Morgunblaðið - 30.10.1992, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 30.10.1992, Blaðsíða 52
 MORG UNBLADl SÍMI 691100, 31 JAL8TRÆTI 6, 101 REYKJAVÍK )F 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1992 VERÐ I LAUSASOLU 110 KR. Heilbrigðisráðherra vill bylta lyfsölu Þarf að spara 300 milljónir SIGHVATUR Björgvinsson heilbrigðisráðherra hyggst grípa til frekari aðgerða til að lækka lyfjakostnað Tryggingastofnunar. Hann gerir ráð fyrir að leggja frumvarpsdrög þar að lútandi fyrir ríkisstjórnina í dag og segist ætla að gerbreyta dreifingu lyfja, heildsölu og smásölu. Sig- hvatur segir einna mikilvægast að skilja eigi í sundur skráningu lyfja og greiðslu, nefnd muni ákveða hvaða lyf ríkið taki þátt í að borga. Á flárlögum næsta árs er gert ráð fyrir 2,2 milljörðum króna vegna kostnaðar Tryggingastofnunar af lyfjakaupum landsmanna og segir Sighvatur að við bætist 15% vegna nýrra lyfja og upphæðin verði 2,53 milljarðar. Á þessu ári greiðir Trygg- »- Jngastofnun 300-400 milljónum Háskólinn Takmarkan- ir á innrit- un í skoðun HÁSKÓLARÁÐ hefur til athugun- ar að fara fram á breytingar á v^^lögum um Háskóla íslands þannig að mögulegt verði að takmarka aðgang að skólanum. Samkvæmt núgildandi lögum eiga allir sem Iokið hafa stúdentsprófi eða jafn- gildi þess rétt á að verða skráðir háskólaborgarar. Tillaga þessa efnis hefur verið send einstökum deildum skólans svo og samtökum stúdenta til umsagnar. Reiknað er með að niðurstaða geti fengist í málið í næsta mánuði. Að sögn Sveinbjörns Bjömssonar, rektors Háskóla íslands, eru skiptar skoðanir um þessa tillögu innan skól- ans. Annars vegar er það sjónarmið að nauðsynlegt sé fyrir skólann að hafa slíka heimild til að stjóma fjár- málum sínum. Til dæmis ef fyrirsjá- "*"^anlegt sé að gæðum námsins geti hrakað vemlega vegna ónógra fjár- veitinga miðað við fjölda stúdenta, en annar möguieiki í þeim efnum sé að leggja niður námsbrautir. Hins vegar eru þeir sem telji að ekki eigi að breyta inntökuskilyrðum og óttist þeir að það geti leitt til misnotkun- ar. Mönnum eigi að vera frjálst að hefja nám og námskröfur sjái til þess að vinsa þá úr sem erindi eigi í skólann. meira fyrir lyf en ætlað var, þrátt fyrir aðgerðir til að draga úr kostn- aði. Þessi tala færist yfir á næsta ár og býst heilbrigðisráðherra því við að stofnunin greiði þá að óbreyttu hátt í 2,8 milljarða fyrir lyf. Hann segir að þannig bíði sá starfi sérfræð- inganefndar Tryggingastofnunar, fáist fmmvarpið samþykkt, að ákveða hvaða lyf verði á greiðslulista og hver falli út. Við blasi að ná þurfi ríflega 300 milljóna spamaði. Kristján Guðjónsson deildarstjóri hjá Tryggingastofnun segir að þær 300-400 milljónir sem bætast við áætlaða 2,2 milljarða í kostnað á árinu stafí einkum af eftirfarandi; nýjum og dýmm lyfjum á markaðin- um, þjóðinni fjölgi og hlutfall aldr- aðra aukist, sjúkrahús útskrifí sjúkl- inga fyrr en áður og meira sé því keypt af lyfjum í apótekum. Hann segir að kostnaður stofnunarinnar væri 800 milljónum meiri ef ekki hefði verið gripið til spamaðarað- gerða. Morgunblaðið/Rúnar Þór Lögreglan snarar mannýgt naut á Akureyri Mannýgt naut slapp þegar verið var að flytja það til slátmnar í Kjötvinnslu B. Jensen á Lóni við Akur- eyri síðdegis í gær og stefndi það inn í bæinn. Lög- reglan var kölluð til aðstoðar enda hætta talin stafa af tarfinum. Eini víkingasveitarmaður lögreglunnar á Akureyri var á vakt þegar atburðurinn átti sér stað og greip hann með sér vopn sitt, skammbyssu, ef skjóta þyrfti nautið. Gunnar Randversson, varð- stjóri lögreglunnar á Akureyri, sagði að hætta hefði verið talin stafa af nautinu fyrir gangandi vegfarend- ur og í fyrstu hafí verið hugmyndin að skjóta það af færi en myrkur og nauðsynlegur vopnabúnaður komið í veg fyrir það. Lögreglumenn höfðu aðeins með sér skammbyssu víkingasveitarmannsins og fjárbyssu og varð því horfíð frá því að farga bola þama í útjaðri byggðarinnar við Akureyri. Misstu menn sjónar af tarfínum en hann fannst aftur eftir ábendingu frá vegfarendum austan við Hörgár- braut. Er hann varð mannaferða var tók hann á rás inn í Krossaneshaga þar sem upphófst mikill eltinga- leikur og ríkti andi kúreka vestursins er víkingasveit- armanninum tókst að snara nautið. Nautið var flutt að Lóni aftur og verður því sennilega ekki slátrað fyrr en það hefur verið róað niður eftir flóttann. Sjávarútvegsráðherra á aðalfundi Landssambands íslenskra útvegsmanna Afleiðing gjaldþrotastefnu skyndileg byggðaröskun ÞORSTEINN Pálsson sjávarútvegsráðherra sagði í ræðu á aðalfundi Landssambands íslenskra útvegsmanna á Akureyri í gær að ef fimmt- ungur sjávarútvegsframleiðslunnar yrði fluttur frá minnstu sjávarút- vegsplássunum myndi slík gjaldþrotastefna jafngilda því að sjávarútveg- ur legðist niður í sem svarar 37 bæjum og þorpum sem hann nafn- greindi. Hann sagðist ekki sjá að þetta yrði stutt með hagfræðilegum eða félagslegum rökum, og niðurstaða hans væri sú að setja yrði það sem markmið að sjávarútvegurinn væri að meðaltali rekinn án halla. í ræðu sinni vék Þorsteinn Pálsson I mætti afkomu fyrirtækja í sjávarút- að því að nefnt hefði verið að bæta | vegi um fjögur til fimm prósent með því að fækka fyrirtækjum í greininni um 20-25%, þannig að fyrirtæki með fímmtung eða fjórðung umsvifa í sjávarútvegi hætti rekstri og afli þeirra og framleiðsla færðist til ann- arra fyrirtækja. Hann sagði að ef fimmtungur sjávarútvegsframleiðsl- unnar yrði fluttur frá minnstu sjávar- útvegsplássunum myndu botnfisk- veiðar og vinnsla í 37 bæjum og Dýr bílakaupalán hjá eignaleigufyrirtækjum Dæmi um 13% lántökukostnað DÆMI eru um að kostnaður við lántöku vegna kaupa á nýjum bílum hjá bOaumboðunum fyrr á þessu ári hafi verið allt að 13%, samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins. Kjör lántakenda hafa þó batnað að undanförnu vegna aukinnar samkeppni á þessum markaði. Það eru einkum eignarleigufyrirtækin Glitnir og Féfang ásamt Sjóvá-Almennum tryggingum sem bjóða fjármögnun á nýj- um bílum gegnum bílaumboðin. Auk lántökugjalds sem þessi fyrir- tæki taka til sín er í sumum tilvikum bætt við sérstöku álagi á verð bílsins sem ýmist rennur til þeirra eða bílaumboðanna sjálfra þannig að kaupendur njóta ekki staðgreiðsluafsláttar. Hjá Glitni eru veitt svonefnd staðgreiðslulán og var t.d. lán- tökukostnaður á láni til 3 ára til skamms tíma 6% en hefur nú lækkað í 4,5%. Kristján Óskars- son, framkvæmdastjóri Glitnis, segir fyrirtækið hafa haft frum- kvæði að því að lækka lánskjörin á þessum markaði og liggi fyrir ®|ítreikningar sem sýni að kjör - Glitnis séu hagstæðari en annarra aðila með bílalán. Dæmi séu um að aðrir aðilar hafi verið með allt að 7—13% lántökukostnað af bíla- lánum. Hann segir að Glitnir leggi áherslu á að kaupendur njóti stað- greiðsluafsláttarins. Hins vegar séu kjörin ýmist þannig að lán- tökugjald er lágt og vextir hærri eða öfugt. Það skipti kaupendur máli hver heildarkostnaður við lán- ið sé á lánstímanum og taka beri tillit til lántökukostnaðar og vaxta. „Við fylgjum vöxtum bankanna en það þýðir hins vegar aðeins hærri lántökukostnað. Lántöku- kostnaður er 2% hjá bönkunum þannig að 6% kostnaður var í hærra lagi.“ Hjá Féfangi eru veitt lán með 2% lántökugjaldi en síðan er bætt við sérstöku álagi á staðgreiðslu- verð sem er á bilinu 1,6—4,2%. „Það eru fímm ár síðan Féfang reið á vaðið með að bjóða einstakl- ingum lán til bifreiðakaupa,“ sagði Kjartan Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Féfangs. „Þessum lánum hefur verið mjög vel tekið og hafa þau öðlast æ stærri sess á markaðnum. Þetta hefur gefið fólki kost á að kaupa bíl og greiða hann á allt að þremur árum. Vext- ir og lántökukostnaður eru einnig lægri en gerist erlendis en þar er algengt að þessi kostnaður sé 5-7% hærri en af sambærileg bankalán- um.“ Sjóvá-Almennar hafa veitt lán með 2% lántökugjaldi og dæmi eru um að til viðbótar komi sérstakt 4% álag bílaumboðsins á verð bíls- ins. Þegar um er að ræða lán að fjárhæð 300 þúsund krónur vegna bíls sem kostar 1 milljón verður höfuðstóll skuldabréfs í upphafi um 355 þúsund krónur. Að sögn Ólafs Jóns Ingólfssonar, deildar- stjóra hjá Sjóvá-Almennum, er tekið mið af vaxtatöflu og gjald- skrá íslandsbanka við ákvarðanir um kjör bílalána. Hann sagði hins vegar að mismunur á afborgunar- verði og staðgreiðsluverði væri alfarið ákvörðun bílaumboðanna. þorpum leggjast niður. „Ég ætla ekki að halda því fram að gjaldþrota- stefna af þessu tagi myndi leggja niður sjávarútveg einmitt á þessum stöðum. Gjaldþrotin myndu sjálfsagt koma víðast hvar niður, bæði í stór- um plássum og smáum. En þetta sýnir umfang málsins og þá skyndi- legu byggðaröskun sem af myndi hljótast,“ sagði hann. Sjávarútvegsráðherra sagði að sitt álit í þessu efni væri alveg skýrt, og hann sæi ekki að það yrði stutt með hagfræðilegum eða félagslegum rök- um að leggja sem svaraði þessum 37 sjávarútvegsstöðum á landinu nið- ur eða önnur fyrirtæki sem jafngilda framleiðslugetu þeirra. „Niðurstaða mín er þvi sú að við hljótum að setja okkur það sem markmið að sjávarútvegurinn sé að meðaltali rekinn án halla. Þrátt fyrir það myndu mörg fyrirtæki í sjávarút- vegi fara á höfuðið eða neyðast til þess að sameinast öðrum,“ sagði hann. Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ, sagði m.a. í ræðu sinni á aðal- fundinum að þrátt fyrir áherslu stjómvalda á nauðsyn þess að renna þyrfti fleiri stoðum undir atvinnulífíð hefði allt sem gert hefði verið í þeim efnum mistekist. „Þeirra skylda er að skapa skilyrði fyrir atvinnustarfsemina, en ekki segja fyrir um hvað skuli gert. Því höfnum við forsjá þeirra um hver þróunin á að vera í sjávarútvegi í framtíðinni,“ sagði Kristján. Sjá fréttir á miðopnu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.