Morgunblaðið - 30.10.1992, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 30.10.1992, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1992 1 AF INNLENDUM VETTVANGI ÓLAFUR Þ. STEPHENSEN Landsfundur Kvennalistans hefst í dag Stefnir í samkomulag um að vera ósammála um EES MEIRI athygli beinist að landsfundi Kvennalistans, sem hefst á Laug- arvatni í dag, en flestum fyrri landsfundum flokksins. Ástæðan er þær deilur, sem komið hafa upp á milli þingkvenna flokksins undanfarnar vikur um afstöðuna til Evrópska efnahagssvæðisins. Líklegast er að niðurstaða landsfundarins verði sú, að fyrri andstaða Kvennalistans við aðild að EES verði ítrekuð, en jafnframt tekið fram að ekki sé hægt að binda hendur kjörinna fulltrúa flokksins í málinu. Það má því segja að kvennalistakonur ætli að verða sammála um að vera ósam- mála. Verði niðurstaðan þessi, mun Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, sem lýst hefur stuðningi við EES, sitja áfram í utanrikismálanefnd og aðr- ar þingkonur Kvennalistans fylgja sínu striki. Hins vegar getur svo farið að þetta mál dragi dilk á eftir sér hvað varðar stefnumótun Kvennalistans í fleiri málum í framtíðinni og landsfundarfulltrúar munu standa frammi fyrir ýmsum erfiðum spurningum varðandi stefnu og vinnubrögð flokksins. Kvennalistinn er yngsti flokkur- inn á Alþingi og hefur þurft að beijast fyrir viðurkenningu sem alvöru stjómmálaflokkur. Ein afleið- ing þessa hefur verið sú, að farið hefur verið vel með allan ágreining innan flokksins og reynt að leysa mál með samkomulagi allra og fyrir luktum dyrum. Kvennalistakonur, sem rætt er við, segja að þetta hafí ævinlega tekizt til þessa; málin hafi verið rædd þangað til málamiðlun var fundin og síðan hafi hreyfingin staðið sameinuð út á við. Kvennalis- takonur hafa ekki viljað skiptast í meirihluta og minnihluta. Ingibjörg Sólrún knýr fram umræður Nú blasir hins vegar við, að enga málamiðlun er hægt að gera um af- stöðuna til EES. Málið er einfaldlega þannig vaxið, að menn eru annað hvort með því eða á móti. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hefur brotið blað með því að gera ágreining innan flokksins opinberan með jafn áhrifar- íkum hætti og hún hefur gert. Sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins vakti Ingibjörg máls á efasemdum sínum um stefnu flokksins um EES á fundi Kvennalistans síðastliðið vor. Fáir virtust telja að henni væri al- vara, og hún tók því þann kost að knýja fram umræður stuttu fyrir landsfund með því að lýsa opinber- lega yfír stuðningi við EES. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins er nokkur hópur kvenna efnislega sammála Ingibjörgu Sól- rúnu um afstöðuna tii EES, þó ekki fjölmennur. Á fundi Reykjavíkur- anga Kvennalistans um síðustu helgi skiptust þær konur, sem tóku til máls, í þijá hópa; margar voru tví- stígandi, margar andvígar og nokkr- ar fylgjandi EES-samningnum. Nið- urstaða fundarins varð sú að leyfa allar skoðanir á málinu innan flokks- ins. Ingibjörg Sólrún áfram í utanríkismálanefnd Nú stefnir allt í að það sama verði uppi á teningnum á landsfundi Kvennalistans. Drög að ályktun um utanríkismál voru enn í smíðum á fundum flokkskvenna í gær. Sam- kvæmt upplýsingum Morgunblaðsins er þó ljóst að efnisinnihald þeirra verður með þeim hætti að rifjuð er upp og ítrekuð fyrri afstaða Kvenna- listans gagnvart EES; þvert nei. Hins vegar er tekið fram að ekki sé hægt að þvinga einstaka kjörna fulltrúa flokksins til að fara eftir þessari stefnu. Með þessu er auðvitað verið að veikja mjög stefnu Kvennalistans í málinu, enda hefur hann hingað til staðið einn flokka óskiptur gegn EES alveg frá upphafí. Samkvæmt heimildum blaðsins getur Ingibjörg Sólrún sætt sig ágætlega við að niðurstaðan verði með þessum hætti. Hugmyndir hafa verið uppi um að hún víki úr utanrík- Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hefur hrist upp í hugum Kvennalista- kvenna, sem mæta til landsfundar á Laugarvatni í dag. ismálanefnd Alþingis, þar sem hún túlki ekki afstöðu meirihluta þing- flokks síns. Sennilega mun Ingibjörg þó sitja sem fastast. Fyrir því eru ýmsar ástæður. í fyrsta lagi gera Kvennalistakonur sér grein fyrir að Ingibjörg Sólrún er vinsæll þingmað- ur og hefur aflað flokknum mikils fylgis. í öðru lagi er í raun ekki hægj; að víkja henni úr utanríkis- málanefnd, þar sem hún er kjörin í hana af Alþingi og víkur þaðan ein- göngu með eigin samþykki. Lands- fundurinn gæti þó þvingað hana til að endurskoða setu sína þar með því að samþykkja harða andstöðu við EES og krefjast þess að þingmenn stæðu við þá samþykkt, en eins og áður segir bendir ekkert til að svo fari, að mati þeirra flokkskvenna, sem við er rætt. Ingibjörg Sólrún mun treysta sér til að sitja áfram í utanríkismálanefnd og túlka þar jafnt vilja meirihluta þingflokks Kvennalistans sem eigin afstöðu. Erfiðar spurningar Sú lausn, sem spáð er að verði ofan á í ályktun landsfundarins er þó tvíbent og vekur upp ýmsar spum- ingar. Mun hún skapa fordæmi? Verða erfíð deilumál innan Kvenna- listans í framtíðinni líka leyst með því að lýsa því yfír að þingmenn flokksins megi hafa þá skoðun á þeim, sem þeim sýnist? Hvernig verð- ur þingflokkurinn þá starfhæfur? Getur Kvennalistinn farið í ríkis- stjómarsamstarf ef þingmenn hans hafa ævinlega óbundnar hendur? Hvemig er þá hægt að tryggja stuðn- ing þeirra við stjómarfmmvörp? Kvennalistakonur hafa líka sagt að kjósendur Kvennalistans kjósi stefnu en ekki persónur og þannig hafa þær réttlætt að setja tímamörk á þing- setu kjörinna fulltrúa sinna og að skipta um þingmenn á miðju kjör- tímabili. Hvernig getur slíkt staðizt ef hver þingkona má hafa sína stefnu? Skipulögð grasrótarsamtök? í þessu sambandi hefur verið bent á að þingkonur Kvennalistans hafí í raun minna flokkslegt aðhald en þingmenn annarra flokka. í Kvenna- listanum em engar formlegar flokks- stofnanir sem halda þingmönnum við efnið. Skipulag og vinnubrögð Kvennalistans verða til umræðu á landsfundinum og búast má við að EES-málið tengist þeirri umræðu. Sumum þykir sem þingkonur flokks- ins séu nú um of einráðar um stefnu- mótun milli landsfunda. Fyrir fundin- um liggur því tillaga um að efla flokksskipulagið með því að setja á stofn málefnanefndir, sem starfí AF INNLENDUM VETTVANGI RAGNHILDUR SVERRISDÓTTIR Hjúkrunarfræðingar fá kjara- bót með skipulagsbreytingum Hjúkrunarfræðingar á Landspítala hafa sagt upp störfum vegna óánægju með launakjör. Óánægja þeirra hefur magnast eftir að breytt skipulag sem tekið var upp innan Borgarspítala og Landa- kotsspítala skilaði hjúkrunarfræðingum í fullu starfi mun hærri launum en starfsfélagar þeirra á Landspítala hafa. Þá eru þjúkrunarfræðingar á Landspítala afar ósáttir við launamun inn- an sjúkrahússins. Astæða þess að hjúkrunar- fræðingar á Landspítala hafa tilkynnt uppsagnir sínar er að þeir telja laun sín lægri en á öðr- um sjúkrastofnunum. Hjúkrunar- fræðingar, sem rætt var við í gær, bentu á að sjúkrahús á lands- byggðinni hefðu löngum greitt hjúkrunarfræðingum hærri laun en sjúkrahús á höfuðborgarsvæð- inu með staðaruppbótum og röðun í hærri launaflokka. Sú ástæða, sem oftast væri nefnd, væri að erfitt væri að fá faglært fólk til starfa á landsbyggðinni nema launin freistuðu. Hins vegar hefði einnig lengi verið skortur á hjúkr- unarfræðingum til starfa á höfuð- borgarsvæðinu án þess að sú eftir- spurn skilaði sér í hærri launum. Borgarspítali og Landakot riðu á vaðið Borgarspítali og Landa- kotsspftali sömdu fyrir nokkru við hjúkrunarfræðinga sína um breytt skipulag starfsins. Eftir því sem næst verður komist mun sú breyt- ing vissulega vera einhver í raun, þ.e. ýmis verkefni bættust við formlegt verksvið hjúkrunarfræð- inga, en greinilega var þessi breyting fyrst og fremst til að koma til móts við kröfur hjúkrun- arfræðinga um bætt kjör. Sem dæmi má nefna að hjúkrunar- fræðingur í fullu starfi á Borgar- spítala, sem áður hafði rúmar 70 þúsund krónur á mánuði í grunn- Iaun, heitir nú deildarhjúkrunar- fræðingur og hefur rúmar 80 þúsund krónur í laun. Þessi breyt- ing er innan ramma kjarasamn- ings enda hætt við að bein launa- hækkun innan tvö þúsund manna stéttar hefði mikið fordæmisgildi fyrir aðrar stéttir. Raunar munu forsvarsmenn Ríkisspítalanna t.d. óttast að breyting sem þessi þýði mikið launaskrið sem ekki verði séð fyrir endann á. Þar á bæ benda menn einnig á að Landakot og Borgarspítali hafí skorið niður á móti kostnaðinum með því að loka deildum. Aukafjárveitingin kom ekki til greina Viðmælendur Morgunblaðsins voru ekki sammála um, hvort breytingamar á Borgarspítala og Landakoti næðu til allra hjúkr- unarfræðinga í 100% starfí. Ekki er þó hægt að skilja hjúkrunar- fræðinga sem Morgunblaðið ræddi við og frétt sem hjúkrunar- stjóm Borgarspítalans sendi frá sér í gær öðruvísi en að svo sé, a.m.k. þar á bæ. Þar segir m.a. að þetta breytta skipulag hafi leitt til hagræðingar og sparnaðar. Fleiri hjúkrunarfræðingar séu nú í 100% starfí á sjúkrahúsinu og það lækki kostnað við greiðslu á annars óumflýjanlegri yfirvinnu meira en þeim kostnaði nemi, sem hljótist af hærri grunnlaunum þessara hjúkmnarfræðinga. Einn- ig er bent á að almennir hjúkrun- arfræðingar í hlutastarfi á Borg- arspítala búi við sömu kjör og hjúkrunarfræðingar á Landspít- ala. Stjóm Ríkisspítala ræddi við hjúkrunarfræðinga um kaup og kjör í sumar. Þá voru lagðar fram ákveðnar tillögur, í svipuðum dúr og breytingarnar á Landakoti og Borgarspítala. Fram kom hug- mynd um að stjóm Ríkisspítala færi fram á aukafjárveitingu til að mæta auknum launakostnaði vegna slíkrar breytingar. Kostn- aðurinn er áætlaður um 100 millj- ónir króna á ári. Þegar slíkur möguleiki var nefndur við stjórn- völd mun stjórn spítalanna hins vegar hafa verið gerð grein fyrir því strax að slík aukafjárveiting kæmi ekkí til greina. Óánægja vegna samanburðar við aðrar fagstéttir Hjúkrunarfræðingarnir á Land- spítalanum, sem nú hafa sagt upp störfum, hafa einnig tilgreint þá ástæðu fyrir óánægju sinni, að aðrar sambærilegar fagstéttir innan sjúkrahússins hafi mun hærri laun, t.d. sjúkraþjálfarar og sálfræðingar, og muni þar allt að 30 þúsund krónum. Skýringin sé sú, að þessir hópar hafi náð að semja um mun betri kjör, í krafti þess að stétt þeirra er miklu fá- mennari en stétt hjúkmnarfræð- inga. Þessi skýring dragi hins vegar ekkert úr óánægju hjúkrun- arfræðinganna. í gær unnu hjúkrunarfræðing- ar á Landspítala að því að safna saman uppsögnum og í dag ætti að skýrast hversu margir þeirra segja upp störfum. Sjálfir eiga hjúkrunarfræðingarnir á Land- spítaia von á að 80% þeirra segi upp störfum. í gær samþykktu Ijósmæður á sjúkrahúsinu einnig að segja upp störfum frá og með 1. nóvember. H

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.