Morgunblaðið - 30.10.1992, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 30.10.1992, Blaðsíða 12
MOKGUNBLAÐIÐ ■ FÖSTU&AGUR 30; OKTÓBER 1992 »12 Einþrykk Sam Francis Myndlist Bragi Asgeirsson Menningarstofnun Bandaríkj- anna kynnir um þessar mundir listform sem notið hefur mikillar útbreiðslu á undanfömum árum og nefnist á ensku Monotype en á íslenzku einþrykk. Er þá átt við að myndin sé þrykkt beint af plötunni, en að- ferðin er síður en svo einhæf, því nálgast má ferlið á margvíslegan hátt. Þetta telst grafísk aðferð og er bæði alfarið unnin í höndun- um eða með aðstoð þrykkpressu. Til skamms tíma þótti aðferðin ekki vera nægilega grafísk til að hljóta náð inn á grafíksýningar, en nú er öldin önnur, enda má vinna mjög hreint og yfírvegað í einþrykki. Oftar er það þó að tilviljanir séu hagnýttar og stundum til hins ýtrasta og má ná mjög ásjálegum árangri jafnvel þótt viðkomandi Myndlist Eiríkur Þorláksson Höggmyndalistin hefur nú um nokkurt árabil verið einn öflugasti meiðurinn í myndlistarlífi íslend- inga og sterkur hópur ungra myndhöggvara hefur komið fram með ný viðhorf, viðfangsefni og nýja verktækni, sem hefur vakið athygli landsmanna á hinum ótrú- legu möguleikum sem er að finna á þessu sviði myndlistar. Steinunn Þórarinsdóttir er ein úr þessum hópi. Hún hefur lengi fengist við að lýsa manninum og þöglum, einmanalegum heimi hans í verkum sínum, hvort sem þau hafa verið unnin í leir, gler, steinsteypu eða jámplötur, eins og gat að líta á síðustu einkasýn- ingu hennar á Kjarvalsstöðum fyr- ir tveimur árum. Líkt og margir af yngri kynslóð myndhöggvara hefur Steinunn undanfarin ár tek- • ið til við að að vinna með málma, einkum jámið, og sú ímynd mann- sé ekki stór bógur í listinni. Að- ferðin getur þannig verið tvíbend, en að ná marktækum og úrsker- andi árangri er hægara sagt en gert, ekki síður en á sviði hinna sígildu grafísku aðferða. Sjálf tæknin er þekkt frá 17. öld er Rembrandt og Castiglioni gerðu tilraunir með blektóna á plötur til að framkvæma samfelld- an tón. Sýningin á menningarmiðstöð- inni nefnist „Samvinna í einþrykki 11“ og kemur öll frá verkstæði Gamer Tullis í Santa Barbara og New York, og er liður í listkynn- ingu á vegum Bandaríkjanna. Það em 19 listamenn sem taka þátt í þessari sýningu og eiga flestir 1-2 verk og öll verkin em nafnlaus, þekktasti listamaðurinn er vafalítið hinn heimsfrægi Sarn Francis, en annars þekki ég fæst nafnanna. Það sem einkennir þessa sýn- ingu er hve mjög verkanna eru köld og vélræn og er þá eins og vemnnar sem skarst út úr fletin- um var afar sterk í einfaldleik sín- um. Nú hefur Steinunn opnað einka- sýningu í Listmunahúsinu, í Hafn- arhúsinu við Tryggvagötu, og þar kemur fram mikil breyting á myndheimi listakonunnar. Mað- urinn er horfínn af sviðinu, og annað tekið við; fuglar himinsins, fískar hafsins og gróður jarðarinn- ar fylla nú fletina. Þessi umskipti marka kaflaskipti í listsköpun Steinunnar, og um leið áherslu- breytingu. Nú er ekki lengur ein- blínt á þröngt markaða mannlega tilvist og erfiðleika, heldur er nátt- úran tekin fyrir, og einkum það sem minnir á undirstöður lífsins á jörðinni, dýralíf og gróður. Jámið er enn mest áberandi efni verkanna, en hlutverk þess hefur breyst nokkuð, frá því að vera efniviður myndefnisins í að vera hin fasta undirstaða þess og rammi. Steinunn notar að þessu sinni blý, gler og blaðgull til að að viðkomandi séu að reyna að keppa við sígilda miðilinn í stað skapa þær ímyndir, sem ráða í myndfletinum hveiju sinni. Þann- ig er efnisnotkun hennar fjöl- breyttari en oft áður, en um leið hnitmiðuð, því efnið nær að vinna afar vel saman í hinum einstöku verkum á sýningunni. þess að hagnýta sér sérkenni tæknibragðanna. Slík verk verða Sem fyrr er það einföld og sterk myndbygging sem einkennir verk Steinunnar. Tónninn er gefinn í verkinu „Kveðja“ (nr. 1), þar sem blaðgull og blýkerti mynda sterka heild í því tignarlega rými sem gotneski boginn er. Náttúmtilvís- ekki hreinni grafík fyrir vikið né meiri einþrykk heldur virka þvert á móti eins og í einskismanns- landi. Það er helst er hinar lífrænni hliðar einþrykksins fá að njóta sín að brúnin lyftist á skoðandanum og gott dæmi um það eru myndir Carles Arnoldi, Kathy Mue- hlmann, Rona Pondick, Sam Francis, David Trowbridge og William Tucher. Þetta telst fróð- leg sýning fyrir þá sem hafa áhuga á grafík og þessari sér- stöku tækni, og hún ætti einnig að sannfæra ýmsa um að það er hægt að vinna á annan hátt í ein- þrykki en að sulla með prent- svertu og liti á glerplötur, sem er einhver ódýrasta aðferðin. Galli við sýningarhúsnæðið er að þar inni er sýningarvél, sem gegnir að vísu góðu og gildu hlut- verki, en á ekki heima innan um myndlistarkynningar, nema það sem sýnt er sé í beinum tengslum við þær. Vönduð sýningarskrá liggur frammi og í henni er drjúgur fróð- leikur um einþrykk almennt, sögu þess og listamennina sjálfa. anir koma fram á einfaldan og hnitmiðan hátt í myndunum „Úr jörðu“ (nr. 4) og „Af himni“ (nr. 5), þar sem gróður jarðar ríkir annars vegar og regn himins hins vegar. Eitt sterkasta verk sýning- arinnar er síðan myndin „Himinn og jörð“ (nr. 7), þar sem fuglar himins og frskar sjávar brjótast úr fletinum og stefna í sitthvora áttina, en tengjast þar sem einn fuglinn hefur gripið fisk sér til matar; lífsbaráttan er þannig ætíð til staðar. Steinunn er með þessari ágætu sýningu að leggja út á nýjar braut- ir í listsköpun sinni, og því fylgir alltaf nokkur eftirvænting. Sýn- ingin ber vissulega með sér að myndsýn hennar og fjölbreytt efnisnotkun kann að skila ágætum verkum á þessu nýja sviði, og verður áhugavert fyrir listunnend- ur að fylgjast með hvert hin nýju viðfangsefni eiga eftir að bera listakonuna í framtíðinni. Sýning Steinunnar Þórarins- dóttur í Listmunahúsinu, Hafnar- húsinu við Tryggvagötu, stendur til sunnudagsins 8. nóvember. Steinunn Þórarinsdóttir Steinunn Þórarinsdóttir: Himinn og jörð. Járn og blý, 1992. Amerískir hvíldarstólar í '• : • - ■ '' i írrlfi Ruggustóll.. hvíldarstóll.. og jafnvel svefnstóll ALLT ÞETTA í E ilNUM OG SAMA STÓLNUM Verð frá kr. 38* OOOf " afb verð CO húsgagnaverslun Langholtsvegi 111, sími 680 690

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.