Morgunblaðið - 01.11.1992, Qupperneq 32
(32
. MORGUNBLAÐIÐ ATVINI\IA/RAÐ/SMA ^NNubiGOR IvNÓVEMBBR 1992
/VTVlign MU.AfJGí ysingar
Organisti
Staða organista við Fella- og Hólakirkju er
laus til umsóknar. Um er að ræða fullt starf
við mótun og framkvæmd tónlistarstarfs við
kirkjuna.
Umsóknir berist sóknarnefndum Fella- og
Hólabrekkusókna, Hólabergi 88, 111 Reykja-
vík, fyrir 15. nóvember 1992, en starfið verð-
ur veitt frá og með 1. febrúar 1993.
Sóknarnefndir Fella- og Hólabrekkusókna.
Framkvæmdastjóri
Meðalstór alhliða ferðaskrifstofa óskar að
ráða framkvæmdastjóra til starfa. Starfið
er laust samkvæmt samkomulagi.
Algjört skilyrði er að viðkomandi hafi starfs-
reynslu og þekkingu á þessari atvinnugrein.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnað-
armál.
Umsóknarfrestur er til 7. nóvember nk.
CUÐNIÍÓNSSON
RÁÐCJÖF 6 RÁÐN I NCARhjÓN USTA
TJARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22
Bláa lónið,
Grindavík
Leitað er eftir forstöðumanni fyrir rekstri
baðhússins við Bláa lónið og ferðaþjónustu
sem því tengist.
Umsækjendur um starfið sendi undirrituðum
umsókn, þar sem tilgreind yrði reynsla,
menntun og fyrri störf, fyrir 7. nóvember nk.
Áskilin er búseta á svæðinu.
Grindavík, 16. október 1992.
Bæjarstjórinn í Grindavík,
Jón Gunnar Stefánsson.
Lögfræðingur
Laus er 50% staða lögfræðings við fjöl-
skyldudeild.
Starfið felur einkum í sér vinnu við barna-
verndarmál, ráðgjöf við starfsmenn og
barnaverndarnefnd, þróun reglna um máls-
meðferð o.fl., en einnig störf að öðrum mál-
um, sem unnin eru í fjölskyldudeild.
Hér er um nýja og ómótaða stöðu að ræða.
Launakjör skv. samningi opinberra starfs-
manna.
Frekari upplýsingar gefa Anni Haugen, yfir-
maður fjölskyldudeildar, og Sveinn H. Ragn-
arsson, félagsmálastjóri.
Umsóknarfrestur er til 16. nóvember.
Tilsjónarmenn
Óskum eftir að ráða tilsjónarmenn til starfa
sem fyrst.
Starfið felur m.a. í sér stuðning við börn,
unglinga og/eða fjölskyldur í samráði við fé-
lagsráðgjafa. Um hlutastarf er að ræða í allt
að 6 mánuði í senn, allt að 40 tíma éj mán-
uði. Við leitum að ábyrgu og áhugasömu
fólki á öllum aldri með uppeldismenntun
og/eða reynslu af starfi með börnum og
unglingum.
Frekari upplýsingar gefa Sveinn M. Ottósson
og Rúnar Halldórsson í síma 678500.
Umsóknum skal skila til Félagsmálastofnun-
ar Reykjavíkurborgar, Síðumúla 39, á um-
sóknareyðublöðum, sem þar fást.
Hjúkrunarfræðingar
Lausar eru stöður hjúkrunarfræðinga nú
þegar eða eftir samkomulagi.
Skjól er nýlegt hjúkrunarheimili og
starfsaðstaða góð.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri
í síma 688500.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á ÍSAFIRÐI
Meinatæknar
- röntgentæknar
óskum að ráða til afleysinga í 1 ár:
Meinatækni
í 75% starfshlutfall frá 11. nóvember nk.
Röntgentækni
í 100% starfshlutfall frá 1. mars 1993.
Upplýsingar veitir framkvæmdastjóri
í síma 94-4500.
Skriflegar umsóknir sendist framkvæmda-
stjóra í pósthólf 215, 400 ísafjörður, fyrir
10. nóvember nk.
Byggingaverk-
fræðingur
Fyrirtækið er VT-Teiknistofan hf., Akranesi.
Við leitum að verkfræðingi, sem er vanur
burðarþolshönnun og hefur þekkingu og/eða
reynslu af tölvuvæddri hönnun. Áhersla er
lögð á faglega þekkingu og góða samskipta-
hæfileika.
Búseta: Skilyrði fyrir ráðningu í starfið er að
viðkomandi sé eða verði búsettur á Akranesi.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. merktar:
„Akranes 368“ fyrir 7. nóvember nk.
Hagvangurhf
Skeifunni 19
Reykjavík
Sími 813666
Ráðningarþjónusta
Rekstrarráðgjöf
Skoðanakannanir
Laust starf á
markaðssviði
Öfiugt þjónustufyrirtæki í austurborginni
óskar að ráða starfsmann til umsjónar- og
eftirlitsstarfa á markaðssviði.
Leitað er að ákveðnum og kröftugum starfs-
manni, sem hefur góða undirstöðumenntun,
almenna starfsreynslu og tamið sér sjálf-
stæð og skipulögð vinnubrögð. Góð íslensku
og enskukunnátta er nauðsynleg. Mikið er
lagt upp úr snyrtimennsku og góðri fram-
komu. Farið verður með allar umsóknir sem
trúnaðarmál.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
fást á skrifstofu okkar til 7. nóv. nk.
GijdntTqnsson
RÁÐCJÖF & RÁÐNI NCARÞJÓNLISTA
TJARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22
(D
Leikskólar Reykjavíkurborgar
Stuðningsstarf
Fóstra, þroskaþjálfi eða starfsmaður með
aðra uppeldismenntun óskast í stuðnings-
starf í leikskólann Drafnarborg v/Drafnar-
stíg.
Nánari upplýsingar gefur
leikskólastjóri í síma 23727.
Dagvist barna,
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími27277.
Hjúkrunarfræðingur
óskast til starfa
Hjálpartækjabanki RKÍ og Sjálfsbjargar, Hátúni
12, óskar eftir hjúkrunarfræðingi til starfa.
Viðkomandi þarf að hafa bíl til umráða.
Nánari upplýsingar veitir Jóhanna Ingólfs-
dóttir í síma 623333.
HHÍLMttTÆKIflBdllKIIIII —TLTL
HATÚNl 12. SÍMI 62 33 33. FAX 623S22. 105 REYKJAVÍK -LTLT
Fóstrur
Smáralundur
Fóstra eða starfsmaður með aðra uppeldis-
menntun óskast allan daginn, frá og með
1. desember eða eftir nánara samkomulagi.
Upplýsingar gefur leikskólastjóri í síma 54493.
Vfðivellir
Fóstra eða starfsmaður með aðra uppeldis-
menntun óskast allan daginn.
Upplýsingar gefur leikskólastjóri í síma 52004.
Ennfremur veitir leikskólafulltrúi upplýsingar
um störfin í síma 53444.
Félagsmálastjórinn í Hafnarfirði.
ffl
Leikskólar Reykjavíkurborgar
Stuðningsstarf
Þroskaþjálfi óskast í stuðningsstarf á sér-
deild Múlaborgar v/Ármúla.
Nánari upplýsingar gefur leikskólastjóri í
sfma 685154.
Dagvist barna,
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími27277.
Ritari
á lögmannsstofu
Lögmannsstofa í Reykjavík óskar eftir ritara
til starfa. Um er að ræða hlutastarf á reynslu-
tíma en fullt starf eftir það.
Umsóknir sem greini starfsreynslu og
menntun, þ.á m. við tölvur, sendist auglýs-
ingadeild Mlbl. merktar: „Ritari - 11296“
fyrir 10. nóvember. Meðmæli fylgi.
Heimili
- barnagæsla
Starfskraftur óskast til að sjá um 2ja ára
barn og heimili í fjarveru húsmóður vegna
náms í ca 4 tíma á dag, fyrir hádegi.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
5. nóvember merktar: „Vesturbær - 8234“.