Morgunblaðið - 30.10.1992, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 30.10.1992, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1992 Um át þorsksins eftir ÓlafK. Pálsson og Gunnar Stefánsson Þegar illa árar í sjávarútvegi landsmanna, þessum undirstöðuat- vinnuvegi Islendinga frá upphafi byggðar á landi hér, er mönnum tamt að leita sökudólga. Því ekki getur það staðist, að vér íslendingar getum með nokkru móti talist ábyrg- ir fyrir því sem miður fer í landsins sveiflukennda búskap. Fyrir um það bil tveimur áratug- um, þegar þorskstofninum hafði hnignað verulega, að fróðustu manna yfirsýn, var það auðvitað Bretinn sem gengið hafði svo í skrokk á þorskinum að til vandræða horfði. Það eina sem talið var duga til að bjarga stofninum og koma sæmilegum skikk á stjórn veiðanna var að friða þorskinn fyrir útlending- um. Þetta gekk blessunarlega eftir. Ríkti nú friður um hríð meðan togarafloti landsmanna var byggður upp í snarhasti, í stað þorskstofns- ins, og liðu ekki nema örfá ár þar til floti vor hafði fyllt það skarð sem Bretamir höfðu eftir sig látið. I kjöl- far þeirra sigldu síðan Þjóðveijar, Belgar og Færeyingar og má segja að umráða okkar yfir fiskimiðum landsins hafí verið óskoruð um 15 ára skeið. Nánar tiltekið: Óskoruð hvað varðar samkeppnisaðila úr mannheimi. Ætla verður að lífríki hafsins hafí ekki þróast sérstaklega í þeim tilgangi að uppfylla þarfír einhvers útvalins dýrastofns. Af því leiðir að „hinn viti borni maður“ verður að gera sér að góðu að deila þessum nægtarbrunni með lífverum sjávar. Að minnsta kosti svo lengi sem hon- um hefur ekki tekist að ráða þær gátur þessa vistkerfis, sem geri hon- um kleift að draga „vistfræðilega landhelgislínu" í því skyni að útiloka tiltekna dýrastofna sjávar frá sam- neytinu. Slík fyrirætlan á eðlilega undir högg að sækja þegar haft er íhuga að það erum við sem emm „aðskotadýrin" í vistkerfí sjávar, hafandi yfirgefið þá vist fyrir alln- okkmm milljónum ára. Fæðuvistfræði sjávarlífvera Á undanförnum ámm hefur sam- keppni sjávarlífvera við „nytja- stofna" okkar verið talsvert mikið til umfjöllunar meðal hagsmunaaðila í sjávarútvegi. Einkum hefur verið rætt um þátt sjávarspendýra í þessu samhengi, þ.e. sela og hvala. Ekki fer á milli mála að þessir sjávarbúar era stórtækir í sínu fæðunámi og hafa, að öllum líkindum, bein eða óbein áhrif á þann hlut sem okkur stendur til boða á þeim fæðuþrepum sem okkur em aðgengileg. Hitt fer þó ekki síður á milli mála að umfjöll- un þessi hefur oftar en ekki ein- kennst að miklum glannaskap varð- andi reikniaðferðir og mat á forsend- um og er þá vægt til orða tekið. Síðasta framlagið í þessum efnum „Þorskstofninn hefur oft verið miklu stærri en nú er. Á þeim tíma hefur þorskurinn líka étið eigin afkvæmi, en samt fékkst að jafnaði betri nýliðun og meiri afli en nú.“ er grein Árna Gíslasonar sem birtist í Morgunblaðinu þann 30. september sl. Viðfangsefni greinarinnar er m.a. át þorsksins og botnfískstofna í heild og ekki síður át þorsks á eigin af- kvæmum. Það skal tekið fram hér að annar undirritaðra, sem Árni vitn- ar nokkuð til, hefur ekki „staðfest" eitt eða neitt í j)essu sambandi. Meginniðurstaða Árna hvað varðar át þorsksins virðist vera sú að þorsk- urinn sé þvílíkur vargur í eigin véum að honum stafí umtalsverð hætta af sjálfum sér. Kannski má eiga von á tillögu í þá vem að rétt sé að út- rýma þorskstofninum til þess að koma í veg fyrir að hann tortími sjálfum sér! Nokkrar niðurstöður hafa birst á undanfömum ámm um át þorsks hér við land. Þar á meðal kemur fram að át þorsks á dag er misjafnt eftir stærð fisksins, frá 0,6% hjá 100 sm þorski upp í 1,5% hjá 5 sm þorski (sbr. Kjartan G. Magnússon og Ólaf- Ólafur K. Pálsson ur K. Pálsson 1989). Út frá þessu má áætla gróflega að meðalát þorsks á ári sé nálægt fjórfaldri þyngd físksins. Ef þetta er margfaldað með stærð stofnsins (þriggja ára og eldri) sem er talinn um 800 þúsund tonn um þessar mundir fæst heildarát af stærðargráðunni 3,2 milljónir tonna á ári. Vart þarf að taka fram að útreikningar af þessu tagi eru háðir mörgum óvissuþáttum og skekkju- mörk því víð. Erfítt er að meta át yngstu aldursflokka stofnsins þar sem stærð þeirra er ekki þekkt. Át þorsks á þorski Áti þorsks á eigin afkvæmum - stundum nefnt sjálfrán - hefur ver- 1 r Gunnar Stefánsson ið gerð nokkur skil á undanförnum ámm (sbr. Ólafur K. Pálsson 1985). Helstu niðurstöður eru þær að sjálfr- án beinist einkum að yngstu aldurs- flokkum þorsksins, þ.e. seiðum á fyrsta ári og eins og tveggja ára ungviði. Ennfremur að sjálfrán sé helst ástundað af stærstu fiskum stofnsins, þ.e. þorski stærri en 90 sm að lengd, og þá fremur að haust- lagi heldur en á öðrum tímum árs. Þó hefur einnig komið í ljós að yngri þorskur getur lagst á þorskseiði á haustin. Samkvæmt rannsóknum um mánaðamótin október-nóvember 1985 reyndist þriggja til sex ára þorskur hafa étið talsvert af þorsk- seiðum af árgangi 1985 (SBR. Hefjum hvalveiðar að nýju eftir Guðjón Guðmundsson Um fátt hefur verið meira rætt að undanförnu en aflasamdrátt, erf- iðleika stóriðjufyrirtækja, samdrátt í landbúnaði og ýmsum greinum iðn- aðar og áhrif alls þessa á þjóðarbúið og atvinnulífíð í Iandinu. Þjóðartekj- ur minnka, störfum fækkar og menn leita með logandi ljósi að nýjum at- vinnutækifæram. Við þessar aðstæður er það ekki áhorfsmál að helja hvalveiðar að nýju. Við getum ekki og megum ekki afsala okkur réttinum til að nýta hvalastofnana við landið. Slakir áróðursmenn Hvalveiðum í atvinnuskyni var hætt árið 1985, en þá höfðu þær verið stundaðar í 38 sumur. Vísinda- veiðar voru síðan stundaðar í 4 sum- ur, en frá árinu 1990 hafa engar hvalveiðar verið stundaðar af íslend- ingum. Ástæða þess að hvalveiðar lögðust af em öllum kunnar. Andstæðingum veiðanna tókst með skefjalausum áróðri að spila á þekkingarleysi fjar- lægra þjóða á lífríki N-Atlantshafs- ins. Ófrægingarherferðir og við- skiptaþvinganir vora þau vopn sem hvalveiðiþjóðirnar gáfust upp fyrir að Jokum. Ég held að íslendingar hafí á þessum ámm verið slakir í áróðri og gert allt of lítið af því að koma sínum sjónarmiðum á framfæri og mótmæla linnulausum óhróðri and- stæðinganna. Við þumbuðumst við og skildum ekkert í öllu þessu órétt- Iæti, en hefðum þurft að beita mark- vissri kynningu á okkar málstað þar sem andstaðan var mest. Mikil verðmæti, mörg störf Útflutningsverðmæti hvalafurða árið 1985 var um 1,5% af heildarút- flutningi íslendinga. Þá störfuðu um 240 manns hjá Hval hf. yfir sumar- mánuðina og hluti þeirra allt árið. Að meðtöldum störfum við hrefnu- veiðar munu hafa verið amk. 150 ársverk við hvalveiðar og vinnslu þetta síðasta ár sem íslendingar stunduðu hvalveiðar í atvinnuskyni. Hopum ekki fyrir hótunum í sumar sýndi sjónvarpið breskan þingmann sem var að halda ræðu gegn hvalveiðum, og sagði m.a. að ef menn þyrftu tilbreytingu í matar- æði gætu þeir eins snætt mannakjöt og hvalkjöt. Um svipað leyti hótaði bandarískur starfsbróðir hans inn- flutningsbanni á vörur frá þeim þjóð- um sem stunda hvalveiðar. Þetta sýnir glöggt hvernig skefjalaus áróð- ur svokallaðra umhverfisverndar- sinnar hefur ruglað suma og hve mikil nauðsyn er á öflugri kynningu á okkar málstað. Það er einhver feil- nóta á ferðinni þegar menn meta líf hvala jafnvel meira en líf manna og telja eðlilega nýtingu hvalastofna giæpsamlega. Ýmsir óttast að íslendingar verði beittir viðskiptaþvingunum ef við heijum hvalveiðar að nýju. Ef við hefðum hopað fyrir slíkum hótunum hefðum við aldrei fært fiskveiðilög- söguna út í 200 mílur. Þegar það var gert urðum við að sæta hörðum viðskiptaþvingunum fyrst í stað. Með einurð og festu vom þær þving- anir brotnar á bak aftur og óskorað- ur réttur okkar yfir fiskveiðilögsög- unni viðurkenndur. Fyrsta skrefið stigið Á fundi Alþjóða hvalveiðiráðsins sem haldinn var í Skotlandi fyrr á þessu ári gengu íslendingar úr ráð- inu og tóku þar með fyrsta skrefið í þá átt að hefja hvalveiðar að nýju. Eftir þennan fund sagði breska stórblaðið The Times að hvalveiði- bannið væri að renna út í sandinn. Svo virðist sem umíjöllun þekktra fjölmiðla sé smám saman að breyt- ast og snúist í minna mæli en áður um að vekja andúð á takmörkuðum hvalveiðum og skynsamlegri nýtingu hvalastofna. Sú ákvörðun Norðmanna að hefja hvalveiðar að nýju sl. sumar vakti mikla athygi og léttir íslendingum og öðmm hvalveiðiþjóðum róðurinn, ekki síst þegar litið er á viðbrögðin við þessum veiðum. Það kom nefni- lega í ljós að baráttukraftur and- stæðinga hvalveiða var ekki sá sami og áður, m.a. vegna þess að við- brögð almennings og fjölmiðla voru miklu jákvæðari en búist hafði verið við. Einnig var mikil eftirspurn eftir hvalkjötinu sem seldist á háu verði. Hefjum hvalveiðar næsta sumar Mér fínnst það sjálfsagt mál að Islendingar heiji hvalveiðar á ný. Fyrsta skrefið í þá átt var stigið með úrsögn úr Alþjóða hvalveiðiráð- inu. Næsta skref var stofnun Guðjón Guðmundsson „Offriðun hvala og sela leiðir af sér vaxandi ójafnvægi í hafinu. Á sama tíma og veiði- heimildir fara stöðugt minnkandi sækja þessi spendýr með vaxandi þunga í fiskstofnana. Nýjustu upplýsingar þar að lútandi eru ógn- vekjandi.“ NAMMCO, en að þeim samtökum standa íslendingar, Norðmenn, Fær- eyingar og Grænlendingar. Nú ríður á að halda vel á spilunum og vinna markvisst að því að hval- veiðar geti hafíst á ný næsta sum- ar. Við eigum að nýta hvalastofnana innan þeirra marka sem stofnstærð- ir þeirra Ieyfa. Offriðun hvala og sela leiðir af sér vaxandi ójafnvægi í hafínu. Á sama tíma og veiðiheimildir fara stöðugt minnkandi sækja þessi spen- dýr með vaxandi þunga í fiskstofn- ana. Nýjustu upplýsingar þar að lút- andi eru svo ógnvekjandi að enginn Islendingur getur álitið þær sér óvið- komandi. Höfundur er alþingismaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn /í Vesturlandi. Tölvusýning EDI-félagsins á Hótel Loftleiðum er opin í dag kl. 10-17 og á morgun kl. 10-14. í dag kl. 13-15 verður boðið upp á tæknilega fyrirlestra í NESI (auditorium): 13:00 Dagskráin opnuó. Bjarki Már Karisson, skrifstofustjóri EDI-félagsins. 13:05 Gangsctning pappírslausra viðskipta Pálmi Bjamason, stjórnarmaóur, EDl-félaginu. 13:15 Aivís og pappírslaus viðskipti Theodór Ottósson, markaðsstjóri, Kerfi hf. 13:30 EANCOM staóallinn fyrir pappírslaus verslunarskjöl Óskar B. Hauksson, framkvæmdastjóri EAN á íslandi. 13:45 EDI-TIE þýðandinn Dagný Halldórsdóttir, kerfisfræðingur, Nýherja. 14:00 Gagnahólf Pósts og síma, X-400 Magnús Hauksson, Pósti og síma. 14:15 Reynslan af X-400 fyrir EDI-skeyti HoJberg Másson, framkvæmdastjóri, Netverk. 14:30 Ný þjónusta á sviði gagnaflutninga Pálmi Egilsson, Sérsviði, 14:45 Samantekt á því sem fram kom í tæknilegum fyrirlestrum. 15:00 Tæknilegum fyririestrum lokið. Fundarstjóri: Stefán Hrafnkelsson, Eimskipaféiagi íslands og stjórnarmaður í EDI-félaginu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.