Morgunblaðið - 05.11.1992, Síða 39
—MORGUNBLAÐIB FIMMTUDAGUR-5rbtóVBMBBR-i9&2—; ----------------------------------- 39
ÞESSIR krakkar héldu hlutaveltu til styrktar sjóði Sophiu Hansen
og varð ágóðinn 3.012 krónur. Þau heita Bjarki Þór Jónsson, Katrín
Sif Jónsdóttir, Ingi Karl Hafþórsson, Kristinn Þrastarson og Árni
Sigurgeirsson.
ÞESSIR ungu drengir héldu hlutaveltu til styrktar fjársöfnun
Rauða krossins: Hjálpum þeim, og varð ágóðinn 2.000 krónur. Þeir
heita Baldur, Kormákur, Haukur og Gauti.
ÞESSAR ungu stúlkur héldu hlutaveltu til styrktar Rauða krossi
íslands og varð ágóðinn 1.805 krónur. Þær heita Ragnheiður Bjarna-
dóttir og Díana Jóhannsdóttir. Á myndina vantar þær Söru Pálsdótt-
ir, Sif Pálsdóttur og Berglindi.
Ljósmyndaslofa Narmynd.
HJÓNABAND. Gefín voru saman
hinn 17. október Margrét K. Bjöms-
dóttir og Sigurður Kristjánsson af
sr. Pálma Matthíassyni í Bústaða-
kirkju. Þau eru til heimilis í Vestur-
bergi 78, Rvík.
bjósmyndir Rut.
HJÓNABAND. Gefin voru saman
hinn 29. ágúst Árdís Olga Sigurðar-
dóttir og Árniann Ólafsson af sr.
Sigurði H. Guðmundssyni í Víði-
staðakirkju. Þau eru til heimilis í
Blómvangi 18, Hafnarfirði.
Windows 3.1 • PC grannur
Nauðsynlegur undirbúningur fyrir alla sem þurfa að nota PC tölvur.
Vandað námskeið sem skilar þér vel á leið. <
hk-92B1
Tölvu- og verkfræöiþjónustan
Verkfræðistofa Halldórs Krisljánssonar
Grensásvegi 16 • stofnuð 1. mars 1986
©
Kennarasamband Islands
Skorað á stjómvöld
að auka fjárveit-
ingu til fjarkennslu
EFTIRFARANDI ályktun var
samþykkt samhljóða á fundi
stjórnar Kennarasambands
íslands 16. október síðastlið-
inn.:
„Innan skamms hefst við Kenn-
araháskóla ístands almennt kenn-
aranám til B.Ed.-prófs með fjar-
kennslusniði.
Mikil áhersla var lögð á að
hrinda í framkvæmd kennaranámi
með fjarkennslusniði, ekki síst af
yfírvöldum menntamála, enda hef-
ur alvarlegur kennaraskortur háð
mjög skólastarfi á undanfönrum
árum. Kennarasamband íslands
fagnaði hugmyndinni og hefur
tekið þátt í undirbúningi með
Kennaraháskóla íslands.
Nú sýnir sig að mjög mikill
áhugi er á þessari nýjung. Nálægt
200 manns sækja um inngöngu í
námið. Kennaraháskólinn telur
nálægt 150 þessara umsækjenda
uppfýlla öll skilyrði til inngöngu,
en fjárveitingar gera aðeins ráð
fyrir 50 nemendum
Samkvæmt upplýsingum Kenn-
araháskólans væri hægt að taka
fleiri nemendur inn í námið ef fjár-
veitingar yrðu auknar.
Kennarasamband íslands skor-
ar á yfírvöld menntamála að auka
fjárveitingar til kennaranáms með
fjarkennslusniði samkvæmt tillög-
um Kennaraháskólans og gera
skólanum þannig kleift að sinna
þessu mikilvæga verkefni. Þannig
er von til þess að dregið verði úr
þeirri alvarlegu meinsemd í ís-
lensku skólastarfí sem kennara-
skorturinn er.“
Þú svalar lestrarþörf dagsins y
ásíöum Moggans!
FÖTIN SKAPA
STARFSMAN NIN N
Sérhönnuð föt fyrir vinnandi fólk
eru aðalsmerki Fristads.
Gott orð fer af duglegum
starfsmanni, starfsmanni sem velur
vinnuföt með sömu nákvæmni og
verkfæri.
Fristads vinnufötin tryggja
hámarks hreyfifrelsi
og hafa pláss fyrir
verkfærin á
réttum stað.
Skemmuvegur 6L • Pósthólf 9330 • 129 Reykjavík
Sími 670 880 • Fax 670 885
Gæði • Vellíðan • Notagildi
HÚSASMIÐJAN
Skútuvogi 16, Reykjavík
Helluhrauni 16, Hafnarfirði