Morgunblaðið - 22.10.1992, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1992
Aðalfundur kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins á Austurlandi
Leitað verði allra leiða til
að draga úr atvinnuleysi
Unnið við dýpkun Vogahafnar.
Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðumundsson
Dýpkunarfram-
kvæmdir í Vogahöfn
Vogum.
FRAMKVÆMDUM við dýpkun í
Vogahöfn sem hafa staðið yfir
undanfarnar vikur fer senn að
Jjúka.
Verktakafyrirtækið ístak annast
verkið sem er dýpkun smábátahafnar
í 2 metra sem er frá núverandi flota-
bryggjum í suður að sjóvamargarði.
Að dýpkun lokinni verður pláss fyrir
50-70 flotbryggjur en flotbryggjur
em nú 13 talsins.
Kostnaður í verkið er 9,2 milljónir
króna samkvæmt tilboði ístaks og
kostar hafnamálastofnun 75% verks-
ins. Þá kemur styrkur úr hafnabóta-
sjóði er nemur 15% og hafnarsjóður
Voghafnar leggur til 10%.
- E.G.
Egilsstöðum.
AÐALFUNDUR kjördæmisráðs
Sjálfstæðisflokksins á Austur-
landskjördæmi var haldinn
laugardaginn 3. október í Sjálf-
stæðishúsinu á Höfn.
Fyrir fundinum lágu venjuleg
aðalfundarstörf, þar með talin
stjómarkosning.
Fráfarandi formaður, Hrafnkell
A. Jónsson, Eskifirði, gaf ekki
kost á sér í embættið og var því
kosinn nýr formaður, Jónas Þór
Jóhannsson, Egilsstöðum. Aðrir í
stjóm vora kosnir Dóra Gunnars-
dóttir, Fáskrúðsfirði, Magnús Sig-
urðsson, Neskaupstað, Bjami
Jónsson, Höfn, og Hrafnkell A.
Jónsson, Eskifirði.
Nú hefur verð Macintosh LC 4/40 lækkað vegna hagstæðra samninga og
nú kostar ódýrasta Macintosh-tölvan með litaskjá aóeins 119.900,- kr.
Hún er með 12" litaskjá, 4 Mb vinnsluminni og 40 Mb harðdiski, innbyggðu
AppleTalk, m.a. til 'samnýtingar við
Compaq Deskpro 386s 20 (386SX. 20)
aðrar tölvur, möguleika á tengingu
við Novell og Ethernet, 1,44 Mb drifi
m.a. fyrir PC-diska, stýrikerfi 7 á íslensku,
vandaðri íslenskri handbók o.m.fl.
Auk þess má tengja allt að sjö
SCSI-tæki við hana (s.s. aukaharð-
disk, skanna eða geisladrií).
Skv. samanburðarrannsókn Ingram Laboratories
í Bandaríkjunum, er raunveruleg vinnslugeta
Macintosh LC-tölva meiri en flestra 386 SX tölva.
(Sjá súlurit t.v.)
119.900,%,
Greiðsíu-
kjbr tii
allt aö
18 mán.
Apple-umboðið
Skipholti 21, sími (91) 624 800
Á fundinum var samþykkt eftir-
farandi stjómmálaályktun með
sérstakri ályktun um atvinnumál:
Aðalfundur kjördæmisráðs
Sjálfstæðisflokksins í Austurlands-
kjördæmi lýsir yfir stuðningi við
ríkisstjóm Davíðs Oddssonar.
Þrálát og sjálfvirk útþensla í
ríkisbúskapnum hefur reynst ríkis-
stjómum erfiður. Þess vegna sér
ekki enn fyrir endann á þeirri bar-
áttu ríkisstjómarinnar að draga
úr ríkisútgjöldum og auka hagræð-
ingu í ríkisrekstri. Þó sýna einstaka
stofnanir að vemlegt átak er hægt
að gera, án þess að skerða þjón-
ustu. Aðhald í opinberum rekstri
er nauðsynlegt til þess að ná niður
raunvaxtastigi í landinu. Lækkun
vaxta er ein aðalforsenda þess að
af endurreisn atvinnuveganna geti
orðið.
Aðalfundurinn telur æskilegt að
verkefni færist frá ríki til sveitarfé-
laga, enda verði þess jafnframt
gætt að sveitarfélögunum verði
tryggðir fullnægjandi tekjustofnar
á móti. Stækkun sveitarfélaga í
framhaldi af því kann að vera
æskilegur kostur, en jafnframt
verði tekið tillit til vilja íbúa þeirra.
Aðalfundurinn hvetur ríkis-
stjómina til að leita allra leiða til
að létta á þeim samdrætti og at-
vinnuleysi sem ríkt hefur í íslensku
atvinnulífi og efnahagsmálum,
með tilheyrandi atvinnuleysi, sem
því fylgir. Samningur um Evrópska
efnahagssvæðið getur verið þáttur
í því. Jafnframt skorar fundurinn
á stjómvöld að standa vörð um
hagstæða lokaniðurstöðu varðandi
samninginn, um leið og lögð er
áhersla á að samningurinn verði
kynntur ítarlega fyrir þjóðinni.
Aðalfundurinn telur að flýta
verði sem kostur er störfum nefnd-
ar um endurskoðun sjávarútvegs-
stefnunnar vegna þess ágreinings
sem ríkir hjá þjóðinni um nýtingu
fiskistofnanna, starfsskilyrði ís-
lensks sjávarútvegs í samkeppni á
erlendum mörkuðum verður að líta
á af raunsæi. Gengisskráning
krónunnar verður að taka mið af
raunverulegu ástandi í útflutnings-
greinunum. Þegar til lengri tíma
er litið er raunhæfast að gefa
gengið fijálst eins og aðra þætti í
efnahagslífínu. Aðalfundurinn tel-
ur æskilegt að íslensk fiskvinnsla
eigi aðgang að erlendu áhættufjár-
magni.
Aðalfundurinn álítur að í ljósi
þrenginga í markaðsmálum land-
búnaðarins sé óhjákvæmilegt að
taka stefnuna í landbúnaðarmálum
til enn frekari endurskoðunar.
Jafnframt því sem markvisst verði
unnið að auknu frelsi í sölu- og
dreifingarkerfi landbúnaðarins.
Aðalfundurinn telur brýnt að í
nánu samráði við aðila vinnumark-
aðarins verði hafín endurskoðun á
vinnulöggjöfinni. Megin markmið
þeirrar endurskoðunar á að vera
að skilgreina betur en gert er í dag
valdamörk aðila vinnumarkaðarins
og hlutverk þeirra, þannig að sam-
skiptareglur verði skýrari og
ábyrgð þessara aðila á ákvörðun-
um ótvíræð.
Aðalfundurinn minnir á að efl-
ing vaxtarsvæðanna, með bættum
samgöngum og aukinni samvinnu
sveitarféiaga og fyrirtækja innan
þeirra, er í senn homsteinn hag-
kvæmrar byggðastefnu og al-
mennrar atvinnu- ög efnahags-
stefnu á næstu áram. Jafnframt
bendir fundurinn á nauðsyn bættra
samgangna milli Norður- og Aust-
urlands. Kanna ber rækilega hvort
hagkvæmt er að byggja upp há-
lendisveg.
Aðalfundurinn hvetur stjórnvöld
til að efla bjartsýni með þjóðinni
á þann hátt að standa að jákvæðri
umræðu um þjóðmálin og efla
frelsi þegnanna til framtaks og
framkvæmda. Sjálfstæðismenn á
Austurlandi vilja treysta byggð og
búsetu í fjórðungnum með því að
nýta þá möguleika sem þar era
fyrir hendi.
Sérstök ályktun um atvinnumál:
Kjördæmisráð Sjálfstæðis-
flokksins á Austurlandi beinir því
til forystu Sjálfstæðisflokksins að
bætt verði enn frekar rekstrarskil-
yrði atvinnuveganna meðal annars
með lækkun opinberra gjalda og
niðurfellingu aðstöðugjalds, enda
verði sveitarfélögum tryggðir
tekjustofnar í staðinn. Rekstrar-
skilyrði atvinnuveganna era for-
senda þess að íslenskir atvinnuveg-
ir standist þann mikla samdrátt
sem orðið hefur og þá hörðu sam-
keppni sem ríkt hefur frá ríkis-
styrktum erlendum samkeppnisað-
ilum.
Kjördæmisráð Sjálfstæðis-
flokksins á Austurlandi skorar á
forystu flokksins að haldinn verði
sem fyrst á vegum hans ráðstefna
um framtíð sjávarútvegs á íslandi
þar sem mótuð yrðu drög að nýrri
stefnu Sjálfstæðisflokksins í sjáv-
arútvegsmálum til að leggja fyrir
næsta landsfund.
- Björn.
Stöð 2 tengist ljósleið-
arakerfi um land allt
ÚTSENDINGARSVÆÐI Stöðv-
ar 2 og Bylgjunnar mun ná um
allt land í Iqölfar samnings sem
var undirritaður fimmtudaginn
15. október á milli Pósts og sima
og íslenska útvarpsfélagsins hf.
Samningurinn felur í sér að um
leið og tengingu ljósleiðara hring-
inn í kringum landið verður lokið
geti fólk alls staðar á landinu náð
útsendingu Stöðvar 2 og Bylgjunn-
ar.
Páll Magnússon útvarpsstjóri
undirritaði samninginn fyrir hönd
íslenska útvarpsfélagsins og Ólaf-
ur Tómasson póst- og símamála-
stjóri fyrir hönd Pósts og síma.
Það er áætlað að tengingu ljós-
leiðarans ljúki í vetur og að hægt
verði að taka hann í gagnið í lok
næsta árs þegar búið verður að
koma upp viðeigandi búnaði. Ljós-
leiðarinn mun að mestu fylgja þjóð-
vegakerfi landsins og sendum ís-
lenska útvarpsfélagsins verður
komið fyrir í næsta nágrenni við
hvern þéttbýlisstað fyrir sig, til að
minnka bilanahættu.
Á næstu vikum verður unnið að
framkvæmdaáætlun um að bæta
átján þéttbýlisstöðum inn í útsend-
ingamet Bylgjunnar og Stöðvar 2
á komandi misserum. A Vestfjörð-
um bætast við Þingeyri, Flateyri,
Tálknafjörður, Bíldudalur og Pat-
reksfjörður. Á Norðurlandi bætast
við Þórshöfn, Kópasker og Raufar-
höfn við útsendingarsvæðið. Á
Austurlandi Breiðdalsvík, Stöðvar-
fjörður og Djúpavík. Á Suðurlandi
Kirkjubæjarklaustur og Vík í Mýr-
dal.
Auk þessa hyggst íslenska út-
varpsfélagið einnig koma útsend-
ingum sínum eftir norðanverðu
Snæfellsnesi enda þótt þangað
verði ekki lagður ljósleiðari. Send-
ingum þangað verður dreift með
örbylgjuflutningi.
(Préttatilkynning)