Morgunblaðið - 30.10.1992, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1992
37
Minning
Asgeir Sæmundsson
frá Minni- Vogum
Fæddur 3. maí 1915
Dáinn 23. október 1992
Við sem komin erum yfir miðjan
aldur sjáum oft á eftir samferða-
mönnum okkar yfír móðuna miklu,
en þetta er lögmál lífsins að kynslóð-
ir koma og kynslóðir fara.
Nú kveðjum við hann Geira frá
Minni-Vogum sem kvaddi þennan
heim svo snöggt og óvænt á heimili
sínu í Vogunum þann 23. þessa
mánaðar. Þegar mér var tilkynnt
látið hans flaug hugurinn til
bernsku- og unglingsáranna. For-
eldrar hans voru hjónin Aðalbjörg
Ingimundardóttir og Sæmundur
Klemensson. Minni-Vogar var næsti
bær við æskuheimili mitt og þar
vorum við systurnar öllum stundum
þegar við gátum því mögulega við-
komið, því þar áttu þær heima vin-
konur okkar, Gunna og Inga, systur
hans Geira, ásamt bræðrunum
Kiema og Agli. Sæmundur og Aðal-
björg bjuggu í Minni-Vogum allan
sinn búskap og var mikill samgang-
ur milli heimilanna. Þó Geiri væri
eldri en við var hann stór hlekkur í
keðjunni, hann spilaði á harmonikku
og má segja að í Minni-Vogum væri
nokkurskonar félagsmiðstöð Vog-
anna, systkinin mörg og svo átti
harmonikkuspilarinn þar heima. Því
söfnuðust oft börn og unglingar þar
saman og margir stigu þar sín fyrstu
dansspor og þar var líka mikið sung-
ið jafnt nýjustu dægurlögin sem sí-
gild ættjarðarlög. Herbergið hans
Geira og þeirra bræðrana var uppi
á lofti og man ég að foreldrum systk-
inanna þótti oft nóg um hávaðann
og sparkið á loftinu og lái ég þeim
það ekki. Stundum var slegið upp
balli í samkomuhúsinu eða uppi á
lofti í gamia bragganum en þá valt
allt á því hvort Geiri vildi spila því
hann var hlédrægur og taldi sig
varla hæfan til þess en lét þó oftast
tilleiðast og voru allir ánægðir með
músíkina hans.
Minningarnar eru margar sem
tengjast Geira þó að fæstar verði
hér skráðar. Aldrei mun ég gleyma
minni fyrstu og einu fjallgöngu en
einhver fann upp á því að ganga
upp á Keili, Geiri var með í þeim
hópi og auðvitað sjálfkjörinn farar-
stjóri. Ekki var ég burðug í fjall-
göngunni því þegar við vorum rúm-
lega hálfnuð upp, lenti ég í sjálf-
heldu og komst hvorki upp né nið-
ur. Ég hrópaði á Geira sem ég batt
allar mínar vonir við að bjarga mér
úr þessum ógöngum og hann brást
ekki, léttstígur og öruggur kom hann
mér til hjálpar og er ég þess fullviss
að ég væri ekki til frásagnar ef
hans hjálpar hefði ekki notið við.
Ég minntist á þetta ferðalag við
hann í sumar og hann mundi allt
þetta ferðalag mikið btur en ég þó
mér líði þetta atvik seint úr minni.
Ég spurði hann líka hvort hann tæki
ekki í nikkuna og fékk jákvætt svar
þó að hann gerði ekki mikið úr því.
Leifur Kaldal gull
smiður —
Fæddur 29. ágúst 1898
dáinn 20. október 1992
Allt flýtur áfram sagði gríski
heimspekingurinn forðum daga.
Ekkert stöðvar tímans þunga nið.
Og með honum hverfa einstakling-
arnir einn og einn af lífsins braut.
Aldrei erum við reiðubúin að
kveðja þann sem okkur er kær eða
þann sem okkur fínnst hafa mótað
svo mjög umhverfi sitt og samferða-
menn.
Það varð hlutskipti Leifs Kaldals
gullsmiðs að móta allt sitt umhverfi
og samferðamenn. Hann var einn
af frumheijum í gullsmíðaiðninni.
Mótaði hann um margt þá grein
vegna sérstakra hæfileika sinna.
Hann tjáði okkur eitt sinn að hann
hefði komið gangandi norðan úr
Svínadalshreppi í Húnavatnssýslu til
Reykjavíkur. Hafði hann hug á að
leggja stund á úrsmíðanám, en
reyndin varð sú að hann hóf nám í
gullsmíði hjá Baldvini Bjömssyni
gullsmíðameistara sem á þeirri tíð
rak verkstæði og verslun að Ingólfs-
stræti 6 í Reykjavík.
Á þessum tíma tók gullsmíðanám-
ið fjögur ár. Það stundaði Leifur
m.a. við Iðnskólann við Tjörnina. Á
sama tíma stundaði hann nám hjá
Þórarni Þorlákssyni listmálara. Án
efa hefur sú kennsla í teikningu
mótað Leif við upphaf á sínum langa
og vandaða gullsmíðaferli.
Samtíma honum í námi og í starfi
hjá Baldvini voru gullsmiðirnir Guð-
mundur Jósefsson hvers leið lá vest-
ur um haf, Guðmundur Andrésson
og síðar Kjartan Ásmundsson.
Sveinstykki Leifs var brjóstnál úr
Minning
tuttugu og tveggja karata gulli.
Afdrif þess urðu nokkuð sérstök.
Árið 1938 var það sent á heimssýn-
inguna í New York ásamt altaris-
setti sem smíðað var fyrir þjóðkirkj-
una í Hafnarfirði. Þessum hlutum
ásamt oblátuskál var stolið af sýn-
ingunni. Þessi saga segir þó meira
um hve mjög virtur Leifur var í grein
sinni snemma á ferli sínum, þar sem
gripir hans voru valdir á heimssýn-
inguna. Annar þjóðkunnur listamað-
ur sýndi á þessari sýningu, sá var
Guðmundur frá Miðdal.
Að loknu sveinsprófi lá leið Leifs
til Þýskalands, þar sem hann stund-
aði nám í þijú ár við þekktan mynd-
Alltaf stóð til að ég heimsækti
hann til að rifja upp gamlar minning-
ar og skoða húsið hans en því miður
varð aldrei úr því, maður heldur víst
að alltaf sé nógur tími en það fer
oft á annan veg eins og hér sannað-
ist. Geiri kvæntist ekki en eftir að
hann flutti frá Minni-Vogum byggði
hann sér hús í Vogunum, var sjálfum
sér nógur og undi glaður við sitt.
í kringum 1980 veiktist hann al-
varlega lá á Borgarspítalanum um
tima og var vart hugað líf en fékk
heilsuna aftur með hjálp góðra
lækna. Þegar hann útskrifaðist af
sjúkrahúsinu tók Ásta systurdóttir
hans hann heim til sín og hjá henni
var hann þijá eða fjóra mánuði
meðan hann var að hressast, en fór
þá heim til sín aftur og gat hugsað
um sig sjálfur eftir það og fórst það
mjög vel úr hendi enda mikið snyrti-
menni. Ekki sleppti hún Ásta af
honum hendinni, því þegar hann fór
í eftirlit á sjúkrahúsið sá hún og
Ægir um að keyra hann á milli og
í síðasta skiptið daginn áður en hann
lést. Hjálpsemi Ástu og hennar fjöl-
skyldu kunni Geiri vel að meta, enda
sneri hann sér til hennar ef eitthvað
bjátaði á. En ég vil geta þess í leið-
inni að systkini hans reyndust hon-
um ákaflega vel enda var hann dag-
legur gestur á heimilum þeirra.
Geiri var fremur einrænn maður
og dulur, naut sín best í fámennum
hópi, var áreiðanlegur og stóð fyrir
sínu og gat verið bráðskemmtilegur
á góðum stundum. Hann var skyn-
samur og fróður um margt enda
mikill bókamaður og sagði oft
skemmtilega frá ýmsu sem hann
hafði lesið eða fyrir hann borið.
Ekki datt mér í hug þegar ég
hitti Geira í sumar að það yrði í síð-
asta sinn sem ég sæi hann, því þó
aldurinn væri orðinn nokkuð hár,
bar hann árin vel og leit ekki út sem
gamall maður, þó farinn væri að
nálgast áttræðisaldurinn.
En nú er Geiri horfinn af sjónar-
sviðinu, maðurinn sem krafðist ekki
eins né neins af öðrum, ól allan sinn
aldur í Vogunum, lifði þar og dó,
sáttur við Guð og menn.
Að leiðarlokum þakka ég honum
samfylgdina og bið honum velfarn-
aðar á nýjum Ieiðum. Megi hann
hvíla í Guðs friði.
Ástvinum hans öllum votta ég
samúð mína.
Beta frá Grænuborg.
höggvaraskóla í Munchen. Þar hefur
hann án efa mótast í þeirri grein
gullsmíðinnar er korpus nefnist.
Heimleiðin frá Þýskalandi átti eft-
ir að marka sín spor í lífi Leifs. Kom
hann við í Kaupmannahöfn þar sem
hann af tilviljun hitti Árna B. Björns-
son gullsmið. Hann bauð Leifí að
koma heim og hefja starf á verk-
stæði sínu hér í Reykjavík. Á því
verkstæði, sem var á sínum tíma það
stærsta hérlendis, starfaði Leifur
allan sinn starfsaldur. Þar smíðaði
hann margt fagurra- skartgripa og
silfurmuna. Leifur nefndi það eitt
sinn að silfrið og korpusinn hefði
átt betur við sig en gullið og skart-
gripirnir.
Það væri of langt mál að telja upp
þá fögru gripi sem Leifur hefur
smíðað á löngum starfsferli. Þeir
margir hveijir segja sína sögu þegar
saga lista er skráð hjá þjóð okkar
hér við nyrsta haf. Nefna má þó
nokkra gripi sem eru mikil listaverk,
eins og kaleik sem er í fyrstu ís-
lensku kirkjunni í Winnipeg, kaleik
í kirkju í Færeyjum, skírnarskál og
kertastjaka í kapellunni á Kirkjubæj-
arklaustri og skírnarskál í Háteigs-
kirkju.
Þó nokkrir nemendur stunduðu
nám hjá Leifi. Þeir munu bera nafn
hans inn í framtíðina, eins og þau
listaverk er hann skóp á ferli sínum
sem gullsmiður. Nefna má nemendur
hans þá Jón Björnsson, Gunnar
Hjaltason, Ásdísi Thoroddsen, Björn
Björnsson og Paul Oddgeirsson.
Nú er Leifur Kaldal ekki lengur
á meðal okkar. Nafnið hans, list
hans mun þó lifa hjá okkur þótt ár
og dagur líði, því „orðstír deyr al-
dregi, hveim er sér góðan getur“.
Við biðjum góðan guð að blessa
minninguna fögru og Ijúfu um Leif
Kaldal. Við bðjum hann sem gefur
allt líf að styrkja fjölskyldu hans,
hugga og leiða á kveðjustund lífsins.
f.h. Félags íslenskra gullsmiða,
Stefán B. Stefánsson.
HUGSAR ÞÚ
IIM HEILSUNA •
Páb gerum vi&!
msmsm
68 99 33
HEILSUHRINGURINN
Timarit um holiefni og heilsurœkt
KRABBAMIIN •nýjar leiðir
Opinn fundur í Norræna húsinu
lou. 31. okt. kl. 13.00-17.00.
*UB VHK0MHIR!
Upplýsingar:
Pétur, s. 31236
eða Karl, s. 814060.
BIFfíBÐAR &
LANDBÚNAOARVÉLAR HF.
Einn sá
glæsilegasti!
Til sölu Mercedes Benz jeppi
280 GE, langur, S dyra.
Aðeins ekinn S7.000 km.
Bíllinn er sem nýr og búinn
öllum hugsanlegum þaegindum
og aukahlutum.
Bíllinn er til sýnis í
sýningarsal okkar Ármúla 13.
GOOD^YEAR
VETRARHJÓLBARÐAR
GOODfYEAR
60 ÁR Á ÍSLANDI
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT
0
HEKLA
F0SSHÁLSI 27
SÍMI 695560 674363