Morgunblaðið - 22.10.1992, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1992
—:----rrr n-------rr-;—rrr—n n ! r—rTi
23
Kemur illa við viðræður
um að aflétta gjöldum
af atvinnurekstrinum
- segir Magnús Gunnarsson formaður VSÍ
Magnús Gunnarsson, formaður
Vinnuveitendasambands íslands,
segir að það sé kannski merki um
það hvemig rekstraraðstæður
fyrirtækja séu orðnar þegar fyrir-
tæki eins og Eimskipafélag ís-
lands þurfi að hækka farmgjöldin
til að ná endum saman. „Það er
auðvitað mjög slæmt að það þurfi
að koma til frakthækkunar ein-
mitt þegar leiðir til að aflétta
byrðum af atvinnurekstrinum em
til umræðu í þjóðfélaginu. Hinu
mega menn ekki gleyma hins veg-
ar að fraktin hefur verið að lækka
mjög mikið á undanförnum
árum,“ sagði Magnús.
Hann sagði að hækkunin væri al-
gerlega á svig við það sem gerst
hefði í verðlagsmálum á síðustu einu
til tveimur árum, en það væri erfítt
fyrir hann að setjast í dómarasæti í
þessum efnum. Og það væri augljóst
að þetta kæmi mjög illa við þær við-
ræður sem ættu sér stað milli aðila
vinnumarkaðarins og stjómvalda um
að aflétta gjöldum af atvinnurekstr-
inum til að styrkja rekstrastöðu fyrir-
tækjanna. Aðspurður sagðist hann
ekki hafa neina skýringu á því af-
hveiju tilkynning um þessa farm-
skrárhækkun kæmi fram núna.
Hættulegt fordæmi
Ásmundur Stefánsson forseti Al-
þýðusambands íslands sagði ljóst að
hækkun af þessu tagi væri alvarlegt
fordæmi jafnvel þótt hún hefði ein
og sér ekki afgerandi áhrif á verðlag
og framfærsluvísitölu. „Hvað draga
aðrir fram í framhaldi af þessu?“
sagði Ásmundur. Hann sagði að
hækkun Eimskips væri slæm. En það
væri líka slæmt að menn virtust
ætla sér að nota hana til að hækka
verð umfram það sem flutnings-
gjaldahækkunin gæfí tilefni til eins
og fram hefði komið í máli fulltrúa
stórkaupmanna í Morgunblaðinu í
gær. Taldi hann fulla ástæðu fyrir
neytendur að vera á verði gagnvart
því.
Verðlagsráð gaf verðlagningu
flutningsgjalda fijálsa fyrr á þessu
ári. Ásmundur á sæti í ráðinu fyrir
hönd launþega. Aðspurður hvort
hann myndi leggja til í ljósi þessar
hækkunar að verðlagningin verði
aftur tekin undir verðlagsákvæði
sagði Ásmundur að hann yrði að
kynna sér málið betur áður en hann
tæki slíka afstöðu. Benti hann á að
Verðlagsstofnun hygðist skoða for-
sendur hækkunarinnar og taldi rétt
að sjá hvað út úr þeirri athugun
kæmi áður en afstaða væri tekin.
Verðlagi ekki stjórnað með
tilskipunum
Davíð Oddsson forsætisráðherra
sagði að sér hefði óneitanlega komið
farmgjaldahækkun skipafélaganna
nokkuð á óvart. „En mér dettur ekki
í hug að það sé hægt að stjórna
verðlagi hjá einkafyrirtækjum með
tilskipunum frá ríkisvaldinu. Menn
verða að treysta hér sé virk sam-
keppni og ef um óeðlilega hækkun
sé að ræða, leiði það til lækkunar á
nýjan leik.“
Forsætisráðherra sagði að fráleitt
væri að halda því fram að farm-
gjaldahækkunin myndi leiða til 3%
verðhækkunar á innfluttum vörum.
„Það þýddi að flutningskostnaðurinn
væri helmingur af kostnaði við vör-
una og það er auðvitað fráleitt,"
sagði Davíð.
0,5 til 1% hækkun innfluttrar
vöru
Jón Ásbergsson, framkvæmda-
stjóri Hagkaups, sagði aðspurður að
farmgjöld væru á bilinu 10 til 15%
af verði innfluttrar vöru hjá þeim og
gera mætti ráð fyrir að innflutt vara
væri í kringum 40% af matvöru í
versluninni. 6% hækkun á farmgjöld-
um gæti því þýtt 0,5-1% hækkun á
verði innfluttrar vöru.
„Vissulega er þetta mjög sérstök
aðgerð og sýnir að það er engin raun-
veruleg samkeppni í þessari atvinnu-
grein. Menn lýsa yfír að þeir ætli
að hækka verðið vitandi það að sam-
keppnisaðilarnir ætla að elta þá. Það
hefur alla vega ekki gengið hingað
til í matvöruversluninni að menn
auglýstu bara að þeir ætluðu að
hækka verð sín. Auðvitað fer þessi
hækkun eins og allar aðrar kostnað-
arhækkanir að lokum út í verðlagið.
Hver endanleg niðurstaða verður
gagnvart viðskiptavinunum er erfítt
að segja vegna gengisbreytinga er-
lendis og lækkunar vörugjalds,"
sagði Jón ennfremur. Hann sagði að
sér fyndist þetta mjög á skjön við
þá þróun sem hefði verið að eiga sér
stað á Islandi á undanförnum árum
að verð vöru og þjónustu réðist af
samkeppni á markaði.
Bifreiðar geta hækkað í verði um
allt frá innan við fimm þúsund krón-
ur og upp í 15-20 þúsund krónur,
samkvæmt upplýsingum frá Jónasi
Þór Steinarssýni, framkvæmdastjóra
Bílgreinasambandsins. Hann sagði
að vegna þess að aðflutningsgjöld
leggðust ofan á farmgjöldin gætu
áhrif hækkunarinnar tvö til þrefald-
ast.
Endurskoðun ekki líkleg
Hörður Sigurgestsson, - forstjóri
Eimskipafélags íslands, segist ekki
gera ráð fyrir að 6% meðaltalshækk-
un á farmgjöldum félagsins verði
endurskoðuð þó það verði niðurstaða
af viðræðum aðila vinnumarkaðarins
og stjórnvalda að gjöldum verði af-
létt af atvinnurekstrinum, eins og
rætt hefur verið um að undanförnu.
Hann segir að þrátt fyrir þessa 6%
hækkun verði farmgjöldin lægri nú
en þau voru í upphafi ársins. Farm-
gjaldahækkunin geti hækkað fram-
færsluvísitöluna um 0,1-0,3%, en
lækkun farmgjalda framan af árinu
hefði með sama hætti átt að hafa
lækkað vísitöluna. Samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins er talið að
hækkun flutningsgjalda leiði til
0,2-0,3% hækkunar framfærsluvísi-
tölu.
Aðspurður hvort ekki hefði komið
til álita að bíða með þessa ákvörðun
þar til niðurstaða hefði fengist í við-
ræður um lækkun kostnaðar at-
vinnufyrirtækja, sagði Hörður: „Við
teljum að verðlagið á þessum flutn-
ingum eins og það er nú sé orðið
óeðlilega lágt og við eigum það langt
í land að ná jafnvægi í fekstrinum
að það breyti ekki endanlegu þessu
dæmi. Við höfum áfram áhuga á
þjóðarsátt. Við höfum lagt verulega
fram til hennar á undanfömum miss-
erum og flutningsgjöld í raunverð-
mætum hafa lækkað um verulegar
upphæðir á undanförnum árum. Mér
er reyndar til efs að það hafi orðið
meiri hagræðing í mörgum öðrum
atvinnugreinum heldur en í flutn-
ingastarfseminni á undanfömum
árum. Þess vegna emm við kannski
vanbúnari en ýmsir aðrir til að taka
á okkur vemlegar breytingar á þjón-
ustugjöldum."
Hörður sagði aðspurður að það
væri markmið stjórnenda fyrirtæk-
isins að það væri ávallt rekið með
hagnaði og það væri nauðsynleg for-
senda fyrir áframhaldi á hagræðingu
í rekstrinum og lækkun flutnings-
gjalda í framtíðinni. Öðm vísi væri
ekki hægt að fjárfesta eða gera þær
breytingar á rekstrinum sem eðlilegt
væri að gera á hveijum tíma. Að-
spurður vísaði hann því á bug að
þessi hækkun á flutningsgjöldum
tengdist með einhveijum hætti lækk-
un á vörugjaldi um 3% 1. október
síðastliðinn.
Samskip ákveður hækkun
Samskip hefur tekið ákvörðun um
hækkun farmgjalda til Ameríku og
Vestur-Evrópu um 6% að meðaltali
og tekur hækkunin gildi 1. nóv-
ember, að sögn Hjartar Emilssonar
framkvæmdastjórastjóra rekstrar-
sviðs Samskips. Hins vegar yrðu
farmgjöld í strandflutningum óbreytt
frá því sem verið hefði. Aðspurður
hvort ekki hefði komið til álita að
bíða með þessa ákvörðun, sagði
Hjörtur: „Það er ljóst að flutnings-
gjöld hafa lækkað verulega umfram
þetta það sem af er þessu ári og
eins og okkar rekstrarumhverfi er í
dag töldum við það ekki.“
HEFUR ÞIG DREYMT UM AÐ
EIGNAST Míele UPPÞVOTTAVÉL?
MIELE G579SC: 8 ÞVOTTAKERFI, 3 HITASTIG,
HNÍFAPARASKÚFFA OG MIELE GÆÐI.
TILBOÐSVERÐ: 89.522,- KR. STGR*
VENJULEGT VERÐ: 108.872,-
Tilboðið gildir meðan birgðir endast.
w W Jóhann Ólafsson & Co
—=? SIINDABOKCi 1.1 • 104 KKYKJAVlK • SÍMI 6KHSM8
Opnunartími mánudaga til föstudaga 9-12 og 13-18.
Lokað á laugardögum.
*Verð miðast við gengi þýska marksins 15.10. 1992.
TTLBOÐ
VIKUNNAR
HAGKAUP
- altt í einni feró
ÁÐUR
■w, 302,-
HLATEKN plR
SALEHNISPVPT®
ÁÐUR
190,-
ÁÐUR
55,-