Morgunblaðið - 13.11.1992, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1992
33
Ljósmyndir af Breiðfirðingum,
Strandamönnum og fleirum
ÞJÓÐMINJASAFNIÐ gengst fyrir
sýningu á óþekktum ljósmyndum
úr ljósmyndasafni feðganna Jóns
Guðmundssonar (1870-1944) og
Guðmundar Jónssonar (1900-
1974) frá Ljárskógum í Dölum.
Sýningin verður haldin í Bogasal
safnsins dagana 14.-22. nóvember
á almennum opnunartíma þess. Opið
er laugardaga til sunnudaga, þriðju-
Ein þeirra mynda sem sýnd er í Bogasal Þjóðminjasafnsins.
daga og fímmtudaga frá kl. 12-16.
Jón Guðmundsson lærði ljósmynd-
un hjá Sigfúsi Eymundssyni í lok
síðustu aldar og stundaði ljósmyndun
frá því rétt fyrir aldamót og fram
eftir öldinni. Hann starfaði fyrst og
fremst í Dalasýslu en ferðaðist einn-
ig víða um Vesturland og Vestfírði
og tók myndir. Þegar Jón hætti
myndatökum skömmu eftir 1925 tók
sonur hans Guðmundur við en hann
lærði ljósmyndun hjá bæði föður sín-
um og Jóni Kaldal. Myndasafn þeirra
feðga var afhent Þjóðminjasafni ís-
lands árið 1968. Það kom óskráð til
safnsins og því er brýrit að allir þeir
sem telja sig geta veitt upplýsingar
um myndefnið leggi leið sína í safnið
og kanni hvort þeir geti borið kennsl
á þau andlit sem þar eru sýnd.
(Fréttatilkynning)
Vopnið snýst í hendi
Tveir glaðbeittir um stund. Leikstjóri og stjarna Boomerang,
Reginald Hudlin og Eddie Murphy.
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Háskólabíó: Boomerang. Leik-
stjóri Reginald Hudlin. Handrit
Barry Blaustein og David Sheffi-
eld. Tónlist Marcus Miller. Aðal-
leikendur Eddie Murphy, Robin
Givens, Halle Berry, David Alan
Grier, Grace Jones, Ertha Kitt.
Bandarísk. Paramount 1992.
Kastvopnið sem nýjasta mynd
gamanleikarans Eddie Murphy
dregur nafn sitt af (og nefnist bjúg-
verpill á því ylhýra, og ekki orð
meira um það) býr yfír þeim ágæta
eiginleika að sveigja aftur á vit
kastarans ef það missir marks. Þá
sjálfsagt eins gott að verða ekki
fyrir höggi. Og þetta er inntakið í
myndinni og árangur stjörnunnar.
Því hér segir frá hinu ómótstæði-
lega kvennagulli, stertimenni og
markaðssnillingi sem vefur hverri
konu um hvem sinn fíngur uns
hann kynnist nýja yfirmanninum
sínum (Givens). Hún tekur nefni-
lega framann fram yfír ástina og
kemur fram við Murphy á sama
hátt og hann hefur afgreitt vinkon-
ur sínar til þessa.
Hér hefur Murphy ætlað að
breyta ímynd sinni, í það minnsta
sýna á sér nýjar hliðar. En vopnið
missir marks og kemur höggi á
kastarann sem fyrr segir. Því
Murphy breytist lítið. Hann er sami
strokni, ofursvali fímmaurabrand-
arakarlinn og í síðustu myndum
sínum. Hann má vissulega gæta
sín. Þó svo að enginn efíst um
ágæti hans á góðum degi sem gam-
anleikara þá eru það fyrstu þijár
myndir hans sem bera nafn hans
uppi í dag í kvikmyndaheiminum.
Það eru „48 Hours“, „Trading Plac-
es“ og „Beverly Hills Cop“, en það
er liðinn tæpur áratugur síðan sú
ágæta mynd var frumsýnd. Síðan
hefur hver meðalmyndin (og þaðan
af slakari) rekið aðra; „Another
48 Hours“, „Beverly Hills Cop II“,
„Best Defense", „Coming To Am-
erica“, „The Golden Child“, „Harl-
em Nights". Ekki er listinn gæfu-
legur og engin furða þótt stjarnan
reyni nú að fá fersk tromp á hendi.
En hann brennir sig á tvennu:
Bæði er framkoma hans á sömu
nótum og í fyrri myndunum, glað-
beittur rembingurinn er farinn að
fara fyrir bijóstið á almenningi sem
og þessi dýrðarljómi sem hann bað-
ar sig orðið í hvað snertir búninga
og sviðsmyndir, orðagjálfur og fé-
lagsskap. En öllu verri þáttur er
handritið sem er lítið meira en
þokkaleg hugmynd og örfáar með-
alskrýtlur. Því það smáþynnist út
í sápuóperú af því tagi sem ber
fyrir augu sjónvarpsgláparans á
hveiju kvöldi. Þá er leikstjórnin
ósköp hugmyndasnauð en leikkon-
umar stela senunni frá nöglunum.
Hættulegur heimilisvinur
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Friðhelgin rofin („Unlawful
Entry“). Sýnd í Bíóborginni.
Leikstjóri: Jonathan Kaplan.
Framleiðandi: Charles Gordon.
Aðalhlutverk: Kurt Russell,
Madeleine Stowe, Ray Liotta og
Roger Mosley.
Þegar brotist er inn hjá hjónun-
um Kurt Russell og Madeleine
Stowe í spennumyndinni Friðhelgin
rofín koma hjálplegir lögreglumenn
á vettvang og róa þau. Einn þeirra,
leikinn af Ray Liotta, gerist upp
úr því heimilisvinur þeirra. Hann
er einmana einstæðingur sem hjón-
in hálft í hvoru sjá aumur á. Þegar
hann tekur að sýna eiginkonunni
meiri áhuga en gott þykir sýður
upp úr en í stað þess að hverfa
tekur hann að ásækja hjónin og
'gera þeim allt til miska.
Og hann er snjall, honum tekst
næstum að snúa eiginkonunni gegn
manninum, gerir hann mjög tor-
tryggilegan í hópi kaupsýslumanna
sem eiginmaðurinn skiptir við og
gerir hann jafnvel að glæpamanni.
Og hvað eiga hjónin að gera?
Hringja í lögguna? Hann er lögg-
an, hefur verið heiðraður og er
sérstaklega fær í starfí sínu. Það
virðist engin leið að gera hann
óvirkan.
Klikkun; úr myndinni Friðhelg-
in rofin.
Ray Liotta er fantagóður sem
illmennið í þessum vel gerða, ágæt-
lega leikna og á endanum afar
spennandi ofsóknartrylli, sem Jon-
athan Kaplan („The Accused") leik-
stýrir. Liotta hefur áður fengist við
óþokka kvikmyndanna og hefur
náð frábæru taki á þeirri tegund
sem eina stundina er besti vinur
manns og innilegheitin uppmáluð
en þá næstu morðóður bijálæðing-
ur. Hann á jafnauðvelt með að
heilla Stowe upp úr skónum með
sakleysislegu yfirbragði og að sýna
í sér geðsýkislegan ofbeldismann-
inn í viðskiptum sínum við Russell.
Á líkan hátt og Michael Keaton
tryllti hjónin í „Pacifíc Heights"
og áhorfendur með, gengur Liotta
fram af áhorfandanum þangað til
hann óskar honum alls hiris versta.
Myndin fer aldrei út í að skýra
hvað gert hefur persónu Liotta að
því sem hún er. Spennumyndir
dagsins virðast hafa alið áhorfend-
ur upp þannig að hægt er að stytta
sér leið að þessu leyti; menn gleypa
alla klikkun hráa eða þá að hraðinn
er svo mikill að áhorfandinn fær
aldrei tækifæri til að líta til baka
fyrr en hann er kominn út á götu
aftur.
Russell og Stowe eru einnig
ágæt í hlutverkum hjónanna sem
brenna sig á því að vingast við
mann sem er þeim fullkomlega
ókunnugur og vara sig ekki á tor-
tryggninni sem hann sáir á milli
þeirra. Kaplan sleppir aldrei hé?id-
inni af spennugjafanum og byggir
upp stigmagnandi átök persónanna
með sífellt hraðari klippingum og
æ meira ógnvekjandi lýsingu og
myndatöku. Allt er hér mjög fag-
mannlega af hendi leyst til að
tryggja góða og vandaða afþrey-
ingu. Það vantar kannski dýpt í
Friðhelgin rofín en hún er spennu-
mynd í gæðaflokki og dregur mann
fram á sætisbrúnina áður en maður
veit af.
Basar Kvennadeild-
ar Rauða krossins
Kvennadeild Reykjavíkurdeildar
Rauða krossins heldur hinn árlega
basar sinn í Félagsheimili Fóst-
bræðra á Langholtsvegi 109-111
sunnudaginn 15. nóvember og hefst
hann kl. 2 e.h. Þar verða konur með
á boðstólum handavinnu, heimabak-
aðar kökur og fleira. Allur ágóðinn
rennur til bókakaupa fyrir sjúklinga-
bókasöfn spítalanna.
Flóamarkaður Lions-
klúbbsins Engeyjar
UM helgina mun Lionsklúbburinn Engey halda sinn árlega flóamarkað
í Lionsheimilinu við Sigtún 9 í Reykjavík. Vegna mikillar aðsóknar
undanfarin ár, en þetta hefur verið árlegur viðburður frá 1985, mun
flóamarkaðurinn standa bæði laugardaginn 14. og sunnudaginn 15. frá
kl. 14-17 báða dagana.
Á boðstólum verður aðallega fatn- varið til styrktar Blindrabókasafn-
aður, bæði notaður og nýr. Allur inu, Endurhæfíngarstöð hjarta- og
ágóði af flóamarkaðinum rennur til lungnasjúklinga, Gigtarfélagsins,
líknarmála og má nefna að ágóða Krýsuvíkursamtakanna o.fl.
af flóamarkaði síðasta árs var m.a. (Úr fréttatiikynningu)
yMIKUGlRDUR
VIÐ SUND
HVÍTA HÚSIÐ / SÍA