Morgunblaðið - 09.10.1992, Page 4

Morgunblaðið - 09.10.1992, Page 4
MQRGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUE, 9,, OKTÓffSg, 1992,, Mál o g menning fær út- gáfurétt Menningarsjóðs MENNTAMÁLARÁÐ gekk að tilboði Máls og menningar í Orða,bók Menningarsjóðs, útgáfurétt hennar og 17 annarra tilgreindra titla á fundi sínum á fimmtudag. Bessí Jóhannsdóttir, formaður ráðsins, seg- ir að eftir að tilboð í titla og útgáfurétt hafi verið reiknuð á núvirði hafi tilboð Máls og menningar reynst hæst, 25,5 miHjónir króna. í upphafi fundar óskaði minni- því til menntamálaráðherra að flytja hluti ráðsins eftir að honum yrði frestað. Formaður sagði hins vegar að gengið yrði til fyrirhugaðrar dag- skrár og voru í framhaldi af því lögð fram tilboð í titla og útgáfurétt Bókaútgáfu Menningarsjóðs. Eftir að tilboðin höfðu verið reiknuð á núvirði kom í Ijós að tilboð Máls og menningar í Orðabók Menningar- sjóðs, útgáfurétt hennar og 17 ann- arra tilgreindra titla var hæst, eða 25,5 milljónir. Ákveðið var að taka tilboðinu. Engin tilboð voru í bóka- lager útgáfunnar en viðræður standa yfír við tvo aðila um kaup á bókun- um. Um er að ræða 30 þúsund bindi bóka. Bessí sagði að í lok fundar menntamálaráðs hefði verið sam- þykkt tillaga þar sem stjómin beinir VEÐUR frumvarp um nýjan útgáfusjóð. Hlutverk hans yrði að styrkja útgáfu bókmennta- og fræðirita. Gert ér ráð fyrir að verði tekjur af eignaupp- gjöri gangi þær upp í stofnfé sjóðs- ins. Minnihluti ráðsins tók þátt í öllum störfum nefndarinnar fyrir utan af- greiðslu mála. Þau voru því öll sam- þykkt með 3 atkvæðum meirihluta. Forsætisnefnd Alþingis fjallaði í gær um bréf minnihlutans í Mennta- málaráði, þar sem m.a. var farið fram á að Alþingi úrskurðaði um hver væri þeirra ábyrgð og ráðsins á þeirri ákvörðun að leggja Menning- arsjóð og starfsemi hajis niður. Full- trúar minnihlutans vitnuðu í bréfi sínu til þess að það væri á valdi Alþingis að leggja lögbundnar stofn- anir niður en ekki annarra. Forsætis- nefndin tók ekki afstöðu til þessa erindis. Að beiðni Kristínar Einarsdóttur alþingismanns voru málefni Mennta- málaráðs og Menningarsjóðs rædd utandagskrár í gær á Alþingi. Þor- steinn Pálsson, sem fer með emb- ætti menntamálaráðherra í fjarveru Ólafs G. Einarssonar, sagði það mis- skilning að verið væri að leggja Menntamálaráð niður. Hins vegar stefndi menntamálaráðuneytið að því að leggja bókaútgáfuna niður í því formi sem hún hefði verið og koma á nýrri skipan. Þorsteinn sagði að sérhver fulltrúi í Menntamálaráði bæri ábyrð á því Menningaijóður tæki ekki á sig fjár- skuldbyndingar umfram það sem fjárhagsáætlanir segðu til um. í gild- andi fjárlögum væri heimild um að semja um ráðstöfun eigna og skulda. Menntamálaráð hefði unnið í sam- ræmi við þessa- skýru lagaheimild. VEÐURHORFUR IDAG, 9. OKTOBER YFIRUT: Víðáttumikið 1035 mb háþrýstisvæði er yfir og suður af land- inu, en austan við Lófót er 975 mb lægð á austurieið. Lægðardrag er við Hvarf og hreyfist það norður yfir Grænland. SPÁ: Suðvestan- og vestanátt, víðast fremur hæg. Þokusúld við suðvest- urströndina, en að öðru leyti bjart og hið fegursta haustveður. Hitl 7-12 stig að deginum, en sums staðar vægt næturfrost. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG: Fremur hæg suðvestan- og vestanátt, skýjað og dálítil súld um landið vestanvert en bjart veður að mestu á Norður- og Austurlandi. Hlýtt í veðri, einkum austanlands. HORFUR Á MÁNUDAG: Snýst í norðan- og norðvestanátt og kólnar. Rigning eða skúrir norðanlands og vestan en úrkomulítið suðaustan- lands. Nýir veðurfregnatímar: 1.30. 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30, 22.30. Svarsfmi Veðurstofu íslands — Veðurfregnlr: 990600. Ó Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað V ^ V Skúrir Slydduél Él r r r * / * r r * r r r r r * r Rigning Slydda * * * * * * * * Snjókoma Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaðrimar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig., 10° Hitastig V Súld = Þoka itig.. FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30ígær) Sumarfæri er á öllum helstu þjóðvegum landsins. Ekkí er vitað um færö á hálendisvegum á norðanverðu landinu, má þar nefna Sprengisandsveg norðanverðan, sem er Eyjafjarðarfeið og Skagafjarðarleið, og ekki er vitað um færiá Gæsavatnaleið. Kjalvegur og Fjallabaksleiðir, nyrðri og Srðri, eru snjólausar og sama er að segja um Lakaveg. pplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í sfma 91-631500 og ígrænnilínu 99-6315. Vegagerðfn. VEÐUR IfÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hltl veður Akureyri 4 léttakýjað Reykjavlk 8 léttskýjaö Bergen 13 alskýjaö Helslnki 10 rigning Kaupnnannahöfn 16 skýjað Narssaraauaq 11 rigntng Nuuk 0 Í I Osló vantar Stokkhólmur 15 rigning á síð.klst. Þórahófn 11 rigning Algarve 20 léttskýjað Amsterdam 13 skýjað Barcelona 15 rigning Berlín 11 skýjað Chicago 13 skýjað Feneyjar 18 þokumóða Frankfurt 16 skýjað Glasgow 14 léttskýjað Hamborg 12 skýjað London 13 skýjað Los Angeles 13 þoka Lúíemborg 13 skýjað Madríd 19 skýjað Malaga 19 rigning Mallorca 23 alskýjað Montreal 8 léttskýjað NewYork 12 heiðskirt Orlando vantar París vantar Madelra vantar Róm 24 skýjað Vín 15 léttskýjað Washington 11 skýjað Winnlpeg +1 reykur Morgunblaðið/Árni Sæberg Sjúkraliðar krefjast samninga Sjúkraliðar fóru í kröfugöngu niður Laugaveginn í gær og söfnuðust saman á Austurvelli. Þar var Friðrik Sophussyni afhentur undirskrifta- listi þar sem skorað var á ríkisstjórnina að koma á viðræðum um nýja. kjarasamninga við sjúkraliða, en þeir hafa háft lausa samninga í hálft annað ár. Kristín Guðmundsdóttir, formaður Félags sjúkraliða, segir að félagið sé tilbúið að skrifa undir þjóðarsáttarsamningana óbreytta, en samninganefnd ríkisins hafi krafíst launalækkunar sjúkral- iða á landsbyggðinni, sem starfa eftir kjarasamningum sem gerðir voru við viðkomandi sveitarfélög, sem þá voru viðsemjendur sjúkral- iða. Sagði Kristín að laun sjúkraliða í Reykjavík væru allt að 15 þús- und kr. lægri en úti á Iandi. Ef lækká ætti laun þeírra til samræmis við laun sjúkraliða í Reykjavík, yrði ófaglært starfsfólk úti á landi með um 14 þúsund kr. hærri laun en sjúkraliðar. Eldri veðskuldabréf- um ennþá þinglýst DÆMI eru þess að þinglýst hafi verið veðskuldabréfum sem miðuðu við það dómskerfi sem gilti fyrir breytinguna á dómstólaskipuninni 1. júlí í sumar. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins eru dæmi þessa meðal annars frá Hafnarfirði, Akureyri og Reykjavík. Ný lög um aðför og nauðungar- Samkvæmt upplýsingum Morg- sölu tóku gildi 1. júlí en veðskulda- unblaðsins hefur þetta .ekki annað bréf sem vísuðu til eldri laga hafa í för með sér, en að sækja þarf verið í gangi eftir þann tíma og málið með tilvísun til eldri laga ef hefur verið þinglýst án athuga- vanskil leiða til aðfarar. semda. Borgarspítali Kjaradeila röntgen- tækna stendur enn SAMKOMULAG hefur enn ekki tekist milli röntgentækna á Borgarspítalanum og yfirmanna spítalans. Hafa röntgentæknar ákveðið að framlengja neyðar- vakt á spítalanum fram til kl. 16 í dag. Röntgentæknar á Borgarspítala komu saman til fundar í gær ásamt ráðgjafa frá Borgarspítala til að ræðá túlkun bréfs, sem spítalinn hefur sent þeim. Að sögn Guðrúnar Friðriksdóttur, formanns Röntgen- tæknafélags Islands, voru stjórn- endur spítalans ekki tilbúnir til að breyta bréfinu. Ákveðið var að leita eftir túlkun borgarlögmanns og er búist við hans áliti í dag. Bjamhéðinn Elíasson fv. skipsijóri látinn BJARNHÉÐINN Elíasson fyrr- verandi skipsljóri og útgerðar- maður í Vestmannaeyjum andað- ist á sjúkrahúsinu í Vestmanna- eyjum aðfaranótt fimmtudags- ins. Bjarnhéðinn var á 72. aldurs- ári er hann lést. Bjarnhéðinn fæddist á Oddhól í Rangárvallasýslu 27. ágúst 1921, sonur hjónanna Elíasar Steinssonar bónda á Oddhól og Sveinbjargar Bjamadóttur. Bjarnhéðinn fluttist ungur til Vestmannaeyja og bjó þar síðan. Hann stundaði sjómennsku alla sína tíð, bæði á togurum og bátum, en varð síðar skipstjóri og útgerðarmaður. Eftirlifandi eiginkona Bjarnhéð- ins er Ingibjörg A. Johnsen, en þau áttu fjögur uppkomin börn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.