Morgunblaðið - 30.10.1992, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1992
25
Reuter
Traustur geymir
Þessi gamli korngeymir í borginni Zaragoza á Spáni reyndist traustari
en menn hugðu þegar átti að sprengja hann niður. Eftir 20 öflugar spreng-
ingar var hann að vísu illa farinn og tekinn að halla undir flatt en hann
stóð þó enn og gerði þegar síðast fréttist.
Miklir fólksflutningar fyrirhugaðir 1 Rússlandi
Milljónir manna fluttar
frá norðurhéruðunum
Moskvu. Reuter.
FYRIRHUGAÐ er að flytja miHjónir manna frá nyrstu héruðum
Rússlands og koma þeim fyrir annars staðar í landinu. Er það
haft eftir ráðherra í ríkisstjórninni, sem segir, að áður fyrr
hafi fólk verið hvatt tii að setjast að sem víðast og hafi þá rík-
ið haldið uppi kjörunum með gífurlegum niðurgreiðslum. Það
sé ekki lengur hægt.
„Fjórtán milljónir manna búa
á norðursvæðunum og stórum
hluta þeirra verður að koma fyr-
ir sunnar í landinu," sagði An-
drei Varílov, aðstoðarfjármála-
ráðherra Rússlands, á frétta-
mannafundi í gær. Sagði hann,
að ógjörningur væri að flytja allt
fólkið á einu ári og því yrði unn-
ið að því á einhveiju árabili.
Stjórnvöld í Sovétríkjunum
fyrrverandi hvöttu fólk til að setj-
ast að á lítt byggilegum svæðum
í norður- og austurhéruðunum,
meðal annars vegna öryggis-
hagsmuna, og var reynt að gera
það fysilegra með því að greiða
hærri laun þar en annars staðar
í landinu. Iðnaði og annarri at-
vinnustarfsemi var haldið uppi
með ríkisstyrkjum og verðlagið
var það sama og sunnar í land-
inu. „Verðlagið var með öðrum
orðum út í hött,“ sagði Varílov
og nú þegar farið er að gera
arðsemis- og samkeppniskröfur
til fyrirtækja er sjálfgert að loka
verksmiðjunum á norðurhjara.
Varílov sagði, að í fjárlögunum
fyrir næsta ár væri gert ráð fyr-
ir framlagi vegna þessara fólks-
flutninga en hann taldi, að fjár-
lagahallinn yrði sem svaraði til
sex eða sjö prósenta af vergri
þjóðarframleiðslu. Vasílfj Bart-
sjúk, fjármálaráðherra Rúss-
lands, sagði hins vegar, að hall-
inn gæti farið í 15% yrði enginn
bati í efnahagslífinu. Á fyrstu
níu mánuðum þessa árs hefur
iðnframleiðsla minnkað um
17,6% og nærri 400.000 manns
eru skráðir atvinnulausir, sex
sinnum fleiri en í ársbyijun.
Ú T S A L A !
FATASKAPAR ELDHUSSKAPAR BAÐSKÁPAR
frá kr. 7 300 frá kr. 49ÚIJ frá kr. 3/00
Húsgögn — bókahillur og margt fleira
opið: fimmtud. og föstud. kl. 10 -18 og laugard. kl. 10-16
Trésmi&ja Ármannsfeils hf.
Funahöfða19, sími 672567
mmi