Morgunblaðið - 30.10.1992, Blaðsíða 11
11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1992
Náttúruformanir
Sýning
í Gerðubergi
Orðlist
Guðbergs
Bergssonar
Laugardaginn 31. október
opnar sýningin Orðlist Guðbergs
Bergssonar í menningarmiðstöð-
inni Gerðubergi. Sýningin er í
tilefni af sextugsafmæli skálds-
ins. Markmiðið er að gefa mynd
af Guðbergi sem listamanni og
persónu og í tengslum við sýning-
una verður dagskrá sem byggist
á verkum hans.
Guðbergur Bergsson er vafalaust
þekktastur fyrir ritlist, en hann
hefur skrifað um 20 bækur, skáld-
sögur, smásögur og ljóð, auk þýð-
inga, einkum úr rómönsku málun-
um. En Guðbergur hefur einnig lagt
gjörva hönd á önnur listform sem
tengjast tilraunum hans til að víkka
ritlistarformið. Guðbergur var einn
af fáum íslenskum rithöfundum
sem tóku þátt í formtilraunum þeim
sem umbreyttu allri listsköpun á
sjöunda og áttunda áratugnum og
birtust íslendingum einna helst í
verkum SÚM-hópsins. Guðbergur
var félagi í þeim hópi.
í fréttatilkynningu segir að á
sýningunni í Gerðubergi verði sýnd-
ar Ljóðmyndir - konkretljóð Guð-
bergs frá SÚM-árunum, teikningar
eins og myndasögur og teiknuð
verk með olíulitum, ljósmyndasög-
ur, blaðagreinar, kvikmyndir, munir
og fleira. Og í útibúi Borgarbóka-
safnsins í Gerðubergi verður bóka-
sýning.
Einnig gefst sýningargestum
kostur á að hlýða á hljóðverk Guð-
bergs sem hann nefnir Ljóðhljóð.
Flutt verður leikdagskrá Sannar
sögur - af sálarlífi systra - í leik-
stjórn og samantekt Viðars Egg-
ertssonar úr Tangabókunum svo-
nefndu (Það sefur í djúpinu, Her-
mann og Dídí, Það rís úr djúpinu).
Leikdagskráin verður dagana 11.
12. 18. og 19. nóvember. Þá verður
einnig dagskrá í umsjá skáldsins
2. og 23. nóvember.
Sýningin er opin mánudaga til
fimmtudaga kl. 10—16, laugardaga
kl. 13—16 og sunnudaga kl. 14—17.
Henni lýkur 24. nóvember.
-----» ♦ ♦---
Gerðuberg
Síðasta sýn-
ingarhelgi
í Gerðubergi er nú síðasta sýn-
ingarhelgi á verkum Þorvaldar Þor-
steinssonar. Á sýningunni eru lág-
myndir sem Þorvaldur hefur unnið
að síðustu átta ár. Sýningunni lýkur
3. nóvember.
---—----------------
PlWM (VL, FLÍSAR
Stórhöfða 17, við Gullinbrú,
sími 67 48 44
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
í húsakynnum Epal, að Faxa-
feni 7, hefur ung listakona Helga
Jóhannesdóttir að nafni opnað
fyrstu einkasýningu sína.
Helga nam við Myndlistarskól-
ann í Reykjavík 1986, en Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands
1987-91, þar sem sérfag hennar
var leirlist og var að auki gesta-
nemi í skólanum fyrir brúkslist í
Kaupmannahöfn. Þá er hún ein
af þeim listamönnum, _sem komið
hafa sér fyrir í gamla Álafosshús-
inu í Mosfellsbæ.
Leirlistaverkin á sýningunni
eru öll unnin á þessu ári og svo
sem segir, eru þau á vissan hátt
óður til náttúrunnar. í þeim hefur
listakonan leitast við að ná jafn-
vægi í samspili forma, efna og
áferðar.
Hér er um að ræða túlkun fyrir-
bæra tilverunnar eins og þau
koma okkur fyrir sjónir, mjúk -
hijúf, heit - köld, hæg - ör, fín
- gróf, létt - þung, ávöl - hvöss
og summan er andstæður.
Það sem fyrir gerandanum vak-
ir er þannig að ganga út frá nátt-
úruformum, og verk hennar, sem
eru líkust blöndu af stein- og tré-
formum, sækja sem slík á vissan
hátt áhrif til náttúrunnar. í þess-
um formum sem eru mjó og af-
löng er einhver rísandi geijun
svipað og í náttúrugróðri og
stundum eru þau alveg flöt að
ofan líkast niðursöguðum tijábút-
um. Þannig er brugðið glerplötum
yfir sumar eininganna og er þá
komið borð og listakonan komin
út á svið almennrar hönnunar.
Verkin eru lituð á ýmsa vegu
og þá einkum eru þau eiga að
standa ein og sér og þannig njóta
þau sín mun betur en undir borð-
plötunum.
Það er þannig ýmislegt að
brjótast um í hinni ungu listspíru,
eins og vera ber, en á mig virkar
útkoman full endanleg og skóluð
og á ég þá við að ég sakni krafts
og umbrota, dirfsku og áræðis,
því þótt formin hlykkist á ýmsa
vegu út frá ákveðinni grunnhug-
mynd, eru verkin í heildina á mjög
þröngu formrænu svið og keimlík
hvort öðru. Þetta getur bæði bent
á persónuleg vinnubrögð, en einn-
ig á einhæfni og verður tíminn
að skera úr um hvort sé heldur,
en að öllu samanlögðu er þetta
athyglisverð frumraun.
LOKAÐ
I DAG
VEGNA 50 ARA AFMÆLIS
aS SEn Etf
MERCEDES-BEN2 /|~HF. RÆSIR
m
Næsta vor eru liðin 50 ár frá því að Ræsir hf. hóf starfsemi.
Af því tilefni tökum við "Ræsis fólk" smá forskot á sæluna og
höldum upp á afmælið á erlendri grund helgina
30. október -1. nóvember,
en mætum aftur til starfa mánudaginn 2. nóvember. ARA
1943-1993
SKÚLAGÖTU 59. REYKJAVÍK S.61 95 50