Morgunblaðið - 30.10.1992, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1992
21
Akranes
stöðugt að stefnumótun. „Þótt við
viljum hafa grasrótarskipulag verður
að skipuleggja grasrótina betur,"
sagði ein þingkona Kvennalistans um
þessi mál. Ef til vill verður raunin
sú að Kvennalistakonur neyðast til
að taka upp flokksskipulagið, sem
þær hafa viljað forðast.
Skoðanamunur höfuðborgar
og landsbyggðar
Sumar kvennalistakonur óttast að
í framtíðinni muni bera meira á átök-
um milli landsbyggðar og höfuðborg-
arsvæðis í flokknum. Kvennalistinn
var stofnaður af konum á höfuðborg-
arsvæðinu, sem tóku einkum afstöðu
út frá kvennabaráttu og „femínisma"
sem ákveðinni hugmyndafræði.
Stefnumál flokksins hafa að miklu
leyti verið skilgreind út frá þeirri
hugmyndafræði, en með auknum
áhrifum landsbyggðarkvenna hafa
komið inn önnur áhrif, sem taka
meira mið. af beinum hagsmunum
og aðstæðum kvenna á landsbyggð-
inni. Fyrir síðustu þingkosningar
gekk ei-fíðlegast að ná saman um
stefnuna í byggðamálum og einnig
hefur borið á skoðanamun í þing-
flokki Kvennalistans. Þannig tóku
Reykjavíkurþingmenn hans þá af-
stöðu að fara ætti eftir tillögum fiski-
fræðinga, þegar rætt var um ákvörð-
un heildarafla á næsta ári en Jóna
Valgerður Kristjánsdóttir, þingmað-
ur Vestfjarða, taldi óhætt að veiða
meira. Einnig hefur komið upp
skoðanamunur í landbúnaðarmálum
eftir búsetu og Kristín Ástgeirsdóttir
þingflokksformaður til dæmis látið í
ljós andstöðu við núverandi landbún-
aðarkerfi.
Sumar kvennalistakonur telja að
deilurnar um EES ráðist meðal ann-
ars af því, að það sé mál, sem ekki
sé eingöngu hægt að taka afstöðu
til út frá femínískri hugmyndafræði,
þótt hún leiki ákveðið hlutverk hjá
andstæðingum samningsins. EES er
kannski fyrsta mikilvæga málið, sem
þannig háttar til um hjá Kvennalist-
anum, en þau gætu orðið fleiri.
Kvennalistinn getur tæplega enda-
laust afgreitt málin með því að þau
séu þess eðlis að ekki sé hægt að
fínna málamiðlun og margar skoðan-
ir rúmist innan flokksins.
Gamla kaupfélagshús-
ið fær nýtt hlutverk
Abrunniii ^
Akranesi.
GAMLA kaupfélagshúsið við
Kirkjubraut á Akranesi mun fá
nýtt hlutverk á næstunni því verið
er að gera á því gagngerðar end-
urbætur og breytingar. Á næstu
mánuðum er ætlunin að þar verði
opnaður veitingastaður og gisti-
heimili.
Það eru hjónin Hanna Rúna Jó-
hannsdóttir og Hilmar Björnsson sem
keypt hafa húsið og er stefnt að
opnun þess í næsta mánuði. Þau
hafa rekið veitingastofuna Barbró
um árabil við góðan orðstír. Gert er
ráð fyrir að 15 herbergi verði í nýja
gistiheimilinu, ýmist eins eða tveggja
manna. f samtali við Morgunblaðið
sagði Hilmar Bjömsson að talsverðar
endurbætur þurfí að gera á húsinu
áður en hægt verði að opna.- J.G.
Kringlusporti, Borgarkringlunni
Kaupstað í Mjódd
Miklagarði við Sund
Músík og sport, Hafnarfirði
Sportbúð óskars, Keflavík
Sportbæ, Selfossi
Óðni, Akranesi
Borgarsporti, Borgarnesi
Litlabæ, Stykkishólmi
Rocky, Ólafsvík
Skógum, Egilsstöðum
Kaupfélaginu, Akureyri
Kaupfélaginu, Dalvík
Kaupfélaginu, Húsavík
Kaupfélaginu, Blönduósi
Kaupfélaginu, Hvammstanga
Kaupfélaginu, Vopnafirði
Kaupfélaginu, (safirði
Kaupfélaginu, Höfn, Hornafirði
Rafsjá, Bolungarvík
LÆKJARTÚNI9,
MOSFELLSBÆ, SfMI 666403
Dómsmeðferð kókaínmálsins hafin í héraðsdómi
Dómari ákvað að yfirheyra
ákærða fyrir luktum dyrum
DÓMSMEÐFERÐ kókaínmálsins svonefnda fyrir héraðsdómi Reykja-
víkur hófst í gærmorgun með yfirheyrslum yfir hinum ákærða, Steini
Ármanni Stefánssyni. Guðjón St. Marteinsson héraðsdómari ákvað
að yfirheyrslumar skyldu fara fram fyrir luktum dymm og var
fulltrúum fjölmiðla á staðnum vísað frá. Yfirheyrslunum var lokið
í gær en eftir helgi verða vitni í málinu yfirheyrð en ekki hefur
verið ákveðið hvort þær yfirheyrslur verði einnig fyrir luktum dyr-
um. Ragnar Aðalsteinsson hrl, verjandi ákærða, mótmælti ákvörð-
uninni og taldi hana skerða réttaröryggi skjólstæðings síns.
Ákvörðun sína byggði dómarinn
á ákvæði c-liðar, 1. mgr. 8. greinar
laga um meðferð opinberra mála
sem tóku gildi 1. júlí síðastliðinn
en þar segir að dómara sé rétt að
ákveða að dómþing skuli haldið
fyrir luktum dyrum ef um sé að
ræða þinghöld meðan á rannsókn
máls stendur og sérstök hætta þyk-
ir á sakarspjöllum ef þing væri háð
fyrir opnum dyrum.
Ákvörðun dómara um þetta efni
er ekki unnt að kæra til Hæstarétt-
ar en Ragnar Aðalsteinsson hrl.,
verjandi ákærða, mótmælti ákvörð-
uninni, kvaðst telja hana andstæða
hagsmunum skjólstæðings síns og
spilla réttaröryggi hans auk þess
sem hún sé ástæðulaust brot á þeirri
grundvallarreglu laga um meðferð
opinberra mála að þinghöld skuli
háð í heyranda hljóði. Ragnar
kvaðst í samtali við Morgunblaðið
telja að sú heimild sem dómarinn
hefði vísað til máli sínu til stuðn-
ings ætti við þegar vernda þyrfti
hagsmuni barna eða ungmenna eða
þegar verið væri að fjalla um við-
kvæm hernaðarleyndarmál.
Egill Stephensen sækjandi máls-
ins sagði við Morgunblaðið að dóm-
ari hefði átt frumkvæði að því að
ákveða að þinga fyrir luktum dyrum
eins og gert væri ráð fyrir í lögun-
um. Ekki þyrfti að rökstyðja
ákvarðanir af þessu tagi en Egill
kvaðst telja að það segði sig nokk-
uð sjálft að ástæðan væri mat dóm-
arans á sérstöðu þessa máls og við-
kvæmri stöðu þess.
Eins og fram hefur komið í Morg-
unblaðinu er Steinn Ármann Stef-
ánsson ákærður fyrir stórfellt brot
á fíkniefnalöggjöfínni með því að
hafa flutt inn til landsins 1,2 kg.
af kókaíni í febrúar á þessu ári og
einnig fyrir að hafa ekið glæfralega
á allt að 130 km/klst hraða innan-
bæjar og á allt að 160 km/klst
hraða utanbæjar á flótta undan lög-
reglunni 18. ágúst síðastliðinn en
þeim flótta lauk með því að hann
ók bílaleigubíl þeim sem hann ók,
og lögreglan hafði á leigu, á lög-
reglubfl með þeim afleiðingum að
lögreglumaður hlaut lífshættulega
og varanlega áverka. Þá er hann
ákærður fyrir að hafa lagt skærum
til lögreglumanns sem handtók
hann eftir ákeyrsluna.
Steinn Ármann Stefánsson hefur
setið í gæsluvarðhaldi í Síðumúla-
fangelsi frá því 18. ágúst en al-
gjörri einangrun hans hefur nú ver-
ið aflétt að nokkru leyti. Gæsluvarð-
haldsúrskurðurinn rennur út hinn
2. desember nk. hafi dómur ekki
áður verið upp kveðinn.
Panasonic NV-J40
Fullkomið 3 hausa myndbandstœki með sjálfhreinsibúnaði,
stillanlegri hœgmynd, hreinni kyrrmynd, og fjarstýringu svo
JAPIS
BRAUTARHOLTI 2
KRINGLUNNI
SÍMI 62 52 00
FJÖLSKYLDULEIKUR JAPIS
SPURNING 2
HVERJIR ERU KOMNIR Á STJÁ ?
G Sl
Einstaklega meðfœrileg videótökuvél með fullkomnum
auto-fokus, 8 x zoom, 3 lux, og vegur aðeins 900 gr.