Morgunblaðið - 30.10.1992, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 30.10.1992, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1992 ARNAÐ HEILLA Upphafið og endirinn Kvikmyndir Arnaldur Indriðason Tvídrangar: Eldur gakk með mér („Twin Peaks: Fire Walk With Me“), Sýnd í Háskólabíói. Leikstjórn og handrit: David Lynch. Kvikmyndataka: Ron Garcia. Tónlist: Angelo Badala- menti. Aðalhhitverk: Kyle MacLachlan, Sheryl Lee, Ray Wise, Chris Isaak, Moira Kelly, Kiefer Sutherland, David Lynch, Harry Dean Stanton, David Bowie, Dana Ashbrook. Fáir sjónvarpsþættir hafa vakið jafnmikla athygli fyrir frumleika og almenn skemmtilegheit í Bandaríkjunum og víðar (t.d. á Islandi) og Tvídrangar eftir einn sérstæðasta leikstjóra þeirra vestra, David Lynch. Þættimir, sem voru nýmeti í stöðluðu banda- rísku sjónvarpi, sögðu frá morð- máli í bænum Tvídröngum og voru uppfullir af sérkennilegum persón- um og unaðslegum húmor áður en Lynch missti takið á sögunni og áhuginn á þáttunum fjaraði út þar til framleiðslu þeirra var hætt. Fólk las allt mögulegt úr einhveij- um endalausum táknum og skop- ast Lynch skemmtilega að því í byrjun bíómyndarinnar Tvídranga, sem hann gerir eftir þáttunum, og er það eini húmorinn í henni allri. Það er eins og Lynch nái heldur aldrei taki á sögunni í bíómynd- inni. Þess í stað reiðir hann sig á drauma, skyggnigáfur og yfirskil- vitlegt plan sem varla er neitt ný- meti Iengur í höndum hans og eykur enn á ruglinginn sem fyrir er. í myndinni er spurningunni svarað um það hver Lára Palmer var en líkið af henni finnst í byijun þáttanna og markar upphafið á morðrannsókn í bænum, sem veltir upp ýmsu soralegu undir sléttu yfírborði smábæjarins. Bíómyndin er forsaga þáttanna og lýsir at- burðunum sem leiddu til þess að Lára Palmer var myrt. En myndin hefur í raun ekkert nýtt fram að færa svo að þeir sem sáu sjón- varpsþættina verða líklega fyrir vonbrigðum og þeir sem ekki sáu þættina geta alveg eins horft upp til stjarnanna eins og að reyna að botna í henni. í dularfullum inngangi að sjálfri sögunni um Láru Palmer eru FBI- mennirnir Dale Cooper (Kyle MacLachlan) og hans fólk — Lynch fer sjálfur með hlutverk yfir- mannsins — kynntir til sögunnar til þess eins að hverfa úr henni strax aftur en þó ekki fyrr en David Bowie hefur birst þeim svona eins og Elvis líklega. Þegar við kynnumst Láru er hún af ein- hverjum orsökum á kafí í Sódómu Tvídranga. Hún er dópisti sem stundar kynsvall með mestu óbermum bæjarins og faðir hennar er haldinn hinum illa anda Bobs (óðs manns æði að ætla að skýra það út fyrir ókunnugum í stuttu máli) heldur framhjá með ungri stúlku sem hann myrðir og leggur síðan dóttur sína í einelti. Aukaper- sónum er hent inní söguna að vild, sumar úr þáttunum, en hafa í raun sáralítið erindi í myndina. Tónlist Badalamentis er sérstak- lega góð, gráglettin sem fyrr, og einstök atriði eru áhrifamikil og vel útfærð af Lynch en það sem sárlega vantar, fyrir utan vits- munalegt handrit, er léttgeggjaður húmor þáttanna, kyndugar per- sónugerðir og alvöruleysi. Myndin er bæði upphafið og líklega sem betur fer endirinn á Tvídröngum. Ljósmyndarinn — Jóhannes Long. HJÓNABAND. Dagný R. Péturs- dóttir og Guðmundur F. Jóhannsson voru gefín saman í Kópavogskirkju 3. október sl. Prestur var sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson. Heimili þeirra er í Efstahjalla 23, Kópavogi. Ljósm. Sigr. Bachmann. HJÓNABAND. Eydís Aðalbjöms- dóttir og Þorkell Logi Steinsson voru gefín saman í Dómkirkjunni 19. september sl. Prestur var sr. Hjalti Guðmundson. Heimili þeirra er á Eggertsgötu 9. Ljósm. Sigr. Bachmann. HJÓNABAND. Jóhanna Erlings- dóttir og Jón Guðmar Jónsson voru gefin saman í Seltjamarneskirkju 29. ágúst sl. Prestur var sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir. Heimili þeirra er á Bámgötu 11. Ljósmyndarinn — Jóhannes Long. HJÓNABAND. Guðný Rúnarsdótt- ir og Bjarni Ólafsson voru gefín saman í Selfosskirkju 1. október sl. Prestur var sr. Sigurður Sigurðs- son. Heimili þeirra er á Háengi 4, Selfossi. ______________Brids_________________________ Umsjón ArnórG. Ragnarsson Bridsfélag Akureyrar Á þriðjudaginn hófst Akureyramót- ið í tvímenningi. 28 pör mættu til leiks og eru spiluð 5 spil milli para. Staðan eftir 5 umferðir af .27: JakobKristinsson-PéturGuðjónsson 64 Gylfi Pálsson—Helgi Steinsson 63 OrmarSnæbjömsson-JónasRóbertsson 59 Sigurbjöm Þorgeirsson - Skúli Skúlason 38 Grettir Frimannsson - Frimann Frimannsson 36 Dynheimabrids Kolbrún Guðveigsd. - Sveinbjöm Sigurðss. 128 MagnúsMagnússon-JakobKristinsson 128 Soffía Guðmundsdóttir - Ármann Helgason 111 Spilað verður í Dynheimum á sunnudagskvöldum í allan vetur og er byijað kl. 19.30. Góð verðlaun, bronsstig. Allir velkomnir. Kvennabrids Jónína Pálsdóttir - Una Sveinsdóttir 101 Ragnhildur Gunnarsdóttir - Gissur Jónasson 93 Marggét Kristinsdóttir—Sunna Borg 85 Soffía Guðmundsdóttir - Júlíana Lárusdóttir 85 Mæting í kvennabrids er ekki sem skyldi. Konur eru hvattar til að not- færa sér þetta tækifæri að eiga skemmtilega kvöldstund í afslöppuðu umhverfí. Næst verður spilað í Dyn- heimum mánudagskvöldið 9. nóvem- ber. Bikarkeppni Norðurlands Umsjónarmaður hefur frétt af 2 leikjum í bikarkeppninni. Gunnar Berg renndi á Blönduós og spilaði við Bjöm Friðriksson. Bjöm hafði betur í jöfnum leik. Sigurbjörn Þorgeirsson og Stefán Vilhjálmsson mættust svo síðasta sunnudag. Sveit Sigurbjörns sigraði mjög sannfærandi. Nokkrir leikir verða spilaðir um helgina. Næstkomandi laugardag verður spiluð bæjarkeppni milli Akureyringa og Siglfírðinga í Verkmenntaskólan- um. Verður spilað á 6 borðum og gert ráð fyrir spennandi keppni. Bridsfélag Tálknafjarðar Mánudagskvöldið 26. október var spilaður eins kvölds tvímenningur hjá félaginu og urðu úrslitin þessi: Kristín Magnúsdóttir - Guðlaug Friðriksdóttir 125 Ágúst Pétursson og Ingveldur Magnúsdóttir 124 BrynjarOlgeirsson-ÞórðurReimarsson 122 Landstvímenningurinn - Philip Morris Evróputvímenningurinn Föstudagskvöldið 20. nóvember nk. verður spilaður lands- og Evróp- utvímenningur samtímis um alla Evrópu. Sama fyrirkomulag verður haft og á síðasta ári, félögin úti á landi tilkynna þátttöku til Brids- sambandsins og síðan tilkynna spil- ararnir sig til félaganna. Bridssam- bandið dreifir til félaganna gögnum og fyrirframgefnum spilum. Nú þegar hafa 14 félög tilkynnt þátt- töku en alls voru 25 félög með á síðasta ári. Frestur bridsfélaganna til að tilkynna þátttöku er til föstu- dagsins 13. nóvember nk. Úrslitin eru reiknuð út á landsvísu hjá Brids- sambandinu en þangað eru þau send frá félögunum með símbréf- um. Síðan eru líka send gögn frá hveiju félagi beint til Evrópusam- bandsins í París þar sem skor þátt- takendanna reiknast inn í heildar- fjöldann sem spilar um alla Evrópu. A síðasta ári áttu íslendingar metið í Evrópu í fjölgun spilara og þá tóku þátt alls 316 pör á 23 stöðum víðs vegar um landið. í Reykjavík verður spilað í Sigtúni 9, en þar geta 60 pör spilað. Skráning er í síma 91-689360 og gildir skráning- arröð ef húsfyllir verður. AUGLYSING UM INNLAUSNARVERÐ VERÐTRYGGÐRA SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ *) Á KR. 10.000,00 1983- 2.fl. 1984- 3.fl. 01.11.92-01.05.93 12.11.92-12.05.93. kr. 56.907,33 kr. 63.874,84 *)lnnlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin. Reykjavík, október 1992. SEÐLABANKI ÍSLANDS Blaðió sem þú vaknar við! Andrés Bjamason—Egill Sigurðsson 134 Ámi Helgason — Erla Hafliðadóttir 125 Þessi ungmenni héldu nýverið hlutaveltu í Norðurbænum í Hafnar- firði og gáfu ágóðann, 1.640 krónur, í Hjálparsjóð Rauða kross ís- lands. Þau heita (f.v.) Sævaldur Arnar Gunnarsson, Þóra Kristín Gunn- arsdóttir, Gísli Gunnar Gunnlaugsson, Nikulás Ágústsson og Guðríður Gunnlaugsdóttir og eiga heima við Hjallabraut í Hafnarfirði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.