefur leikið mjög vel með París SG í vetur, skoraði tvívegis í fyrri hálf- leik í gærkvöldi og tryggði félagi sínu 2:0 sigur gegn Napolí á úti- velli, í UEFA-keppninni. ■ FEYENOORD lék aðeins með tíu leikmenn í seinni hálfleik gegn Luzem, þar sem John de Wolf var rekinn af leikvelli tveimur mín. fyr- ir leikhlé - fyrir brot. Leikmenn Luzern réðu algjörlega gangi leiks- ins og unnu, 1:0. ■ LEIKMENN Marseille geta ekki verið óánægðir með að sleppa með jafntefli, 0:0, gegn Dinamo í Búkarest. Rúmenska liðið sótti meira og varð hinn ungi markvörð- ur Marseille, Fabien Barthez, oft að taka á honum stóra sínum til að bjarga skotum. ■ FYRIRLIÐI Spartak Prag, var rekinn af leikvelli í fyrri hálf- leik, en þá var tékkneska liðið komið óvænt yfir, 0:2, gegn Werd- er í Bremen. Þjóðveijar, sem áttu leikinn, náðu að jafna, en rétt fyrir leikslok tryggðu leikmenn Spartak sér sigur með glæsimarki. ■ ARSENE Wenger, þjálfari Mónakó, sem var í leikbanni vegna deilna við dómara í fyrstu umferð Evrópukeppni bikarhafa, var upp í áhorfendapöllum og sá sína menn tapa óvænt, 0:1, fyrir griska liðinu Olympiakos Piraeus á heimavelli. ■ HERBERT Neumann, þjálfari Vitesse Arnhem, var einnig í leik- banni og á áhorfendapöllunum, en hann sá lið sitt vinna Mechelen 1:0. II SIGFRIED Held, fyrrum landsliðsþjálfari íslands og nú þjálf- ari austurríska liðsins Admira Wacker, varð að sætta sig við að Antwerpen færi með sigur, 2:4, og aðrir sem fylgdust með í beinni útsendingu sjónvarps. Enda var þetta ekta „breskur" leikur; hraðinn gífurlegur, sótt af krafti á báða bóga og nóg af færum. Rangers sigraði 2:1 en Leeds var talið betra liðið. Fyrirliði Leeds, Skotinn Gary McAllister, byijaði á því að skora strax á fyrstu mínútu með glæsi- legu þrumuskoti. En tuttugu mín. síðar urðu John Lukic, markverði ensku meistaranna, á alvarleg mis- tök og gerði „glæsilegt" sjálfsmark. Rangers fékk hornspyrnu, Lukic hljóp út í teig og ætlaði að slá bolt- ann frá með annarri hendi, en tókst ekki betur til en svo að boltinn fór í þveröfuga átt; þeyttist aftur fyrir markvörðinn og söng í netinu. Það var svo markakóngurinn Ally McCoist sem gerði sigurmarkið á 37. mín. Ian Durrant lék frábærlega á miðjunni hjá Rangers og Mark Hately og Ally McCoist voru mjög góðir í framlínunni. Hjá Leeds átti Gary McAllister stórleik á miðjunni en framlfnumennimir, Lee Chap- man og Eric Cantona náðu ekki sérlega vel saman. Trevor Francis, stjóri Sheffield Wednesday, var gestur Ians St. John í beinni útsendingu BBC frá leiknum, og sagði leikmenn Leeds geta verið ánægða. „Þeir léku betur þrátt fyrir að hafa tapað. Ég tel Leeds líklegra til að komast áfram í keppninni," sagði Francis. Reuter Stuðningsmaður trykneska liðsins Galatasarey fagnar jafntefli liðsins í Frankfurt í gærkvöldi. Þjóðveijinn Kalli Feldkamp er þjálfari tyrkneska liðsins. Ekki tímabært aó stofna íshokkísamband - segir Ellert B. Schram, forseti íþróttasambands íslands ELLERT B. Schram, forseti ÍSÍ, seglr að ekki sé tímabært að stofna sérstaktíshokkí- samband innan ÍSÍ. Hann er hins vegar tilbúinn til að beita sér fyrir stofnun skautasam- bands, sem hefði allar skauta- greinarnar innan sinna vé- banda. 4T Eg hef verið í viðræðum við for- ystumenn íshokkímanna og sagt þeim að framkvæmdastjómin vilji stofna skautasamband og telji ekki tímabært að stofna sérstakt íshokkísamband enn sem komið er,“ sagði Ellert. Hann sagði að það væru tiltölulega fáir iðkendur í fs- hokkf á íslandi og aðeins þijú félög sem stunda þessa íþrótt. „Við viljum gjarnan að skauta- íþróttimar séu allar í einu sam- bandi, til að byija með að minnsta kosti, þar sem þetta eru mjög skyld- ar íþróttagreinar. Ég hef persónu- lega ekkert á móti íshokkf en málið er bara ekki það einfalt. Þetta snýst um skipulag og fjármái. Það liggur breytingartillaga fyrir ársþinginu, sem fer fram um næstu helgi, varð- andi stofnun sérsambanda og á meðan ekki liggur fyrir hvemig sú tillaga verður afgreidd er ótíma- bært að stofna nýtt sérsamband. Við verðum að láta þingið líða og sjá hvaða afstöðu það tekur til þess- ara mála.“ Nýja tillagan sem liggur fyrir ÍSÍ-þinginu um stofnun sérsam- banda gengur út á það að sérsam- bönd verði ekki stofnuð nema að minnst 5 héraðssamböndum eða fþróttabandalögum, þar sem við- komandi íþróttagrein er stunduð, æski þess. Eins verði sambands- stjórn ÍSÍ að samþykkja nýtt sér- samband auk framkvæmdastjórnar. „Ég get ekki séð að íshokkímönn- um liggi svona mikið á að þeir geti ekki beðið eftir þvf að fþrótthreyf- mgin fyalli nánar um þetta. Innan ÍSI er starfandi íshokkínefnd og hefur hún stuðning og aðstoð frá íþróttasambandinu nú sem endra- nær. Þeir eru nú þegar fullgildir aðilar að Alþjóða íshokkísamband- inu, þannig að ég get ekki séð að þetta megi ekki bfða einhveija mánuði. En ef ÍSÍ-þingið breytir ekki lögunum um stofnun sérsam- banda liggur það fyrir að þetta sér- samband verður stofnað á næst- unni,“ sagði Ellert. KORFUKNATTLEIKUR / NBA frá Austurríki. Jordan í erfiðum málum ■ ANDREA Carnevale hjá AS Róma, var rekinn af leikvelli þegar > 30 mín. voru til leiksloka gegn Grasshopper. Það kom ekki áð sök t því að Róma vann, 3:0, og skoraði Camevale fyrsta markið. Mögu- leikar Sigurðar Grétarssonar og félaga í svissneska liðinu á að kom- • ást áfram í keppninni eru því ekki miklir.. ■ GERALD Baticle, miðheiji Auxerre, skoraði þijú mörk þegar hið unga lið félagsins vann FC Kaupmannahöfn, 5:0. Margir telja að hann sé arftaki Platini í franska landsliðinu. Baticae hefur skorað sex mörk í Evrópukeppninni. Körfuknattleikskappinn Michael ordan er í erfiðum málum þessa dagana. Hann var boðaður til réttarhalda yfir Axel dæmdum kókaín- Nikulásson sala, James „Slim“ skrifar frá Bouler, sem vitni Bandankjunum vfíljanda Tengs, Jordans við Bouler þennan urðu opinber eftir handtöku hins síðar- nefnda þegar ávísun upp á 57.000 dollara (3,249 millj. ÍSK), undirrit- uð af Jordan, fannst í bankahólfi Boulers. Jordan heldur því fram að hann hafi lánað Bouler peningana til að byggja golfvöll en blaðið sem fyrst opinberaði tengsl Jordans við málið heldur því fram að Jordan hafi tapað peningunum í fjárhættu- spilum og golfveðmálum við Boul- er. Þetta á að hafa gerst á meðan leikmenn Chicago-liðið heimsóttu Bush forseta í kjölfar NBA-titilsins 1991. Jordan og félagar hjá Chicago Bulls, hófu veturinn með sigri á Miami Heat í Miami á mánudaginn. Lokatölur urðu 111-88. Þetta var fyrsti sýningaleikur Chicago í vetur og var heilmikið söfnunarátak í gangi samfara leiknum. Ágóðanum af leiknum verður varið til að bæta hag hundruða bama sem fóru illa út úr náttúruhamförunum er tröllr- iðu Flórída nýverið. Bestir í liði meistaranna, eins og oft áður, voru Ólympíufaramir Scottie Pippen og Michael Jordan. Glenn Rice var fremstur meðal jafningja hjá Miami. Knattspyrna Getraunaröðin - EURO TIPS: 111 — X12 — 211 — 211 — 2X Evrópukeppni meistaraliða Búkarest, Rúmeníu: Dinamo - Marseille....................0:0 28.000. Aþena, Grikklandi: AEK Aþena - PSV Eindhoven.............1:0 Dimitriadis (53.). 28.000. Moskva, Rússlandi: CSKA Moskva - Barceiona...............1:1 Alexander Grishin (17.) - Aitor Beguiristain (58.). 25.000. Gautaborg, Svíþjóð: IFK Gautaborg - Lech Poznan..........1:0 Patrik Bengtsson (87.). 9.800. Glasgow, Skotlandi: Glasgow Rangers - Leeds.............2:1 John Lukic (21. - sjálfsm.), Ally McCoist (37.) - Gary McAllister (1.). 43.251. Bratislava, Tékkóslóvakíu: Slovan - AC Milan...................0:1 - Paolo Maldini (63.). 35.000. Briigge, Belgíu: FC Briigge - Austria Vín.............2:0 Gert Verheyen (20.), Foeke Booy (40.). 17.000. Sion, Sviss: Sion-Porto......................... 2:2 David Orlando (55.), Roberto Assis (61.) - Semedo (80.), Femando Couto (82.). 14.800. Evrópukeppni bikarhafa Parma, Ítalía: Parma - Boavista...................0:0 15.000 Trabzon, Tyrklandi: Trabzonspor - Atletico Madrid......0:1 - Futre (38.), Moya (64.). 20.000. Luzern, Sviss: Luzem - Feyenoord..................1:0 Martin Rueda (75.). 14.500. Bremen, Þýskalandi: Werder Bremen - Sparta Prag........2:3 Frank Neubarth (56.), Wynton Rufer (80.) — Jan Sopko (25.), Viktor Dvimik (35.), Roman Vonasek (90.). 10.747. Vín, Austurríki: Admira Wacker - Antwerpen..........2:4 Olaf Marschall (24.), Gerald Bacher (41.) - Alexander Czemiatynski 2 (35., 71.), Didier Segers (51.), Francis Severeyns (60.). 4.000. Mónakó: Mónakó - Olympiakos Piraeus........0:1 - Yiorgos Vaitsis (86.). 8.000. Árbus, Danmörku: Árhus - Steaua Búkarest.............3:2 Sören Andersen (9.), Torben Christensen (19.), Martin Nielsen (80. - vítasp.) - Ion Vladoiu (57.), Ilie Dumitrescu (88.). 9.000. ■Spartak Moskva og Liverpool leika í kvöld. UEFA-keppnin Róm, Ítalíu: Róma -Grasshopper...................0:3 Andrea Camevale (18.), Ruggiero Rizzitelli (25.), Giuseppe Giannini (41.). 35.000. Ankara, Tyrklandi: Fenerbahce - Sigma, Tékkósl........1:0 Ismail (37.). 32.195. Edinborg, Skotlandi: Hearts - Standard Liege............0:1 - Alain Bettagno (6.). 16.897. Guimaraes, Portúgal: Guimaraes - Ajax....................0:3 - Davios (1.), Stefan Pettersson (38.), Dennis Bergkamp (48.). 8.000. Brússel, Belgíu: Anderlecht - Dynamo Kiev............4:2 Luc Nilis (23.), Marc Degryse (37.), Brano Versavel (51.), Peter van Vossen (60.) - Pavel Shkapenko (20.), Viktor Leonenko (52.). 20.000. Amhem, Hollandi: Vitesse - Mechelen..................1:0 John van den Brom (33.). 11.500. Frankfurt, Þýskalandi: Frankfurt - Galatasaray.............0:0 40.000. Auxerre, Frakklandi: Auxerre - FC Kaupmannahöfn..........5:0 Gcr-ld Baticle 3 (15., 40., 80.), Corentin Martins (53.), Didier Otokore (90.). 20.000. Napolí, Italíu: Napolí - París SG...................0:2 - George Weah 2 (16., 35.). 35.000. Madrid, Spáni: Real Madrid - Torpedo Moskva........5:2 Femando Hierro 3 (8., 28., 32.), Ivan Zamor- ano (53.), Michel Gonzalez (85. - vftasp.) - Sergei Shustikov (36.), Gennadi Grishin (39.). 43.000. Lissabon, Portúgal Benfica - Vac Izzo, Ungveijal.......5:1 Sergei Juran (42.), Isaias Soares 2 (56., 86.), Antonio Pacheco (58. - vítasp.), Willian Andrade (79. - vítasp.) - Szedlaczek (82.). 30.000. ■Frem Kaupmannahöfn - Real Zaragosa og Torínó - Dinamo Moskva leika f kvöld. England Úrvalsdeildin: City Ground, Nottingham: Kingsley Black (66.). 17.846. í kvöld Körfuknattleikur Úrvaldeild karla: Seltj'nes: KR - Skallagrimur . „kl. 20 Njarðvík: UMFN - Haukar.... „kl. 20 Handknattleikur 2. deild karla: Seljaskóli: Ögri-Breiðablik... „kl. 20

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.