Morgunblaðið - 22.10.1992, Side 40

Morgunblaðið - 22.10.1992, Side 40
40 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1992 fclk f fréttum AFMÆLI Fjórir ársgamlir Raufarhafn- arbúar halda upp á afmæli sitt Raufarhöfn yrir ári eða hinn 15. október 1991 fæddust á Raufarhöfn fjórar litlar stúlkur og þykir það tíðindum sæta að í svo litlu sjávar- þorpi skuli fæðast fjögur stúlku- börn sama daginn. Þær stöllur héldu upp á afmælið nú á dögunum og er myndin tekin við að tækifæri af Signýju, Sigurlaugu og Aðal- heiði. Elín var hins vegar í Reykja- vík og hélt upp á afmælið þar. - HÓ. NAMSKEIÐ Hársnyrtifólk til Parísar Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Ólympíufarar frá Selfossi ásamt bæjarstjóra og forseta bæjarsljórn- ar. SELFOSS Ólympíufarar heiðrað- ir fyrir góðan árangur Selfossi. Sex Ólympíufarar og þjálfarar þeirra voru heiðraðir fyrir frækilega framgöngu í samsæti sem bæjarstjóm Selfoss hélt þeim til heiðurs síðastliðinn sunnudag. Vakin var athygli á því að einstakt er að bæjarfélag af þeirri stærð sem Selfoss er skuli eiga svo marga þátttakendur í Ólympíuleik- um. Ólympíufararnir fengu áletraða skildi og blómvendi sem viður- kenningarvott og íþróttafélagið Suðri 100 þúsund króna styrkveit- ingu vegna góðs árangurs íþrótta- fólks félagsins. í Ólympíuhópnum vom hand- knattleiksmennimir Einar Gunnar Sigurðsson og Gústaf Bjarnason, Vésteinn Hafsteinsson kringlu- kastari, Svanur Ingvarsson sund- maður, sem keppti á leikum fatl- aðra, og Gunnar Gunnarsson sund- maður og Katrín Gróa Sigurðar- dóttir sundkona, sem kepptu á leikum þroskaheftra. í ávörpum sem flutt vom kom fram að þessi góði árangur væri uppskera mikils íþróttastarfs und- anfarinna ára á Selfossi. Mikill íþróttaáhugi er á staðnum og bæj- arbúar þess vel meðvitaðir að stuðningur og hvatning er mikil- vægur þáttur í starfinu. Ljósasta dæmið um það er sú mikla hvatn- ing sem handboltalið Selfoss fær á heimaleikjum. Sig. Jónss. íslenski hópurinn í höfuðstöðvum Perma í miðborg Parísar að loknu velheppnuðu námskeiði. SOLARORKA Undrahúfa Einars Einn stærsti hópur hársnyrti- fólks sem farið hefur á nám- skeið í París, er nýlega kominn aft- ur eftir vel heppnaða ferð til há: tískuborgarinnar á Signubökkum. í hópnum vom fagmenn alls staðar af að landinu og ættu því viðskipta- vinir stofa um land allt að vera famir að njóta góðs af því sem þeir kynntust í Paris að þessu sinni. Hópurinn notaði þá viku sem ferðin tók til að skoða hártískusýningar og taka þátt í námskeiðum. Þá var borgin skoðuð og fór þessi fyrsti Islenski hópur hársnyrtifólks sem heimsækir Perma Paris á kvöld- verðarsýningu í Lídó í boði þeirra. Ferðin var skipulögð af Perma Paris og umboðsmönnum þeirra hér á landi. Perma Paris er stærsta fyrirtæki Frakklands sem selur hár- vömr eingöngu til fagmanna. Á námskeiðinu vora hópnum kynntar nýjar tegundir háralitar og aflitun- arefna. Þá sótti hópurinn námskeið I klippingu og hárgreiðslu hjá fræðslu- og sköpunardeild Int- TAKMARKAÐ MAGN! ermed, en það rekur vinsælar stofur sem staðsettar em víða um París. Mjög erfitt er að komast á nám- skeið hjá þessum aðilum og er u.þ.b. 9 mánaða bið að komast á nám- skeið hjá þeim. Þannig vildi til að þessi hópur var fyrstur til að Kynn- ast nýju haust- og vetrarlínunum ’92-’93 frá Intermed að þessu sinni. Einar Þorsteinn Ásgeirsson, fmmkvöðull í smíði kúlu- húsa, fékk góða gjöf fyrir skömmu en það var húfa með sólarrafhlöð- um á toppinum sem knýja viftu í skyggninu. Einar fékk húfuna að gjöf frá dönskum nemendum sín- um en þeir sóttu helgarnámskeið í smíði kúluhúsa sem Einar hélt í þorpinu Thorap á Jótlandi. „Einn nemendanna vinnur hjá stofnun sem hefur með höndum kynningu á öllu því sem tengist vistfræði. Húfan er upphaflega gerð í Banda- ríkjunum til að sýna hvað er hægt að gera t.d. með sólarorku," segir Einar. Sjálfur hefur hann kennt uppsetningu kúluhúsa hér á landi og í Danmörku. Segir hann undir- tektir mjög góðar þar í landi, enda sé mikill áhugi á öllu því sem vist- vænt sé. „En húfan er nú meira til gamans gerð. Ég tel þó að ég muni fá full not fyrir hana í Ind- landsferð sem ég fer í janúar næstkomandi. Húfan er létt og þægileg, ekki síst í hitanum á Ind- landi.“ Morgunblaðið/Ámi Sæberg Einar Þorsteinn með húfuna góðu. Sólarrafhlöðurnar má stilla, beina þeim í átt að sólinni og viftan veitir síðan þægilegan svala. í Kaupmannahöfn FÆST í BLAÐASÖLUNNI Á JÁRNBRAUTA- STÖDINNI, KASTRUPFLUGVELLI OGÁRÁÐHÚSTORGI • Stór flatur skjár • Nicam stereo • Black matrix myndlampi • íslenskt textavarp Heimilistæki hf SÆTÚNI8 SÍMI691515 ■ KRINGLUNNI SiMI 6915 20 ESTEE LAUDER '/ ■ ||j| Æl&' 'vfk EfKHflíl Kynning Snyrti fflEflí í dag frá kl. 14.00-1 8.00 vöruverslunin Brá, Laugavegi 74.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.