Morgunblaðið - 30.10.1992, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1992
5
Nánast ekkert fram-
boð af sauðfjárkvóta
600-700 þúsund lítrar af mjólkurkvóta seldir
NOKKUR hreyfing hefur verið i sðlu mjólkurkvóta á milli bænda
og hefur hún eingöngu verið innan framleiðslusvæðanna. Fram-
kvæmdastjóri Framleiðsluráðs áætlar að þangað hafi borist tilkynn-
ingar um sölu á 600-700 þúsund lítrum. Búist er við að heildarsalan
fram til áramóta geti numið að minnsta kosti tveimur milljónum lítra.
Aftur á móti er sáralítið framboð af kindakjötskvótii og er áætlað
að tilkynnt hafi verið sala á 10-15 tonnum.
Sala á greiðslumarki í sauðfjár-
og nautgriparækt er frjáls nema
hvað kaupendur verða að búa á
lögbýlum og í mjólkurframleiðsl-
unni hafa bændur innan fram-
leiðslusvæðisins forkaupsrétt að
þeim kvóta sem selja á úr héraði.
Mjólkurframleiðendur hafa tæki-
færi til að ganga frá sölu og kaup-
um sín á milli til áramóta og sauð-
fjárbændur til 1. febrúar.
Gísli Karlsson, framkvæmda-
stjóri Framleiðsluráðs landbúnaðar-
ins, sagði í samtali við Morgunblað-
ið að dálítil hreyfing væri í sölu
mjólkurkvóta. Taldi hann að fram-
boðið væri fyrst og fremst frá
bændum sem hættir hefðu verið
búskap og leigðu ríkinu rétt sinn í
fyrra. Sagði Gísli að til Framleiðslu-
ráðs væru komnar tilkynningar um
sölu á 600-700 þúsund lítrum og
væri það allt innan svæðanná. í til-
kynningunum til Framleiðsluráðs
er söluverð ekki tilgreint. Gísli taldi
að algengt söluverð væri á bilinu
80-100 kr. lítrinn. Fram hefur kom-
ið í frétt hér í blaðinu að gangverð-
ið í Eyjafirði er 100-110 kr.
Lítil sala er í greiðslumarki í
kindakjöti og áætlaði Gísli að það
væri ekki nema 10-15 tonn fram
til þessa. Sagði Gísli að ríkið hefði
undanfarin tvö ár gengið hart fram
í að kaupa kvóta til að minnka fram-
leiðsluna og taldi hann að þá hefði
allur laus kvóti verið keyptur út.
Þá sagði hann að glöggt hefði kom-
-------------♦ ♦ ♦------
Skattstofan í Reykjavík
Kærur álíka
margar og
á síðasta ári
STARFSMÖNNUM Skattstofu
Reykjavíkur gengur vel að af-
greiða kærur skattgreiðenda
vegna álagningarinnar í haust.
Kærur voru svipað margar og á
síðasta ári.
Gestur Steinþórsson skattstjóri
segir að borist hefðu svipað margar
kærur og á síðasta ári en þá voru
þær 3.700. Sagði hann að kært
hefði verið vegna sömu atriða og
áður. Framtöl sem bárust of seint
en áður en kærufrestur rann út eru
teknar sem kærur á áætluðum
gjöldum og er það nokkur hluti
kæranna. Annar stór hluti er vegna
breytinga sem Skattstofan gerði á
framtölum fyrir álagningu. Þá
nefndi Gestur að mikið væri af
kærum vegna vaxtabótaútreikn-
ings.
Kærufrestur rann út mánuði eft-
ir álagningu, eða í lok ágúst. Gest-
ur sagði að vel hefði gengið að af-
greiða kærur. Nú væri búið að svara
meginhlutanum af kærum einstak-
linga en talsvert væri óafgreitt af
kærum vegna framtala manna með
atvinnurekstur og lögaðila.
------♦ ♦..♦-----
ið í ljós þegar tilboð ríkisins voru í
gangi að sauðfjárbændur ættu
erfitt með að hætta vegna erfiðleika
í atvinnumálum, þeir hefðu ekki að
neinu öðru að hverfa. Gísli taldi að
gangverð fyrir ærgildi í sauðfjár-
kvóta væri á bilinu 10-15 þúsund
krónur.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Brugðið á
leik með
börnunum
Tveir bresku skemmti-
kraftanna, sem skemmt
hafa viðskiptavinum Borg-
arkringlunnar á Bretland-
sveislu sem þar stendur nú
yfir, heimsóttu Barnaspít-
ala Hringsins í gærmorgun
og skemmtu börnum sem
þar dvelja. Þetta voru þeir
Adrian Kaye, sem kemur
fram í gervi Charlie Chapl-
ins, og Gordon Rimes sem
á myndinni sést leika listir
sínar fyrir bömin.
Vöruhús Hvamms-
tanga hf. gjaldþrota
Hvammstanga.
VÖRUHÚS Hvammstanga hf.
var úrskurðað gjaldþrota hinn
23. október og hefur þar með
hætt rekstri.
Stjórn félagsins óskaði eftir
gjaldþrotaskiptum og hefur héraðs-
dómari Norðurlands vestra, Halldór
Halldórsson, skipað Ásgeir Björns-
son hdl. í Reykjavík bústjóra þrota-
búsins.
- Karl.
F0RDEXPL0RER
• .. .. atfV
Bíll sem þú verður
að sjá um helgina
Nú er ný sending af þessum ameríska lúxusjeppa komin til landsins. Explorer er glæsilegur
og vandaður jeppi sem hefur fengið frábærar viðtökur hjá íslenskum bílaáhugamönnum frá
því hann kom á íslenskan markað fyrir tveimur árum.
Ford Explorer er gífurlega kraftmikill jeppi með öfluga V6 4,0L EFI vél og 160 hestöfl.
Samt er hann ótrúlega eyðslugrannur.
Ford Explorer hefur gjörsigrað aðra jeppa I öryggisprófunum. Hann er með styrktarbita í
öllum hurðum, sem veitir bílstjóra og farþegum hámarksöryggi, og nú hefur enn einum
öryggisþættinum verið bætt I sem er ABS hemlakerfi á öllum hjólum.
Komdu á sýninguna á nýjum Ford Explorer í Globus. Sýningin er opin á laugardag
frá kl. 13-1 7 og sunnudag frá kl. 13-17. Þetta er bíll sem þú verður að sjá.
Globus býður viðskiptavinum
sínum Motorola farsíma á
mjög hagstæðu verði.
<8>
MOTOROLA
Hefurþú ekiö Ford.....nýlega?
FORD ECOIMOLINE
Sýnum einnig glæsilega
Ford Econoline sendibíla
og Club Wagon.
Globusp
-heitnur gceda!
Lágmúla 5, siml 91-6815 55
I