Morgunblaðið - 30.10.1992, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 30.10.1992, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1992 Hátíðarhöld í tilefni af 80 ára starfsafmæli skáta SKÁTAHREYFINGIN á íslandi er 80 ára um þessar mundir og af því tilefni verður efnt til fjöl- skylduhátíðar í Laugarsdals- höll næstkomandi sunnudag. Á milli 5-6 þúsund manns eru virkir skátar og áætlað er að 50-60 þúsund manns hafi starf- að innan skátahreyfingarinnar frá því hún festi rætur hér á landi. Afmælisárið fékk heitið „Ár græna bakpokans", en „Græni bakpokinn" er verkefnahefti fyrir skáta þar sem lögð er áhersla á að kynna landið og náttúru þess og að betri umgengni við það. Skátafélög um allt land hófu há- tíðarhöld 22. febrúar sl. á fæð- ingardegi Baden Powells, stofn- anda skátahreyfmgarinnar. Fyrstu straumar skátastarfs bár- ust hingað til lands þremur árum eftir upphaf félagsskaparins á Englandi. Hinn eiginlegi afmælis- dagur skátastarfs á íslandi er 2. Morgunblaðið/Sverrir Frá blaðamannafundi í Fjósinu þar sem starfsemi skátanna og afmælishátíðin var kynnt. Frá vinstri: Ólafur Ásgeirsson, formaður Skátasambands íslands, Eiður Guðnason umhverfisráðherra og fyrrum skáti, Danfríður Skarphéðinsdóttir formaður afmælisnefndar Bandalags íslenskra skáta, Hrönn Pétursdóttir fundarstjóri, Gunnar Eyjólfsson skátahöfðingi, Anna Gunnhildur Sverrisdóttir varafor- maður Evrópustjómar skáta, og Helgi Grimsson skáti. nóvember en skátar munu að þessu sinni halda daginn hátíðleg- an sunnudaginn 1. nóvember, en fyrsta skátafélagið, Skátafélag Reykjavíkur, var stofnað í Fjós- inu, einu af útihúsum Menntaskól- ans í Reykjavík árið 1912. Skátar af öllu suðvesturhorni landsins munu fagna í Laugardalshöllinni í Reykjavík og þá eru íbúar á svæðinu velkomnir til að kynnast skátum og starfi þeirra þann dag. Hátíðin hefst kl. 14 með opnun skátatívolís og sýningu úr sögu skátastarfs á Islandi. Þá hafa eldri skátar um land allt unnið ötullega að því að safna myndum og mun- um úr skátastarfi og verður örlít- ið brot af því til sýnis á hátíð- inni. Um kl. 18 hefst skátakvöld- vaka þar sem m.a. verða rifjuð upp atriði úr gömlum skáta- skemmtunum. Hátíðinni lýkur kl. 2°, í heiminum eru nú starfandi meira en 26 milljónir skáta í 136 löndum. Starf skáta hefur það að markmiði að gefa ungu fólki tæki- færi til að taka þátt í uppbyggi- legu starfi er miði að því að auka persónulegan og félagslegan þroska þeirra. Núverandi skátahöfðingi ís- lands er Gunnar Eyjólfsson. Verndari skátastarfs á Islandi er forseti íslands, Vigdís Finnboga- dóttir. Söngleikir frá gömlum skátaskemmtunum fluttir í Laugardalshöll F.ins og aldrei hafi ver- ið gert hlé á starfinu - segja höfundarnir, Páll Ásmundsson og Pálmar Ólason Skátaskemmtanirnar voru ávallt fjölsóttar, bæði af börnum og fullorðnum. Emilía Jónasdóttir leikkona sést lengst til hægri á myndinni, en hún aðstoðaði skátana við uppsetningar árum saman. Frá uppsetningunni á „Raula ég við rokkinn minn“ árið 1957. Höfundurinn, Pálmar Ólason, sýnir tilþrif þar sem hann krýpur á sviðinu. Morgunblaðið/Júlíus Pálmar Ólason og Páll Ásmundsson á planinu við Skátaheimilið þar sem braggarnir er hýstu gamla skátaheimilið stóðu. Á fjölskylduhátíð sem haldin verður í Laugardalshöllinni næstkomandi sunnudag vegna 80 ára afmælis skátahreyfing- arinnar á íslandi verður efnt til varðelds þar sem meðal annars verða flutt skemmtiatriði frá Skátaskemmtunum sem haldnar voru um aldarfjórðungs skeið í gamla skátaheimilinu við Snor- rabraut. Fluttar verða styttar útgáfur af tveimur söngleikjum sem skátar settu upp á árunum 1956 og 1957, en þeir heita „Goðgá“ eftir Pál Ásmundsson og „Raula ég við rokkinn miun“ eftir Pálmar Ólason, en þeir félagar höfðu ásamt fleirum umsjón með Skátaskemmtunun- um þegar þeir voru ungir menn á sjötta áratugnum. I samtali við Morgunblaðið sögðu þeir að í byijun hefðu þeir fallist á það með semingi að taka þátt í skemmtuninni á sunnudaginn, en þegar þeir hefðu hitt krakk- ana sem nú annast flutninginn og séð áhuga þeirra og viðbrögð hefðu allar efasemdir í huga þeirra samstundis vikið fyrir til- hlökkun. „Það voru mjög blendnar tilfinn- ingar þegar leitað var til okkar, en við töldum hættu á að þetta efni sem flutt var á Skátaskemmt- ununum í gamla daga væri orðið of gamaldags. Þarna er hins vegar um minningu gömlu Skáta- skemmtananna að ræða og okkur fannst þessi atriði geta höfðað vel til nútímans," sagði Pálmar. Skátar fengu braggana sem hýstu gamla skátaheimilið við Snorrabraut til afnota árið 1945, og eftir að hafa innréttað þá fyrir starfsemi sína voru þeir teknir í gagnið árið 1946. Fyrir utan al- mennt skátastarf varð til aðstaða til samkomuhalds með leiksviði, og strax á fyrsta ári efndu skátam- ir til kabarettsýninga sem þegar öðluðust miklar vinsældir hjá íbú- um Reykjavíkur. Þannig varð Skátaskemmtunin árlegur við- burður í bæjarlífmu auk þess sem efnt var til varðelda og annarra samkoma, og stóðu skátamir að þessum skemmtunum sem stóðu óslitið þar til skátaheimilið var rif- ið á sjöunda áratugnum. Að sögn Páls var undir það síðasta farið að draga aðeins úr Skátaskemmt- ununum vegna samkeppni við ýmsar aðrar skemmtanir sem þá höfðu rutt sér til rúms, en einnig varð sú breyting á skátastarfinu sjálfu í Reykjavík að farið var að skipta því niður eftir hverfum og byggð vom upp skátaheimili í þeim. Þá hefði samkenndin sem myndast hafði hjá þeim sem eldri vom og byggt höfðu upp Skáta- skemmtanimar jafnframt tekið að dvína af þeim sökum. „Skemmtanirnar vom opnar fyrir allan almenning og skiptust þær í sýningar fyrir fullorðna og sýningar fyrir börn. Þær vom kannski ekki alltaf alveg eins, en þó að uppistöðu þær sömu. Á þess- um tíma voru haldnar skemmtanir á sumardaginn fyrsta um allan bæ á vegum Barnavinafélagsins Sum- argjafar og þá vom oft atriði frá okkur tekin til flutnings. Þá fórum við með þessar skemmtanir nokkuð víða, til dæmis upp á Akranes, Selfoss, á Suðurnesin og jafnvel lengra,“ sagði Pálmar. Að sögn þeirra félaga tóku oft- ast á bilinu 20-30 manns þátt í þeim sýningum sem fluttar vom á Skátaskemmtununum, en jafnvel fleiri lögðu hönd á plóginn við alls kyns undirbúning. í byijun vora skemmtanirnar í hálfgerðum sirk- usstíl, en fljótlega varð revíuformið ráðandi auk stuttra leikþátta, sem annaðhvort voru eftir þekkta inn- lenda eða erlenda höfunda eða fmmsamdir. Skátarnir sáu sjálfir um allan flutning og leiksviðsgerð, en snemma kom Emilía Jónasdótt- ir leikkona þeim til aðstoðar við leikstjórn og annaðist hún það starf í fjöldamörg ár. „Hún var einstök, mikilhæf leikkona, strang- ur stjórnandi, góður félagi og full af eldmóði. Metnaður hennar fyrir hönd okkar var mikill, og Skáta- skemmtanirnar hefðu ekki fengið þetta fágaða yfirbragð ef hennar hefði ekki notið við,“ sagðt Pálmar. Þátttakan í Skátaskemmtun- unum hafði að sögn Páls tvímæla- laust mikil og góð áhrif á þá sem þátt tóku í sýningunum á hveijum tíma. „Nú var þetta gjarnan þannig að hvert stykki mótaðist í hóp sem hélt mikið saman, og til dæmis þegar ég skrifaði Goðgá hafði ég ákveðna menn í huga fyrir hvert hlutverk, og sama átti raunar við hvað Pálmar varðar þegar hann samdi sitt stykki. Allur hópurinn var eins og stór fjölskylda og þetta var einungis partur af leiknum, en þegar allir gefa sig í þetta af öllum krafti eins og gert var þá kemur þetta nokkuð vel út,“ sagði hann. „Þetta hafði í raun og veru já- kvæð uppeldisleg gildi og hjálpaði okkur á vissan hátt til að takast á við það sem við höfum verið að fást við á lífsleiðinni. Þarna vorum við að fást við bein stjórnunar- störf, kornungir mennimir, og það var einhvernveginn ekkert sem var ómögulegt að hrinda í fram- kvæmd, og það hefur síðan haldið áfram á vissan hátt eftir að maður var kominn út í lífið," segir Pálmar. Þeir félagar vom sammála um að miðað við þá krafta, sem nú fengust í þessa tvo söngleiki sem fluttir verða í Laugardalshöllinni, væri mögulegt að halda uppi góðri og fjölbreyttri Skátaskemmtun í dag. Skátarnir koma sumir langt að til að taka þátt í söngleikjunum, og þeir eru úr mörgum skátafélög- um. Jakob Þór Einarsson er leik- stjóri, Ragna Ragnarsdóttir sér um dansana og Magnea Tómasdóttir sér sönginn.„Það er eins og það hafi aldrei verið gert hlé á starf- inu, og hver veit nema 80 ára af- mælishátíðin lífgi við Skáta- skemmtunina í því formi sem hún var í gamla daga,“ sögðu þeir fé- lagar og brostu kankvíslega. --------♦ » ♦--- Sérstakur póststimp- ill í tilefni afmælisins í tilefni af 80 ára skátastarfi á íslandi verður sérstakur póstst- impill í notkun á póstútibúinu Reykjavík-1, Pósthússtræti 5, mánudaginn 2. nóvember. Fyrsta skátafélagið á íslandi, Skátafélag Reykjavíkur, var stofnað 2. nóvember 1912, og hefur þessa dags síðan verið minnst sem afmælisdags íslensku skátahreyfingarinnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.