Morgunblaðið - 30.10.1992, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 30.10.1992, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1992 23 Aukin bjartsýni í her- búðum Bush forseta Forsetinn þarf þó að vinna sigur í öllum þeim ríkjum sem helst er tekist á um Washington. Frá Ásgeiri Sverrissyni, blaðamanni Morgunblaðsins. VAXANDI bjartsýni gætir nú í herbúðum George Bush Banda- ríkjaforseta og fullyrða talsmenn hans að hann eigi enn mögu- leika á að sigra í forsetakosningunum í Bandaríkjunum á þriðju- dag. Forsetinn hefur bætt stöðu sína í mikilvægum ríkjum og virðist nú sem baráttan á lokasprettinum muni einkum snúast um atkvæði kjósenda í Michican og Ohio. Með tilliti til kjörmanna- atkvæða, en næsti forseti Bandaríkjanna þarf að minnsta kosti að tryggja sér 270 slík, er þó ljóst að Bush þarf að vinna sigur í flestum ef ekki öllum þeim ríkjum sem enn er slegist um en þau eru trúlega 16. Skoðanakannanir sem birtar voru í gær og á miðvikudag í Bandaríkjunum gefa til kynna að dregið hafi saman með frambjóð- endum stóru flokkanna tveggja þeim George Bush forseta og Bill Clinton, ríkisstjóra frá Arkansas. Samkvæmt tveimur könnunum hefur Clinton nú tveggja og fimm prósenta forskot á Bush forseta og svo virðist sem fylgi við auðkýf- inginn orðheppna, Ross Perot, fari minnkandi. í könnun sem Gallup-fyrirtækið og CMV-sjónvarpsstöðin stóðu að reyndist- Bill Clinton njóta stuðn- ings 40 prósenta þeirra sem þátt tóku en 38% kváðust ætla að greiða Bush forseta atkvæði sitt í kosningunum á þriðjudag. Var þessi fylgisaukning forsetans skýrð á þann veg að traustir stuðn- ingsmenn Repúblikanaflokksins, sem áður hefðu íhugað að snúa baki við Bush forseta, væru nú teknir að efast um réttmæti þessa. Þá þótti og sýnt að fylgi Ross Perots hefði náð hámarki og kæmu þau sinnaskipti kjósenda Bush til góða. Nokkrir fréttaský- rendur létu í ljósi efasemdir um könnun þessa en það er á hinn bóginn mat manna að mjög hafi dregið saman með þeim Bush og Clinton. Athyglisvert er að kann- anir gefa til kynna að George Bush hafí nú yfirhöndina í tveimur sérlega mikilvægum ríkjum, Texas og Flórída. Þessi ríki verður forset- inn að vinna ætli hann sér að búa næstu fjögur árin í Hvíta húsinu. Könnun ATBC-sjónvarpsstöðvar- innar og dagblaðsins Wall Street Journal þótti gefa trúverðugri mynd af stöðu mála en samkvæmt henni hefur Clinton fimm prósenta forskot á forsetann. Sérfræðingar í herbúðum þeirra Bush og Clint- ons voru sammála um að þennan fylgismun þyrfti forsetinn trúlega að vinna upp fyrir kjördag. Stan Greenberg, sem vinnur að gerð skoðanakannana fyrir Bill Clinton, kvaðst þó vera þeirrar hyggju að ríkisstjórinn hefði sjö til tíu pró- senta forskot á keppinaut sinn. Greenberg sagði það ekki koma mönnum á óvart í herbúðum Clint- Reuter George Bush forseti hélt mikinn útifund í Strongsville í Ohio í gær og sagði þá, að fréttin um efnahagsbata í Bandaríkjunum hefði gert tilkall Clinton til forsetastólsins að engu. KJÖRMANNAKERFIÐ í bandarísku forsetakosningunum velja kjósendur ekki frambjóðendur beint. Þess í stað velja þeir kjörmenn sem kjósa svo forseta. Kjörmennirnir eru 538 talsins. í hverju ríki fær sigurvegarinn alla kjörmennina nema í Maine og Nebraska, þar sem kjörmenn geta skipst t.toss N.H. Tenn. C. 11 Riki með flesta kjörmenn Fræðilega naegir til sigurs að vinna ... í 11 ríkjum sem hofa ctamfalc 0~7C\ Hawaii hafa samtals 270 kjörmenn KJÖRMANNAFJÖLDI í HVERJU RÍKI Kjðrmennimir eru jafnmargir og þingmenn viðkomandi ríkis' Rfló Kjörmenn Rlki Kjörmenn Ríki Kjðrmenn Ala. Alabama 9 Ky. Kentucky 8 N.Dak. Norður Dakota 3 Alas. Alaska 3 La. Louisiana 9 Ohio Ohio 21 Ariz. Arizona 8 Me. Maine 4 Okla. Oklahoma 8 Ark. Arkansas 6 Md. Maryland 10 Oreg. Oregon 7 Kalif. Kalifomía 54 Mass. Massachusetts 12 Penn. Pennsylvanía 23 Colo. Colorado S Mich. Michigan 18 R.l. Rhode Island 4 Conn. Connecticut 8 Minn. Minnesota 10 S.C. Suður Karólína 8 Del. Delaware 3 Miss. Mississippi 7 S.Dak. Suður Dakota 3 D.C. Washington D.C. 3 Mo. Missouri 11 Tenn. Tennessee 11 Fla. Flórída 25 Mont. Montana 3 Tex. Texas 32 Ga. Georgía 13 Nebr. Nebraska 5 Utah Utah 5 Hawaii Hawaii 4 Nev. Nevada 4 Vt. Vermont 3 Idaho Idaho 4 N.H. New Hampshire 4 Va. Virginia 13 ILL. lllinois 22■ N.J. New Jersey 15 Wash. Washington 11 Ind. Indiana 12 N.Mex. Nýja Mexíkó 5 V.Va. Vestur Virginía 5 lowa lowa 7 N.Y. New York 33 Wlsc. Wisconsin 11 Kans. Kansas 6 N.C. Norður Karólína 14 Wyo. Wyoming 3 | ‘nema i Dislricl ol Columbit sem á enga þingmenn en þrjá kjörmenn. REUTER ons að bilið .hefði minnkað. Slíkt mætti heita regla síðustu dagana fyrir kosningar hér vestra. Bush forseti tók þessum nýju skoðanakönnunum fagnandi og kvað þær staðfesta þá viðhorfs- breytingu sem hann hefði orðið var við á ferðalögum sínum undan- fama daga. Clinton og undirsátar hans væru komnir í vamarstöðu. „Þeir vita að við emm komnir á mikinn skrið,“ sagði forsetinn. Frambjóðendur héldu í gær áfram að ata keppinauta sína auri. Bush forseti ítrekaði eina ferðina enn að Clinton ríkisstjóri væri ekki traustsins verður, en Clinton kvað það vera hneyksli að George Bush tæki sér orðið „traust" í munn. Ummæli dagsins átti hins vegar auðkýfingurinn sérlundaði, Ross Perot, en andstæðingar hans höfðu látið þau orð falla að ásak- anir hans um persónunjósnir und- irsáta Bush væm bijálsemislegar. „Við getum unnið. Ef ég er brjál- aður, þá er mikið af bijáluðu fólki í Bandaríkjunum." Aðdáendur og stuðningsmenn Perots fögnuðu þessum orðum hans ákaft. Fyrsta tilbob í ríkisvíxla verbur mibvikudaginn 4. nóvember Næstkomandi miðvikudag fer fram fyrsta tilboð í ríkisvíxla. Um er að ræða 1. fl. 1992 í eftirfarandi verðgildum: Kr. 1.000.000 Kr. 50.000.000 Kr. 10.000.000 Kr. 100.000.000 Ríkisvíxlarnir eru til 3 mánaða, með gjalddaga 5. febrúar 1993. Þessi flokkur verður skráður á Verðbréfaþingi íslands og er Seðlabanki íslands viðskiptavaki ríkisvíxlanna. Ríkisvíxlarnir verða seldir með tilboðsfyrirkomu- lagi. Lágmarkstilboð samkvæmt tilteknu tilboðs- verði er 5 millj. kr. og lágmarkstilboð í meðalverð samþykktra tilboða er 1 millj. kr. Löggiltum verðbréfafyrirtækjum, verðbréfa- miðlurum, bönkum og sparisjóðum gefst einum kostur á að gera tilboð í ríkisvíxlana samkvæmt tilteknu tilboðsverði. Aðrir sem óska eftir að gera tilboð í ríkisvíxla eru hvattir til að hafa samband við framangreinda aðila, sem munu annast tilboðsgerð fyrir þá og veita nánari upplýsingar. Jafnframt er þeim heimilt að bjóða í vegið meðalverð samþykktra tilboða (meðalávöxtun vegin með fjárhæð). ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ LÁNASÝSLA RÍKISINS RÍKISVERÐBRÉFA Hverfisgötu 6, 2. hæö, 150 Reykjavík, sími 91- 62 60 40, Öll tilboð í ríkisvíxlana þurfa að hafa borist Lánasýslu ríkisins fyrir kl. 14, miðvikudaginn 4. nóvember. Tilbobsgögn og allar nánari upplýsingar eru veittar hjá Lánasýslu ríkisins / Þjónustumibstöb ríkisverðbréfa, Hverfisgötu 6, í síma 62 60 40.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.