Morgunblaðið - 30.10.1992, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1992
Forsætisráðherra býður Grigol Matsjavariani heim
Islandsklukkan kveikti
áhugann á íslenskunni
DAVÍÐ Oddsson forsaetisráðherra hefur, í samráði við Ólaf G. Einars-
son menntamálaráðherra, ákveðið að bjóða Georgiumanninum Grigol
Matsjavariani til íslands í næsta mánuði. Matsjavariani ritaði í síðustu
viku bréf, sem birt var í Morgunblaðinu, en þar kemur fram ákafur
áhugi hans á íslandi, tungu landsins og menningu. „ísland er draum-
ur minn,“ sagði Matsjavariani frá sér numinn í símasamtali við Morgun-
blaðið er hann hafði fengið þessar fréttir.
„Ég hef næstum aldrei samneytt
við íslendinga. Það var fyrir löngu
að hér var í Tbílísí einn íslendingur,
en hann var skamma stund í Georg-
íu. Ég á öngva iðkun og ég er ekki
vanur að heyra lifandi tungumál,"
sagði Matsjavariani hógvær er
blaðamaður Morgunblaðsins hrósaði
íslenzkukunnáttu hans, en þrátt fyr-
ir að hafa nær eingöngu lært málið
af bókum talar hann það betur en
margir útlendingar, sem búa hér.
Aðspurður hvemig brennandi
áhugi hans á íslandi hefði vaknað,
sagði Matsjavariani: „í bernsku
minni sá ég bók sem lá á borði afa
míns; íslandsklukkuna. Þegar ég las
nafn rithöfundarins var það Halldór
Laxness. Mér þótti nafnið mjög tón-
visst. í bemskunni elskaði ég líka
eyjar. Faðir minn sagði mér að Hall-
dór Laxness væri alkunnur íslenzkur
rithöfundur og að ísland væri eyja.
Eins og bam fór ég að forvitnast
um ísland. Þegar ég las bókina,
þóttu mér nöfnin mjög tónviss, til
dæmis Snæfríður, Amas Amæus og
Jón Hreggviðsson. Eftir þetta aflaði
ég mér orðabókar og fór að læra
alveg sjálfstætt."
Matsjavariani hefur þýtt Gunn-
laugs sögu ormstungu á georgísku
og vinnur að þýðingu á Grænlend-
inga sögu. „Því miður er nú í Georg-
íu svokallað pappírsvandamál og
sum blöð em lögð niður vegna papp-
írsskortsins. Svo að útgáfu sagn-
anna seinkar dálítið," sagði hann.
„Mér er mjög sárt að íslendingar
og Georgíumenn þekkjast alls ekki.
En báðar þjóðir hafa hámenningu
og þær skulu þekkjast. Til dæmis í
Georgíu vita menn að ísland er nokk-
urs staðar, að það er eyja, en sumir
ósannfróðir menn rugla jafnvel sam-
an íslandi og írlandi og sumir halda
að íslenzka sé írlenzka eða skot-
lenzka. Ég vil gera ísland vinsælla
í Georgíu en nú er. Nú er ég farinn
að þýða Grænlendingasögu og ég
vil sanna öllum að Ameríka er upp-
götvuð af íslendingum og ekki Kól-
umbusi."
VEÐURHORFUR I DAG, 30. OKTOBER
YFIRUT: Yfir landinu er 1012 mb hæðarhryggur, en iægðardrag ó Grænlands-
sundi. Skammt norðnorðaustur af Nýfundnalandi er víðáttumikil og vaxandi
læqð, sem hreyfist norðnorðaustur.
SPA: Norðan- og austanátt. Él eða slydduél á Norður- og Austurlandi, en
úrkomulaust sunnan og suðvestanlands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR A LAUGARDAG: Hæg breytileg eða suuövestlæg átt og fremur
svalt. Skúrir eða stydduél víða um land, einkum Þó um vestanvert landið.
HORFUR A SUNNUDAG: Hæg breytileg eða norðvestlæg átt og fremur kalt.
Smáél norðaustanlands en annars þurrt og viða léttskýjað.
HORFUR Á MÁNUDAG: Norðaustan áu og kalt. Éijagangur um norðanvert
landið en þurrt og viðast léttskýjað syðra.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.46, 12.46, 16.30, 18.30, 22.30.
Svarslmi Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 890600.
O
Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað
r r r * r * * * *
r r * / * *
r r r r * r ***
Rigning Slydda Snjókoma
A A
Skýjað Alskýjað
v ^ ý
Skúrir Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrirnar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.^
10° Hitastig
Súld
Þoka
V
stig..
FÆRÐ A VEGUM: , <ki. 17.301 gær)
Þjóðvegir landsins eru yfirleitt ágætlega greiðfærir, en þó er víðá háika
á vegum svo sem á Heilisheiði, Fróðárheiði, Keriingarskarði, Bröttu-
brekku og Holtavörðuheiði. Á Vestfjörðum er hálka og snjór án fyrir-
stöðu ó heiðum og fjallvegum en Hrafnseyrarheiði er þó aðeins fær
jeppum og stærri bílum. Á Norðurlandi er hálka á Vatnsskarði, öxnadals-
heiði og Víkurskarði en Lágheiði er ófær. Þá er hálka og snjór án fyrir-
stöðu víða ó Norð-Austurlandi og ó fjallvegum ó Austfjörðum. öxarfjarð-
arhelöi og Hellisheiði eystri eru aðeins færar jeppum. Veðurstofa spáir
snjó eða siydduélum í kvöld á vestanverðu landinu og mé því búast við
hálku þar.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti ( síma 91-631500 og
ígrænnilínu 99-6315. Vegagerðfn.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
Akureyri Reykjavlk hltl +7 +1 veður ekýjeð skýjað
Bergen 6 léttskýjað
Helsirtki +4 snjókoma
Kaupmannahöfn 7 skýjað
Narssarasuaq +5 helðskfrt
Nuuk 1 skýjað
Osló 0 skýjað
Stokkhólmur 0 snjókoma
Þórshötn 4 skúr
Algarve 18 alskýjað
Amsterdam 9 skýjað
Barcelona 16 skýjað
Berlín 8 rignlng
Chicago 7 alskýjað
Feneyjar 16 þokumóða
Frankfurt 8 skúr
Glasgow 8 léttskýjað
Hamborg 6 skýjað
London 9 iéttskýjað
Los Angeles 18 alskýjað
Lúxemborg 6 skúr á sið.klst.
Madríd 18 skýjað
Malaga 23 skýjað
Mallorca 23 skýjað
Montreal 3 aiskýjað
NewYork 11 skýjað
Orlamlo 18 þokumóða
Parfe 12 téttskýjað
Madeira 22 skýjað
Róm 22 skýjað
Vín 8 akúr
Weshlngton 11 súld
Winnipeg 3 alskýjað
Frá mótmælastöðu lögreglumanna við Arnarhvol í gær.
Mótmælastaða lögreglu
yfir samningafundi
UM 200-300 lögreglumenn efndu til mótmælastöðu við Arnarhvol
í gærmorgun meðan samninganefnd Landssambands lögreglu-
manna gekk á fund með samninganefnd ríkisins. Að sögn Jónasar
Magnússonar, formanns Landsambandsins, var efnt til mótmæla-
stöðunnar til að árétta það að lögreglumenn legðu þunga áherslu
á að ná viðunandi kjarasamningum enda hefðu kjör þeirra rýmað
miðað vð viðmiðunarhópa innan rikiskerfisins frá gerð kjarasamn-
ings árið 1986.
Samninganefnd lögreglumanna
kynnti samninganefnd ríkisins
gögn um það hvernig kjör þeirra
hefðu rýmað frá gerð fyrrgreinds
samnings, sem fól meðal annars í
sér að lögreglumenn afsöluðu sér
verkfallsrétti gegn fastri viðmiðun
við kjör ákveðinna hópa, en lög-
reglumenn telja samninginn aldrei
hafa verið efndan.
Að sögn Jónasar hafa kjör lög-
reglumanna rýrnað stöðugt og
verulega á þessum tíma. Eftir
framlagningu þessara upplýsinga
óskaði samninganefnd ríkisins eft-
ir viku fresti til að kynna sér gögn-
in. Ákveðið var að efna til fundar
að viku liðinni og þá verður einnig
fundur með samninganefnd lög-
reglumanna og þeim mönnum sem
dómsmálaráðuneytið hefur tilnefnt
til sérstakra viðræðna um úrbætur
í öryggismálum lögreglunnar.
Lögreglumenn gengu ekki inn í
samninga þá sem gerðir voru um
miðlunartillögu ríkissáttasemjara
eftir að þjóðarsáttarsamningar
runnu út og hafa lausa samninga.
í samningaviðræðum hafa þeir lagt
höfuðáherslu á fyrrgreinda launa-
leiðréttingu og úrbætur í öiyggps-
og lífeyrismálum.
Oskar Vigfússon end-
urkjörinn forseti Sjó-
mannasambandsins
ÓSKAR Vigfússon var endurkjörinn forseti Sjómannasambands ís-
lands til næstu tveggja ára á þingi sambandsins í gær. Uppstillingar-
nefnd sem skipuð er fimm mönnum komst ekki að sameiginlegri
niðurstöðu um tilnefningu til forseta og komu tvær tillögur frá nefnd-
inni, annars vegar Óskar Vigfússon og hins vegar Konráð Alfreðs-
son, formaður Sjómannafélags Eyjafjarðar. Óskar hlaut 39 atkvæði
til embættisins en Konráð 15. Einn seðill var auður. Sævar Gunnars-
son úr Grindavik var kjörinn varaforseti en aðrir voru ekki í fram-
boði. Guðmundur Hallvarðsson, fyrrverandi varaforseti Sjómanna-
sambandsins, sóttist ekki eftir endurkjöri.
Í uppstillingamefnd áttu sæti
Þórður Ólafsson, Sigfínnur Karls-
son, Elías Bjömsson, Erling Guð-
mundsson og Sveinn Kristinsson.
Þórður, Sigfínnur og Elías lögðu til
að Óskar Vigfússon yrði í framboði
til forseta, en Erling og Sveinn
nefndu til Konráð Alfreðsson, for-
mann Sjómannafélags Eyjafjarðar.
Elías Bjömsson frá Vestmanna-
eyjum hlaut kosningu sem ritari
sambandsins samkvæmt sameigin-
legri tillögu uppstillingamefndar og
Sigfínnur Karlsson frá Neskaup-
stað sömuleiðis sem gjaldkeri.
„Mér er efst í huga þakklæti
vegna þess mikla trausts sem mér
er sýnt með þessari niðurstöðu. Ég
kvíði að sjálfsögðu þeirri baráttu
sem framundan er en menn verða
bara að taka á henni. Menn vita
hver staðan í þjóðfélaginu er og
hver staða sjómannastéttarinnar er
með tilliti til aflabrests og vaxandi
atvinnuleysis. Þar reynir bæði á
forystu sjómannastéttarinnar og
annarra innan verkalýðshreyfíngar-
innar. En maður hefur tekið bár-
unni fyrr,“ sagði Óskar.
Konráð Alfreðsson óskaði ný-
lqömum forseta til hamingju með
kjörið og óskaði honum alls velfarn-
aðar á komandi kjörtímabili. „Við
Óskar höfum átt gott samstarf þau
ár sem ég hef starfað sem formað-
ur Sjómannafélags Eyjafjarðar og
síðan ég hóf afskipti af félagsmál-
um sjómanna. Ég vona svo sannar-
lega að svo verði áfram. Einnig vil
ég þakka þeim mönnum sem
greiddu mér atkvæði fyrir stuðning-
inn sinn,“ sagði Konráð.
2Vi árs fangelsi fyr-
ir að misnota telpur
HÆSTIRETTUR hefur dæmt 43
ára mann, Hannes Oddsson, til
2Vi árs fangelsisvistar fyrir að
hafa misnotaðar tvær telpur, 12
og 13 ára.
Lögreglumenn í lögreglustöðinni
í Breiðholti komust á snoðir um
heimsóknir ungra stúlkna til
mannsins á heimili hans við Lauga-
veg og í framhaldi af því var hann
handtekinn. Undirréttur sakfelldi
manninn og dæmdi hann til tveggja
ára fangelsisvistar í júní sl. fyrir
að hafa, á tímabilinu apríl til ágúst
1991, haft í 5-6 skipti samfarir við
tvær telpur, aðra 12 og hina 13
ára, og fyrir að hafa veitt telpunum
tveimur og fjórum öðrum, 12-14
ára, áfengi og sýnt þeim klámmynd-
ir. Hæstiréttur hefur nú þyngt dóm-
inn yfír manninum um hálft ár.