Morgunblaðið - 30.10.1992, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1992
49
Fremri röð frá vinstri: Guðmundur Friðriksson, Gunnlaugur Ö. Valsson. Jóhanna Amgrímsdóttir, ísak
Runólfsson, Haukur Magnússon, Hafliði Ragnarsson. Aftari röð frá vinstri: Ólafur Jóhannsson, Guðmund-
ur Jóhannsson, Sigurður Pétursson, Ágúst Helgason, Karl Viggó Vigfússon, Róbert Óttarsson, Róbert
E. Sigurðsson, Páll Matthiasson.
Styðjum íslenskan iðnað
Frá nemendum bakaradeildar
Iðnskólans íKeykjavík
Við bakaranemar sem eigum stutt
eftir í iðnnámi, viljum með þessu
bréfí lýsa stuðningi við íslenskan
iðnað.
Hafi íslenska þjóðin á að skipa
vel upplýstum og vandvirkum iðn-
aðarmönnum með gott hráefni sér
við hönd, mun íslenskum heimilum
og þjóðinni famast vel, þrátt fyrir
samkeppni við erlenda framleiðend-
ur.
Bakaraiðn er ein elsta löggilta
iðngreinin á íslandi og hefur hingað
til staðist samanburð á gæðum við
niðurgreidda erlenda verksmiðju-
vöru. Hér hafa neytendur ráðið
miklu og íslenskar húsmæður kunna
vel að meta framleiðslu og hand-
bragð íslenskra bakara, um leið og
þær tryggja að fjölskyldan neyti
hollra brauða frá hverfisbakaríinu
eða íslenskra brauðvara úr næstu
kjörbúð.
Við sem erum að leggja út í lífs-
baráttuna sem iðnaðarmenn, eigum
eftir að takast á við erlenda verk-
smiðjuframleiðendur, sem ráða yfír
gnótt fjármuna til auglýsinga. Tvö
dæmi: Þekkt innflutningsfyrirtæki
auglýsir snarl með háu trefjainni-
haldi. Við þetta er ekkert að at-
huga, en ruddaskapurinn kemur
fram þegar þeir stilla til mótvægis
mörgum brauðsneiðum og gefa í
skyn að betra sé fyrir fólk að neyta
trefjasnarls en trefjaríkra brauða.
Við viljum benda á að auk nægjan-
legra trefja eru brauðin hlaðin öðrum
næringarefnum sem hafa fengið
rétta meðhöndlun fyrir brauðlögun
og eru manninum margfalt meiri
næring og orkugjafí en trefjasnarlið.
Annað dæmi: Heildverslun dreifir
margra vikna gömlum frosnum hálf-
bökuðum kryddbrauðum frá erlendri
brauðverksmiðju undir erlendu verk-
smiðjuheiti. Ilmurinn er sætur en
hvar er hollustan? Er útgufun á plast
sem bakað er við 200°C hollara en
nýbökuð brauð?
Sumir innflytjendur kjósa nafn-
leyndar þegar auglýsingar þeirra
birtast. Gera má ráð fyrir að brauð-
innflytjandinn hafí fært nokkur
dagsverk á mánuði frá innlendum
bakaríum til hinna erlendu brauð-
verksmiðja. Þeir veikja hag íslensks
iðnaðar.
Við vekjum athygli á þessu fyrir
neytendur og segjum. Látið hina
erlendu aðila komast að því að hér
á landi eru bökuð góð brauð. Við
skorum á íslenska neytendur að taka
innlenda vöru fram yfír erlenda.
Starfsfólk íslenskra bakaría og
brauðgerða leitast daglega við að
baka góð og holl brauð í takt við
þarfír landsmanna. Látum það hald-
ast um ókomin ár.
NEMENDUR BAKARADEILDAR
Iðnskólans í Reykjavík.
LEIÐRÉTTINGAR
Landvarzla frá
1973
Morgunblaðinu hefur verið bent á
að landvarzla hafi hafizt í Herðu-
breiðarlindum árið 1973. Það er því
eigi rétt, sem fram kom um ættartré
Völsunga hjá Upptyppingum, að
landvarzla hafi hafizt þar tveimur
árum eftir að umhverfísspjöllin voru
máluð á gljúfurvegginn. Hins vegar
mun það vera að Kári Kristjánsson
hefur annast landvörzlu í Herðu-
breiðarlindum frá því tímabili, sem
nefnt var í greinninni um Völsunga-
tréð, eða tveimur árum eftir að það
var málað.
Rangt nafn
ræðumanns
í frásögn blaðsins í gær af um-
ræðum á Alþingi um frumvarp til
fjáraukalaga fyrir árið 1992 var
rangt farið með nafn eins ræðu-
manns. Það var Jón Kristjánsson
en ekki Jón Helgason sem talaði
fyrir gagnrýni framsóknarmanna á
frumvarpið.
VELVAKANDI
HANDTASKA
Svört handtaska úr vínyl tap-
aðist í Miðbænum. í henni var
sunddót og rakdót. Finnandi er
vinsamlegast beðinn að hringja
í síma 23790 eða 20478.
HRINGUR
Silfurhringur tapaðist í Sund-
laugunum í Laugardal 26. októ-
ber. Finnandi er vinsamlegast
beðinn að hringja í Evu Rós í
síma 675371.
VERKFÆRA-
KISTA
Verkfærakista varð eftir við
Kjalveg á sunnudag. Finnandi
er vinsamlegast beðinn að
hringja í síma 620026.
HVERS Á ÓLÍNA
AÐ GJALDA?
Berjgljót Bjamadóttir.
Eg get ekki orða bundist
vegna ummæla Markúsar Amar
Antonssonar um Ólínu Þorvarð-
ardóttur á síðasta borgarstjóm-
arfundi þar sem hann sakaði
hana um hræsni vegna tillögu
hennar um að ekki yrði boðið vín
og tóbak í veislum borgarinnar.
Það er skammarleg afstaða hjá
borgarstjóra að vilja eyða pen-
ingum okkar skattgreiðenda í
áfengi og sígarettur. Ekki minn-
ist ég þess að Markús hafi við-
haft sömu ummæli um tillögu
Magnúsar L. Sveinssonar þegar
hann afþakkaði launahækkun
Kjaradóms. í báðum tilfellum
báðust borgarfulltrúarnir undir
ákveðnum hlunnindum sér til
handa. En það er líklega ekki
sama hvort Jón eða séra Jón ber
upp mál í borgarstjórn. Hefði
meirihluti borgarstjómar fellt
sömu tillögu og Ólína bar fram
ef t.d. bindindismaðurinn Ámi
Sigfússon hefði borið hana fram?
Hvers _á Ólína eiginlega að
gjalda? Ég hef fylgst grannt með
störfum hennar í borgarstjórn
og orðið vör við að hún er sífellt
að bera fram tillögur okkur
borgumm til hagsbóta en sömu
tillögur eru jafnan fejldar af
meirihlutanum. Nú vill Ólína af-
nema áfengi og tóbak úr veislum
borgarinnar en er þess í stað
sökuð um skinhelgi! Hvernig er
komið fyrir þessu fólki sem við
kjósum til starfa fyrir okkur í
borgarstjóm? Er það virkilega
tilfellið að meirihluti þess vilji
hafa vínveitingar sem greiðast
af skattfé í veislum? Finnst
mönnum sem æðstu embættis-
menn þjóðarinnar fari svo vel
með vín að ástæða sé að halda
þessu áfram? Ég skammast mín
fyrir tilsvör borgarstjórans og
vorkenni hinum borgarfulltrúum
sjálfstæðismanna að hafa ekki
manndóm í sér til þess að hafa
sjálfstæða skoðun.
Sjálf er ég ellilífeyrisþegi sem
lifi á 40 þúsundum á mánuði og
þess vegna fyllist ég réttlátri
reiði þegar ég verð vitni að slíku
bruðli með almannafé. Nær væri
að eyða þeim aurum sem fara í
vín og tóbak til þess að rétta
hlut þeirra sem erfíðast eiga hér
í borginni. Af nógu er að taka.
VESKI
Svart seðlaveski tapaðist í
Skeifunni. Finnandi er vinsam-
legast beðinn að hringja í síma
76021.
GLERAUGU
Karlmannsgleraugu í brúnni
umgjörð töpuðust 22. október.
Finnandi er vinsamlegast beðinn
að hringja í síma 34668.
Cterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
/iíú er
þrefaldur
l.vinningur!
Vertu með
- droumurinn gæti orðið oð veruieika !