Morgunblaðið - 30.10.1992, Page 13

Morgunblaðið - 30.10.1992, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1992 13 Kvikmyndir á öðrum nótum í DAG hefst í Háskólabíói viku- löng kvikmyndahátíð sem nefnist Harðfiskur og Hreyfimyndafé- lagið stendur fyrir. Þar verða sýndar kvikmyndir frá Banda- ríkjunum, Frakklandi, Tékkó- slóvakíu og Póllandi, og þá aðal- lega myndir sem gerðar eru utan við stóru framleiðslufyrirtækin. Meðal leikstjóra má nefna Claire Denis frá Frakklandi, Jan Svérák frá Tékkóslóvakíu, Maciej Dejcz- er frá Póllandi, Jim Jarmusch, Gregg Araki og Alex Rockwell frá Bandaríkjunum en framleið- andi margra þeirra mynda sem sýndar verða, Jim Stark, er gest- ur hátíðarinnar ásamt Araki, Denis og Svérák. En afhverju er ráðist í að halda kvikmyndahátíð með þessum anga kvikmyndagerðar? „Hið áhugaverða við ódýrar kvikmyndir," segir fram- leiðandinn Jim Stark, „er að þær gefa kvikmyndagerðarmönnum kost á að fjalla um hluti sem menn í Hollywood myndu aldrei snerta á, og ráða góða leikara sem fá ekki vinnu þar. Myndir frá Hollywood einkennast af sömu formúlunum og sömu leikurum í sífellu, sem er mik- ið áhyggjuefni. En þetta tengist þeim tveimur ástæðum sem liggja að baki því að við erum að halda þessa hátíð. Önnur ástæðan er sú að íslensk kvikmyndahús hafa íhaldssaman smekk og sýna aðallega framleiðslu frá Hollywood, en við teljum að hérlendis sé töluvert stór hópur áhorfanda sem vill sjá kvik- myndir á öðrum nótum. Hin ástæðan er sú að ég er mikill aðdáandi þess sem er að gerast í íslenskum kvik- myndaiðnaði, og sérstaklega þess sem er að gerast hjá ungum kvik- myndagerðarmönnum. Með hátíðum sem þessum gefst áhorfendum og kvikmyndagerðarmönnum tækifæri til að hitta erlenda gesti, skiptast á skoðunum og ná utan um þá al- heimsþróun sem á sér stað í kvik- myndagerð. Þetta auðveldar líka ís- lenskum kvikmyndagerðarmönnum að stíga næsta skref inn á alheims- markaðinn.“ Vinir og œttingjar! Þakka innilega komuna í Höföaborg, allar gjafirnar, blómin, skeytin, símtölin, kossana og kveÖskapinn. GuÖ blessi ykkur öll. Pála Pálsdóttir. Morgunblaðið/Þorkell Leikstjórinn Gregg Akari og kvikmyndaframleiðandinn Jim Stark, sem eru meðal gesta kvikmyndahátíðarinnar Harðfisks. Dagskrá Harðfísks- hátíðar Sýningar fara fram í Háskólabíói. Föstudagur 30. október Kl. 21.00: Night On Earth í leikstjórn Jims Jarmusch Kl. 23.20: The Living End í leikstjórn Greggs Araki sem verður viðstaddur sýn- inguna. Laugardagur 31. október Kl. 17.00: In The Soup í leikstjórn Alex Rockwells Kl. 19.00: Elementary School í leikstjórn Jan Svér- ák sem verður viðstaddur sýninguna. Kl. 23.00: No Fear No Die í leikstjórn Claire Denis. Gregg Akari er ungur bandarísk- ur leikstjóri en þrjár mynda hans verða sýndar á Harðfiskshátíðinni. Þær eiga allar sameiginlegt að fjalla á einn eða annan hátt um heim sam- kynhneigðra, og vera gerðar fyrir lítið fé. Nýjasta mynd Akaris, The Living End, kostaði aðeins um tvær og hálfa milljón króna í fram- leiðslu..Að baki The Living End stóð lítill hópur fólks sem gaf vinnu sínu, þetta voru fimm manns fyrir utan leikara þegar mest var, og fór niður í tvo, tökumann og leikstjóra," segir Akari. „Við greiddum aðeins fyrir tækjaleigu, mat og þess hátt- ar, og þegar upp var staðið kostaði myndin einungis 25 þúsund dollara, en þá ákváðum við að stækka mynd- ina frá 16 mm upp í fulla stærð og þá jókst kostnaður. Við eyddum heldur ekki tíma í að betla fé frá opinberum fyrirtækjum í greininni, enda margt í myndinni sem sam- ræmist ekki þeirra áherslum. Þessi leið vejtti okkur mikið tjáningar- frelsi. Ég átti raunar von á að The Living End yrði umdeildari, en fólk Hefur verið mjög jákvætt þrátt fyrir að efnið sé ekki að allra skapi.“ MUNIÐ Manor House Hotel HÓTELREKSTUR ERLENDIS Stofnun hlutafélags um hótelrekstur erlendis. Þátttökueyðublöð og upplýsingar hjá Gulli og Silfri hf., Laugavegi 35, símar 22013 og 20620 og Manor House hótel í síma 90 44 803 605164. DVELJIÐ Á EIGIN HÓTELUM ERLENDIS. ^^^^^^ikilafrestureHinMióvembei^l992^^^^ Kjarvalsstaðir Sýning á verkum Hrólfs Sigurðsson- ar, Eiríks Smiths og Þóris Barðdals Laugardaginn 31. október verða opnaðar þrjár myndlistarsýning- ar á Kjarvalsstöðum, á verkum Hrólfs Sigurðssonar, Eiríks Smiths og Þóris Barðdals. Hluthafafundur Hluthafafundur í Eignarhaldsfélaginu Alþýðubankinn hf. verður haldinn í Hvammi á Hótel Holiday Inn, Reykjavík, laugardaginn 7. nóvember 1992 og hefst kl. 14.00. Dagskrá: 1. Tillaga stjórnar um að gefa hluthöfum, er þess óska, kost á að skipta út hlutabréfum í félaginu fyrir hluta- bréf í íslandsbanka hf. 2. Tillaga stjórnar um breytta fjárfestingastefnu félagsins. 3. Önnu mál. Aðgöngumiðar og fundargögn verða afhent hluthöfum eða umboðsmönnum þeirra við innganginn á fundinum. Til- lögur þær, sem fyrir fundinum liggja, verða hluthöfum til sýnis á skrifstofu félagsins í íslandsbanka hf., Kringl- unni 7, 3ju hæð, Reykjavík, viku fyrir hinn boðaða fund. Reykjavík, 23. okt. 1992. Stjóm Eignarhaldsfélagsins Alþýðubankinn hf. í Austursal er yfirlitssýning á verkum Hrólfs Sigurðssonar, list- málara, í boði Menningarmála- nefndar Reykjavíkur. í kynningu Kjarvalsstaða segir að tími hafi verið kominn til að kynna verk Hrólfs, sem hingað til hafa verið lítt þekkt. Hrólfur eigi að baki merkan feril í íslenskri myndlist. Hann hefur þó lítt haft sig í frammi í sýningarsölum; eina einkasýning hans til þessa var í Bogasal Þjóðminjasafnsins 1962. Þar fyrir utan hefur Hrólfur tekið þátt í fjölmörgum samsýningum bæði heima og erlendis. Tónlistarskóli Bessastaðahrepps Tónleikar á tónlistardegi Tónlistarskóli Bessastaða- hrepps stendur fyrir tón- leikum á degi tónlistarinn- ar, laugardaginn 31. októ- ber kl. 11.00, í hátíðarsal íþróttahússins. í fréttatilkynningu segir að tónleikarnir séu eingöngu helgaðir íslenskri tónlist í tali og tónum. Allir eru velkomnir. Eiríkur Smith í Vestursal í frétt frá Kjarvalsstöðum seg- ir: Eiríkur Smith hélt fyrstu einka- sýningu sína árið 1948. Hann hef- ur síðan haldið fjölmargar sýning- ar og tekið þátt í samsýningum heinia og erlendis. Á sýningu Eiríks eru 23 olíu- málverk, nokkur mjög stór og 30 vatnslitamyndir. Sjálfur segir listamaðurinn, að meiri dulúð sé í myndum sínum en áður. í vatns- litamyndum vinni hann með lands- lag, því íslenska landslagið sæki stöðugt á sig og einskonar verur spretti upp úr því. Þórir Barðdal í Vesturforsal Ungur myndhöggvari, Þórir Barðdal, sýnir marmara- og gran- ítskúlptúra sem allir voru unnir í Portúgal á þessu ári. Þórir segir allsnægtir af steinefnum þar í landi hafa dregið hann til sín: „Það er auðveldara að fara þangað sem steinarnir eru, en flytja þá hingað.“ Þórir segir að verk sín séu að mestu huglæg; að marmar- inn hafi ákveðinn hreinleika sem passi vel inn í þetta huglæga inn- tak. Þetta er fjórða einkasýning hans. Sýningin opnar kl. 15.00 og við opnunina leikur Monika Aben- droth einleiksverk eftir Kirchhoff á hörpu. Sýningarnar standa til sunnu- dagsins 15. nóvember. Hrólfur Sigurðsson Amerískir svefnsófar ■ “^''s'm**** * * * 1 Með einu handtaki breytir þú þessum gullfallega sófa í alveg meiriháttar rúm. Verð frá kr. 69.000 afbverð Marco húsgagnaverslun Langholtsvegi 111, sími 680 690

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.