Morgunblaðið - 30.10.1992, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 30.10.1992, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1992 3 Hagkaup Illseljanlegir bréfpokar gefnir í Hagkaupsverslunum í höfuð- verið litið til þess að bréfpokar borginni er fólki nú boðið upp á væru umhverfisvænni en plastpok- ókeypis bréfgoka undir varning ar. „En svo hafa menn deilt um sinn. Jón Ásbergsson, fram- það, þegar dæmið hafi verið upp kvæmdastjóri Hagkaups, segir gert, hvort pappírspokinn sé nokkuð að pokarnir hafi verið boðnir til vistvænni en plastið. Og samkvæmt sölu í Hólagarði en þar sem fólk þeim heimildum sem við höfum hafi frekar viljað kaupa plast- hafa kaupmenn í vaxandi mæli lagt poka en bréfpoka hafi verið áherslu á plastið vegna þess að það ákveðið að dreifa afgangnum í sé vistvænna og minni orka fari í verslanir Hagkaups og gefa þá. að framleiða það.“ Jón sagði að upphaflega hefði 4,1 milljón upp í 83 millj. kröfur RÚMLEGA 4,1 miiljón króna fannst í þrotabúi Akraprjóns hf. þar sem lýst var um það bil 83 milljóna króna kröfum. Fyrirtæk- ið varð gjaldþrota í september 1990 en skiptum er nýlega iokið. Rúmar 3,9 milljónir greiddust upp í um 14,5 milljónir króna sem tryggð- ar voru með veði í lausafé búsins og upp í þriggja milljón króna forgangs- kröfur greiddust rúmlega 20 þúsund krónur. Ekkert fannst í þrotabúinu til greiðslu upp í 65,3 milljónir króna almennra krafna. Aukin sam- vinna lög- reglu á Suð- vesturlandi LÖGREGLUEMBÆTTIN á suð- vesturhorni landsins hafa í und- irbúningi að taka upp nánara samstarf sín á milli, ekki sist á sviði umferðarmála. I næstu viku munu embættin á höfuðborgar- svæðinu ásamt lögreglu í Kefla- vik og Grindavík hafa sérstaka samvinnu, meðal annars um hraðamælingar. Meðan á þessu stendu'r munu lögreglumenn í fyrrgreindum um- dæmum halda uppi öflugu umferð- areftirliti, með hraðamælingum og sérstöku eftirliti með því hvernig ekið er um gatnamót, hvort sem umferð um þau er stjórnað með ljós- um, stöðvunarskyldu- eða bið- skyldumerkjum. Omar Smári Ár- mannsson aðstoðaryfirlögreglu- þjónn sagði við Morgunblaðið að í næstu viku mætti ökumaður sem æki til dæmis milli Reykjavíkur og Keflavíkur og héldi sig ekki innan löglegra hraðatakmarkana eiga von á því að verða stöðvaður og sektað- ur allt að því fjórum sinnum á leið- inni. ----♦ ♦ ♦--- Borgarráð Breytingar á gjaldi í bílastæða- húsum og á bflastæðum BORGARRÁÐ hefur samþykkt verðskrá mánaðargjalda í bíla- stæðahúsum og á stórum bíla- stæðum sem gildi tekur 1. janúar næstkomandi. Sérstakt kynning- arverð sem verið hefur á Bakka- stæði og í Kolaporti hækkar þá úr 2.000 kr. í 2.500 kr. Tímagjald í bílastæðahúsum og á stórum bílastæðum verður óbreytt frá því sem verið hefur, en það er 30 kr. fyrsta klukkutímann og síðan 10 kr. fyrir hveijar 12 mínútur. Mánaðargjald hefur verið á bilinu 4.500 til 6.000 kr. nema á Bakka- stæði og í Kolaporti. Mánaðargjald í Bergstöðum lækkar og verður frá 1. janúar 3.500 kr., í Vesturgötu 7 verður gjaldið 5.500 kr., á Alþingis- reit 6.000 kr., við Ráðhúsið 6.000 kr. og við Tollstöðina lækkar gjald- ið í 2.500 kr. Um mánaðamótin nóvember-des- ember verður opnað nýtt bílastæða- hús að Hverfisgötu 20 gegnt Þjóð- leikhúsinu. Borgarráð samþykkti að þar verði ókeypis að leggja bílum í desember, en eftir það verður mánaðargjaldið 3.500 kr. Ert þú í forsvari fyrir félag, fámennt eða fjölmennt, formlegt eða óformlegt? Þá veistu hvab þab fer mikill tími í innheimtu félagsgjalda, ab halda félagatalinu réttu, vita hverjir hafa gert skil, senda rukkanir á réttum tíma, taka vib greibslum og koma þeim í banka. Til ab þú hafir meiri tíma til ab sinna eiginlegum félagsstörfum bjóbum vib Félagaþjónustu íslandsbanka. Notfœrbu þér Félagaþjónustu íslandsbanka fyrir þitt félag og notabu tímann til ab sinna sjálfum félagsstörfunum. Félagaþjónustan felst mebal annars í eftirfarandi þáttum: • Círóseblar fyrir félagsgjöldum eru skrifabir út og sendir greibendum á réttum tíma. Um leib er félaginu send skrá yfir útskrifaba gírósebla. • Hœgt er ab velja árlega og allt nibur í rhánabarlega innheimtu. • Reikningsyfirlit meb nöfnum greibenda eru skrifub út í byrjun hvers mánabar. • Dráttarvextir eru reiknabir, sé þess óskab. • Cjöld geta hœkkab samkvœmt vísitölu, sé þess óskab. Ab auki er bobin margþœtt vibbótarþjónusta. ÍSLANDSBANKI -í takt vid nýja tíma!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.