Morgunblaðið - 22.10.1992, Side 31

Morgunblaðið - 22.10.1992, Side 31
sfiíW !s$ öíPfiKí Csssf ‘ftðfc*/ wí-Ý jíftiEW f íj í&SftíW?’* ^ f|J| - - MÖRGÚNBÍÁÐIÐ WmMTÚDÁGUR 22. ÖKTÖBÉR 1992 ..... 31 Iðja, félag verk- smiðjufólks Gjaldþrota- leiðin bitn- ar á lands- byggðinni Á ALMENNUM fundi í Iðju, fé- lagi verksmiðjufólks á Akureyri, sem haldinn var á sunnudag, var samþykkt ályktun þar sem stjórn- völd eru átalin fyrir það aðgerð- arleysi sem ríkt hefur varðas-.li vaxandi atvinnuleysi og versnandi stððu atvinnuveganna. „Það hlýtur að vera réttmæt krafa að nú þegar grípi stjómvöld til að- gerða sem snúa þessari óheillaþróun við. Sé það ætlun stjórnvalda að gera ekkert og láta gjaldþrotaleiðina hreinsa til, mun það bitna fyrst og fremst á iandsbyggðinni. Sú stað- reynd að árlega eru flutt úr landi hundruð starfa á sama tíma og þús- undir launafólks verða að lifa á at- vinnleysisbótum verður að stöðva. Hér þarf að verða hugarfarsbreyt- ing, allir verða að átta sig á því að með því að kaupa erlenda vöru frek- ar en íslenska framleiðslu er verið að flytja vinnu úr landi,“ segir í ályktun sem samþykkt var á félags- fundi hjá Iðju. Á fundinum urðu miklar umræður um stöðu kjaramála og það sem framundan er í þeim efnum, kjara- skerðingu og íjöldagjaldþrot fyrir- tækja sem stefnir í verði ekkert að gert, segir í tilkynningu frá Iðju. ----------♦ » ♦ ■— Fóru vel nestaðir „Þetta hefur verið ánægjuleg heimsókn og upplýsandi fyrir báða aðila,“ sagði Halldór Jónsson bæjarstjóri á Akureyri að lokinni heimsókn fulltrúa bandaríska ál- fyrirtækisins Kaiser Aluminium til Eyjafjarðar. „Það er óhætt að segja að þeir hafi farið vel nestað- ir frá okkur. Við reyndum að kynna okkur á raunsæan hátt, drógum ekkert undan, hvorki kosti né galla og ég held þeir hafí metið það, sagði Halldór í gærkvöldi. Á myndinni sést hóp- urinn samankominn og á minni myndinni ræðast þeir við Halldór Jónsson bæjarsfjóri og John M. Seidl stjómarformaður Kaiser. Morgunblaðið/Rúnar Þór Stórmarkaðir Hagkaups og KEA-Nettó Reynsla af sunnudagsopnun góð og töluvert um innkaup aðkomufólks Félag verslunar- og skrifstofufólks skorar á fólk að versla ekki á sunnudögum Tónleikar á 1929 í kvöld Hljómsveitin Hún andar heldur tónleika á skemmtistaðnum 1929 í kvöld, fímmtudagskvöldið 22. októ- ber og verður húsið opnað kl. 22.00. Hljómsveitina skipa Rögnvaldur B. Rögnvaldsson, bassi, Kristján P. Sigurðsson, söngur, Kristinn Þeyr söngur, Ziggy, gítar, og Magnús R. Magnússon. Aldurstakmark er 18 ár, en aðgangur er ókeypis. TVEIR stórmarkaðir á Akureyri, Hagkaup og KEA-Nettó, hafa verið opnir á sunnudögum frá þvi um mánaðamótin ágúst-september og hef- ur reynslan verið ágæt, að sögn verslunarsljóranna og því líklegt að þessar verslanir verði áfram opnar á sunnudögum. Töluvert er um að fólk úr nágrannabyggðarlögnuum geri innkaup í þessum verslunun á sunnudögum. Félag verslunar- og skrifstofufólks hefur skorað á fólk að virða hvíldardag afgreiðslufólks og versla ekki á sunnudögum. „Engin rök er hægt að færa fyrir samþykkt var á almennum fundi því að verslunin verði meiri þótt opið sé á sunnudögum, heldur mun verslunin dreifast og kostnaður auk- ast, sem líklegt er að komi fram í hækkuðu vöruverði þar sem versl- unareigendur hafa ekki hingað til talið sig geta staðið undir auknum launakostnaði," segir í ályktun sem Félags verslunar- og skrifstofufólks í vikunni. Þórhalla Þórhallsdóttir verslun- arstjóri í Hagkaup sagði að sunnu- dagsopnun hefði gengið vel, mun betur en búist var við og væru menn sáttir við árangurinn. Opnunartími verslunarinnar var lengdur í byijun hausts um hálftíma á virkum dögum, á laugardögum er nú opið frá kl. 10-14 og frá kl. 13-17 á sunnudög- um. Sagði Þórhalla að málið hefði verið kynnt starfsfólki áður en opn- unartíminn var lengdur og leitað eftir áliti þess. Fastafólkið vinnur að jafnaði einn sunnudag í mánuði og þriðja hvem laugardag. Ekki er að sögn Þórhöllu gerð krafa um að fólk vinni umfram skyldur og breyt- ingar á opnunartíma hafi verið gerð- ur í fullri sátt við starfsfólkið. „Með lengri opnunartíma höfum við getað dreift álagspunktum í versluninni og tekið af þessa stífu Góður árangur íslendinga á Paris Open Mikíl vinna og samhentur hópur - segir Sigurkarl Aðalsteinsson sem náði öðru sæti í einni keppnisgrein ÍSLENDINGAR náðu góðum árangri f opnu móti hárskera og hárgreiðslumeistara, Paris Open, sem haldið var í París um síð- ustu helgi, en þrír Islendingar voru í tíu efstu sætunum á mót- inu. Sigurkarl Aðalsteinsson hárskeri og eigandi hársnyrtistof- unnar Passion á Akureyri var einn keppenda og náði hann öðru sæti í einni greininni. Alls tóku átta íslendingar þátt í mótinu, fímm kepptu í hárskurði og þrír í hárgreiðslu. Árangur hópsins er sá besti sem náðst hefur á alþjóðlegum mótum í fag- inu fram til þessa. Keppt var í þremur greinum, listrænni út- færslu á eigin módeli, skúlptúr- klippingu og frjálsri greiðslu. Sigurkarl varð í öðru sæti í fýrst nefndu greininni, Ómar Dið- riksson, í þriðja sæti, Jón Guð- mundsson í fimmta sæti og Vikt- oría Guðnadóttir í því sjötta. í greinunum þremur saman- lögðum varð Sigurkarl í sjötta sæti, Jón í því níunda og Viktoría í tíunda og sagði Sigurkarl að þetta væri besti árangur sem Is- lendingar hefðu fram til þessa náð á alþjóðlegu móti í faginu, en þrír Islendingar voru á meðal tíu efstu og náð engin önnur þjóð slíkum árangur, en fulltrúar ijórt- án þjóða tóku þátt í mótinu. „Við þökkum þennan árangur mikilli vinnu, samhentum hópi og svo má líka segja að dómararnir voru býsna sanngjamir, en á það •hefur okkur oft þótt skorta. Við vonum að svo veriði áfram í fram- tíðinni og að farið verði að reikna með okkur í verðlaunasætum. Það tekur langan tíma að ná þeim staðli sem gildir á mótum sem þessu, en í ljósi þessa árangurs virðumst við loks hafa náð hon- um,“ sagði Sigurkarl. Hann hefur tekið þátt í mótum síðustu 11 ár og er þetta hans besti árangur. „Þetta er ánægju- legt, það Iiggur gríðarlega mikil vinna að baki þannig að þessi árangur er ákveðin uppreisn, maður bjóst ekki við þessu," sagði Sigurkarl. Morgunblaðið/Rúnar Þór Sigurkarl Aðalsteinsson hárskeri að störfum I gær, en hann náði öðru sæti f opnu alþjóðlegu móti hárskera og hágreiðslumeistara f Paris um helgina. kúfa sem mynduðust á þeim tíma sem flestir notuðu til innkaupa. Hugmyndin með þessum opnunar- tíma er að bæta þjónustuna við við- skiptavini verslunarinnar og það hefur tekist," sagði Þórhalla. Júlíus Guðmundsson verslunar- stjóri í KEA-Nettó sagði að ágæt- lega hefði gengið með sunnudags- opnun og töluvert væri um að að- komufólk gerði innkaup í versluninni á þeim tfma. Þar væri um að ræða fólk vestan Akureyrar allt til Skaga- íjarðar og eins væri mikið um fólk úr Þingeyjarsýslum, en dæmi væru um fólk allt austur til Reyðarfjarðar sem reglulega gerði innkaup í versl- uninni og teldi það borga sig. „Mín tilfinning er sú, að fyrst á annað borð var farið af stað með sunnudagsopnun verði haldið áfram til jója. Það hefur engin ákvörðun verið tekin um framhaldið, en að jafnaði eru fyrstu tveir mánuðir árs- ins ekki miklir verslunarmánuðir," sagði Júlíus. Hann sagði starfsfólk ekki neytt til að vinna á sunnudögum ef það ekki vildi og langur listi skólafólks sem gjaman vildi ná sér í aukatekj- ur væri til staðar. Stærsti hluti starfsfólksins hefði þó verið tilbúinn til að vinna á sunnudögum, en það vinnur tvo sunnudaga í mánuði að jafnaði. (JJ0f Hótel \=j>Harpa Nýr gistivalkostur áAkureyri Auk hagstæðs gistiverðs, njóta gestir okkar afsláttar á veitingahús- unum BautanumogSmiðjunni. Fastagestum, fyrirtækjum og hóp- um er veittur sérafsláttur. Hótel Harpa Góð gisting á hóflegu verði í hjarta bæjarins. Sími 96-11400 k Ath.aðHótelHarpaerekkiísíinaskránni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.