Morgunblaðið - 22.10.1992, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1992
25
|#1
i ^
Chris Patten, nýskipaður landstjóri Breta í Hong Kong, á fundi með
fréttamönnum í breska sendiráðinu í Peking.
Hong Kong
Kínverjar ávíta
Patten fyrir lýð-
ræðistillögnr
Peking. Reuter.
GHRIS Patten, landstjóri Breta í Hong Kong, kynnti Kinverjum
í gær áætlanir sínar um lýðræðisumbætur í Hong Kong, en skamm-
irnar sem hann fékk yfir sig í fjölmiðlum, gefa til kynna, að svar
ráðamanna í Peking h£ifi verið þvert nei.
Hörð ummæli fjölmiðlanna um
hinn nýskipaða landstjóra, sem fór
í taugarnar á Kínverjum með til-
lögum sínum um aukin áhrif kjós-
enda í Hong Kong á skipan þings-
ins þar, gerðu dagljóst, að kín-
versk stjórnvöld kæra sig ekki um
neins konar málamiðlun í þessu
máli.
„Ég get ekki sagt, að við höfum
náð saman um það sem ég hafði
fram að færa,“ sagði Patten á
fundi með fréttamönnum eftir ríf-
lega sex klukkustunda langan
fund með Lu Ping, sem fer með
málefni Hong Kong af hálfu kín-
verskra ráðamanna. Hann skoraði
á Kínveija að koma með betri til-
lögur.
í augum kínverskra leiðtoga
hafði Patten bætt gráu ofan á
svart með því að segja, að þeir
hefðu aðeins umsagnarrétt um
þetta mál, en ekki neitunarvald. í
frétt í málgagni kínverska komm-
únistaflokksins,Dagb/ai5i a lþýð-
unnar, var Patten sakaður um
„pólitískan leikaraskap“. Hann
væri að „leika sér með traust og
hagsmuni íbúa Hong Kong“ og
„kynda undir andúð á Kínverjum".
Charles E, Cobb á fundi samtaka aðalforstjóra
Kólumbus vissi
um Vínlandsför
Leifs Eiríkssonar
CHARLES E. Cobb, fyrrum
sendiherra Bandaríkjanna á ís-
landi, rakti, í ræðu sem hann
flutti á þingi samtaka aðalfor-
stjóra fyrirtælga í Madrid í síð-
asta mánuði, ítarlega áhrif nor-
rænna víkinga á sögu Evrópu
og Ameríku. Minnti hann sér-
staklega á að það hefði verið
íslendingurinn Leifur Eiríksson
sem uppgötvaði Ameríku og að
Kólumbus hefði vafalítið heyrt
af ferðum hans áður enn hann
hélt sjálfur í landkönnuðarleið-
angur sinn.
Cobb sagði í ræðu sinni að sagn-
fræðingar hefðu deilt um það um
árabil hver hefði í raun uppgötvað
Ameríku. Sumir teldu að það hefðu
verið írskir munkar á sjöttu og
sjöundu öld, aðrir að það hefðu
verið Portúgalir. Sjálfur væri hann
viss um að það hefðu verið víking-
ar sem uppgötvuðu nýja heiminn
í kringum árið þúsund eða um
fimm hundruð
árum á undan
Kólumbusi.
Cobb rifjaði
upp Vínlands-
fund Leifs Ei-
ríkssonar og
minnti á að af-
rek íslensku
víkinganna og
Ameríkufund-
ur Leifs væri
skrásett í ís-
lendingasögunum. Þar væri líka
að finna það nákvæmar lýsingar á
mörgum atriðum í Ameríku að ljóst
væri að þessi atburður hefði f raun
átt sér stað og að Vínland hefði
verið á svæðinu milli Boston og
Marthas Vineyard.
Hann sagði margt benda til að
Kólumbus hefði vitað af afrekum
víkinganna. Þau hefðu verið það
þekkt í Evrópu að erfitt væri að
trúa því að sú hefði ekki verið
raunin.
Afleiðingar efnahagserfiðleikanna í Færeyjum
Niðurskurður, upp-
sagnir og nýjar álögur
FÆREYSKA lögþmgið leitar nú allra leiða tíl að skera niður fjárlög-
in og skila þeún hallalausum. Er stefnt að þvi að bæta stöðu land-
sjóðsins um fjóra mil^arða ísl. kr., ýmist með auknum spamaði eða
nýjum álögum, en það ætlar að reynast lögþingsmönnunum erfítt
verk.
Danska stjórnin ákvað eins og
kunnugt er að bjarga Sjóvinnu-
bankanum í Færeyjum frá gjald-
þroti með fimm milljarða isl. kr.
framlagi en það er bundið því skil-
yrði, að lögþingið taki upp fjárlögin
og skili þeim hallalausum. Er litið
á þetta framlag sem lán en geti
Færeyingar ekki greitt það að fimm
árum liðnum verður það dregið frá
fastri fjárveitingu danska ríkisins
til Færeyja.
Sparnaðaráform landsstjómar-
innar snúa aðallega að mennta- og
heilbrigðiskerfinu og er meðal ann-
ars fyrirhugað að steypa saman
skólum og hætta við framkvæmdir,
sem byijað er á. í heilbrigðismálum
er rætt um að minnka umsvif smáu
sjúkrahúsanna og jafnvel loka sum-
um, til dæmis sjúkrahúsinu í Suð-
urey. Að auki verður gripið til veru-
legra uppsagna hjá hinu opinbera
og er rætt um, að alls verði um 260
manns sagt upp.
Nýjar álögur verða líklega af
ýmsum toga en hækkun virðisauka-
skattsins mun þó vega þyngst. Er
almennt búist við, að hann fari í
23% en þó hafa heyrst raddir um,
að hann ætti að fara enn hærra.
Þessi mál eru nú til umræðu á lög-
þinginu og einnig hugmyndir um
að lækka laun opinberra starfs-
manna um 15%. Voru jafnaðarmenn
andvígir þeirri hugmynd þegar hún
kom fyrst fram en virðast nú vera
að sætta sig við hana. Ef hún nær
fram að ganga er næsta víst, að
henni verði fylgt eftir hjá atvinnulíf-
inu almennt og það kom því ekki á
óvart, að verkalýðsfélögin skyldu
taka henni illa. Þau hafa þó ekki
tekið endanlega afstöðu til hennar
ennþá en ætluðu að ræða málið í
gær og í dag.
11»! Nýslátrað:CKCC
Lamba-úrbeinaður cqq _ Lamba
frampartur Ujjp"^- Súpukjöt
NauSS 499398 a
Safaríkar
Appelsínur 95 p"
fráUrugay
hrökkbrauð nn _
Bragðmiku með mjólk ogkalki í/Ozoo!
Rauðepb 9o ÍW J ~——
frá USA
250g.
1 pr-kg-
hrökkbrauð QQ
meðSesam ~~
mo
Kaffi
lofttæmt
Suddst
1/2 ltr. 55
21tr. 139
Mr. Sheen
« • i / x i ^
hreinsiúði 1 A(\ marmelaði
nremsiuoi . Þvottae
—— s lUÖ,- i,3kg.a7
Harpkwc óí
ilmsteinar QX-
(4 tegundir) ^
£Z~ZT7]