Morgunblaðið - 13.11.1992, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 13.11.1992, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1992 ----j--f----------j----------J--j--|----- Fáein orð um Gunnarsholt eftir Hönnu K. Jónsdóttur Mikið hefur verið rætt og ritað um samdrátt og atvinnuleysi í þjóð- félaginu að undanförnu og hvernig beri að bregðast við þessum vanda. Sparnaður og hagsýni hefur Iöngum verið talið til dyggða, og verður að líta á þjóðarbúskapinn sem heild þ.e.a.s. eitt stórt heimili byggt upp af mörgum smáum. Rík- isbúskapurinn er nefnilega byggður upp af skattborgurum og fjölskyld- um þeirra. Hagsýni í ríkisfjármál- um er því hagsýni ríkisborgarans. Því betur sem ríkisfyrirtæki eru rekin þeim mun minni skattáálagn- ing eða þannig ætti það að vera. Nú hafa verið uppi raddir um það, að kannski megi fækka ríkisrekn- um stofnunum og fyrirtækjum.. Leggja meira í hendur einstak- linga og félagssamtaka. Eitthvað er um að svo hafi verið gert og telja hinir hagfróðu það vera hag heildarbúsins. Eflaust er það rétt að vissu marki. Þetta verður þó að gerast með varfærni. Huga verður vel að því að ekki sé verið að kasta krónunni og spara aurana. Gunn- arsholt er eitt þeirra heimila sem farið hefur fyrir bijóstið á fjáp/eit- ingavaldinu þessa dagana. Það er tilefni þess að mér fínnst ástæða til að taka upp penna og segja mitt álit á þessum málum nú. Ég er nefnilega ein þeirra sem hef í raun kynnst starfsemi sem þar fer fram. Ég hef átt notaleg samskipti við það ágæta fólk sem þar starfar. Ég vill gefa því mín bestu meðmæli. Mér finnst starf og heimilishald allt á Gunnarsholti vera starfsmönnum þess og þjóð- inni til mikils sóma. Reynt hefur verið að gera aðbún- að sem heimilislegastan og hlýleg- astan. Það hefur tekist svo vel að manni finnst maður koma inn á stórt notalegt einkaheimili þegar maður kemur þangað. Það er ekki lítils virði þegar á það er litið að vistun fólks þar er langtímavistun a.m.k. allmargra sem þangað vist- ast. Margir hveijir heimilislausir sem hafa misst jafnvel ættingja og vini sína alla. Reynt er að líkja heimilishaldi sem næst því að um stóra kjarna- fjölskyldu væri að ræða. Ég veit að hagsýni húsmóðurinnar gætir í heimilisrekstri en nú nýlega tók hún 150 slátur, kjöt í stórum stíl til söltunar o.fl. sem hagsýn hús- móðir lítils heimilis gerir heimili sínu til búbóta á haustin. Hvað heilsufars- og félagslega þáttinn varðar veit ég að þarna starfar vel menntað og þjálfað starfsfólk. Því hefur tekist vel að mæta þörfum skjólstæðinga sinna og komið inn í meðvitund þeirra að allir menn eru mikils virði þó að þeir hafi stigið skrefið út af réttri lífslínu þá sé hægt að kom- ast inn á hana aftur. Vistmenn hafa fengið þarna verkefni við sitt hæfi þ.e.a.s. þeir sem vilja vinna skapandi störf. Iðnverkstæði er á •heimilinu t.d. hellusteypa og ein- hver annar smá iðnaður. Þessi störf skapa verðmæti. Varan selst vel sem framleidd er þarna. Starfið styrkir svo sjálfsmeðvitund vist- manna og einnig vitundina um að einhver hafi þörf fyrir þá og verk þeirra. Þessi þáttur er mjög mikil- vægur sálfræðilega séð að maður sé látinn finna að maður sé ein- hveijum einhvers virði og maður geti verið gagnlegur. Þetta er að hluta til það starf sem unnið er að í Gunnarsholti og hefur tekist vel. Fagleg þjónusta, læknisfræðileg og hjúkrunarfræðiþjónusta hefur verið í góðum höndum faglærðs fólks ríkisspítalanna. Við megum ekki horfa framhjá því að sá þáttur „Sannfæring mín er sú að við samdrátt í varn- arstarfi áfengis- og fíkniefnaneytenda sé raunverulega verið að kasta krónunni en spara aurana.“ er mjög mikilvægur fyrir þá ein- staklinga sem vistast að Gunnars- holti. Áfengis- og fíkniefnaneytendur eru í þeim hópi fólks sem gætir lítt heilsu sinnar. ' Heilsufarsleg vanræksla þessa einstaklinga er oft gífurleg. Fólk er fársjúkt bæði lík- amlega og andlega þegar því dettur í hug að fara að leita sér hjálpar vegna fíkniefnaneyslu. Þessi þáttur í þjónustunni er mjög mikilvægur. Oft þarf að byija á því að byggja einstakinginn upp heilsufarslega með ýmsum rannsóknum og lyfja- meðferð áður en tekist er á við fíkn- ina. Nú hafa verið uppi raddir um tilboð Hvítasunnumanna til að taka við rekstri og væntanlega meðferð þeirra sem að vistast á Gunnars- holti, þar skal reka hallalausa starf- semi. Ekki veit ég hvort einhver halli er á heimilinu í núverandi formi eða hversu mikill hallinn er ef hann er einhver, en ég vil benda á að varan sem framleidd er þar er vel seljanleg, verðmætasköpun sem kemur þá á móti. Ekki hef ég heyrt neinar raddir um það með hvaða hætti heimilið verður rekið ef um breytt fyrir- komulag verður að ræða eða hvaða þjónusta er í boði til að bæta líkam- legt og sálarlegt heilsufarstjón þeirra sem þar dvelja. Raddir hafa verið uppi um meiri samdrátt innan heilsugæslu fíkni- efnaneytenda svo sem eins og að Hanna K. Jónsdóttir loka þurfi vist- og meðferðarheimil- inu að Vífilstöðum sem hýsir þó ekki nema rúmlega 20 einstaklinga til meðferðar. Það er skaði skeður þegar svona er ástatt i velferðarþjóðfélagi þar sem þörfin er brýn fyrir þjónustu þeirra einstaklinga sem mörgum fínnst vera olnbogabörn lífsins og BRÆÐUR í Hafnarfirði, annar fimmtugur en hinn 46 ára, hafa verið kærðir til Rannsóknalög- reglu ríkisins fyrir meint kyn- ferðisafbrot gegn nokkrum pilt- um, 15 til 17 ára. Kæran var lögð fram í síðasta mánuði og er rann- sókn málsins vel á veg komin en engar játningar um brot liggja fyrir, samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins. Hinir kærðu hafa ekki setið í gæsluvarðhald undir rannsókn málsins. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins munu kærurnar einkum lítils mega sín í mannlegu samfé- lagi. Sannfæring mín er sú að við samdrátt í varnarstarfi áfengis- og fíkniefnaneytenda sé raunverulega verið að kasta krónunni en spara aurana og kemur það þá fram í því að fleiri einstaklingar ráfa um götur ráðvilltir án þess að gera neitt raunhæft í sínum málum. Þeir vita ekki hvað þeir eiga að gera eða hvar þeir eiga að vera, innbrotum fjölgar o.fl. í þeim dúr. Það er vitað að afbrot og ofbeldi tengist oftast vímuefnum. Heimilið að Gunnarsholti er vel rekið og nauðsyn er á því að starfsemin verði áfram og einnig að Vífilstöð- um. Vona ég því að fjárveitingavaldið beri gæfu til þess að finna leiðir til þess að reka Vífilstaði áfram sem meðferðarstofnun vímuefna- neytenda. Einnig er það von mín að sú tillaga sem nú liggur fyrir á Alþingi um breytingar á rekstri heimilisins að Gunnarsholti nái ekki að fara í gegn. Reksturinn þar verði sá sami og verið hefur. Ann- að væri óraunhæft. Höfundur er lýúkrunarfræöingur. beiriast gegn öðrum bræðranna sem talinn er í einhveijum tilvikanna hafa veitt piltum, sem flestir munu búa við erfiðar aðstæður, húsaskjól til að stunda drykkju gegn kynferð- islegu sambandi af einhveiju tagi. Að minnsta kosti einn piltanna sem við sögu koma hefur ekki fullan andlegan þroska, að því er heimild- ir Morgunblaðsins herma. Fleiri en einn aðili hefur lagt fram kærur í þessu máli, þar á meðal mun ein þeirra eiga rætur að rekja til félags- málayfirvalda í Hafnarfírði. Bræður sakaðir um brot gegn unglingspiltum ...BÆTA TM TRYGGINGAR TJÓNIÐ! 4 Tryggingamiðstöðin hefur starfað á íslenskum vátryggingamarkaði í áratugi og er nú þriðja stærsta vá- tryggingafélag landsins. Félagið er leiðandi í fiskiskipatryggingum landsmanna, en býður einnig allar almennar vátryggingar fyrir einstaklinga svo sem bifreiða-, fasteigna- og fjölskyldutryggingar. í nýlegri könnun kom fram sterk staða Tryggingamiðstöðvarinnar í allri þjónustu við viðskiptavini sína, t.d. símaþjónustu, upplýsinga- gjöf og persónulegri þjónustu. Við erum sveigjanleg í samningum, bjóðum góð greiðslukjör og sann- gjarna verðlagningu. Hafðu samband við sölumenn Tryggingamiðstöðvarinnar í nýjum húsakynnum í Aðalstræti 8, sími 91-26466 eða næsta umboðs- mann og kynntu þér góð kjör á TM tryggingum. TRYGGINGA MIÐSTÖÐIN HF. Aöalstræti 6-8, sími 91-26466 4 YDDA F16.3/SÍA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.