Morgunblaðið - 22.10.1992, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 22.10.1992, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1992 Café List opnar NÝTT kaffihús hefur verið opnað á Klapparstíg 26. Kaffíhúsið heit- ir Café List, og að sögn eigenda staðarins, er þar lögð áhersla á listina að drekka kaffí, en auk hefðbundins kaffís og kaffímeðlætis, fæst þar espresso ásamt úrvali áfengra og óáfengra kaffídryklqa innlendra sem erlendra, s.s. Carajillo og brennivínskaffí. Café List leggur áherslu á heita og kalda spænska smárétti, svokall- að tapas. Jafnframt er hægt að sérpanta framreiðslu á paellu, þjóð- arrétti Spánveija. Einnig eru al- gengir íslenskir réttir í boði, s.s. súpur, vöflur og hnallþórur. Alla morgna er enskur morgunverður fáanlegur á sérstöku morgunverði, eða 350 kr., og er þá kaffi og app- elsíjiusafi innifalið. Á Café List liggja frammi ís- lensk, bandarísk, frönsk, ítölsk, þýsk og spænsk dagblöð til aflestr- ar. Café Iist hefur fullt vínveitinga- leyfi og opið er til miðnættis virka daga, en til kl. 1 eftir miðnætti um helgar. Ámi Sæberg Augustin Navarro Cortez, einn eigenda og framkvæmdastjóri Café List, í veitingasalnum. ■ Á PÚLSINUM í kvöld, fimmtu- daginn 22. október, verða tónleikar haldnir í beinni útsendingu á Bylgj- unni milli kl. 22 og 24 í tónlistar- þættinum íslenskt í Öndvegi - Púlsinn á Bylgjunni í boði þvotta- hússins og fatahreinsunarinnar Hreint og klárt. Það eru hljóm- sveitimar Papar og Af lifí og sál sem leika. Hljómsveitin Papar er skipuð þeim Hermanni Inga Her- mannssyni, Páli Eyjólfssyni, Ósk- ari Sigurðssyni, Vigni Olafssyni og Georg Ólafssyni. Hljómsveitina Af lífí og sál skipa þau Haukur Hauksson, Kristjana Ólafsdóttir, Ósvaldur Guðjónsson, Birgir Jónsson, Hákon Sveinsson, Skúli Thoroddsen, Jón Mogensen og Bent Marinósson. ATVINNUAUGI YStN&AR „Au pair“ - Svíþjóð íslenskur kvenlæknir óskar eftir stúlku, 20 ára eða eldri, eða fullorðinni konu til að gæta tveggja stúlkna 2ja og 6 ára í a.m.k. eitt ár. Reglusemi áskilin. Upplýsingar í síma 652787 eftir kl. 18.00. w Holtaskóli Kennara vantartil kennslu í sérdeild Holtaskóla. Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 92-11045 og í heimasíma 92-15597. Skólastjóri. Fiskeldi Fiskeldisfræðingur óskar eftir vinnu. Hefur mikla reynslu á sviði seiða- og mat- fiskaeldi, laxi pg bleikju. Hef einnig reynslu af rekstri slíkra stöðva. Upplýsingar í síma 30605 eftir kl. 18.00. WtÆKWÞAUGL YSINGAR Aðalfundur knattspyrnudeildar Vals verður haldinn fimmtudaginn 29. október 1992 að Hlíðarenda og hefst kl. 20.00. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórn knattspyrnudeildar Vals. Auglýsing frá fjármálaráðuneytinu Fjármálaraðuneytið vekur athygli á reglum er gilda um innflutning ferðamanna á varn- ingi, sem er undanþeginn álagningu tolla og annarra gjaida. Við komu til landsins er ferðamönnum heim- ilt að taka með sér varning fyrir allt að 32.000 kr., miðað við smásöluverð á innkaupsstað, án greiðslu tolla eða annarra gjalda. And- virði einstaks hlutar má þó ekki vera meira en 16.000 kr. og andvirði mætvæla, þar með talið sælgæti, má ekki vera meira en 4.000 kr. Heildarþyngd matvæla má mest vera 3 kg. Börn yngri en 12 ára mega koma með helming þess sem að framan greinir. Um innflutning áfengra drykkja og tóbaks gilda sérstakar reglur og ýmsar vörur eru háðar innflutningstakmörkunum eða inn- flutningsbanni. Af öllum öðrum varningi en að framan grein- ir ber ferðamönnum, sem koma til landsins, að greiða tolla og önnur gjöld eftir almennum reglum þar um. Ferðamenn skulu ótilkvaddir skýra tollgæslumanni frá og framvísa við hann tollskyldum varningi. Brot á reglum þessum varða sektum, varðhaldi eða fang- elsi og heimilt er að gera þær vörur upptæk- ar, sem reynt er að flytja inn án greiðslu lögboðinna gjalda. Bæklingur, með frekari upplýsingum um toll- frjálsan innflutning ferðamanna, liggur frammi í flughöfnum landsins og eru ferða- menn hvattir til að kynna sér efni hans. Gjöf Jóns Sigurðssonar Samkvæmt reglum skal veita fé úr sjóðnum Gjöf Jóns Sigurðssonar „til verðlauna fyrir vel samin vísindaleg rit og annars kostar til þess að styrkja útgáfur merkilegra heimildar- rita“. Heimilt er að „veita fé til viðurkenning- ar á viðfangsefnum og störfum höfunda, sem hafa vísindarit í smíðum“. Öll skulu rit þessi „lúta að sögu íslands, bókmenntum þess, lögum, stjórn og framförum". Þeir, sem óska að rit þeirra verði tekin til álita um verðlaunaveitingu, skulu senda nefndinni eitt til þrjú eintök. Æskilegt er að umsögn viðurkenndra fræðimanna, sér- fróðra um efni ritsins, fylgi. Framangreind gögn skulu send í forsætis- ráðuneytið, Stjórnarrqðshúsinu, 105 Reykja- vík, en stíluð til verðlaunanefndarinnar, fyrir 1. desember næstkomandi. Reykjavík, 19. október 1992. Verðlaunanefnd Gjafar Jóns Sigurðssonar, Guðrún Ólafsdóttir, Sigurður Líndal, Valgerður Gunnarsdóttir. Orðsending til eigenda sauðfjár og geita Athygli er vakin á því, að samkvæmt lögum um sauðfjárbaðanir, nr. 22 10. maí 1977, er skylt að baða allt sauðfé og geitur á kom- andi vetri (1992-1993). Skal böðun fara fram á tímabilinu 1. nóvember til 15. mars. Sauðfjáreigendur skulu fylgja fyrirmælum baðstjóra og eftirlitsmanna um tilhögun og framkvæmd baðana. Um heimild landbúnaðarráðherra til að veita undanþágu frá böðunarskyldu vísast til 1. mgr. 3. gr. laganna og breytingar með 39. gr. laga nr. 108 29. desember 1988, er undan- þága háð meðmælum yfirdýralæknis og við- komandi héraðsdýralæknis. Umsóknum sýslu- manna um undanþágu skal fylgja vottorð hér- aðsráðunauta í sauðfjárrækt og garnaveikis- bólusetningarmanna, gærumatsmanna og heilbrigðiseftirlitsmanna í sláturhúsum á svæðinu um að þeir hafi ekki orðið varir við kláða eða önnur óþrif í sauðfé og geitfé í hólf- inu síðastliðin fjögur ár eða lengur. Landbúnaðarráðuneytið, 19. október 1992. íþróttaráð Hafnarfjarðar minnir á göngudaginn 22. október 1992 í tilefni dagsins verður frítt í sundlaug bæjar- ins fyrir göngufólk frá kl. 12.00-14.00. í öllum íþróttamannvirkjum bæjarins eru kort með góðum og skemmtilegum göngu- og skokk- leiðum fyrir þá, sem hafa áhuga á að ganga í tilefni dagsins. Hin mánaðarlega Hafnarfjarðarganga skáta- félagsins Hraunbúa verður sunnudaginn 25. okt. nk. Gengið verður frá Hafnarborg kl. 14.00 og upp með læknum. Göngustjórar í þessari ferð verða Magnús Már Júlíusson, kennari, og Ingvar Viktorsson, formaður bæjarráðs. íþróttaráð Hafnarfjarðar hvetur bæjarbúa til að vera með og ganga reglulega sér til heilsu- bótar og ánægju. Uppboð Framhald uppboðs á eigninni: Sunnufelli 3, Fellabæ, þinglýst eign Eiríks Sigfússonar, eftir kröfum innheimtumanns ríkissjóðs og Lífeyrissjóðs Austurlands, verður háð á eigninni sjálfri, mánudaginn 26. október 1992, kl. .15.00. Sýslumaðurinn á Seyðisfirði, 21. október 1992. St.St. 5992102219 VIII I.O.O.F. 5 = 17410228'A = 9.0. I.O.O.F. 11 = 17410228'A : 9.0. adkfum Holtavegi Fundur í kvöld kl. 20.30 í umsjá Árna Sigurjónssonar. Fundarefni: „Fallnir stofnar." Allir karlmenn velkomnir. Hvítasunnukirkjan Völvufelli Almenn sarnkoma i kvöld kl. 20.30. Allir hjartanlega velkomnir. I kvöld kl. 20.30 er almenn sam- koma í Þríbúðum, Hverfisgötu 42. Mikill almennur söngur. Vitnis- burðir Samhjálparvina. Ræðumaður Þórir Haraldsson. Kaffi að lokinni samkomu. Allir velkomnir. Samhjálp. Orð lífsins, Grensásvegi 8 Almenn samkoma ( kvöld kl. 20.30. Allir hjartanlega velkomnir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.