Morgunblaðið - 13.11.1992, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1992
Tillögur til lausnar á vanda loðdýrabænda
Ríkissjóður leggi til
fé til greiðslu á lán-
um með ríkisábyrgð
HALLDÓR Blöndal landbúðarráðherra tilkynnti í gær um ráð-
stafanir til að leysa úr vanda loðdýrabænda. Gert er ráð fyrir að
Stofnlánadeild landbúnaðarins verði heimilt að falla frá allt að
helmingi af heildarskuldbindingum sem til hefur verið stofnað
vegna loðdýraræktar. Ríkisábyrgð á lánum sem veitt hafa verið
vegna skuldbreytinga er nálægt 300 mil\jónum króna og mun ríkis-
sjóður leggja fram fé til greiðslu á lánum með ríkisábyrgð.
í fyrirspumatíma á Alþingi í
gær upplýsti Halldór Blöndal sam-
gönguráðherra að samkomulag
væri innan ríkisstjómar og milli
stjómarflokkanna um tillögur til
að leysa vanda loðdýrabænda.
Leitað verði eftir því við Stofnlána-
deild Landbúnaðarins að aflað
verði nauðsynlegra heimilda til að
deildin geti fellt niður verulegan
hluta af lánum til loðdýraræktar.
Miðað verði við að sú niðurfelling
geti numið allt að helmingi af
heildarskuldbindingum sem til
hefur verið stofnað vegna loðdýra-
ræktar.
Ríkisjóði er ætlað að leggja
fram fé til greiðslu á lánum með
ríkisábyrgð. Landbúnaðarráð-
herra sagði að þau veð sem Ríkis-
ábyrgðasjóður hefði veitt vegna
lána til loðdýrabænda væra í flest-
um tilvikum einskis virði. Ríkis-
ábyrgð á lánum sem veitt hafa
verið vegna skuldbreytinga er ná-
lægt 300 milljónum króna.
Sjá einnig þingsíðu bls. 31.
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráð-
herra um fiskveiðistjómunina
Núverandi kerfi fái
lengri reynslutíma
ÞORSTEINN Pálsson sjávarút-
vegsráðherra telur ekki óeðli-
legt að gefa núverandi kerfí um
stjórn fískveiða lengri reynslu-
tíma svo hægt sé að meta raun-
verulega reynslu og árangur af
stjórnkerfinu. Núverandi kerfi
tók gildi með nýjum lögum í
ársbyijun 1991.
í fyrirspumartíma á Alþingi í
gær var Þorsteinn Pálsson sjávar-
útvegsráðherrá inntur eftir því
hvað liði starfí nefndar sem starf-
ar að endurskoðun laga um stjóm
fískveiða. Sjávarútvegsráðherra
sagði alkunnan ágreining stjómar-
flokkanna varðandi gjaldtöku af
sjávarútveginum hafa tafíð starf
nefndarinnar undanfarið.
Sjávarútvegsráðherra sagði það
sérstakt athugunar- og íhugunar-
efni hvort í raun og vera þyrfti
ekki mun lengri reynslutíma til
að meta árangur af núverandi
kerfí. „í reynd höfum við ekki í
höndum upplýsingar nema frá
einu og hálfu ári sem þetta núver-
andi kerfí hefur staðið," sagði
sj ávarútvegsráðherra.
Fyrirspyijandi, Alþýðubanda-
lagsmaðurinn Jóhann Arsælsson,
sagði það nú gerast sem menn
hefðu óttast. Sjávarútvegsráð-
herra ætlaði sér að framlengja líf-
daga þessa kerfís án þess að á
því yrðu neinar grandvallarbreyt-
ingar. Það væri gjörsamlega óvið-
unandi að svona væri staðið að
málinu.
Sjá einnig þingfréttir á blað-
síðu 31.
■? . ...
..
' '*/A
Morgunblaðið/Úlfar Ágústsson
Línubáturinn Jónína frá Flateyri á hliðinni við dráttarbraut Skipasmíðastöðvar Marzellíusar í gær.
Stoðir gáfu sig og línubátur
féll úr slippbraut á Isafirði
ísafirði.
LÍNUBÁTURINN Jónína frá Flateyri lagðist á hliðina þegar ver-
ið var að draga hann upp í dráttarbrautina hjá Skipasmíðastöð
Marzellíusar í gær. Svo virðist sem skorður undir bakborðshlið
hafí gefið sig. Sjö eða átta manns voru um borð þegar óhappið
varð en engan sakaði.
Óhappið varð klukkan rúm-
lega ellefu í gærmorgun við það
að stoðir undir bakborðssíðu
gáfu sig. Skipið lagðist hægt á
hliðina og færði við það sleðann
út úr braut sinni. Frystitogarinn
Júlíus Geirmundsson var nýkom-
inn til hafnar og tókst honum
að draga bátinn út úr slippnum
rúmum klukkutíma eftir óhapp-
ið.
Kafari skoðaði botn bátsins í
gær og virtist honum að engar
skemmdir hefði orðið nema að
flapsi við stýrið hefði bognað sem
olli því að ekki var hægt að
beygja nema 10 gráður í annað
borðið. Verið var að taka Jónínu
í slipp vegna Ieka á stefnisröri
og þar sem óhægt er um vik
með að sigla skipinu að öðrum
slipp verður reynt að laga sleða
dráttarbrautarinnar svo hægt
verði að taka það upp. Starfs-
menn skipasmíðastöðvarinnar
áttu ekki von á því í gær að það
tæki langan tíma.
Sjö eða átta starfsmenn stöðv-
arinnar, þar á meðal fram-
kvæmdastjórinn, og skipveijar
vora um borð. Þar sem skipið
lagðist mjög hægt á hliðina náðu
þeir allir að halda sér og gátu
verið um borð á meðan gengið
var frá dráttartaug frá togaran-
um og báturinn aftur dreginn á
flot.
Jónína er 106 lesta línubátur
sem keyptur var til Flateyrar frá
Færeyjum fyrr á árinu.
- Úlfar.
Samvinnulífeyrissjóðurinn eign-
ast þijár hæðir í Sambandshúsinu
Tekur fasteign Sambandsins á Kirkjusandi upp í skuldir
STJÓRN Sambands íslenskra
samvinnufélaga samþykkti á
fjögurra klukkustunda löngum
fundi sínum síðdegis í gær að
selja Samvinnulifeyrissjóðnum
þær þijár hæðir sem Sambandið
á í Sambandshúsinu við Kirkju-
sand. Þessi eign er bókfærð á
500 milljónir króna i síðustu árs-
skýrslu Sambandsins, en Sigurð-
ur Markússon, sljórnarformaður
Sambandsins, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær, að ákveðið
hefði verið á fundinum að upp-
Iýsa ekki kaupverðið að svo
stöddu.
Bankaráð Landsbankans sam-
þykkti á fundi sínum í gær þá
samninga sem Landsbankinn og
Sambandið undirrituðu í fyrradag,
Þýskaland Kkist félagslegri púður-
tunnu 35
Kveðja til Ágústu________________
Bréf til blaðsins frá _ Guðmundi
Jónssyni söngvara til Ágústu Ág-
ústsdóttur söngkonu 49
Ixiðari__________________________
Norrænt samstarf 26
Fasteignir
► Danmörk: Hvað kostar að
búa í húsinu? - Eldhúsvaskurinn
- Hætta á verðfalli? - Ileimatil-
búnar jólagjafir
Daglegt líf
► Um Bamasmiðjuna - Listahá-
tíð á ný í Babylon - Fóstur lifir
í látinni konu - Landskeppni
ijúpna - Spænskur sportbíll- Af
hæfni ökumannsins - Kúba
um yfírtöku Landsbankans á eign-
um Sambandsins að andvirði
2.513 milljónir króna. Sverrir Her-
mannsson, bankastjóri Lands-
bankans, sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær að bankaráðið hefði
samþykkt samningana samhljóða.
Stjóm Sambandsins samþykkti
einnig samningana á sínum fundi,
en þar féllu atkvæði þannig að
fjórir stjómarmanna vora samn-
ingunum samþykkir, einn var á
móti að sögn Sigurðar Markússon-
ar, og einn sat hjá. Sigurður sagði
að sex stjómarmenn af sjö hefðu
mætt til fundarins. Tveir stjómar-
menn hefðu verið fjarverandi, en
einungis annar varamaðurinn sem
boðaður hefði verið á fundinn,
hefði getað mætt. Hinn hefði verið
veðurtepptur norður í landi.
„Við samþykktum að selja Sam-
vinnulífeyrissjóðnum þessar þijár
hæðir sem við enn eigum í þessu
húsi hér,“ sagði Sigurður. Hann
sagði að ákveðið hefði verið á
fundinum að greina ekki frá því
verði sem um hefði verið samið
við Samvinnulífeyrissjóðinn að svo
stöddu, vegna þess að sjóðurinn
yrði með aðalfund sinn í næstu
viku og þar yrði kaupverðið vænt-
anlega gert opinbert.
Sigurður sagði að stjórnin hefði
ekki að öðra leyti fjallað um hvert
áframhald yrði á starfsemi Sam-
bandsins, en væntanlega færu
menn að huga að því innan tíðar.
» ♦ ♦
Spasskí og Fischer
Stefnt að heim-
sókn meistar-
anna í janúar
STJÓRN Skáksambands íslands
ákvað í gær að senda Bobby Fisc-
her og Borís Spasskí bréf þar sein
þeim verður boðið að koma hing-
að til lands í janúar næstkom-
andi. Að sögn Guðmundar G. Þór-
arinssonar forseta Skáksam-
bandsins er ekki aðalatriði að
skákkapparnir tefli hérlendis
enda skákhreyfingin þess ekki
megnug að standa undir miklum
verðlaunagreiðslum.
Guðmundur segir að tilefni boðs-
ins sé hátíðahöld vegna tuttugu ára
afmælis einvígis aldarinnar í Reykja-
vík árið 1972 og að fagna endur-
komu Fischers í skákheiminn. „Það
er ekki aðalatriði að þeir tefli, en
gaman væri að þeir tækju 1-2 skák-
ir, t.d. í sjónvarpi, og tefldu svo sína
skákina hvor við íslenska skák-
menn," sagði Guðmundur.