Morgunblaðið - 30.10.1992, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 30.10.1992, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1992 39 Minning Ólafur Ólafsson Fæddur 29. júlí 1921 Dáinn 25. október 1992 Kveðja til afa Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þðkk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Hann afi okkar er dáinn. Hann varð bráðkvaddur á sunnu- daginn þegar hann og amma voru í heimsókn hjá dóttur sinni á Sauð- árkróki. Þegar við vorum búin að átta okkur á því sem gerst hafði fóru minningarnar að fá á sig hinar ýmsu myndir. Afi hafði mikinn áhuga á stanga- veiði og öll fórum við með honum að veiða. Afi reyndi að miðla okkur af sinni lífssýn, hvernig hann skynj- aði náttúruna og hvernig hann sam- einaði það öðrum áhugamálum sín- um, það var eins og afi vildi að við sæjum og fengjum að upplifa þessa fegurð. Margar nætur sváfum við hjá afa og ömmu og nutum umhyggju þeirra. Alltaf átti afi nammi í hand- raðanum handa okkur og ef við lit- um inn á matmálstíma var hann ekki í rónni fýrr en við vorum sest niður og farin að borða. Aldrei heyrðum við afa tala ljótt orð um aðra og er það gott veganesti fyrir ungar sálir. Við minnumst afa okk- ar með þakklæti og minningarnar um hann munu lifa með okkur í framtíðinni. Elsku amma, megi Guð styrkja þig í sorg þinni á þessari erfiðu stund. Þegar þú ert sorgmæddur, skoð- aðu þá aftur huga þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín. (Úr Spámanninum eftir Kahlil Gibran.) Barnabörn. Ég kynntist Óla þegar systir mín giftist syni hans. Þar sem Silla og Guðjón og strákarnir voru á ísafirði en ég, Óli og Dagga hér syðra var það svo að alltaf þegar ísfirðingarn- ir komu í bæinn var ég mætt í Miðvanginn. Ég var alltaf jafnvel- komin og alltaf fannst mér jafn- indæjt að koma þangað og spjalla við Óla og Döggu. Við Óli vorum ákveðin í því að athuga veiðina í einhverri ánni fyrir vestan eitthvert sumarið. Því miður varð ekkert úr því þetta sumarið og verður ekki. I staðinn fer ég með sonarsyni hans næsta sumar og kenni þeim að nota stöngina sem Haukur litli fékk í afmælisgjöf frá Óla afa í sumar sem leið. Elsku Dagga og aðrir aðstand- endur, Guð blessi minningu Óla og veri með ykkur. Vala Dröfn. Peti’a Kelly - Kveðja París, vorið 1989, borgin blómstrar, það er apríl og heitt er í lofti. „5 eme Congres des Verts Europeens“, ráðstefna græningja, er haldin í Centre la Villette, Friðrik Þórhallsson Vegna mistaka við vinnslu greina um Friðrik Þórhallsson sem birtust í blaðinu í gær vantaði mynd með greinunum. Myndin birtist hér með og eru hlutaðeigendur beðnir vel- virðingar. Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmæl- is- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal- stræti 6, Reykjavík og á skrif- stofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. tækni- og ráðstefnumiðstöð í norð- urhluta Parísarborgar. Ráðstefnan byijar 7. apríl og umræðan snýst um Evrópu árið 1993. Laugardagurinn 8. apríl heitir „Evrópa íbúanna" og fulltrúi íslands heldur ræðu „Konur og stjómmál“ fyrir þúsund manna samkomu. Sara Parkin, græningi frá Bretlandi, sem stjórnar degin- um, heldur í hendur hennar. Allir fara á ball um kvöldið. Sunnudaginn 9. apríl talar Petra Kelly. Hún vitnar í áratugs sögu Græningja. Þá rís hún upp með spjald, þar sem Evrópa er merkt sem lönd Evrópubandalags- ins og spyr: „Hugsum við, græn- ingjar, þannig? Gleymum hinum? Er Evrópa einnig fyrir okkur, bara Evrópubandalag?" Þá segir hún frá Austur-Evrópu og mörgum umhverfisvandamálum, sem hún hafði séð þar. Margir græningjar komu í kjöl- far ráðstefnunnar til íslands. Petra Kelly kemur ekki meir. Alena F. Anderlova. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma MARGRÉT EIRÍKSDÓTTIR, Blikalóni, Melrakkasléttu, er lést 20 þ.m., verður jarðsungin frá Raufarhafnarkirkju laugar- daginn 31. október kl. 14.00. Ingibjörg Þorsteinsdóttir, Sigriður Þorsteinsdóttir, Magnús Þorsteinsson, Eiríkur Þorsteinsson, Grétar Þorsteinsson, Sigmar Þorsteinsson, Jóhann Kristinsson, Árni Guðnason, Björk Ingólfsdóttir, Þorbjörg Jónatansdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HELGA GUÐMUNDSDÓTTIR, Bólstað, Garðabœ, sem lést 25. október, verður jarðsungin frá Garðakirkju þriðjudag- inn 3. nóvember kl. 13.30. Ólafur Vilhjálmsson, Ólafur Helgi Ólafsson, Guðmundur Tr. Ólafsson, Vilhjálmur S. Ólafsson, Marfa Ólafsdóttir, Guðbjörg Ólafsdóttir, Logi Olafsson, barnabörn og barnabarnabarn. Alda Hauksdóttir, Soff ía Vala T ryggvadóttir, Sveinn Jónsson, Gunnar Á. Arnórsson, Guðbjörg Ó. Andrésdóttir, t Föðursystir okkar, ÞÓREY JÓNSDÓTTIR, Moldnúpi, verður jarðsungin frá Ásólfsskálakirkju laugardaginn 31. október kl. 14.00. Guðjón Einarsson, Sigrfður Einarsdóttir, Eyþór Einarsson, Baldvin Einarsson, Guðrún Einarsdóttir, Sigurjón Einarsson. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN LOVÍSA HANNESDÓTTIR, Heiðmörk 9, Hveragerði, verður jarðsungin frá Hveragerðiskirkju laugardaginn 31. október klukkan 14.00. Hannes Sigurgeirsson, Guðrún Magnúsdóttir, Valgerður Magnúsdóttir, Guðmundur Kr. Jónsson, Emma Magnúsdóttir, Hörður Diego Arnórsson, barnabörn og barnabarnabörn. Móðir okkar, tengdamóðir og amma, KRISTÍN ÓLAFSDÓTTIR, Hásteinsvegi 62, Vestmannaeyjum, lést í Landspítalanum laugardaginn 24. október. Jarðarförinferframfrá Landakirkju laugardaginn 31. október kl. 14. Ágúst Karlsson, Árný Heiðarsdóttir, Jensína Guðjónsdóttir, Ólafur Guðjónsson, Hörður Guðjónsson, Hrefna Guðjónsdóttir, Sigurður Sigurbergsson, Bryndís Guðjónsdóttir, Böðvar Bergþórsson, og börn. t Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát útför dóttur minnar, móður, tengamóður og ömmu, EYGLÓAR JÓNSDÓTTUR. Guðrún Þórðardóttir, Guðlaug Steinunn Ólafsdóttir, Valgarður Zophanfasson og barnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför PÁLÍNU G. ÞORGILSDÓTTUR. Sérstakar þakkir til allra, eru önnuðust hana og heimsóttu í veik- indum hennar. Hansfna Þóra Gfsladóttir, Hansfna Ósk Lárusdóttir. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu, INGIBJARGAR VÍDALÍN JÓNSDÓTTUR, áður Velli, Hvolhreppi, til heimilis á Hvammabraut 16, Hafnarfirði. Ingvar Sigurðsson, Vilborg Sigrún Ingvarsdóttir, Hjörtur Vilhelmsson, Sigurður Ingvarsson, Guðlaug Kristinsdóttir, Hildur Ingvarsdóttir, Arngrímur Jónsson, Hjálmar Ingvarsson, Hulda Jónsdóttir, Sigfús Bergmann Ingvarsson, Ingigerður Kristjánsdóttir og barnabörn. t Þökkum innilega samúð og vinarþel við andlát og útför BJARNHÉÐINS ELÍASSONAR skipstjóra og útgerðarmanns, Skólavegi7, Vestmannaeyjum. Sérstakar þakkir til starfsfólks á Sjúkra- húsi Vestmannaeyja og á Landspítal- anum. Guð blessi ykkur. Ingibjörg Á. Johnsen, Árni Johnsen, Áslaug Bjarnhéðinsdóttir, Þröstur B. Johnsen, Elfas Bjarnhéðinsson og aðrir ættingjar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.